Tíminn - 06.04.1973, Page 20

Tíminn - 06.04.1973, Page 20
* ..... Föstudagur 6. aprll. 1973 - ^ MERKIÐ SEM GLEDUR HHtumst i haupfélaginu Gistíd á góðum kjörum «HnraL« a| 1«—ii«—»||HU n SGOÐI J Jtorir ffóóan mut $ KJÖTIDNADARSTÖÐ SAMBANDSINS Þessi ganga var hluti af þeirri athöfn, þegar veröandi —Ljósmynd: GE Föngulegur hópur stúdentscfna frá MT leggur af staö f blysför kringum tjörnina stúdentar kvöddu skóla sinn. Lítið að fá á börunum Þó—Reykjavik— Deila veitinga- húsaeigenda og þjóna stendur enn viðþaðsama, því þjónar höfnuðu algerlega bréfi sem veitinga- húsaeigendur sendu þeim í gær- morgun, en i þessu bréfi, var miðlunartillaga frá veitingahúsa- eigendum. Þjónar komu saman á fund kl. 17 i gær og voru þeir á fundi fram til klukkan 20. Samþykktu þeir á fundinum að þeir væru reiðubúnir að vinna, hér eftir sem áður, eftir þeim kjörum og prósentuálag- ingu og þeir hafa fengið fram til þessa. En það vilja veitingamenn ekki. Þjónar mættu allir til vinnu i gærkvöldi, það er að segja i þau hús, sem á annað borð voru opin. Þeir gátu selt það vin, sem þeirhöfðu undir höndum, en eftir að þeirra vinbirgðir voru þrotnar, fengu þeir ekki meira afgreitt frá veitingamönnum. Þvi má reikna með að einhverjir hafi ekki fengið það að drekka, sem þeir helzt vildu i gær. Ef þessi deila leysist ekki i bráð, þá koma vist allir ódrukknir út úr veitingahúsun- um. Þrjár míllj- ónir fráSviss SENDIHERRA Sviss- lendinga gekk á miðviku daginn á fund forsætis- ráðherra og færði hon- um kveðju svissnesku rikisstjórnarinnar, ásamt ávisun að upphæð hundrað þúsund sviss- neskir frankar, vegna náttúrhamfaranna i Vestmannaey jum. Þetta er jafnvirði tæp- lega þriggja milljóna króna og rennur i við- lagasjóð. Eyjólfur Jónsson, húsvörður I MT.eöa „Húsi” eins og nemend ur MT kalla hann. LjósmyndGE „Vona, að ein- hverjir hafi tekið sönsum" sagði Hannibal Valdimarsson um vegatollsf rumvarpið KJ—Reykjavík — Viö eigum aö taka upp vegatoll á Reykjanes- braut aftur, og viö eigum aö taka upp vegatoll á Suöurlandsvegi, sagöi Hannibal Valdimarsson samgöngumálaráöherra f svari viö fyrirspurn um vegatollinn á fulltrúafundi klúbbanna öruggur akstur I gær. Hannibal sagðist hafa verið mótfallinn þvi, að vegatollsinn- heimtan á Reykjanesbraut væri felld niður á sinum tima, en nú væri máliö til meðferöar i þing- inu, og yrði væntanlega tekiö til afgreiðslu næstu daga. Sagði Hannibal, að málið yröi væntan- lega afgreitt úr nefnd I dag, og þegar það kæmi til afgreiðslu i þinginu, sagði hann, að menn myndu sjá til, hvort einhverjir þingmenn hefðu ekki tekiö söns- um siðan i fyrra og greiddu vega- tollinum atkvæði sitt. Þá sagði ráðherrann, að þegar gengið hefði veriö frá það löngum vegarkafla á Vesturlandsvegi, að samsvaraði áðurnefndum veg- um, ætti aö taka þar upp vegatoll, og einnig væri vel hugsanlegt að taka vegatoll af þeim, sem ækju yfir veginn á Skeiðarársandi, þegar þar að kæmi. Ráöherrann sagðist hafa mætt á fundum á Suðurnesjum, þar sem vegatollurinn hefði veriö til umræðu, og hefði sér fundist, að fólk skildi nauðsyn þess að rétt- læti að taka gjalda af þeim, sem ækju um góöa vegi. Hann sagðist vera algjörlega sammála skag- firzka bóndanum, sem hefði skrifað sér og sagt, að þeir greiddu hæsta vegatollinn, sem ækju vonda vegi. Þá sagði ráðherrann i svari sinu viö annarri fyrirspurn, að sin skoðun væri, að aldrei hefði átt að Framhald á bls. 19 Fardagur fyrstu farmann- anna úr Tjarnarskólanum GJ—Reykjavik Nú fer senn aö liða aö því, að stúdentar útskrifist frá Menntaskólanum viö Tjörn- ina, og verður hann þriöji menntaskólinn á Reykjavikur- svæðinu, sem gerir slikt. 1 dag lauk kennslu formlega og viö tekur hiö ianga og stranga upp- lestrarfrf stúdentsefnanna, sem munu vera 170 talsins aö þessu sinni. Af þessu tilefni héldu nem- endur og kennarar MT ,, fyrsta fardaginn” hátfðlegan, svo sem venja cr viö þessi tlmamót. Nemendur tóku daginn snemma og byrjuðu á þvi að halda morgunhóf, þar sem nem- endur hverrar bekkjardeildar Góður línu- afli á Bol- ungarvík Krjúl—Bolungarvik —Heildarafli Bolungavikurbáta i marzmánuöi var 821.3 lcstir. Aflahæsti bátur- inn i mánuöinum var Sólrún meö 212 lestir i 22 róörum, næst kom Guðmundur Péturs meö 210 lestir i 23 róörum, þá Hugrún meö 177 lestir I 22 róðrum, Stigandi meö 72 lestir i 17 róðrum og Jakob Vignir meö 48 lestir i 14 róörum, en allir þessir bátar réru meö linu. Haf- rún, seni rær meö net, landaöi 59 lestum i sjö löndunum, en þess ber aö gæta, að báturinn varö fyrir vélarbilun og stöövaðist um . alllangt skeið. Nú er búið að landa 7537 lestum af loðnu á Bolungavik á móti 5500 tonnum i fyrra. I frystingu hafa farið 369 lestir. Unnið er við loðnubræðsluna á vöktum allan sólarhringinn og sólarhringsaf- köstin eru 180-190 tonn. Upphaf- lega voru afköst verksmiðjunnar ekki nema 150 tonn, en siðan hef- ur verksmiðjan verið endur- byggð. Tiðin hefur verið rysjótt að undanförnu og skiptir stanzlaust um veður. söfnuðust saman á heimili ein- hvers bekkjarfélagans oftast þess er mest hafði húsnæðið eða skiln- ingsrikasta átti foreldranna, þvi ekki er fyrir hvern meðalmann að taka á móti 20-30 æskuglöðum stúdentsefnum i samkvæmi kl. fjögur eða fimm að borgni. Ein bekkjardeildin viröist ekki hafa fundið stað fyrir morgungleði sina innan borgarmarka Reykja- vikur, en nemendur leystu það vandamál auðveldlega og fengu húsnæði við sitt hæfi suður I Keflavik, hjá lyfsala staðarins. Ýmis smávandamál komu upp, vegna þess að langflestir nem- endur i þessari bekkjardeild búa i Reykjavik, en þau leystust skjót- lega, þegar smárúta fékkst leigð til að flytja fólkið til Keflavikur i samkvæmið og þaðan aftur að þvi loknu i skóla. A niunda timanum streymdu nemendur fjórða bekkjar i skólann og sóttu siðustu kennslustundirnar á mennta- skólaferli sinum. Ekki var þó kennt lengi á þessum fardegi, þvi þegar klukkan átti eftir tiu minútur i tiu, var kallað á sal og þar haldin samkoma með ræðu- höldum, söng og fleiru finu. Þar kvöddu nemendur kennara sina og rektor með blómum, kossum, visum og ýmsum spakmælum, sem virtust hæfa i mark, ef marka má undirtektir. Að athöfninni á sal lokinni, söfnuðust nemendur skólans saman I portinu fyrir utan skólann og voru fjórðu bekkingar þar kvaddir. Siðan gengu stúdentsefnin blysför frá skóla sinum og kringum tjörnina. Þann hring þekkja nemendur MT vel af eigin raun, þvi það mun fastur liður i hverjum leikfimitima þar i skóla, að hlaupa einn hring um- hverfis tjörnina. Þegar komið var að skólanum aftur, biðu þar rútur tilbúnarað flytja fjórðu bekkinga frá skólanum og alla leið tl Sel- foss, en þar ætluðu þeir að snæða hádegisverð. Blaðamaður Timans hitti Eyjólf Jónsson, húsvörð i MT, meðan at- höfnin á sal stóð yfir og spurði hann hvernig fólk þetta væri, sem nú væri að yfirgefa MT. „Húsi”, eins og hann er kallaður af nem- endum, svaraði þvi til, að þegar hann tók við starfi sinu, hefði hann búizt við að finna indælis- fólk á meðal nemenda skólans, en staðreyndin væri, að 99 af hverjum hundrað væru úrvalsfólk og gerðist hvergi annars staðar betra. Er ekki ónýtt að hafa slik meðmæli frá stanfsmanni skólans sem veganesti á lifs- leiðinni. Fardeginum lýkur svo með dansleik f jórðu bekkinga að Hótel Borg i kvöld. Helga Haröardóttir og Sturla Jónsson, tveir hamingjusamir farmenn frá MT —Ljósmynd:GE

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.