Tíminn - 14.08.1973, Síða 20
MERKIÐ, SEM GLEÐUR
HHtumst i kmtpfélaginu
-
—
SÐI
fyrir góöan mat
$ KJÖTIÐNAOARSTÖÐ SAMBANDSINS
N
7
STÓRÞJÓFNAÐUR
í DÖLUM
Yfir 100 þúsund krónum stolið hjó
Kaupfélagi Hvammsfjarðar
Klp-Reykjavik. Aöfaranótt s.l.
sunnudags var brotizt inn I sölu-
skála Kaupfélags Hvammsfjarö-
ar i Búöardal og stolið þaöan yfir
100 þúsund krónum i peningum.
Upp komst um þjófnaðinn á
sunnudagsmorgun, þegar starfs-
fólk kom til vinnu. Það sá að farið
hafði verið inn um bakdyrnar og
tveir peningakassar, sem voru i
skálanum, og tilheyrðu bensinsöl-
unni og veitingasölunni, höfðu
verið brotnir upp og allir pening-
ar og ávisanir úr þeim teknir.
t báðum þessum peningaköss-
um var talið, að ætti að vera um
130 til 140 þúsund krónur. En siðar
um daginn fundust nokkur þús-
und krónur i ávisunum undir
steikarpönnu i skálanum. Haföi
þjófurinn eöa þjófarnir troöið
þeim þar, en haft á brott með sér
yfir 100 þúsund krónur i seðlum
og smápeningum.
Sýslumaðurinn i Búöardal fékk
tvo menn frá rannsóknarlögregl-
unni i Reykavik til að koma vest-
ur, og voru þeir þar i gær við að
yfirheyra fólk og taka fingraför.
Mikil umferð er um Búðardal
um þetta leyti árs, og eru þar bil-
ar á ferð bæði á nóttu og degi.
Þjófnaður, eins og þessi, hefur
samt ekki átt sér stað þarna um
slóðir i fjöldamörg ár og eru ibúar
staðarins furðu lostnir yfir þessu
og finnst sumum, að stórborgar-
stimpill sé allt i einu kominn á
þennan annars rólega stað.
— búizt við, að þau séu um 30
NTB-Washington. — l.ögrcglan i
llouston fann I gær lik tvcggja
fórnardýra fjöldamoröingjanna i
llouston og hafa þá fundizt 25 llk.
Likin tvö voru af ungum piltum,
eins og hin, sem áöur hafa
fundizt, og höföu þeir einnig verið
pindir og siðan myrtir.
Það voru tveir morðingjanna,
17 og 18 ára piltar, sem visuðu
lögreglunni á grafirnar, sem eru
skammt fyrir utan bæinn Gal-
veston. Leit að fleiri likum verður
haldið áfram og telur lögreglan,
að þau muni vera um 30 i allt.
Þetta óhugnanlega mál kom
fram i dagsljósið fyrir helgina,
þegar Wayne Henley, sem er 17
ára, skaut vin sinn Dean Corll, 33
ára i sjálfsvörn. Corll mun hafa
notað Henley og David Brokks, 18
ára vin hans, til að hjálpa siðan til
viö að koma þeim fyrir. Þegar
Henley var spurður, hvers vegna
hann hefði skýrt lögreglunni frá
þessu, sagði hann, að það væri
vegna foreldra unglinganna.
Allir munu þessir piltar hafa
yfirgefið heimili sin og veriö á
flakki. Lögreglan i Bandarikjun-
um hefur undanfarið skorað á
unglinga, sem strokið hafa að
heiman, að láta foreldra sina
vita, að þeir séu á lifi. Mörg
fórnarlamba fjöldamorðingjanna
munu að likindum aldrei þekkj-
ast.
Skuttogarinn Bjarni Benediktsson. Fer hann á veiöar fyrir mánaöamótin? — Tfmamynd: Róbert.
Skemmdirnar stafa
af óhreinindum
— segjo hinir dómkvöddu matsmenn
EF EKKERT óvænt kemur fyrir
núna, er búizt viö þvi, aö Bjarni
Stórflugslys d Spdni:
Caravelle-þota hrapaði
rétt við borgina La Corvna
NTB-MADRID- Spönsk
Caravelle-þota með 77 manns
innanborös, hrupaði f gær við
hafnarborgina La Coruna á
Spáni, og er talið vist, aö allir hafi
farizt. Fyrst töldu starfsmenn
flugfélagsins, aö einn farþegi
hefði komizt lifs af, en sföar upp-
lýstist, aö þarna var um að ræöa
mann, sem veriö hafði á jörðu
niðri, cn orðið fyrir braki úr vél-
inni og slasazt.
Björgunarflokkar fundu fljót-
lega flugrita vélarinnar, en brak
úr henni var dreift yfir allstórt
svæði, um þrjá kilómetra frá
flugvellinum i La Coruna. Mikil
þoka var, þegar slysið varð, og
hafði flugvélin áður sveimað yfir
flugvellinum um stund og gert
þrjár tilraunir til lendingar. Hún
var að koma frá Madrid.
Að sögn sjónarvotta, varð
skyndilega sprenging i vélinni og
brennandi hlutar úr henni féllu
niður á nokkur hús i byggingu.
Bygginga verkamenn höfðu
nokkrum minútum áður yfirgefið
vinnustaðinn til að drekka kaffi.
Litill drengur, sem var að leika
sér skammt frá, sagðist hafa séð
leikföng i braki vélarinnar. Að
sögn flugfélagsins voru nokkur
börn meðal farþega. Tiu meðlim-
ir sundfélags i Barcelona voru
einnig meðal farþega, en þeir áttu
að taka þátt i keppni i La Coruna i
vikunni. Þetta er þriðja stór-
slysið, sem orðið hefur á spænskri
flugvél siöan i desember.
Vestfírðingar fá for-
Benediktsson geti farið á veiöar
fyrir mánaðamót, sagöi Sveinn
Benediktsson, framkvæmdastjóri
og formaöur nefndarinnar, sem
geröi samningana um kaupin á
skipinu viö Spánverja i viðtali viö
Timann. Skipiö var tekiö úr slipp
fyrir viku, og er nú unniö aö þvi
aö gera þaö fullklárt á veiöar.
— Tveir dómkvaddir mats-
menn voru fengnir til að meta
skemmdirnar á skipinu, þeir Ótt-
ar Karlsson, skipaverkfræðingur,
og Lárus Björnsson, yfirverk-
stjóri i Hamri. Var álitsgerð
þeirra unnin á þann hátt, að
kannað var, hvaða gallar og
Framhald á bls. 13
Nýr sendi-
herra Sovét
HINN 10. ágúst s.l. kom til
Reykjavikur nýr ambassador So-
vétrikjanna, Júri Alexejevitsj
Kiritsénko.
Hann fæddist árið 1936, lauk há-
skólanámi i Kiev og starfaði siðan
i utanrikisráðuneyti Okrainu.
1964-1970 vann hann við sendiráð
Sovétrikjanna i Kairo. Frá 1970-
1972 starfaði hann siðan sem að-
stoðarskrifstofustjóri i utanrikis-
ráðuneyti SSSR i Moskvu. Frá
1972 hefur hann svo unnið sem
sendiráðsráðunautur við sendiráð
Sovétrikjanna i Ankara i Tyrk-
landi.
Hann er kvæntur Tatjönu Kfrft-
sénko.
Júri Alesejevftsj Kirltsénkó.
Enn fínnast lík
ungra pilta
setann í heimsókn
Blaðburðarfólk óskast
FORSETI tslands og kona hans
munu feröast um isafjarðar-
sýslur, Baröastrandarsýslur og
Strandasýslu dagana 25.-30.
ágúst. Ferðaáætlunin er i megin-
atriðum sem hér segir:
Laugardaginn 25. ágúst verður
komið til Isafjarðar árdegis og
dvalizt þar i kaupstaðnum þann
dag.
Sunnudaginn 26. ágúst verður
farið til Súðavikur fyrri hluta
dags, en sfðdegis til Bolungarvikur
Mánudaginn 27. ágúst verður
farið til Suðureyrar i Súganda-
firði, siðan um Flateyri að Núpi i
Dýrafirði og höfð viðdvöl þar, en
siöan um Þingeyri til Hrafnseyr-
ar.
Þriðjudaginn 28. ágúst verður
komið við hjá Mjólkárvirkjun, en
siðan haldið um Bildudal og
Táknafjörð til Patreksfjarðar.
Slðdegis verður farið þar um
nágrennið, en að kvöldi aftur til
Patreksfjarðar og loks að Flóka-
lundi I Vatnsfirði.
Miðvikudaginn 29. ágúst verður
farið um Austur-Barðastrandar-
sýslu með viðdvöl i Bjarkarlundi.
Fimmtudaginn 30. ágúst verður
farið um Tröllatunguheiði til
Hólmavikur með viðdvöl þar og
nokkrum kynnisferðum um
nágrennið eftir þvi sem við verð-
ur komið. Siðla sama dag verður
haldið suður eftir Strandasýslu
heim á leið.
i eftirtalin hverfi:
Akurgerði, Langholtsvegur, Reynimelur, Viði-
melur, Laugavegur.
Upplýsingar á afgreiðslu Timans, AðalstrætiT,