Tíminn - 06.04.1973, Side 16
16
TÍMINN
Föstudagur 6. apríl. 1973
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
Enn tapar
Chelsea á
heimavelli
FJÓRIR leikir voru leiknir i
ensku 1. deildinni i knattspyrnu
nú I vikunni. Leeds-liöiö heimsótti
Coventry á mánudagskvöldið og
fór með tvö dýrmæt stig heim.
Það var Paul Reaney, sem
skoraði eina mark leiksins. Á
þriðjudagskvöldið voru tveir leik-
ir leiknir. Chelsea mátti þola enn
eitt tap á heimavelli sinum,
Stamford Bridge, bað voru leik-
menn Tottenham, sem lögðu þá
aö velli, 1:0. Þá skruppu leik-
menn leikmenn Norwich til
Liverpool og léku gegn Everton á
Goodison Park. Leiknum lauk
með jafntefli 2:2. og tryggðu leik-
menn Norwich sér dýrmætt stig i
baráttunni um fallið, en það er
óliklegt, að það dugi. Þetta var
fyrsta jafntefli liðsins á útivelli i
deildinni. Liðið hefur aftur á móti
gert nlu jafntefli á heimavelli
sínum. Stoke sigraði Ipswich á
miðvikudagskvöldið 1:0. Leikur-
inn fór fram á heimavelli Stoke.
Staðan er nú þessi i ensku 1. og 2.
deildinni.:
1. DEILD
Liverpool 36 22 9 5 65:37 53
Arsenal 37 22 8 7 51:33 52
Leeds 35 19 10 6 58:35 48
Ipswich 36 16 10 10 49:37 42
Newcastle 36 15 11 10 54:42 41
Wolves 35 15 10 10 53:43 40
West Ham 36 15 9 12 58:45 39
Tottenhan 35 14 10 11 47:37 38
Derby 36 15 7 14 47:51 37
Coventry 36 13 9 14 38:41 35
Chelsea 36 10 14 12 43:34 34
South.ton 36 9 16 11 35:41 34
Man.City 36 12 9 15 47:54 33
Leicester 36 9 14 13 37:42 32
Stoke 37 11 9 17 51:50 31
Everton 35 11 9 15 34:38 31
Birmingh. 36 10 11 15 42:39 31
Sheff.Utd. 36 11 9 16 39:51 31
Man.Utd. 35 9 11 15 37:55 29
C.Palace 35 8 11 16 36:44 27
Norwich 36 8 10 18 32:56 26
W.B.A. 36 7 9 20 30:54 24
2. DEILD
Burnley 36 19 13 4 59:34 51
QPR 35 19 12 4 71:35 50
Blackpool 37 16 10 11 52:46 42
Sheff.Wed. 37 16 9 12 56:48 41
Aston Villa 36 15 11 10 43:42 41
Fulham 36 14 11 11 52:42 39
Oxford 36 16 6 14 46:37 38
Luton 35 14 10 11 42:41 38
Middlesbro 37 13 12 12 35:39 38
Bristol City 37 13 12 12 52:47 38
Nottm.For. 36 13 11 12 42:40 37
Millvall 36 14 7 15 50:43 35
Sunderland 32 12 10 10 47:50 34
Hull City 34 11 11 12 54:51 33
Carlisle 36 11 9 16 46:43 31
Swindon 37 9 13 15 43:57 31
Portsmouth 36 10 10 16 38:52 30
Preston 36 10 10 16 33:57 30
Orient 35 9 11 15 38:44 29
Huddersf. 36 7 15 14 33:47 29
Cardiff 34 10 7 17 35:49 27
Brighton 36 7 10 19 40:73 24
íslandsmót í
borðtennis
ISLANDSMÓTIÐ 1973 I borð-
tennis mun hefjast föstudags-
kvöldið 27. apríl Þriðjudaginn 1.
maT verðu mótinu haldið áfram
og keppt til úrslita seinni hluta
dagsins.
Mótsfyrirkomulag mun verða
með nýju sniði. Nú fellur hver
keppandi úr leik við annað tap i
stað fyrsta taps á siðasta tslands-
móti. Skráningu þarf að vera
lokið 14.4. 73.
Einnig stendur til að halda
Islandsmót i flokkakeppni. Það
mun hefjast laugardaginn 14.
april, og mun ljúka fyrir
máibyrjun.
HAUKAR VORU í HLUT-
VERKI „STATISTANNA"
Handknattleiksmaður ársins
Þegar Valsmenn kafsigldu
Þaö lifnaði heldur betur yfir
áhangendum Hauka á 25. min.
þegar ólafur Ólafsson skoraði
annað mark Hauka, og á næstu
tveimur min. minnkuðu Haukar
muninn i 8:4. Staðan i hálfleik var
9:5 fyrir Val.
En Valsmenn héldu áfram sókn
sinni i siðari hálfleik. Haukum
tókst ekki að brúa bilið, þó að þeir
létu Sigurð Jóakimsson elta bezta
sóknarleikmenn Vals, Olaf Jóns-
son. Þegar staðan var 14:9 fyrir
Val, voru tveir leikmenn Vals
teknir úr umferö, þeir Ólafur og
Jón Karlsson. Það dugði ekki
heldur, Valsmenn voru miklu
sterkari, og þeir skoruðu sex siö-
ustu mörk leiksins, sem lauk með
sigri þeirra 20:9.
Valsmenn voru allan timann
betra liðið Eins og svo oft áður,
var vörnin með Ólaf Benedikts-
son fyrir aftan sig, sterkasti hluti
liðsins. Agúst ögmundsson lék
mjög vel I vörninni, lék mjög
framarlega og truflaöi sóknarleik
Hauka. Þá húkkaði hann oft
knöttinn og skoraði fjögur mörk
með góðum hraðupphlaupum.
Ólafur Benediktsson varði oft vel
i markinu, hann varði t.d. tvö
vitaköst. Það er greinilegt, að
hann er okkar langbezti mark-
vörður. Sóknarleikur Vals er ekki
nógu liflegur og virðist sem vanti
allan hreyfanleika og ógnun.
Góð þótttaka í skoð
anakönnun Tímans
um „Handknattleiks'
Haukar héldu sinni sérstöku
leikaðferð, þeir vilja helzt vera
lausir við að skora fleiri en 3-4
mörk i hálfleik. 1 leiknum gegn
Val skoruðu þeir strax á 2. min.
Annað mark þeirra kom síðan á
25. min siðan komu mörk á 26.27.
og 30. min., en það er mjög sjald-
gæft, að þeir skori mörk með svo
stuttu millibili. Eftir að hafa séð
Hauka leika gegn Val, er
I óskiljanlegt, hvernig liðið hefur
fengið þessi tiu stig, sem það
hefur hlotið i Islandsmótinu.
Leikinn dæmdu þeir Gunnar
Gunnarsson og Sigurður Hannes-
son vel.
—SOS
mann órsins 1973”
Égkýs.......................
sem handknattleiksmann ársins
Nafn.......................
Heimilisfang................
Simanúmer...................
þá á miðvikudagskvöldið.
Allarlíkur eru á því, að
Islandsmeistarabikarinn
verði að Hlíðarenda næsta ár
FÁTT VIRÐIST geta stöðvað Valsmenn á leið
þeirra að islandsmeistaratitlinum. Á miðvikudags-
kvöldið léku Valsmenn sér að Haukum eins og
köttur að mús. Leikmenn Hauka léku „statista”-
hlutverk i iþróttahúsinu i Hafnarfirði. Þegar leikur
liðanna byrjaði, var mikið fjör á áhorfendabekkjun-
um, og þegar Þórir úlfarsson skoraði fyrsta mark
leiksins fyrir Hauka, ætlaði allt að verða vitlaust.
Hinir tryggu áhangendur Hauka sungu af miklum
krafti: „Haukar eru beztir, við erum beztir”. Hinir
keppnisglöðu Valsmenn létu þetta ekkert á sig fá,
þeir svöruðu þessu fyrsta marki með átta mörkum i
röð og breyttu stöðunni i 8:1.
Ágúst lék vel
Agúst ögmundsson, lands-
liðsmaður úr Val hefur
aldrei verið betri, en einmitt
um þessar mundir. Hann átti
stórgóðan leik gegn
Haukum.
ÞAÐ ER greinilegt, að mikil
þátttaka ætlar að veröa I
skoöanakönnun Timans um
„Handknattleiksmann ársins”,
en þegar hafa margir atkvæða-
seðlar borizt til blaðsins.
Iþróttasiöan vill hvetja sem
allra flesta til að taka þátt I
kosningunni, en vill minna á I
leiðinni, að engum er heimilt að
senda fleiri cn einn seðil til
blaðsins. Skal hann greinilega
merktur nafni þess, er við-
komandi kýs sem „Handknatt-
leiksmann ársins”, auk nafns
sendanda, heimilisfangs hans og
simanúmers. Og skilafresturinn
er til 20. april. Utanáskriftin er:
„Ilandknattleiksmaöur ársins”,
c/o Tlminn, PO 370.
Hér fylgir atkvæðaseðill:
Úthlutaði
þoku-
lúðrum
„ALLA lúðrana I töskuna”,
sagði einn áhorfandi I
iþróttahúsinu i Hafnarfirði
eftir leik Hauka og Vals á
miðvikudagskvöldið. Þarna
var á ferðinni áhangandi
Valsliðsins, sem hélt á litilli
ferðatösku — vinir hans
gengu cinn af öðrum að
honum og settu litla þoku-
lúðra í töskuna. Þegar allir
voru búnir að skila, lágu átta
lúðrar I töskunniT
Eftir að hafa verið vitni að
þessu, vissi maður hvernig á
þvi stóð, að alltaf, þegar
Valsmenn skoruðu mark,
fengu þeir þann heiður að
hlaupa I vörnina við
„fagran” lúðrablástur. Er
þetta ekki það, sem þarf,
smá upplifgun á áhorfenda-
pöllunum. Eitthvað það al-
leiðinlegasta, sem maður
sér, er þögull áhorfenda-
fjöldi á áhorfendapöilunum.