Tíminn - 04.04.1973, Side 9

Tíminn - 04.04.1973, Side 9
8 TÍMINN Miðvikudagur 4. april. 1973 Miðvikudagur 4. april. 1973 TÍMINN Tryggvi Gíslason skrifar um FJALLA-EYVIND I MEÐFÖRUM Leikfélags Akureyrar LEIKFALAG Akureyrar frum- sýndi á þriöjudagskvöldið var leikrit Jöhanns Sigurjónssonar FJALLA-EYVIND. Leikstjóri er Magniis Jónsson, sem I vetur hef- ur starfað sem leikhússtjóri á Akureyri. Mikilsvert er aö fá að leikhúsinu ungan, áhugasaman og menntaðan mann, þvf I ráði er, að Leikfélag Akureyrar verði I haust gert að atvinnuleikhúsi, og þótt leikhúsið verði fátækt I fyrstu, er það von allra, að þetta verði leiklistarlffi á Akureyri lyftistöng og geti miðlað fámennu bæjarfélagi af þeim nægtabrunni sem leiklistin er. Aldarfjórðungur er nú sfðan þjóðleikhúsiö tók að ráða til sln leikara, og er þaö ekki vonum fyrr, að fariö er aö meta þarfir annarra til jafns við þarfir Ibúa á Reykjavfkursvæðinu og þetta verði þvl aðeins fyrsta skrcfið I átt til meiri jöfnunar, sem einu sinni var talaö mikiö um, en ekki hefur heyrzt nefnt um skeið. Leikrit Jóhanns Sigurjónssonar var frumflutt á Dagmarleikhús- inu í Kaupmannahöfn 1912, en fyrstu drög þess voru gerð vetur- inn 1909 til 10, þar sem hann var á ferðalagi I Suður-Evrópu með ástvinu sinni, Ingeborg Blom Thidemand, sem slðar varð kona hans. I verkinu lætur Jóhann hungrið og ástina takast á (og I fyrstu gerð nefndi hann þetta verk sitt Sult). Astin slokknar fyrir heljarafli hungursins og raunanna, en hún hverfur með ólikum hætti þeim Höllu og Kára Halla er sterk í ástleysi slnu, en Kári er veikur og fellur fram og tilbiður guð á himnum, þegar átrúnaður hans á konuna er horf- inn. Halla er stór i sniðum, skap- heit og skaphörð. ,,Ég get lifað, þó honum þyki ekki ailtaf eins vænt um mig. — En hætti ég að elska hann, þá dey ég,”segir hún á einum stað. Hún gat ekki skilið að ást sina og sálog tekur afleið- ingunum af þvi og hverfur að lok- um út i myrkrið, en Kári fylgir Frh. á bls. 15 Björn Egilsson: MORÐISTORAHVAMMI t LANDFARA Timans 1. nóvem- ber siðastiiðinn birtist bréf frá Angantý Hjálmarssyni, kennara á Ilrafnagili. Hann kvartar yfir frétt, sem birtist I tfmanum 25. okt., þar sem sagt er, að veðurat- hugunarhús hafi verið byggt við Sandá á Nýjabæjarafrétt, og bið- ur um leiðréttingu hið bráðasta. Engin leiðrétting hefur borizt, svo ég viti, og meira að segja vorú þeir svo meinlegir fyrir sunnan að skira þetta hús NÝJABÆ. Það er rétt, að Sandá er ekki á Nýjabæjarafrétt. Hún er fyrir austan vatnaskil og fellur ofan i Eyjafjarðardal sunnarlega að vestan. Ekki er þessi á svo mik- illa sanda, að Steindór Steindórs- son geti hennar í bók sinni „Land- ið þitt”. Þá segir Angantýr, að fyrir misskilning hjá dönskum land- mælingamönnum sé nafnið Nýja- bæjarafrétt ekki á réttum stað á landabréfinu. Nafnið Nýjabæjar- afrétt er sett á kortið með stóru letri frá Geldingsá i austur að Bleiksmýrardrögum langt fyrir sunnan Eyjafjarðardal. Eyfirð- ingum kemur það ekki við, þvi að þeir hafa aldrei átt land vestan vatnaskila á Vatnahjalla og með Eyjafjarðardal. Hins vegar gætu Þingeyingar kvartað, þvi að stafaröðin nær til muna austur fyrir vatnaskil, þar sem vatn dregur til Fnjóskár. Ekki voru það Skagfirðingar, sem leiðbeindu E. Jensen um ör- nefni, þegar hann mældi umrætt landsvæði sumarið 1931. Það voru Steinþór Sigurðsson magister og Vernharður Þorsteinsson, kenn- arar við Menntaskólann á Akur- eyri, báðir hámenntaðir menn, og Steinþór þá starfsmaður hjá Landmælingum. Angantýr getur þess I bréfinu og er hreykinn yfir, að Skag- firðingar eigi nú ekkert land sunnan Fossár. Það vita fleiri, að hæstiréttur dæmdi af Skag- firðingum mestalla Nýjabæjaraf- rétt með röngum dómi. — En Angantýr getur ekki um dóm Landamerkjadóms Eyjafjarðar- sýslu, sem dæmdi Skagfirðingum land allt eins og vötn draga til Jökulsár eystri. Þetta er kallað að segja undan og ofan af, eða segja hálfan sannleika. Ey- firðingar höfðu ekkert upp úr málaferlunum, fyrir hvorug um dóminum, enda gat það ekki orð- ið, málstaður var þannig, en þeir höfðu það upp úr krafsinu, að Skagfirðingar töpuðu eignarrétti á landi, sem þeir höfðu átt um aldaraðir. Niðurlagið i bréfi Angantýs er á þessa leið orðrétt: „Ég vona, að þið birtið leiðrétt- ingu á þessari frétt ykkar hið fyrsta, svo þið takið ekki þátt i að vekja upp gamlan draug”. Það er Angantýr sjálfur, sem hefur vakið drauginn upp og sent hann vestur. Ég vil nú ræða við draugs i rólegheitum og vita, hvort hann vill ekki snúa til sins upphafs með góðu. II A milli Abæjar og Tinnár heita Ófriðarstaðir. Þar sér fyrir tún- íslenzkur markaður á Keflavíkurflugvelli: Ferðamenn kaupa mest af tilbúnum ullarfatnaði Verzlun tslenzks markaðar á Keflavikurflugvelli hefur nú staf- að i 31 mánuð og heildarvörusal- an á þvi timabili nemur 201.9 millj. kr. A siðasta starfsári nam heildarvörusalan 86.7millj. kr. og var fyrirtækið þriðji stærsti afl- andi gjaldeyris á landinu vegna Islenzkur jnarkaóur h. f. erlendra ferðamanna. Aðeins Loftleiðir og Flugfélag Islands eru stærri. I verzluninni eru að- eins seldar islenzkar afurðir og iðnaðarvörur. A siðasta ári seld- ist þar fatnaður úr ull fyrir 37.4 millj. kr. og er það 11,1% af heildarútflutningi þeirrar vöru. Værðarvoðir seldust fyrir 3 millj. kr. fatnaður úr skinnum fyrir 7.3 millj. kr., annar varning- ur úr skinnum fyrir 3.1 millj. kr. Loðsútaðar gærur fyrir 5.6 millj. kr. Skartgripir seldust fyrir 5.7 millj. kr, keramik og postulin fyr- ir 5.6 millj. kr. og matvara fyrir 5.4 millj. kr. Eins og kunnugt er af fyrri fréttum er tslenzkur markaður h.f., stofnaður af ýmsum stærstu framleiðendum útflutningsvara i þeim tilgangi að fá heimild til að reka verzlun i flugstöðinni á Keflavikurflugvelli til að selja framleiðslu sina og kynna og gera markaðsathuganir með nýjar vörur, umbúðir ofl. einnig til aö leita eftir hugmyndum um nýjar framleiðsluvörur. Meö tilkomu þessa fyrirtækis opnuðust nýir og stærri möguleikar fyrir islenzkar afurðir og iðnaðarframleiðslu. Þegar Islenzkur markaður h.f. hóf starfsemi sina hafði Feröa- skrifstofa rikisins rekið verzlun á flugvellinum um nokkurra ára bil og selt ýmsan varning bæði til ibúa á flugvellinum og til farþega i millilandaflugi og nam t.d. vöru- sala i þeirri verzlun árið 1969 kr. 27.2, milljónum en fyrsta heila starfsár tslenzks markaðar h.f. nam vörusalan kr. 72.4 milljónum en var þá einungis um vörusölu til farþega i millilanda flugi að ræða. t samningi Utanrikisráðu- neytisins við tslenzkan markað h.f. var svo kveðið á að tslenzkur markaður h.f. skyldi greiða Ferðaskrifstofu rikisins gjald, kr. 21.00 af hverjum transitfarþega, en þessi greiðsla skyldi skoðast sem þóknun til Ferðaskrifstof- unnar fyrir aðstöðumissirinn á flugvellinum. Þá keypti tslenzkur Markaður vörubirgðir Ferða- skrifstofunnar og innréttingu sölubúðarinnar. Strax i upphafi kom upp túlkunarmismunur milli íslenzka markaöar h.f. og Ferðaskrifstof- unnar á þvi hverjir teldust tran- sitfarþegar. tslenzkur markaður vildi nota sama túlkunarskilning og flugmálayfirvöld og alþjóða- stofnanir, að transitfarþegar væru þeir einir, sem fara um ákveöið transitsvæði til stuttrar viðdvalar, án þess að um toll- skoðun eða vegabréfaeftirlit væri að ræða. Þetta þekkja þeir, sem ferðast hafa um erlendar flug- hafnir. Samkvæmt þessari túlkun hefur tslenzkur markaður þegar greitt Ferðaskrifstofu rikisins kr. 21.00 af 889.886 transitfarþegum, eða kr. I8.7milljónir. Þá hefur ts- lenzkur markaður h.f. mótmælt, en greitt með fyrirvara, transit- gjaldið af þei.-n farþegum sem aldrei fara útúr flugvélum meðan á eldsneytisáfyllingu og viðdvöl stendur, þvi þeir hafa enga mögu- leika til verzlunar. Engar opin- berar tölur eru til um fjölda þess- ara farþega en i ágústmánuði s.l. var farþegum ekki hleypt út úr 28 flugvélum samkvæmt talningu Islenzks markaðar. Ef reiknað er með 170 farþega meðalfjölda i hverri vél mun gjaldið af þessum farþegum hafa numið kr. 99.960.-. Ferðaskrifstofa rikisins hefur ekki viljað hlita þessari túlkun og viljað telja brottfararfarþega með i tölum um transitfarþega vegna þess aö þeir ættu aðgang að verzlun Islenzks markaðar h.f en brottfararfarþegar eru út- lendingar á förum frá tslandi og tslendingar á leið utan i ýmsum erindagjörðum. Viðbótarkörfur Ferðaskrifstofu rikisins vegna þessa nema kr. 21.00 af 222.335 brottfararfarþegum eða kr. 4.7 milljónir. Til fullnustu þessum kröfum hefur Ferðaskrifstofan sótt mál á hendur Islenzkum markaði h.f. dómur i héraðsdómi fallið F.r. i hag. t tilefni af þessu samþykkti aðalfundur I.M. eftirfarandi ályktun: „AÐALFUNDUR tslenzks markaðar h.f. haldinn að Hótel Sögu fimmtudaginn 8. marz 1973 lýsir vonbrigðum sinum með þró- un fjárkröfumáls Ferðaskrifstofu rikisins á hendur fyrirtækinu. Fundurinn litur svo á, að hér sé um óréttláta tilraun til að fara út fyrir ramma samnings félagsins við Utanrikisráðuneytið frá 9. júni 1970 með þvi að krefja félagið um greiðslu á transitfarþega- skattinum svonefnda af brott- fararfarþegum, þ.e. islendingum á leið utan og útlendingum, sem halda héðan eftir lengri eða skemmri dvöl i landinu, svo og af farþegum, sem ekki fara útúr flugvélum og koma þvi ekki inn á transitsvæði flugstöðvarbygg- ingarinnar. Fundurinn getur á engan hátt sætt sig við niðurstöðu héraðsdóms i málinu og heimilar stjórn félagsins að áfrýja málinu til Hæstaréttar”— Greiðsla transitfarþegaskatts- ins, sem er til viðbótar venjuleg- um lögboðnum sköttum og skyld- um, hefur verið fyrirtækinu mjög þung byrði og hamlað eðlilega starfsemi þess. Leitað hefur verið til rikisstjórnarinnar um leiðrétt- ingu á þessum álögum og hefur sú málaleitan mætt nokkrum skiln- ingi. t þessu tilefni hefur rikis- stjórninni verið send svofelld samþykkt aðalfundar: „AÐALFUNDUR tslenzks markaðar h.f haldinn að Hótel Sögu fimmtudaginn 8. marz 1973 bendir á, að þar eð i verzlun fyrir- tækisins eru eingöngu seldar vör- ur framleiddar af innlendum framleiðendum, aðallega úr Is- lgnzkum hráefnum, litur fundur- inn svo á að hiö svonefnda transitfarþegagjald sé bein skatt- lagning á islenzka iðnaðarfram- leiðslu. Félur fundurinn stjórn félagsins að leita samninga við rikisstjórn- ina um endurskoðun og niðurfell- ingu, eða mikla lækkun, þessara skatta byrðar, sem er fyrirtækinu mjög erfið og hindrar það i þvi að geta starfað og þróast eðlilega og gegnt hlutverki sinu sem markaðskönnunaraðili fyrir Is- lenzkan iðnað.” Þrátt fyrir þá erfiðleika sem fyrirtækið hefur átt við að striða vegna hins háa transitfarþega- skatts hefur verið unnið nokkuð að kynningu, markaðskönnunum og athugunum á sölumöguleikum islenzkrar iðnaðarframleiðslu er- lendis. Fyrirtækið réðst t.d. á s.l. sumri, i samráöi við ýmis fram- leiðslufyrirtæki, að gefa út I ann- að sinn glæsilegan póstpöntunar- verðlista. Listinn, sem er 48 lit- prentaðar siður að stærö, var prentaöur i 100.000 eintökum og hefur honum verið dreift viða um heim, t.d. hafa pantanir og fyrir- spurnir borizt jafnvel frá Japan og Astraliu, en meginhluti pant- ana er frá Bandarikjunum. Framkvæmdastjóri tslenzks markaðar h.f. er Jón §igurðsson. Núverandi stjórn félagsins skipa: Óskar H. Gunnarsson for- maður, Pétur Pétursson varafor- maður, Jón Arnþórsson ritari, Einar Eliasson, Jón H. Bergs og í varastjórn eru Gerður Hjörleifs- dóttir, Guðjón Guðjónsson. Sala 1971 - 72 skipt eftir upjruna vöru. Af öllum þeim vörutegundum, sem seldar eru I islenzkum markaði kaupa erlendir ferðamenn langmest af tilbúnum fatnaöi úr ull. Óánægja með greiðslur til Ferðaskrifstofu ríkisins garði, og er tóftarbrot i miðju gerðinu. Munnmæli herma, að nafnið sé þannig til komið, að Ey- firðingar og Skagfirðingar hafi barizt þar út af þvi, að báðir vildu eiga Galtártungur i botni Torfu- fellsdals, og segir sagan, að Skag- firðingar hafi allir fallið. Fyrst þegar ég heyrði þessa sögu, þótti mér undarlegt, að Skagfirðingar skyldu allir falla. En þegar ég fór að hugsa málið, varð mér ljóst, hvers vegna Skagfirðingar féllu. Það var vegna þess, að þeir fóru með rangt mál. Og það er rauður þráður i öllum þjóðsögum, að þeim hefnist fyrir, sem þjóna ranglætinu. Og vers vegna var mál Skagfirðinga rangt? Það var rangt vegna þess, að þeir gátu ekki notað landið norðan fjalls. Sama er að segja um Eyfirðinga. Þeir hafa gefizt upp á öllum til- raunum til aö nota landið vestan fjalla og kemur engum á óvart, sem kunnugur er, slikur heljar- kambur, sem fjallið er. Vatna- hjalli og Nýjabæjarfjall eru eitt þúsund til ellefu hundruð m yf- ir sjó, og á háfjallinu er gróður- laust með öllu, berar urðir og ekki einu sinni sandur á milli stein- anna. Það má litlu muna, að hægt sé að reka fé yfir fjallið i fyrstu göngum, fyrir miðjan september, samanber frásagnir i „Göngum og réttum” (1916 og 1929), en eng- ar sagnir hefi ég heyrt um það, að sauðfé úr eftirleitum hafi verið rekið til Eyjafjarðar, enda er fjallið þá ófært vegna snjó- þyngsla, þó rautt sé vestur við Jökulsá. Af þessum sökum hafa Austdælir leitað allar eftirleitir frá landnámsöld á þessu svæði, sem þeim bar, af þvi þeir áttu landið, enda þótt Eyfirðingar og Þingeyingar hafi tekið þátt i fyrstu göngum, af þvi þeir vildu ekki borga helming verðs fyrir þann pening, sem flæktist á Nýja- bæjarafrétt. Ég er kominn af Sigriði prests- dóttur i Saurbæ, og er það nokkuð örugg ættfærsla, þvi að það er kvenleggur að mestu. Mér ber þvi að virða Eyfirðinga vel og geri það. Ég er fús til að lýsa þvi yfir, að það fólk, sem ég hef kynnzt i Eyjafirði, er gott fólk, og þar hafa löngum verið fagrar konur, samanber söguna um Sigriði Eyjafjarðarsól. Hollar vættir vaka þar yfir byggðum. Hið venjulega góða fólk hefur þann eiginleika að vilja eiga hitt og þetta, sem nauðsynlegt er að vissu marki i mannlegu lifi. Of mikil ágirnd er barnasjúkdómur, sem allir vaxa frá fyrr eöa siðar. Ýmsir bændur vilja eiga mikiö land. Bændur I Saurbæjarhreppi i Eyjafirði vildu slá eign sinni á mikið landssvæði vestan fjalls og rækta það til sumarbeitar fyrir sauðfé. Landsvæði þetta nær frá Fossá i Austurdal suður að Fjórðungskvisl á Sprengisandi. Það er nú meira túnstæðið, um 50 km á lengd frá norðri til suðurs. Reynsla hefur sýnt, að hægt er að rækta sanda á láglendi, en ræktunin á gróðurlausum melöld- um, sem eru á 9. hundrað metra yfir sjó, held ég að sé ennþá á til- raunastigi. Eyfirzkir bændur eiga ekki allir viðáttumikil lönd, en eru samt beztu bændur landsins. III Fróðlegt er aö lesa um mála- fylgju Eyfirðinga og Skagfirðinga fyrir landamerkjadómi Eyja- fjarðarsýslu. Málsskjöl og vitna- leiðslur eru langt mál, yfir 40 blaðsiður i Skirnisbroti. Mál þetta upphófst með þvi, að bændur i Saurbæjarhreppi stofnuðu upp- rekstrarfélag. Ekki munu bændur þeir hafa haft vantrú á slæmum dögum, þvi að félagið var stofnað 13. mai 1963. Vorið 1964 hóf Upprekstrar- félagið ræktun, sáð var i mela ná- lægt Laugafelli, en áður hafði stjórn félagsins látið hreppsnefnd Akrahrepps vita um fyrirætlanir sinar með bréfi dags. 9. janúar 1964, þar sem óskað var eftir, að bændur i Akrahreppi rækju ekki fé fram fyrir Fossá næstu árin. Hins vegar mundi félagið ekki amast við skagfirzku fé, sem kæmi án þess rekið væri. En kæmi i ljós, að fé þetta spillti ræktunarlöndum, yrðu ferðir þess heftar suður á öræfin með girðingu eða öðrum ráðstöfunum. Upprekstrarfélagið fékk eignarheimildir frá eigendum jarðanna Möðruvalla og Hóla i Saurbæjarhreppi og vitnaði i landamerkjabréf þessara jarða frá 1886 og 1889. t bréfi Möðru- valla segir, að afréttarland eigi jörðin i tilteknum dalabotnum Sölvadals „og þaðan suður á fjall að svonefndu Laugafelli.” 1 bréfi Hóla segir, að sú jörð eigi af- réttarland á Eyjafjarðardal frá Trippagarði við Klaufá „og fram til jökla að austan og vestan til sýslumóta”. Ekki er getið um landareign nefndra jarða suður á fjöll i öðr- um heimildum. Ekki i Jarðabók Arna Magnússonar, ekki i fast- eignamatsbók Eyjafjarðarsýslu 1849-1850, ekki i fasteignamats- bók Eyjaf jarðarsýslu 1916 og ekki i skrá yfir afréttir i Saurbæjar- hreppi, er prentuð var aftan viö sýslufundargerð Eyjafjarðar- sýslu árið 1894. t hinum óljósu ' landa- merkjabréfum Möðruvalla og Hóla erekkert, sem bendir til, að eigendur þessara jarða hafi talið sig eiga land ofan i Austurdal, en Upprekstrarfélagið vildi slá eign sinni á austurhliðar dalsins milli Geldingsár og Fossár, sem er hið ágætasta sauðland. Einu er ég þó mest hissa á i málafylgju Eyfirð- inga: Þeir vildu ekki eiga all- mikla landspildu frá Strangslæk vestur að Illviðrishnjúkum. Hverjir áttu að smala þetta land? Attu Hofsafréttarmenn að sund- riða suður yfir ána, sem er sund- vatn á þessum slóöum, þegar mikil leysing er úr jöklinum? Oft er fé a þessu svæði. Svo var það siðastliðið haust, og i eftirleit 1912 fundust þarna 7 lömb sunnan úr Hreppum. Tólf vitni voru leidd fyrir Landamerkjadóm af hálfu Ey- firðinga, flest bændur i Saur- bæjarhreppi. Ekki voru vitnis- burðir samhljóða. Þeir Jón Vig- fússon, Guðjón Jónsson, Ragnar Daviðsson og Hallgrimur Thor- lacius sögðust ekkert vita um af- réttarmörk eða sýslumörk á fjöil- um suður. Eftir Aðalsteini Tryggvasyni er bókað: „Ekki kveðst Aðalsteinn vita, hver mörkin séu milli afréttarlanda Skagfirðinga og Eyfiröinga. Kveður hann Eyfirðinga telja þau vera um Fossá, en Skagfirðingar viö Geldingsá”. Hin önnur vitni sögðust álita eöa hafa heyrt aðra halda þvi fram, að Eyfiröingar ættu land allt fyrir sunnan Fossá. Angantýr kveður föður sinn „ætið hafa taliö Fossá ráða suöurtak- mörkum á afréttarlöndum Skag- firðinga austan Jökulsár 1 Austurdal”. Ekki kemur þetta al- veg heim. Hjálmar Þorláksson skrifaði i „Göngur og réttir” glögga og greinagóða lýsingu um „Fjöllin”. Hann segir ekki, að Eyfirðingar eigi allt land sunnan Fossár, en landssvæðiö sé sameiginlegt smölunarsvæði. Um eignarrétt- inn segir Hjálmar: „Landsvæði þetta er eða var eignarheimildar- laust, að þvi er bezt verður vitaö. Munnmæli herma þó, að það hafi tilheyrt Eyfiröingum og þá helzt Mööruvöllum i Eyjafirði, eöa ef til vill Grund”. Hjálmar virðist ekki hafa vitað um hálmstrá Ey- firðinga, landamerkjabréf Möðruvalla og Hóla. Um eftirleit- ir segir han: „Þó má vera, að Ey- firðingar hafi stöku sinnum gert þar eftirleitir. Hitt er vist, að Austurdalsmenn gerðu þangað eftirleitir á hverju hausti, stund- um 2-3 og fundu oft allmargt fé”. Um framangreind atriði er Hjálmar frómur i frásögn og seg- ir það eitt, er hann veit sannast. Um leitir á Nýjabæjarafrétt vil ég bæta við eftirfarandi: Seint i nóvember 1912 fóru Abæjarmenn i eftirleit og fundu 27 kindur, og voru þær úr Eyjafjarðar- og Þingeyjars., og 7 lömb sunnan úr Hreppum en engin úr Skaga- firði. Ég, sem þetta skrifa, leitaði Nýjabæjarafrétt i fyrri göngum i fimm haust, árin 1945 til 1949. Haustið 1946 fundust 57 kindur á svæðinu, þar af 11 að vestan, 1947 fundust 54 og þar af 6 að vestan, 1948 fundust 51 og þar af 5 að vest- an og 1949 fundust 44 kindur og þar af 4 úr Skagafirði. Lögmaður Eyfirðinga var feyki klókur og strikaði yfir nafnið Nýjabæjarafrétt, þar sem það er sett á korti Herforingjaráðsins, en ekki mun honum hafa gefizt tóm til að láta prenta nýtt kort. Svo gerði hann punktalinu ofan i Austurdal við Fossá, samkvæmt landakröfum sinum og Ey- firðinga, og þá var ekki annað eft- ir en fjallshliðin milli Fossár og Hvitár, sem mátti heita Nýja- bæjarafrétt og er I daglegu tali nefnd Afréttin, sem er sérheiti eins og Langahlið, Stórihvammur og Fjöllin. Samheitið á þessu öllu er Nýjabæjarafrétt. Þeir Angantýr Hjálmarsson og Sigurður Jósefsson drukku i sig þessa speki lögmannsins eins og móðurmjólk, og Angantýr er með þetta enn eftir mörg ár. Annað gott strik gerði lög- maðurinn. Ferðafélag Akureyrar viðurkenndi eignarrétt Skag- firðinga, þegar sæluhús var reist við Laugafell, með þvi að biðja um leyfi sýslunefndar Skaga- fjarðarsýslu. Sýslunefndin veitti leyfið með skilyrðum á aukafundi 1947, en bréf upp á þetta frá Ferðafélaginu og sýslumanni Ey- firðinga höfðu glatazt, og þess vegna hélt lögmaðurinn þvi fram, að bókun i sýslufundargerð Skagafjarðarsýslu „gæti ekki haft nein áhrif á úrslit þessa máls,” sem sagt 15 sýslunefndar- menn Skagafjarðarsýslu voru ekki vitnisbærir. Höfuðsmaöur Eyfirðinga, Magnús á Grund, viðurkenndi eignarrétt Skagfirðinga á Nýja- bæjarafrétt með þvi að kaupa Nýjabæ og hálfa afréttina, ásamt félögum sinum, Daviö á Kroppi og Einari á Stokkahlöðum. Kaup þessi voru gerð 22. marz 1905, og það ár ráku nokkrir bændur úr Grundarplássi og Saurbæjar- hreppi fé sitt vestur yfir fjall i eitt eða tvö ár, en það reyndist svo illa, að þvi var hætt, og laust fyrir 1920 keypti Magnús á Frostastöð- um Nýjabæ og hálfa afréttina af Eyfirðingum á 600 krónur. I bókinni „Dagar Magnúsar á Grund” segir svo: „Magnús rak fé sitt venjulega austur á Bleiks- mýrardal. Þó gerði hann tilraun meö að reka þaö upp úr Eyjafjarðardal suður að Lauga- felli. Mun hann hafa rekið fé sitt þangað i tvö eða þrjú vor, en gafst það illa, þvi að féð dreiföi sér og fór bæöi til Skagafjarðar og Eyja-. fjarðar og austur i Þingeyjar- sýslu og sumt heimtist ekki. Rétt eftir aldamótin keyptu nokkrir Eyfirðingar, Magnús á Gund o.fl., hluta úr Nýjabæjaraf- rétt, sem Langahliö heitir, syöst i Austurdal. Hugöust þeir reka fé sitt þangað á vorin og geyma það þar yfir sumarið. En þetta stóö aðeins skamma stund og mun orsökin aðallega sú, að erfitt er að koma fé þarna yfir fjöllin fyrr en kemur langt fram á sumar. Og svo mun það einnig hafa heimzt illa á haustin, hefur liklega misfarizt þarna á fjöllun- um.” Ég vil nú tilfæra nokkur atriði úr framburði vitna fyrir Landa- merkjadómi um það, hvernig Ey- firðingum reyndist að reka fé sitt vestur yfir fjall. Ragnar Daviösson „kveður föð- ur sinn aðeins hafa rekið I eitt skipti á Nýjabæjarafrétt. Kveðst hann hafa heyrt foreldra sina tala um, að ekki heföi verið gerlegt að halda þvi áfram, þvi að féð hefði flækzt út um allan Skagafjörð”. Hallgrimur Thorlacius kveðst hafa heyrt föður sinn, Jón Thorlacius, segja frá þvi. að hann Frh. á bls. 15

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.