Tíminn - 04.04.1973, Side 6
6
TÍMINN
Miövikudagur 4. april. 1973
ALÞINGI
Jöfnunarverð
d sementi:
Jöfnunar-
verð
einnig
af
innfluttu
sementi
EJ—Reykjavlk
Rikisstjórnin iagöi I gær fram á
Alþingi frumvarp til laga um
jöfnun flutningskostnaðar á
sementi. Þar er gert ráö fyrir, aö
innflytjendur sements þurfi
einnig aö greiöa sinn hlut til þes
að jafna sementsverðið.
1 greinargerð segir um málið
eftirfarandi:
„Þegar Sementsverksmiðja
rikisins hóf starfsemi sina, ákvað
stjórn verksmiðjunnar i samráði
við atvinnumálaráðuneytið, að
jafna flutningskostnaði milli
landshluta þannig, að leitazt yrði
við, að kostnaðarverð vörunnar
yrði sem jafnast i vöruskemmu á
hverri sementstegund, hvar sem
væri á landinu. Markmiðið var,
að mismunandi flutningskost-
naður hefði sem minst áhrif á út-
söluverð sements á einstökum
verzlunarstöðum. Hefur þessi
framkvæmd haldizt siðan. Með
aðild Islands að EFTA skapast
möguleikar fyrir aðra en
Sementsverksmiðju rikisins til að
flytja inn sement og selja það á
þéttbýlissvæðum án þess að taka
þátt i kostnaði við að flytja
sementið til dreifbýlisins. Verður
þvi að teljasteölilegt, að lögfesta
nú þessa jöfnun flutningskostnað-
ar og láta innflytjendur og
Sementsverksmiðjuna greiða
flutningsjöfnunargjald sem
fasta upphæð á hvert tonn af
seldu sementi. Flutningsjöfn-
unarsjóðurinn endurgreiðir siðan
flutningskostnað frá innflutnings-
höfn eða framleiðslustað þannig
að þessi þáttur verðsins verði
hinn sami, hvar sem
sementið er selt og hver sem selj-
andinn er.
Með þessu frumvarpi er
ætlunin að lögfesta skipan þess-
ara mála, þar sem eðlilegt verður
aö telja, að þeim sé komið i fast
form”.
Frá
Skákþingi
Akureyrar
1973
SKÁKÞINGI Akureyrar 1973 er
nýlokið og urðu helztu úrslit
þessi:
1 meistaraflokki voru þátttak-
endur 12. — Þar sigraði Jón
Björgvinsson með miklum yfir-
burðum, hlaut 9 vinninga úr ellefu
skákum og tapaði hann engri
skák.
Röð efstu manna er þessi:
1. Jón Björgvinsson 9 v.
2. Jóhann Snorrason 7 v.
3. Hrafn Arnarson 6 1/2 v.
4 Július Bogason 6 v.
5.-6. Kristinn og Atli Benediktsson
5 1/2 v.
í fyrsta flokki voru þátt-
takendur li. Efstir og jafnir urðu
þeir Donald Kelly og Hólmgrimur
Heiðreksson með 8 vinninga, i 3.
sæti varð Marinó Tryggvason
með 6 1/2 .
í unglingaflokki voru þátt-
Framhald á 5. siðu.
Lánasjóður sveitarfélaga:
Lán til hitaveitufram-
kvæmda hafa stórhækkað
EJ—Reykjavlk
Lán úr Lánasjóði sveitarfélaga
til hitavcituframkvæmda hafa
mjög hækkað á síöustu tveimur
árum. Siðastliöin sex ár hefur
sjóöurinn alls lánaö 368 milljónir
króna og þar af fóru um 120 mill-
jónir til hitaveituframkvæmda.
Af þessari upphæö var um 66
milljónum úthlutað á siðasta ári,
cöa um 56% af allri lánsupp-
hæöinni tii hitaveituframkvæmda
siðustu sex árin.
Þetta kom fram i umræðum um
þingsályktunartillögu um láns-
fé til hitaveituframkvæmda, sem
var til umræðu i sameinuðu þingi
i gær. Geir Gunnarsson (AB)
mælti fyrir áliti fjárveitinga-
nefndar um tillöguna, en nefndin
lagði til að tillögunni yrði visað til
rikisstjórnarinnar.
Fram kom i ræöu þingmanns-
ins, að Framkvæmdasjóður hefur
lánað Lánasjóði sveitarfélaga 195
milljónir króna siðustu sex árin,
og skiptist sú upphæð þannig á
ár: 5 milljónir 1967, 15 millj. 1968.
10 millj. 1969, 25 millj. 1970, 40
millj. 1971 og 100 milljónir i
fyrra, 1972.
Lánasjóðurinn hefur þessi ár
lánað til hitaveituframkvæmda
sem hér segir: 350 þúsund 1967,
300 þúsund 1968, 2 milljónir 1969,
31 milljón 1970, 20 milljónir 1971
og 66 milljónir 1972, eða samtals
119.650.000 krónur.
Taldi þingmaöurinn, að þetta
sýndi, að núverandi rikisstjórn
hefði glöggan skilning á þörf fyrir
lánsfé til þessara framkvæmda,
og hefði stórlega aukið fjármagn
til þeirra. Væri þvi eðlilegt að
visa umræddri tillögu til rikis-
stjórnarinnar.
Einnig tóku til máls
Stefán Gunnlaugsson (A), Jón Á.
Héðinsson (A), sem voru flutn-
ingsmenn, og Jón Skaftason (F),
sem benti á, að annar flutnings-
manna mælti með þessari máls
meðferð sem f járveitinga-
nefndarmaður og væri hún eðli-
leg.
Nýtt frumvarp um atvinnuleysistryggingar:
Bótafjárhæðir verði hlut-
fall af Dagsbrúnarkaupinu
EJ—Reykjavik
Lagt hefur vcrið fram stjórnar-
frumvarp um atvinnuleysis-
tryggingar, sem felur i sér ýmsar
Niðursoðin
loðna
fyrir
20
milljónir
til
Japans
EJ—Reykjavik
Sölustofnun Lagmetis-
iðnaðarins og Sjávarafurða-
deild Sambandsins hafa selt
niðursoðna loðnu til Japans
fyrir um 20 milljónir króna.
Hér er um reynslusendingu að
ræða, að þvi er Pétur Péturs-
son (S) upplýsti á Alþingi i
gær i umræðum um þings-
ályktunartillögu um loðnu til
manneldis.
veigamiklar breytingar. M.a.
er tekin upp sú regla, að bótafjár-
hæðir vcrði ákveðinn hundraös-
hluti af öðrum taxta verka-
mannaféiagsins Dagsbrúnar
i Reykjaviki stað tiltekinnar
krónutölu svo sem er i núgildandi
lögum.
Frumvarpið er samið af nefnd,
sem félagsmálaráðherra skipaði i
febrúar 1969. Á frumvarpinu hafa
siðan verið gerðar nokkrar breyt-
ingar, svo sem til samræmis við
breytingar þær, sem orðið hafa á
kaupi og vinnutima frá þvi að
frumvarpið var samið. Einnig
eru gerðar breytingar varðandi
biðtima, bótafjárhæðir og fleira.
Meginbreytingar þær, sem i
frumvarpinu felast frá gildandi
lögum, eru þessar:
1. Aðeins helmingur vaxtatekna
sjóðsins verði færður á sér-
reikning verkalýðsfélaga. Sam-
kvæmt gildandi lögum skal færa
allar vaxtatekjur á sérreikninga.
2. Gildissvið laganna er aukið,
svo að ákvæði þeirra taka til
landsins alls. Störf við búrekstur
bænda eru þó undantekin. Sam-
kvæmt gildandi lögum taka lögin
aðeins til kaupstaða og kauptúna
með 300 ibúum eða fleirum.
Heimild er þó til handa ráðherra
að ákveða, að lögin taki til
annarra staða, ef verkalýðsfélög
og atvinnurekendur óska þess og
hlutaðeigandi sveitarstjórn mælir
með þvi. Þessi heimild hefur oft
verið notuð og alltaf, ef skilyrði
hafa verið fyrir hendi.
3. Akvæði um biðtima eru felld
niður. Gert er ráð fyrir að sá sem
öðlast bótárétt, eigi þegar rétt til
bóta, fyrir hvern heilan dag, sem
hann hefur verið atvinnu-
laus.
4. I stað þess, að dagpeningar
séu föst fjárhæð, sem breytist
með kaupvisitölu, er lagt til, að
þeir verði ákveðinn hundraðshluti
af tilteknum launataxta eins og
hann er á hverjum tima, að við-
bættri greiðslu verðlagsbóta.
5. Stjórn sjóðsins verði heimilað
að veita þátttakendum i viður-
kenndum starfsþjálfunarnám-
skeiðum styrk á meðan námskeið
standa. Þá er og lagt til, að sá,
sem gengur undir starfsþjálfun
eða sækir námskeið til þess að
öðlast hæfni til að stunda ný störf,
njóti á meðan atvinnuleysisbóta i
allt að 30 daga virka, ef hann naut
slikra bóta, þegar starfsþjálfun
eða veran á námskeiðinu hófst.
6. Stjórn atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs verði heimilað að veita
sveitarfélögum styrk og einstak-
lingum vaxtalaust lán þar sem
um er að ræða verulegt og lang-
varandi atvinnuleysi gegn þvi
skilyrði m.a., að þeir sjái
ákveðinni tölu atvinnulausra á
staðnum fyrir vinnu tilltekinn
tima, sem goldin verði sam-
kvæmt gildandi taxta á staðnum.
7. 1 frumvarpinu eru itarleg
ákvæði um ýmis atriði i sambandi
við úrskurðun bóta, sem vafi
leikur á, hversu með skuli fara,
samkvæmt gildandi lögum.
SAMÞYKKTAR ÞINGSÁLYKTANIR
EJ—Reykjavik
A fundi I sameinuðu Alþingi
i gær voru eftirtaldar þings-
ályktanir samþykktar i einu
liljóði sem ályktanir
sameinaös þings.
Vegagerö um
Sprengisand
Þingsályktunartillaga frá
Benóný Arnórssyni (SFV) um
vegagerð yfir Sprengisand var
samþykkt i einu hljóði. I til-
lögunni er skorað á rikis-
stjórnina að láta fara fram
athugun á hagkvæmni vega-
gerðar yfir Sprengisand.
Fram kom i greinargerð
með þessari tillögu, að vegur
um Sprengisand mun stytta
mjög verulega vegalengd
milli Reykjavikur og staða á
Norður- og Austurlandi.
Réttarstaða tjónaþola
vegna flugumferðar
könnuð
Þá var einnig samþ. i einu
hljóði þingsályktunartil frá
Oddi Olafssyni (S) og fleirum,
þar sem rikisstjórninni er
falið að láta kanna réttarstöðu
sveitarfélaga, einstaklinga og
fyrirtækja, sem eru i nágrenni
flugvalla, gagnvart eigendum
flugvéla, er slysum og tjóni
valda, og lögfesta úrbætur, sé
þess þörf.
Vegagerð i
Mánárskriðum
Einnig var þingsályktunar-
tillaga frá Eyjólfi K. Jónssyni
(S) og fleiri samþykkt með
minniháttar breytingu, en þar
er rikisstjórninni falið að láta
gera frumáætlun um kostnað
við vegagerð niðri við sjó i
Mánárskriðum á Siglufjarðar-
vegi.
Aðstaða fyrir nemendur
landsbyggðarinnar
Loks var samþykkt i
einu hljóði þingsályktunartil-
laga frá Lárusi Jónssyni (S)
og fleirum um bætta aðstöðu
nemenda landsbyggðarinnar,
sem sækja verða sérskóla á
höfuðborgarsvæðinu.
Segir i ályktun Alþingis, að
það feli rikisstjórninni að
beita sér fyrir þvi, að komið
verði á fót mötuneytum og
heimavistum á vegum hins
opinbera, sem ætlaðar verði
þeim nemendum af lands-
byggðinni.sem sækja verða þá
sérskóla i Reykjavik, er ekki
starfa annars staðar á land-
inu. I þessu sambandi verði
m.a. kannað, hvort ekki komi
til greina að semja við starf-
andi hótel um slikan rekstur.
Margar þingsályktunartil-
lögur voru teknar til umræöu á
fundi sameinaðs þings i gær,
og er þeirra, sem afgreiddar
voru, getið sérstaklega.
Aðrar þingsályktunartil-
lögur, sem teknar voru tii um-
ræðu, en atkvæðagreiðslu var
frestað, voru þessar:
Þingsályktunartillaga um
leigu og sölu ibúðarhúsnæðis,
um bætta aðstöðu fyrir Haf-
rannsóknarstofnunina, um
sjálfvirk viðvörunarkerfi á
hraðbrautir og um lánsfé til
hitaveituframkvæmda.
Þá var mælt fyrir eftir-
töldum þingsályktunartil-
lögum: Um endurskoðun á
gjaldskrá Landssimans, um
skipulag byggðamála og um
bætt sjónvarpsskilyrði á Vest-
fjarðamiðum.
Loks var framhaldið fyrri
umræðu um rannsókn á
ibúðum og sameignum i
Breiðholti 1.
Eldhúsdagur
í næstu viku
Þingstörfin hafa gengið
mjög hratt fyrir sig siðustu
dagana, enda skammur timi
til þingloka. Akveðið hefur
verið, að hinar almennu eld-
húsdagsumræður fari fram á
fimmtudag i næstu viku
—EJ
Skortir 600
fjölskyldur
viðunandi
húsnæði í
Reykjavík?
EJ—Reykjavik
Fram kom i ræðu hjá Ragn-
ari Arnalds (AB) i sameinuðu
þingi i gær, að áætlað er, að
um 300 fjölskyldur búi við
algera húsnæðisneyð, þ.e. i
algjörlega óhæfu húsnæði, og
að 300 til viðbótar búi við sára
vöntun i húsnæðismálum á
höfuðborgarsvæðinu. Væri þá
ekkert tillit tekið til húsnæðis-
vandræða vegna jaFeldanna i
Vestmannaeyjum.
Lagarfoss-
virkjun
samkvæmt
dætlun
EJ—Reykjavik
Ekkert gefur til kynna, að af-
greiðsla á vélum til Lagarfoss-
virkjunar verði ekki i samræmi
við þann samning, sem geröur
liefur verið við Skodaverk-
smiðjurnar, og frainkvæmdum
við verk þetta miöað áfram með
tilætluðum hætti, sagði Magnús
Kjartansson, iðnaðarráðherra, i
svari við fyrirspurn frá Sverri
Hermannssyni (S) um gang mála
við Lagarfossvirkjun.
Fram kom hjá ráðherra, að
verktaki, Norðurverk h.f., á að
skila af sér 1. júli 1974-