Tíminn - 24.08.1973, Page 7
Föstudagur 24. ágúst 1973.
TÍMINN
7
rétt!
Þeim á réttingaverkstæðinu fannst
vera kominn tími til að rétta úr sér.
Þess vegna fluttu þeir.
FYRSTA EIGINLEGA
ÆSKULÝÐSMIÐSTÖÐIN
- ÆR fær 1 OOOm húsnæði í Fellahverfi
Glava
glerullar-
hólkar
Hlýindin af góðri
hitaeinangrun
vara lengur en
énægjan af
lagu verði
ÓV-Reykjavík: A fundi borgar-
ráös sl. þriðjudag var samþykkt
aö gefa grænt ljós fyrir vinnu viö
innréttingar á kjailara barna-
skólaálmu Fellaskóla i Breiöholti
III. Þar veröur Æskulýösráö
Reykjavikur meö starfsemi fyrir
æskulýö hverfisins og er þetta i
fyrsta skipti, aö húsnæöi — sem i
þessu tilfelli eru rúmir þúsund
fcrmetrar — er innréttaö i þeim
beina tilgangi aö vera þar meö
æskulýösstarfsemi.
Hinrik Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri ÆR, sagði i viðtali
viö fréttamann blaðsins á mið-
vikudag, að ráðið byndi miklar
vonir við þetta nýja húsnæði. —
Við höfum verið með smávægi-
lega starfsemi þarna i Fellaskóla,
sagði Hinrik, — og höfum fundið
fyrir þeirri þörf, sem fyrir hana
er.
Álman, sem húsnæðið er undir,
er i rauninni, fjögur strýtu-
mynduð hús, raðtengd. Fær ÆR
til umráða þrjár þeirra eininga. 1
annarri endaeiningunni verður
aðstaða fyrir ýmsa leiki og léttar
iþróttir, sem krefjast tiltölulega
litillar lofthæðar. Þar verða
einnig böð og önnur hreinlætisað-
staða. 1 miðju verður aðstaða til
félagslegrar samveru i sam-
komusal, sem rúmar 3-400
manns. t hinni endaeiningunni
verður svo fönduraðstaða og þar
einnig gert ráð fyrir aðstöðu fyrir
fundahald hinna ýmsu félaga og
hópa, sem aðsetur sitt hafa i
hverfinu. — Starfsemin þarna
verður stöðug og dagleg og við
gerum okkur ljóst, að þetta
húsnæði býður upp á — og i raun-
inni krefst — mjög fjölþættra
nota. Æskulýðsráð Reykjavikur
miðar náttúrlega starfsemi sina
við ungt fólk, en að sjálfsögðu
reynum við að halda þessari
miðstöð opinni fyrir fólk á öllum
aldri.
— Og hver verður svo
kostnaður við þetta?
— Lausleg áætlun miðað við
núgildandi verðlag er um tiu
milljónir króna. Það kann að vera
töluvert há upphæð, en það ber að
taka tillittil þess, að bygging sem
þessi myndi i dag ekki kosta undir
Nú er réftingaverkstæði Veltis h.f.
í nýju og rúmgóðu húsnæði, sem gefur
þeim möguleika til betri þjónustu
og jafnvel aukinna afkasta!
40-50 milljónum. króna. Það er i
dag, vil ég undirstrika, útskýrði
Hinrik Bjarnason. — Svo tekur
slik bygging eitt ár i hönnun og að
minnsta kosti tvö i byggingu,
þannig að ekki væri hægt að hefja
raunverulega starfsemi i henni
fyrr en eftir þrjú ár. Og Guð má
vita hvað hún kostaði þá.
Hinrik vildi ekki spá um hversu
fljótt væri hægt að taka mið-
stöðina — sem gengur i daglegu
tali undir nafninu „Fellahellir” —
i notkun. — Enn er ekki búið að
gera vinnuteikningar, sagði hann,
— og þvi ekkert hægt að segja um
málið. Þó veit ég það, að þeir 2-
3000 unglingar, sem verða i
hverfinu fullkláruðu — þurfa
nauðsynlega að fá þessa aðstöðu
sem fyrst.
Gert er ráð fyrir að 12.000
manns búi i Fellahverfi þegar þvi
MÁLVERKASÝNING Jóns Ólafssonar var opnuð i
Ásmundarsal við Freyjugötu á miðvikudag. Jón
sýnir nú i fyrsta sinn, 40 kritarmyndir, og eru 27
þeirra „portrett” eða andlitsmyndir, eins og sjálfs-
myndin, sem sézt hér á myndinni.
Allar eru myndirnar gerðar á siðustu tiu árum.
Þær eru allar til sölu og kosta frá 10-25 þús.
Sýningin verður opin daglega frá kl. 14-22 til 2.
september. — Timamynd: Gunnar.
Réttingaverkstæði Veltis h.f. er nú
til húsa að HYRJARHÖFÐA 4.
Það mó ef til vill þekkja þó
á dnægjusvipnum.
Suðurlandsbrput 16 • Reykjavik • Simnefni: Volver • Simi 35200
er lokið. 1 opinberum áætlunum
er gert ráð fyrir 4% ibúanna i
hverjum árgangi, sem þýðir að á
aldrinum 13-18 ára verða um það
bil 2900 unglingar.
— Það er fólk, sem ekki má
gleyma, sagði Hinrik Bjarnason
að lokum.
Fró Mýrarhúsaskóla
Innritun nýrra nemenda i barnaskólann
fer fram mánudaginn 27. ágúst kl. 10-12.
Innritun i gagnfræðaskólann verður sama
dag kl. 17-19 og i 6 ára deildir kl. 14-16.
Þriðjudaginn 4. september eiga 10-12 ára
nemendur að mæta kl. 10 og 7-9 ára nem-
endur sama dag kl. 14.
Nemendur gagnfræðaskólans eiga að
mæta þriðjudaginn 18. september kl. 10.
Skólastjórinn
1 14444 *■ 25555
mfíif/o/R
BILALEIGA
CAR RENTAL
BORGARTUN