Tíminn - 04.04.1973, Blaðsíða 2

Tíminn - 04.04.1973, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Miövikuilagur 4. april. 1973 Veljið yður í hag OMEGA Nivada JUpincL Magnús E. Baldvínsson Laugavegi 12 ~ Sími 22804 úrsmíði er okkar fa ■ IH Ifi! Iw ||3lillf 111. Atvinna óskast Bifvélavirki með þúsund hestafla vél- stjóraréttindi óskar eftir atvinnu úti á landi eftir 15. mai. Margt kemur til greina. — Hef meirapróf bilstjóra. Tilboð sendist blaðinu merkt 1908. Ádrepa úrSkagafirði KARLAKÓRINN Heimir i Skaga- firði minntist 45 ára afmælis sins 24. febr. s.l. að félagsheimilinu i Miðgarði við Varmahlið. A þess- ari afmælishátið hafði stjórn karlakórsins forgöngu um að heiðra þrjá af stofnendum kórsins með þvi að tilnefna þá sem heið- ursfélaga hans. Þessir þrir menn eru enn starfandi með kórnum. Það lýsir smekkvisi og háttvisi, sýnir einnig hugkvæmni og félagsþroska, að meta og virða störf þeirra samferðamanna, er svo lengi hafa verið brautryðj- endur og burðarásar i sönglifi sveitar sinnar og héraðs. Ekkert er eðlilegra én að félagsskapur, 4. Fulltrúafundur Landssamtaka klúbbanna ÖRUGGUR AKSTUR veröur haldinn aö HÓTEL SÖGU dagana 5. og 6. apríl 1973, og hefst í LÆKJARHVAMMI fyrri daginn Kl. 12.00, með sameiginlegum hádegisverði, og ávarpi Ásgeirs Magnússonar, framkvæmdarstjóra. Auk venjulegra aðalfundarstarfa samkvæmt félagslögum, verða flutt erindi og ávörp. Flytjendur fyrri daginn eru: Hannibal Valdemarsson, Samgöngumálaráöherra, sem flytur ávarpsorð og svarar fyrirspurnum. Pétur Sveinbjarnarson, framkv. stj. umferðaráðs.: "FRAMTÍÐARVERKEFNI I UMFERÐAMÁLUM“ Haukur Kristjánsson, yfirlæknir,: ”UMFERÐASLYS-ORSAKIR OG AFLEIÐINGAR“ Helgi Hallgrímsson, verkfræðingur,: ”HRINGVEGURINN UM LANDIГ Haukur Hafstaö, framkvæmdastjóri, Landverndar. ”MAÐUR OG NÁTTÚRA" Hannibal Pétur Haukur Helgi Haukur Kristinn Kjartan Stefán Síðari daginn Kristinn Björnsson, sálfræðingur ”SÁLARÁSTAND ÖKUMANNSINS“ Kjartan Jóhannsson, læknir, form. F.Í.B.: ”BÍLEIGANDINN í ÞJÓÐFÉLAGINU“ Stefán Jasonarson, bóndi í Vorsabæ, form. L.K.L: ”Á ÉG AÐ GÆTA BRÓÐUR MÍNS“ Eftir hvert erindi verða umræður og fyrirspurnir. Stjórn Landssamtaka klúbbanna ÖRUGGUR AKSTUR LKL sem er menningarlegs eðlis, hafi i vissum tilvikum áhuga á þvi að heiðra einstaka félaga sina og sýna þeim þakklætisvott í verki, á merkum timamótum, hafi þeir til þess unnið meö störfum sinum. Viðurkenning á mikilvægu starfi er þvi að gera menn að heiðurs- félögum i samtökum sinum eins og hér var gert. Óslitinn starfs- ferill Karlakórs i 45 ár er löng ævi i slikum félagsskap og myndar utan um sig merka sögu. Að öllum þeim mönnum ólöstuðum, sem skapað hafa tilverurétt karlakórsins Heimir og mótað vöxt hans og viðgang á langri starfsævi, er einn af stofnendum hans og fyrrverandi söngstjóri, sem á þar stærstan og veigamest- an þátt, en þessi maöur er Jón Björnsson bóndi og tónskáld á Hafsteinsstöðum i Skagafirði. Hann lét af störfum hjá kórnum seint á árinu 1968 og hafði þá verið söngstjóri kórsins frá árs- byrjun 1929, eða um hartnær 40 ára skeið. Jón á Hafsteinsstöðum hefur þvi fylgt kórnum i gegnum bernsku hans og æsku og leitt hanntil fullorðinsára. Hann hefur gefið kórnum lif og tilverurétt og skapað honum viðfangsefnin. Vafasamter, aðkórinn væri nú til og starfandi i dag án tilveru Jóns á Hafsteinsstöðum, svo mikinn dugnað og fórnfýsi hefur hann lagt i sölurnar, enda má segja, að þetta sé stór og veigamikill þáttur af ævistarfi hans, — karlakórinn hefur þvi verið um langt árabil eins og kjörbarn hans. Hinn 23. febrúar s.l. varð Jón Björnsson sjötugur. Þann dag var hann staddur i Reykjavik, og var boðinn og heiðraður á myndar- legan hátt á árshátið Skag- firðingafélagsins i Reykjavik, sem fram fór á Hótel Sögu sama dag. Þessi timamót á æviskeiði Jóns Björnssonar og Karlakórsins Heimir voru þvi svo til samtimis og hefðu þvi átt að vera einnig samtvinnuð fjöl- skylduhátið og afmælisfagnaður beggja aðila. En afmælisfagnaður karlakórs- ins Heimis norður i Miðgarði og árshátið Skagfirðingafélagsins i Reykjavik, minntust Jóns með ólikum hætti. Skagfirðingar I Reykjavik heiðruðu Jón á Hafsteinsstöðum með dýrum gjöfum, blómum og árnaðaróskum, en Karlakórinn Heimir i Skagafirði gleymdi sinum aldna frumherja og fyrr- verandi söngstjóra og tilnefndi hann ekki heiðursfélaga sinn við hlið gömlu samherjanna og sam- starfsfélaganna til að votta honum virðingu og þakklæti fyrir liðnu árin i verki. — Þetta var ekki gert og fyrir þetta furðulega smekkleysi og félagslegan vanþroska, — að ætla»má, — mega nú bæði fyrrverandi og nú- verandi félagar i Heimi blygðast sir um langa framtið. Þökk sé Skagfirðingafélaginu i Reykjavik fyrir auðsýndan heiður i garð Jóns Björnssonar á Hafsteinsstöðum, en sem Skag- firðingar heima i héraði gleymdu að sýna honum nú, fyrir langt ævistarf i söngstjórn og tón- smiðum á timamótum , sem aldrei koma aftur. Skagfirðingur gjöfin sem gleður allir kaupa hringana hjá Skólavörðustíg 2 Bifreiða- viðgerðir Flfóttog vel af hendi leyst. Reynið viðskiptin. Bifreiðasti llíngín Síðumúla 23/ sími 81330.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.