Tíminn - 06.04.1973, Síða 2
2
TÍMINN
Föstudagur 6. apríl. 1973
UR
i URvali
ÚR OG SKARTGRIPIR
KORNELlUS
JONSSON
SKÓIAVÖRÐUSTIG8
BANKASTRÆTIG
^•18588-18800
Snjómunstur
fyrir
1000X20
1100X20
^Snjó
hjólbaroa
með djúpum
slitmiklum munstrum
BARÐINN
Ármúla 7 • Reykjavík • Sími 30501
Seljum
sólaða
hjólbarða
með
ýmsum
slitflatar
munstrum
á fólksbíla
jeppa
og vörubíla
H
Flugvirkjafélag íslands.
FUNDARBOÐ
Aðalfundur félagsins verður haldinn
laugardaginn 7. april, ’73 kl. 13:00 að
Bárugötu 11.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. önnur mál.
Stjórnin.
„Ég dilla barni þínu, þú berð bónda minn"
Þetta, eða eitthvað i þessum
dúr, flaug sveitahúsmæðrum
fyrst í hug, þegar nokkrar virðu-
legar húsmæður i Reykjavik létu
etja sér út í árás á heimili okkar,
mánudaginn 26. marz — mis-
heppnaða að visu, enda barna-
lega til hennar stofnað.
Þær siðarnefndu hafa alveg
gleymt þeim hundruðum og
þúsundum barna, sem sveita-
konur hafa fóstrað fyrir Reyk-
vikinga sumar hvert og alið á
kjarnmeira viðurværi en sumum
þessara vesalinga er ætlað til að
nærast á þessa vikuna á sínum
heimilum, — þurru brauði og blá-
vatni, auk blessaðrar ýsunnar,
sem hefur hækkað um 68% á
meðan kjötið hækkaði um 27%.
Ýsan er jú úr sjó og þykist tölu-
vert, eins og skelin i sögunni um
legg og skel, — a.m.k. hátt yfir
sauðarlegginn hafin. Og það er
svo sem einhver munur aö mala
þurrt hveitibrauð (úr hveiti sem
er ræktað af ameriskum „súper-
bónda”), sem hefur hækkað um
35%, meö ýsunni — ellegar einu
vöruna, sem hefur lækkað á sama
tima — og það um 24% — kar-
töflur.
Skitt meö næringuna og vita-
minin!
Þá hæfir það betur á finum
heimilum að drekka ropvatn, sem
hefur hækkað um 39%, eða kaffi,
sem hefur hækkað um 56%,
heldur en „primitiva,” islenzka
hrávöru eins og nýmjólk, sem
hefur ekki hækkað nema um
skitin 27% og er þar á ofan talin
meinholl. Er kannski ekki allt
vont, sem er hollt. Ropvatn er
aftur á móti fimm sinnum dýrara
en mjólk, saklaust af allri
hollustu og inniheldur aðallega
sykur og vatn. Og sykur er ein-
mitt með þvi allra sjálfsagðasta,
sem við skulum kaupa, þvi að
hann hefur hækkað um 115%
„Allar samtaka” aö kaupa hann,
i hvaöa formi sem er!
Mjólkin gæti þó lagazt mikið, ef
kaupmenn fengju að meöhöndla
hana eins og aðrar matvörur,
leggja á hana svo sem 40% smá-
söluálagningu. Hún færi þá að
nálgast 30 krónur litrinn. En það
er nú ekki þvi að heilsa, enda
hefði hún þá ekki verið bannfærð.
Ég get ekki fyrirgefið stjórn-
völdum, að lækka niðurgreiðslu á
mjólk um leið og hún hækkaði i
verði. Ekki af þvi, að sveita-
heimili njóti góðs af niður-
greiðslunum, — þvert á móti, —
heldur af þvi að það þarf minna
en það til að rugla blessaðar verk
fallskonurnar i litlu kollunum sin-
um. Auðvitað héldu þær, að þetta
væri allt hækkun til bænda, lika
þessar 2-3 krónur, sem>teknar
væru af niðurgreiðslunum.
Ein þessara spöku kvenna
talaði einu sinni i útvarpi um kjöt
af 40ára gamalli kú, sem frægt er
orðiö. Ég undirrituð hlýt að vera
ennþá eldri en kirkjubækurnar
segja, úr þvi að kýr geta orðið
fertugar. Svo margar kúakyn-
slóðir hef ég lifað, — einar fjórar!
Hundrað og sextiu ára, —
takk! Hvaö um það, ég er furðu
ern og ber aldurinn bara vel. Er
að vona, aö ég veröi kannski
fjögur hundruö ára. Þaö er nefni-
lega langlifi i minni ætt lika.
Nu legg ég til, að „hönnuöir”
allrar þessarar speki taki sér
hvild, þegar þær eru búnar að
fara i skiöaferðina til Sviss um
páskana og fresti þá næstu utan-
landsreisu, þangað til búið er að
koma börnunum i sveitina.
(„Gvuð, hvað ég held annars að
þaö verði erfitt að dobbla sveita-
kerlingarnar I vor. Sumar spældu
okkur á mánudaginn var, og
allar farnar að pipa! Ég skal nú
samt geta losnað viö
krakkana.”!)
Já, og taki þær nú einhvern af
heimilisbilunum, ferðizt um sitt
land til tilbreytingar, og reyni að
sjá með eigin augum, hvernig
„pöpullinn,” bændur, sjómenn og
verkamenn fari að þvi að gera
þetta hrjóstruga land byggilegt.
Þær mega ekki móögast, þótt þær
rekist viða á smáþorp, sem fram-
leiða meiri verðmæti en Reykja-
vik. Þær gætu skemmt sér við að
virða fyrir sér kjör bænda og hús-
mæðra á sveitabýlum, vinnutima
þeirra og „helgarfri” fjölda
heimilisfólk að sumrinu. Kannski
myndu þær kannast við eitt og eitt
andlit „að sunnan.” Hvort þau fá
ekki allt fyrir ekki neitt og voða
mikið af styrkjum. Hvort þau
hafa efni á að „spara” á sama
hátt og þær sjálfar, — með þvi að
kaupa aðeins það dýrasta og
ómerkilegasta. Svo gætu þær lagt
leið sina I þorp, kauptún og kaup-
staði, er byggjast að mestu leyti
á úrvinnslu landbúnaöarvara:
ullar, gæra og skinna o. fl„ ásamt
þjónustu við sveitirnar,
flutningum og afgreiðslustörfum.
Þetta fólk lifir lika á landbúnaði.
Það skapar mikinn gjaldeyri með
vinnu sinni, sem þær eru reglu-
lega duglegar að eyða. — Þannig
er það lika meö sjávarþorpin,
sem byggjast á útgerð. Þau
skyggja á Reykjavik, hvað verð-
mætasköpun snertir og gjald-
eyrisöflun.
Vel á minnzt, gjaldeyrir —
Kannski þær skreppi til Mallorca
eða Kanaríeyja eftir að hafa orð
ið fyrir þessari miklu lifsreynslu.
Krakkarnir geta verið I sveitinni
á meðan. Þær verða fagur-
brúnar á litinnbæði af sól og svo
svo þessu, sem kemurúrklóökun-
um.!
Með systurkveðju frá borg-
firzkum konum til 25 kvenna i Ar-
nessýslu.
Ingibjörg Bergþórsdóttir
Fljótstungu.
Tækjabúnaður japönsku
togaranna
„Hvernig stendur á þvi, aö
ekki hefur verið sagt frá
tækjabúnaði nýju japönsku
togaranna, sem nú eru að
koma til landsins, i blöðum,
eins og oftast hefur verið gert i
sambandi við önnur togara-
kaup?” Sveinn Helgason
Akureyri
VIPPU - BlLSKÚRSHURÐIN
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
210 - x - 270 sm
Aörar stærdir .smiuaoar ertir Deidm.
GLUGGASMIOJAI
Siðumúla 12 - Sími 38220
Timinn er 40 síö
alla laugardaga (
sunnudaga. —
Askriftarsiminn (
1-23-23
Kjartan R. Jóhannsson hjá
Asiufélaginu h.f., sem haft
hefur milligöngu um togara-
kaupin frá Japan svarar:
„Vel má vera að ekki hafi
komið nóg fyrir almennings
sjónir um það efni. En við er-
um fáliðaðir hér á skrifstof-
unni. Ægir, timarit Fiski-
félags íslands, mun þó að öll-
um likindum birta greinagóöa
frásögn af japönsku togurun-
um á næstunni. Annars er öll-
um velkomið að spyrja okkur
um tæknibúnað togaranna,
blaðamönnum sem öðrum.”
Fermingarveizlur
Opið frá kl.
Tökum að okkur og útbúum alls kyns
veizlumat/ brauðtertur, smurt brauð
og margt fleira
08-21.30.
Laugavegi 178
Simi 3-47-80