Tíminn - 09.08.1973, Side 1

Tíminn - 09.08.1973, Side 1
IGN1S FRYSTIKISTUR i RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SIMI: 19294 tölublað — Fimmtudagur 9. ágúst — 57. árgaugur. Hálfnað erverk þá hafið er sparnaður skapar verðmæti Samvinnubankinn Banaslys í Borgarfirði: Piltur, sem ætlaði að vaða Hvítá, finnst drukknaður Klp, Reykjavik — Um miðjan dag á þriöjudag Fundu ferða- menn, sem áttu leið um bakka Uvitár, skammt fyrir neðan Barnafossa, lik af ungum manni, sem þar hafði rekið upp á eyrar. Lögreglunni i Borgarnesi var þegar gert viðvart og þegar hún kom á staðinn kom i ljós, að likið var af 18 ára gömlum Reyk- vikingi, Sumarliða Einarssyni til heimilis að Búlandi 12, en hans hafði veriö saknað frá þvi um helgina. Sumarliði heitinn mun hafa farið ásamt tveim félögum sinum úr Reykjavik á föstudagskvöldið og ætluðu þeir i Húsafellsskóg. Munu þeir hafa komið að að- göngumiðasöluhliðinu á milli Hraunáss og Húsafells um mið- nætti. Þeir vildu þó ekki freista þess að fara i gegnum það, og hittu þeir nú fyrir fimm pilta, sem bentu þeim á aðra leið inn á mótsvæðið. Skyldu þeir fara yfir göngubrúna yfir Barnafossa, ganga siðan upp með Hvitá og vaða hana á móts við samkomusvæðið, sem að viti allra, sem til þekkja má heita óðs manns æði. Ekki er vitað nánar um ferðir þeirra félaga, nema ökumaðurinn i bil þremenninganna ók sem leið Framhald á bls. 15. Litla-Víti ir í sig veðrið JI-Mývatnssveit. — Menn héðan úr sveitinni fóru að Kröflu á þriöjudaginn var. Þá kom I ljós, að igufuútstreymi er meö meira móti. Gufuhver- inn Litla-Viti var t.d. I tölu- verðum ham. Þar hefur gufan aö undanförnu streymt út um eitt aðalop, en vellur nú út um ein sex til átta op, þótt erfitt væri að telja þau nákvæmlega vegna gufumökksins. I siðustu viku fóru menn að Kröflu, en þá var ekki aö sjá annað en að allt væri meö felldu, svo að þessi breyting hlýtur að hafa orðið einhvern siðustu daga. Þess ber þó að geta i þessu sambandi, aö oft veröa breytingar á þessu svæði. Hverirnir við Námaskarð sóttu mjög i sig veðrið fyrir skömmu, eins og frá var sagt hér i blaðinu, en nú hefur sljákkað i þeim. Sumir geta sér þess til, að umbrotin hafi verið af völdum þurrkanna. Jarðvatnsyfirborð hafi lækkað vegna langvinnra þurrka og þá lækkað i hverunum, en um leið hafi hitinn i þeim aukizt. ALMENNINGUR ATTAR SIG EKKI Á REGLUNUM Allt að 50% meira um víxlaafsagnir eftir verzlunarmannahelgina heldur en endranær HANN sagði sinar farir ekki sléttar: „Þeir tóku af mér tvö þúsund krónur i dráttarvexti og kostnað viö afsögn á vixii, af þvi að ég áttaði mig ekki á þvi, að mánudagurinn eftir verzlunar- mannahelgina er i regium bank- anna talinn sem rúmhelgur dagur, enda þótt allar viðskipta- stofnanir séu þá lokaöar”. Þannig komst að orði maður, sem snéri sér til Timans, nýkominn úr bankanum, sár yfir óvæntum útgjöidum og ieiöur yfir því, að hafa veriö stimpiaður óreiðu- maður. Timinn komst fljótt á snoöir um, aö það höfðu fleiri flaskað á þessu en sá, sem upphaflega sneri sér til blaðsins. Það er yfirleitt mjög mikið um afsagnir vixla á þriðjudaginn eftir verzlunar- mannahelgina, og þeim mun meira, sem helgin er nær mánaðamótum, þvi að gjald- dagar eru gjarnar fyrsta eða siðasta dag mánaðar en aðra daga. Þetta staðfesti Benedikt Asgeirsson hjá Búnaðar- bankanum, sem vitnaöi jafn- framt til þess, að samvinnunefnd banka og sparisjóða hefði á sinum tima ákveðiö, að vixlar, sem eiga að greiðast á mánudögum, þegar bankastofnanir eru lokaðar, skuli afsagðir næsta þriðjudag. Hann sagði jafnframt, að dráttarvextir á afsögðum vixlum væru hálft annað prósent á mánuði og brot af Grófasta til- raun Breta til að valda manntjóni SJÓPRÓF fór fram i gær vegna atburöarins, er dráttarbáturinn Lloydsmann sigldi fyrir varð- bátinn Albert úti af Horni. t sjó- prófunum kom ótvírætt fram, að Lloydsmann sigldi fyrir Albert i þvi skyni einu að laska hann, og gerði siöar tvær grófar ásigl- ingartilraunir, sem mistókust þó. Skipherrann á Albert sagöist ekki fyrr hafa kynnzt hjá Bretum svo grófum tilraunum til þess aö valda skipsskaöa og mar.ntjóni sem i þetta sinn. Sjálfir munu Bretar hafa gert sér fyllilega ljóst, hve hættulegan leik þeir léku, þvi að gefið var til kynna, að læknishjálp yröi veitt, ef með þyrfti. mánuði, jafnvel þótt aðeins ein nótt væri, reiknaðist sem heill mánuður. Við dráttarvextina bætist svo venjulegur kostnaður við afsögn. Oddur Guðmundsson i Lands- bankanum kvaö 264 vixla hafa verið afsagöa þar á þriðjudaginn var. Þess væri þó aö gæta, að dag hvern væru að jafnaöi afsagðir yfir hundrað vixlar, sem ekki hefðu verið greiddir eða fram- lengdir, áður en þeir gjaldféllu, og myndi nærri lagi aö telja slik örlög biða 130-200 vixla á dag. Orsök afsagna er auðvitað langoftast gleymska eða trassa- skapur, til dæmis i sambandi viö sumarleyfi og fjarveru, þótt óhöpp og mistök geti einnig komið til. En munurinn á þvi, hversu miklu fleiri vixlar eru afsagðir þriðjudaginn eftir verzlunar- mannahelgina heldur en aðra daga, til dæmis eftir aörar helgar, er svo ótviræður, liklega sem næst 50%, að þar hlýtur fleira að koma til. Þar er varla ööru til dreifa en þvi, að fólk áttar sig ekki á reglum viðskiptastofn- ana um mánudaga, þegar allt er lokaö og þess enginn kostur að gera gjaldskil. Það veröur aö ætla, að bankar og sparisjóöir fái hér stórfé úr vasa fólks, sem ekki hefur áttað sig á flækjum og duttlungum viðskiptalifsins, og leiðir þetta i ljós, að þaö er vanræsklusynd hjá peninga- stofnunum að auglýsa ekki reglur sinar rækilega i blöðunum fyrir þær helgar, er hættast er við, aö almenningur flaski á þeim. —JH Súlu- hlaupíð SÚI.A laut I lægra haldi. Súluhlaupið var öllu incira en mcðalhlaup, en mann- virkin stóðust það með prýöi. Myndin er tekin af varnar- garði ofan við brúna, og á miðri myndinni sjást menn að vinnu við að styrkja straumbrjót. Nú er hlaupið tckið að fjara. Ljósmynd: EV. Kartöflu- grösin frusu SB, Iíeykjavik — útlitiö mcð kartölTusprcttu I Þykkvabæ cr helduir slæmt núna, að sögn Sigurbjarts Guðjónssonar i Há varðarkoti. Astæðan er einkum vorkuldinn, sem varaði fram á suinar. 1 fyrrinótt var svo kalt þar eystra, að kartöflugrös frusu, en féllu þó ekki vegna þess að þau náðu að þiðna áður en sól kom upp.. Hitinn var i frostmarki siðla nætur i tveggja metra hæð og er þá oft um 2ja stiga frost við jöröu. Ef svona heldur áfram með veðurfar, er ekki við þvi að búast aö fariö verði að taka upp fyrr en i september, en ef hlýindakafli kemur fyrir haustiö, getur það breytzt eitthvað. Birtir í Breiðdal: Tuttugu bæir fá rafmagn SB, Reykjavik — Það má teljast til stórfrétla að hér cr veriö aö leggja rafmagn um alla sveitina, sagði Guðmundur Arason, frétta- ritari Timans á Breiödalsvik. Framkvæmdir hófust I júli og munu standa eitthvaö fram á haustið. Er þarna um að ræða eina 20 bæi, auk Berufjarðar- strandar. A flestum þessara bæja hafa undanfarin ár veriö disilraf- stöövar, en þó munu tveir þeirra aldrei hafa haft rafmagn áður, og má heimafólki þar bregða við. Ilið nýja rafmagn er frá sam- veitunum og veröur bændum all- miklu ódýrara en disilrafmagnið. Nú er unnið að undirbúningi að lagningu oliumalar á götur á Breiödalsvik. 1 sumar verður lögö norsk oliumöl á 600-800 metra spotta og haldið verður áfram tvo næstu sumur. Hreindýr eru i grennd við þorpiö, eins og þau hafa raunar verið nokkur undanfarin ár. Guð- mundur sagði, að i sumar væri leyfilegt að skjóta þarna 43 dýr, en áhuginn væri ekki mjög mikill á þvi. Siðast var ekki skotið nema hluti af þvi, sem leyfilegt var. Viö sjávarsiöuna er allíaf tals- vert að gera. Skuttogarinn Hval- bakur er eign Breiðdælinga, aö hálfu á rrfóti Stöðvarfiröi og einnig eru tveir bátar á humar- veiðuin. Allir hafa nóg að gera og um þessar mundir er margt aö- komulólks á Breiðdalsvik við ýmis störf, gatnagerð raflagnir og fisicvinnu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.