Tíminn - 28.03.1973, Síða 2
2
TÍMINN
Miövikudagur 28. marz 1973
Snjómunstur
fyrir
1000X20
1100X20
Snjó
hjólbaroa
með djúpum
slitmiklum munstrum
Seljum
sólaða
hjólbarða
með
ýmsum
slitflatar
munstrum
á fólksbíla
jeppa
og vörubíla
BAROINN
Ármúla 7 • Reykjavík • Sími 30501
Höfum á boðstólum mikið úrval gardínustanga bæði
úr tré og járni. Einnig nýja gerð af viðarfylltum
gardínubrautum. Kappar í ýmsum breiddum, spón-
lagðir eða með plastáferð í flestum viðarlíkingum.
Sendum gegn póstkröfu.
Gardínubrautir h/f Brautarholti 18,s. 20745
Útboð
Framkvæmdanefnd byggingaáætlunar
óskar eftir tilboðum i eftirtalda verkþætti
við byggingu 314 ibúða i Breiðholtshverfi i
Reykjavik:
1. Máluu úti og inni.
2. Eldhúsinnréttingar.
3. Skápar.
4. Inni- og útihurðir.
5. Stigahandriö.
<>. Gler.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu FB. Lágmúla 9,
Reykjavik, gegn 5 þúsund króna skilatryggingu. Tilboð
verða opnuð þriðjudag 10. april, 1973, kl. 14.00 á Hótel
Esju.
Vinnan — atvinnulýðræði
Sæll Landfari.
Það er til manns að moka, þar
sem þú ert, þvi að þar er ekki um
neina ritskoðun að ræða. Við þíg
er hægt að segja það, sem hverj-
um og einum i hug kemur, hvort
sem þaö samrýmist stefnu og
starfi þess stjórnmálaflokks, sem
að þér stendur, eða ekki. Það
frjálslyndi er góðra gjalda vert,
og ætti sem viöast að vera, hjá
landsmálablöðum. Eg sendi þér
nú hér með minar hugdettur, að
gefnu tilefni, og reyni að vera
stuttorður, þótt málefnið sé yfir-
gripsmikið.
1 gærkvöld hlustaði ég á i sjón-
varpinu umræður um þýðingar-
mikið þjóðfélagsmál, sem nefnt
var „Vinnan — atvinnulýðræði”,
sem Baldur óskarsson stjórnaði,
með þátttakendum liklega úr
fjórum landsmálaflokkum, og
nokkrum innskotsorðum frá
starfsfólki á vinnustöðum. Ég
held, að þeir sem hlýddu á þetta
40 minútna spjall þessara fjór-
menninga, hafi hlotið að vera
jafnnær um málið, að þessum
umræðum loknum, a.m.k. var ég
það. Þessir aðilar virtust allir
vilja sem minnst, láta i ljósi
skoðanir sinar á kjarna málsins,
heldur fara i kring um hann með
orðagjálfri, eins og köttur i kring
um heitan graut. Það var helzt
Axel Kristjánsson, sem þar
komstnæst, en hann fékk tæplega
að tala sig út, að þvi er mér virt-
ist. Sjálfsagt hefur þó sjónvarpið
greitt þessum mönnum gott tima-
kaup fyrir að koma þarna fram,
og láta þessa „Saltvikurtýru”
sina skina.
„Vinna, atvinnulýðræði”. Það,
sem i þeim hugtökum felst, er eitt
þýðingarmesta þjóðfélagsmál
nútimans, og þvi vissulega vert
rtiufi
Fyrirligg jandip ^ I
væntanlegt L
Nýjar birgðir M aí |
teknar |
heim vikulega
Spónaplötur 8 25 mm
Plasthúðaðar spóna-
plötur 12-19 mm
Harðplast
Hörplötur 9 26 mm
Hampplötur 9-20 mm
Birki-Gabon 16-25 mm
Beyki-Gabonl6 22 mm
Krossviður:
Birki 3-6 mm, Beyki
3-6 mm, Fura 4-12 mm
HaFötex með rakaheldu
limi 1/8' '4x9'
Harðviður:
Eik (japönsk, amerisk,
áströlsk), Beyki
(júgóslavneskt, danskt),
Teak, Afromosia, Iroko,
AAaghony, Palisander,
Oregon Pine, Gullálmur,
Ramin, Abakki, Amerísk
hnota, Birki 1 og 1/2"
til 3", Wenge
Spónn: Eik, Teak, Pine,
Oregon Pine, Fura,
Gullálmur, Álmur, Beyki,
Abakki, Askur, Afromosia,
Koto, Amerisk hnota,
AAaghony, Palisander,
Wenge
Verzlið þar sem
úrvalið er mest
og kjörin bezt
JÓN LOFTSSON HF.
Hringbraut 121 fö110 600
gaumgæfni, og skoðanaskipta,
ásamt skýringum og fyrirkomu-
lagstillögum þeirra, sem kröfurn
ar gera um þessi réttindi. En
þeim verður að skiljast það
höfuðlögmál tilverunnar, að öll-
um réttindum fylgja skyldur, ef
vel á að fara, og það tvennt er
óaðskiljanlegt. Sigurjón Péturs-
son skaut þvi fram, að launafólk
ætti réttinn til að ráða atvinnu-
fyrirtækjunum, og eiga þau, en
hann minntist ekki á neinar
skyldur, i þvi sambandi, frekar
en þær væru ekki til. A móti þess-
um ummælum, skal ekki' borið
hér, út af fyrir sig, en skyldurnar
hljóta að fylgja.
Það er óumdeilanleg stað-
reynd, að „vinna” bæði hugar og
handa, skapar öll verðmæti
þjóðarbúsins, og þar verða allir
heilbrigðir þegnar samfélagsins
sitt fram að leggja, ef það á að
geta staðið á eigin fótum. Hann
hefir ekki látið að sér hæða gegn
um aldirnar, dómurinn, sem
Biblian segir að Guð hafi upp
kveðið yfir Adam og öllum hans
afkomendum, er hann var rækur
gerrúrEden-garði: „Isveita þins
andlits skalt þú og þinir afkom-
endur brauðs þins neyta”.
Þa virðist nú komið svo, fyrir
kröfufrekju almennings til lifs-
gæðanna, á öllum sviðum, og til-
stuðlan stjórnarvalda, að undir-
staða framfærslu og lifsgæða
okkar þjóðfélags, atvinnuvegirn-
ir, hanga á hári, ef svo má segja,
og er raunar haldið uppi að
nokkru með lögskipaðri færslu á
mili vasanna, og ráni á sparifé og
opinberum sjóðum þjóðfélags-
þegnanna, þ.e. verðgildi þess.
Hvað þetta öngþveiti, sem á finu
máli er kallað „verðbólga”, getur
lengi gengið, táknast með stóru
spurningarmerki. En helzt má
likja þvi við snjókúlu, sem börn
hafa stundum að leik að velta
áfram i blautum snjó, þar til hún
er orðin svo stór og þung, að þeim
er ofurefli.
Það er vist ekki svo mikið
keppikefli fyrir einstaklinga,
eða smá hlutafélög, að fást viö
atvinnurekstur nú á dögum, eins
og allt er i pottinn búið, þótt það
sé þjóðfélagsleg nauðsyn, — að
verkafólkið o.fl. geti ekki komizt
að, til að stofna og reka fram-
leiðsu-atvinnufyrirtæki, á grund-
velli atvinnulýðræðis, ef fólkið
hefir á þvi nokkurn áhuga, annars
er tómt mál um þetta að tala.
Ég skal nú setja hér upp dæmi
um atvinnufyrirtæki, sem starf-
aði á þessum umrædda lýðræðis-
grundvelli, með þvi skipulagi,
sem ég mundi telja heilbrigðast,
og mest til langlifis. Þetta er eng-
in ný aðferð, hér á landi, heldur
þrautreynd, að visu á öðru sviði
a.n.l., og ávallt vel gefizt, en oft
ast valdið vandræðum, ef út af
hefir verið brugðið.
Við skulum hugsa okkur, að
starfsfólk við fiskiðjuver einhvers
staðar á landinu yfirtæki fyrir-
tækið, með öllum þess gögnum,
með samningum við eiganda tií
reksturs á eigin ábyrgð. Starfs-
fólkið kysi sér stjórn, úr sinum
hópi fyrir fyrirtækið árlega.
Stjórnin réði svo framkvæmdar-
stjóra með vissum tilteknum upp-
sagnarfresti af beggja hálfu
o.s.frv. Kerfið við reksturinn væri
i höfuðdráttum þannig, að viku-
lega væri öllu starfsfólinu, frá
toppi til táar, greitt út 80%. af
gildandi umsömdu taxtakaupi.
Sjómennirnir, sem öfluðu og
leggðu til hráefnið, til vinnslunn-
ar, væru lika aðilar að fyrirtæk-
inu, og fengju greitt 80% af sinu
innleggi. Þegar svo reikningur
hvers árs væri uppgerður, kæmi
rekstursafgangurinn til úthlutun-
ar, hlutfallslega, á vinnulaun og
verðmæti hráefnis, samkvæmt
ákvörðun ársfundar félagsins.
Kjósi menn fremur hlutafélags-
form á starfsemina kemur arður-
inn á hlutaféð, ef um slikt er að
ræða, þegar fullum launum og
hráefnisverði er náð. Svona fyrir-
komulag skapar mikið atvinnu-
öryggi, og raunhæft lýðræði. Og
eftir fyrsta starfsárið ætti að
jafnaði raunverulega að koma til
fullra skila verðmæti þess, sem
fram er lagt. En stöðug og örugg
atvinna er ekki litils virði. Þetta
ætti lika að geta komið i veg fyrir
hin leiðu og erfiðu kaupkröfu-
verkföll, þvi að eitthvað væri það
öfugsnúið, ef menn færu að gera
verkfall á sjálfa sig.
En að ætla sér að taka alla
stjórn á starfsemi atvinnufyrir-
tækja, án fjárhagslegrar ábyrgð-
ar m.m., eins og liggja virðist
ofarlega hjá a.m.k. sumum þeim,
sem telja sig og liklega eru for-
svarsmenn launafólksins i land-
inu, er frá minum bæjardyrum
séð, ekkert annað en ofbeldi,
sem er fyrirfram dæmt til að
renna út i sandinn, þvi það er
afturábakganga i átt til frum-
menskunnar.
Ég býst nú ekki við, að þessar
hugdettur minar, sem ég set hér á
þetta blað, hljóti mikinn hljóm-
grunn hjá launafólki eða foringj-
um þess, þvi svo mikið hef ég lært
i sálarfræði og mannþekkingu
yfirleitt á löngum lifsferli, að ég
geng þess ekki dulinn. En hug-
myndir, á einn og annan veg, eiga
alltaf rétt á sér, þar sem lýðfresi
rikir.
Þvi miður býst ég við, að eftir-
farandi visukorn eigi nálega eins
við i dag og fyrir rúmum 100 ár-
um, þegar hún varð til.
„Hver vill annars eigum ná
um einskiling og dalinn.
Menn eru að toga og ýtast á
unz þeir falla i valinn.”
En skynsamlegt er það ekki.
Raufarhöfn 28. febrúar 1973.
Hólmsteinn Helgason
c co
:0
MO 00
xO
o>
E
'8
SOKHSK
3 AFGEYKAli
Jafngóðir
þeim beztu
Viöurkenndir af Volkswagenverk AG í
nýja VW-bila, sem fluttir eru til lands-
ins.
Yfir 30 mismunandi tegundir 6 og 12 v
jafnan fyrirliggjandi — 12 mánaða
ábyrgö.
Viögeröa og ábyrgðarþjónusta Sönnak-
rafgeyma er aö Laugavegi 168 (áöur
Fjöörin) — Simi 33-1-55.
ARMULA 7 - SIMI 84450