Tíminn - 06.04.1973, Side 8

Tíminn - 06.04.1973, Side 8
8 TÍMINN Föstudagur 6. apríl. 1973 ALÞINGI Umsjón: Elías Snæland Jónsson Mikill kraftur færist i þingstörfin: 11 NÝ LÖG FRÁ ALÞINGI EJ-Reykjavik. — i fyrrakvöld og i gær voru 11 frumvörp af- greidd sem lög frá Alþingi. i sumum tilfellum er hér um aö ræöa stóra og þýðingarmikla lagabálka. Hér á eftir fer yfirlit yfir þessi nýsamþykktu lög, en þau hafa aö sjálfsögöu öll verið kynnt rækilega áður hér á sið- unni. Ný búfjárræktarlög 1 gær var frumvarp rikis- stjórnarinnar til búfjár- ræktarlaga afgreitt sem lög frá Alþingi. Þetta er mikill lágabálkur, samtals 66 greinar i 11 köflum. Nýju lögin stefna að þvi að kynbótastarf- semin og búfjárræktin öll i landinu aðlagist og færi sér fullkomlega i nyt nýja tækni, aukna þekkingu og bætta að- stöðu, sem skapazt hefur að undanförnu, en þessar breyt- ingar hafa veruleg áhrif á félagslega skipulagningu kyn- bótastarfsins. Frumvarpið tók nokkrum breytingum i með- förum þingsins. Dómari og rann- sóknar- deild i ávana- og fikniefnamálum Þá var frumvarpið um sér- stakan dómara og rann- sóknardeild i ávana- og fikni- efnamálum samþykktsem lög frá Alþingi i fyrrakvöld. Samkvæmt þvi verður þessu dómaraembætti nú komið á, og undir stjórn hins nýja dómara mun starfa sérstök deild lögreglumanna. Er talið, að þetta fyrirkomulag muni mjög bæta úr núverandi ástandi. Fjölbrautarskóli Þá var frumvarpið um heimild til að stofna fjöl- brautarskóla einnig samþykkt i fyrrakvöld, en samkvæmt nýju lögunum er heimilt að stofna tilraunagkóla af þessari gerð i Reykjavik eða öðrum sveitarfélögum. Önnur ný lög önnur frumvörp, sem sam- þykkt hafa verið sem lög i gær og fyrrakvöld, eru þessi: Frumvarpið um útflutnings- gjald af sávarafurðum. 1 þessum nýju lögum eru felld saman öll lagaákvæði um þetta mál og gerðar allveru- legar breytingar á út- flutningsgjöldunum sjálfum frá þvi, sem verið hefur. Frumvarpið um breytingu á lögum um rannsóknir i þágu atvinnuveganna. Samkvæmt þvi skal Rannsóknarstofnun fiskiðnaðar starfrækja rann- sóknarstofur utan Reykja- vikur samkvæmt ákvörðun ráðherra og að fengnum til- lögum aðila fiskiðnaðarins. Leita skal samstarfs við fisk- iðnað, aðra matvælaframleið- endur og sveitarfélög á við- komandi svæði, og skulu þessir aðilar leggja fram helming stofnkostnaðar. Flutningsmenn frumvarpsins voru Steingrimur Hermanns- son (F) og Páll Þorsteinsson (F). Frumvarpið um breytingu á lögum um meöferð opinberra mála. Hér var fyrst og fremst um að ræða breytingar með tilliti til verðlagsþróunarinnar frá þvi gömlu ákvæðin voru samþykkt. Frumvarpið um breytingar á lögunum um skipulag á löndun á loðnu til bræðslu. 1 lagaákvæðinu felst stofnun loönuflutningssjóðs. Frumvarpið um lögreglu- stjóra i Hafnarhrcppi. Sam- kvæmt þessum nýju lögum verður Hafnarhreppur i A- Skaftafellssýslu sérstakt lögreglustjóraumdæmi. Frumvarpið um breytingu á lögum um stofnun og slit hjúskapar. Hér var einungis um leiðréttingu á ártali i eldri lögum að ræða. Frumvarpið um Happdrætti DAS.Þar var heimild DAS til happdrættisreksturs fram- lengd um 10 ára timabil. Frumvarpið um Happdrætti Háskólans. Fyrst og fremst var um lengingu á heimild Háskólans til happdrætti- sreksturs að ræða um 15 ára skeið, en einnig voru nokkrar aðrar breytingar gerðar á eldri lögum. öll þessi frumvörp, sem nú eru samþykkt sem lög, voru stjórnarfrumvörp, nema það eina sem sérstaklega er tiltekið um flutningsmenn að. 22 þúsund manns hafa séð Kjarvalssýninguna lendra manna og samtaka og hvers konar kynningar á lista- og menningarstarfsemi, sem eðli- legt þykir, að þar fari fram. Þá er ætlunin, að i húsinu verði bæki- stöð fyrir starfsemi, sem tengd er skrúðgarðinum á Miklatúni og veitingastarfsemi i tengslum við önnur afnot hússins.” Og á fyrstu listsýningu hússins, sem nú stendur yfir, eru sýnd verk eftir J.S. Kjarval. Alls eru sýnd 186 verk meistarans. t eystri sal hússins, Kjarvalssal, eru sýndar myndir i eigu borgarinn- ar, en i vestri sýningarsalnum eru myndir i einkaeign. Við ræddum við forstöðumann hússins, Alfreð Guðmundsson, eftir helgina, og kom þar fram, að alls hafa 22 þúsund manns heim- sótt húsið á þessum tiu dögum, sem liönir eru, siðan það var opn- að. Þar af komu hvorki meira né minna en 12 þúsund manns um siðustu helgi. Rétt er að vekja at- hygli á þvi, hvenær húsið er opið, en það er sem hér segir. Á þriðju- dögum, miðvikudögum, fimmtu- dögum og föstudögum er opið frá klukkan 4 siðdegis til kl. 10 að kvöldi. A laugardögum og sunnu- dögum er opið frá 2-10. Húsið er ekki opið á mánudögum. Veiting- ar eru á staðnum. Að sögn Alfreðs hefur enn ekki verið tekin ákvörðun um, hve lengi K jarvalssýningin mun standa, né heldur um aðrar sýn- ingar á næstunni. Eins og áður segir er Alfreð Guðmundsson for- stöðumaður hússins, en hússtjórn skipa Páll Lindal borgarlögmað- ur, formaður, Jón Arnþórsson sölustjóri og Ólafur B. Thors borgarráðsmaður. __gtp Nokkuð af mununum á basar systrafélagsins Alfa. —Timamynd: Róbert. Systrafélagið Alfa hefur ávallt reynt að vera viðbúið til hjálpar, þegar voði steðjar að. Nú er félagið að búa sig undir áfram- haldandi hjálparstarf. Hinn ár- legi basar félagsins verður hald- inn næsta sunnudag (8. april) að Hallveigarstöðum við Túngötu og hefsthann kl. 2. Þar verða á boð- stólum margir glæsilegir munir, bæði saumaðir og prjónaðir. Auk þess verða á boðstólum nýjar kökur alls konar, heitar vöfflur og lukkupakkar. Er það von systranna að margir leggi leið sina að Hallveigarstöðum næsta sunnudag til að styrkja starfsemi þeirra. Oft hefur verið þörf, en nú er nauðsyn. Þeir eru aö viröa fyrir sér eitt af málverkum Kjarvals f Myndlistarhús- inu á Miklatúni. T.v. Alfreð Guðmundsson forstööumaöur hússins. T.h. Þórarinn Helgason rafvirkjameistari, er var aö skoöa sýninguna, er ljósmyndara okkar bar aö. Málverkiö er „Skjaldbreiö". (Timamynd: Róbert) MYNDLIS-TARHÚSIÐ VIÐ Miklatún eða Kjarvalsstaðir, eins og það er yfirleitt kallað, var eins og kunnugt er formlega opnað laugardaginn 24. marz s.l. Húsið var reist i tilefni af áttræðisaf- mæli Jóhannesar S. Kjarvals 15. október 1965. Fyrstu skóflustung- una tók Kjarval sjálfur 18. ágúst 1966, á 180 ára afmæli Reykja- vikurborgar. Hafa framkvæmdir við bygginguna staðið næsta óslit- ið siðan, eða þar til húsið var formlega opnað um daginn. Hinn 16. marz 1971 voru settar reglur um rekstur hússins af borgarráði i samráði við stjórn Bandalags islenzkra listamanna. Ekki er úr vegi að rifja aðeins upp þessar reglur, en i 2. grein þeirra segir svo: „Markmið borgarinn- ar með byggingu og rekstri húss- ins er, að þar verði sköpuð að- staða til að kynna almenningi eft- ir þvi sem aðstæður leyfa og henta þykir, myndverk, sem eru i eigu borgarinnar, og ekki eru þegar aðgengileg úti við eða i stofnunum borgarinnar, sérstak- lega þó verk eftir Jóhannes S. Kjarval. Það er og markmið borgarinn- ar, að i húsi þessu verði aðstaða til listsýninga innlendra og er- Systrafélagið Alfa með Vestm.eyjabasar STARFSEMI Systrafélagsins Nafn þess hefur oft verið nefnt i Alfa er löngu oröin kunn alþjóö. sambandi viö margs konar liknarstörf og nú siöast i sam- bandi viö eldgosiö i Vestmanna- eyjum, en þá önnuöust Alfa-syst- ur fataúthlutun til Vestmanna- eyinga, sem flestir uröu aö yfir- gefa Eyjarnar eins og þeir stóöu. Frá þvi aö gosiö hófst og fram undir þetta hafa systurnar úthlut- að um 23000 flikum. Frumvarpi visað til rikisstjórnar I gær var einu frumvarpi visað til rikisstjórnarinnar. Var það frumvarp um greiðslu kostnaðar við námsflokka, sem Bragi Sigurjónsson (A) hafði flutt. Stjórnarfrumvarp: Tekjur Fiskveiða- sjóðs verði auknar EJ-Reykjavik. — t gær var lagt fram á Alþingi stjórnar- frumvarp, sem felur f sér auknar tekjur til Fiskveiöa- sjóðs tslands, sem nema a.m.k. 110 milljónum króna á þessu ári. Samkvæmt frumvarpinu skulu tekjustofnar sjóðsins vera sem hér segir ,,a. vextir af lánum og öðrum kröfum, b. útflutningsgjöld af sjávar- afurðum, sem renna til sjóðsins lögum samkvæmt, c. 1% af fob-verði útfluttra sjávarafurða (öðrum en þeim, sem koma frá hvalveiðum, selveiðum og hrognkelsa- veiðum). Skal gjald þetta reiknað á sama hátt og annað útflutningsgjald af sömu vöru og skal það reiknað af sjávar- afurðum, sem framleiddar eru á timabilinu frá 1. júli 1973 til 31. desember 1975, d. til viðbótar framlagi til sjóðsins skv. c-lið greiðir rikissjóður honum jafnháa fjárhæð árlega, e. tilviðbótar framlagi til sjóðsins skv. b-d lið greiðir rikissjóður honum árlega 35 milljónir króna, f. lántökur innanlands og erlendis, sbr. þó 7 gr. laga nr. 30/1960”. 1 athugasemdum við laga- frumvarp þetta segir m.a.: „Fjáröflun til Fiskveiðasjóðs er nú með þeim hætti, að rikis- sjóður greiðir árlega til sjóðsins 35 milljónir króna.en auk þess rennur til sjóðsins, lögum samkvæmt, hluti af út- flutningsgjöldum af sjávar- afurðum og mun láta nærri, aö á sföasta ári hafi sú upphæö numiö 49 milljónum króna. Loks renna til sjóðsins vextir af lánum og öðrum kröfum og var hér um að ræöa 260 millj. kr. á árinu 1972. 1 lögum nr. 75 13. maí 1966 um Fiskveiðasjóð íslands var fjáröflun til sjóðsins þannig háttað að rikissjóður greiddi ekki fyrirfram ákveðið fram- lag til sjóðsins, eins og nú er, heldur greiddi rikissjóður framlag, sem var jafnhátt hluta sjóösins af útflutnings- gjöldum sjávarafuröa. Hluti sjóðsins nam þá 17,2% af út- flutningsgjöldum, en nemur nú 11,4% og verði frumvarp um útflutningsgjald af sjávar- afurðum, sem nú liggur fyrir Alþingi, að lögum, mun hlutur sjóðsins lækka niður i 9.4% af útflutningsgjöldum. Ljóst er þvi, aö nokkuð hefur verið dregið úr fjáröflun til Fisk- veiðasjóðs miðað við lög n.r 75/1966 um Fsikveiðasjóð Islands og lög n r 4/1966 um útflutningsgjald af sjávar- afurðum. A hinn bóginn er þess að gæta, að verkefni sjóðsins hafa vaxið mjög nú á siðustu árum og ber þar hæst tvö stór- verkefni. Annað er hin mikla endurnýjun skipa- og einkum togaraflotans, sem nú stendur yfir, og hitt er jafnhliða endur- nýjun hraðfrystihúsanna, sem ýmist er fólgin i þvi að ný hús eru reist istað gamalla, eða að starfandi frystihús eru endur- bætt og jafnvel gerðar á þeim stórbreytingar og viðgerðir. Arleg fjáröflun til Fisk- veiðasjóðs er ekki meiri en svo, að eigið fé sjóðsins minnkar stöðugt I hlutfalli við útlánin og er alveg sýnt, að sjóðurinn getur ekki sinnt þessum auknu verkefnum, nema fjáröflun til sjóðsins verði aukin að mun. Reiknað er með þvi, að verðmæti útfluttra sjávar- afurða verði 15-16 milljarðar á þessu ári, en útflutningsverð- mæti sjávarafurða fram- Framhald á bls. 19

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.