Tíminn - 06.04.1973, Blaðsíða 5

Tíminn - 06.04.1973, Blaðsíða 5
Föstudagur 6. apríl. 1973 TÍMINN 5 3 góiar ferminsnrsjafir frá KODAK Kodak Instamatic 56-X kr. 1.823.00 Kodak Instamatic 255-X kr. 3.539.00 Kodak Instamatic 155-X kr. 2.306.00 3 Kodak Instamatic-X myndavélar, sem ekki nota rafhlöður við flashlampa. Eru til stakar og í gjafakössum. HANS PETERSEN BANKASTR. GLÆSIBÆ — SlMI 20313 — SlMI 82590 Elínborg Gestsdóttir kynnir hina nýja IBM 82C rítvéi fyrir blaða- mönnum. Timamynd Róbert DRAUMUR VÉLRIT- ARANS AÐ RÆTAST — IBM ritvél með leiðréttingar-útbúnaði á markaðinn Þó. Reykjavik — Draumur vél- ritarans virðist nú loksins vera að rætast, þvl að IBM fyrirtækið hefur nú sent frá sér mjög full- komna kúluritvél með inn- byggðum leiðréttingarútbúnaði. Þessi rafritvél, sem nefnist IBM 82C hefur innbyggðan leið- réttingarútbúnað, sem getur fjar- lægt villur af frumriti bréfa og skjala, þannig að ekki þarf að nota strokleður, lakk eða annað, sem skilur eftir augljós ummerki á pappirnum. Leiðréttingin er gerð beint frá lyklaborðinu, og þessi aðferð minnkar einnig tafir, sem verða við aðrar aðferðir við leiðréttingar. Er þvi ekki lengur þörf á að rifa hálfskrifað blað úr ritvélinni og byrja að nýju. Sigurður Gunnarsson, forstjóri Skrifstofuvéla, sagði, er þessi nýja vél var kynnt fyrir blaða- mönnum i gær, að ef ritvilla væri gerð á IBM 82C, væri hún leiðrétt meðsérstökum leiðréttingarlykli. Vélin færist þá til baka að ranga merkinu, villunni, og um leið færist sérstakt leiðréttingarband i staðinn fyrir litarbandið. Siðan er ranga merkið villan, slegið aö nýju, og blekinu er þannig ,,lyft” Forstjóri og sölumenn Skrifstofuvéla h.f. taliö frá vinstri Sigurður Gunnarsson, forstjóri, Sverrir Steindórsson, sölumaður, Arnar Guðmundsson, sölumaður og Lúðvik Guðmundsson sölustjóri. A borðunum eru ýmsar tegundir af IBM ritvélum, hin nýja og fuilkomna IBM 82C er á fremsta borðinu. —Timamynd Róbert af pappirnum, og villan er farin. Þessu næst er rétta merkið slegið, og haldið er áfram að vélrita á venjulegan hátt. Fyrsta kúluritvélin frá IBM kom á markaðinn árið 1961, hafa þær jafnan verið taldar beztu rit- vélar, sem völ er á enda eru kostir þessara ritvéla margir. Til dæmis má skipta um letur i þessum ritvélum á fáeinum sek- úndum, og um þessar mundir er hægt að fá þrjár gerðir islenzks leturs. Þessar leturgerðir skrifa tvær leturstærðir, 10 og 12 stafi á þumlung eftir stillingu og gerð kúlu. Að auki er letur fyrir vél- rænan lestur. (Optical reading). Kúlurnar, sem notaðar eru i IBM ritvélarnar eru m jög sterkar og endast i fjölda ára, kostar hver kúia 2800 krónur, en mikil vinna liggur að baki gerð hverrar letur- gerðar, kostnaður við að gera frumgerð að kúlu með islenzku letri er vart undir hálfri milljón króna. Skrifstofuvélar h.f. halda sýn- ingu á IBM 82C og öðrum rit- vélum frá IBM i Bláa sal Hótel Sögu i dag og á morgun, þar getur fólk kynnt sér þessa frá- bæru ritvél og um leið litið á aðrar IBM ritvélar og aðrar vörur, sem Skrifstofuvélar hafa umboð fyrir hér á landi. VIÐ SMÍÐUM HRINGANA SÍMI 24910 Tilkynning til viðskiptamanna Útvegsbankans í Vestmannaeyjum í samráði við Landsbanka íslands og Útvegsbankans i Keflavik hefur verið ákveðið, að eftirtalin bankaútibú og af- greiðsluskrifstofur taki á móti innborgun- um á reikninga við Útvegsbankann i Vest- mannaeyjum og öðrum greiðslum og ann- ist útborganir fyrir hann á venjulegum af- greiðslutimum: 1. Landsbanki íslands 2. 3. Afgr. Landsbankans 4. 5. 6. Útvegsbanki íslands Grindavik. Selfossi Þorlákshöfn Eyrarbakka Stokkseyri Keflavik Auk þess munu starfsmenn útvegs- bankans i Vestmannaeyjum vera til viðtals fyrir viðskiptamenn útibúsins á eftirtöldum stöðum eins og hér segir: 1. í Landsbanka íslands miðvikud. kl. 6-8 e.h. 2. í Landsbanka islands, föstud. kl. 6-8 e.h. 3. í afgr. Landsbankans, föstud. kl. 9-10 e.h. 4. í útvegsbanka íslands, þriðjudaga kl. 6-8 e.h. Grindavik Selfossi Þorlákshöfn Keflavik Fyrsta móttaka verður á Selfossi, föstu- daginn 6. april. ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS í '(-T : 'Íw {j '+-■ 'J O £jardinia V'' STBi ' Ö Höfum á boðstólum mikið úrval gardínustanga bæði úr tré og járni. Einnig nýja gerð af viðarfylltum gardínubrautum. Kappar í ýmsum breiddum, spón- lagðir eða með plastáferð í flestum viðarlikingum. Sendum gegn póstkröfu. Gardinubrautir h/f Brautarholti 18,s. 20745

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.