Tíminn - 24.08.1973, Síða 17
Föstudagur 24. ágúst 1973.
TÍMINN
17
HILDUR SIGURÐARDÖTTIR..sést hér skora mark gegn Fram i úr-
slitaleik útimótsins i fyrra. í baksýn sést BARA EINARSDÓTTIR úr
Fram.
Ágústleikarnir:
HALLDOR NALGAST METIÐ
( 800 M HLAUPI 1:51,9!
ÞAÐ VORU fleiri en
Bjarni Stefánsson og
Stefán Hailgrimsson,
sem stóðu sig vel á
Ágústleikunum, sem
hófust á Bislet i fyrra-
kvöld, en við skýrðum
frá árangri þeirra i
blaðinu i gær.
Halldór Guðbjörnsson tók þátt i
800 m hlaupinu og varð þriðji á
hinum glæsilega tima 1:51,9 min,
hans langbezti timi og aðeins 1,8
sek. lakari en Islandsmet
Þorsteins Þorsteinssonar.
Halldór fékk sama tima og annar
maður og sigurvegarinn hljóp á
1:51,8, Agúst Asgeirsson hljóp i B-
riðli og varð annar á sinum bezta
tima 1:53,8 min.
Að loknum 800 m hlaupinu tóku
þeir Halldór og Agúst þátt i 3000
m hlaupi, Halldór fékk sting og
hætti, en Agúst hljóp á 8:44,0
min. rúmum 10 sek. betra en hann
átti bezt áður.
Þá keppti Friðrik Þór
Óskarsson i þristökki og varð
þriðji, stökk 14,49 m.
HREINN STOÐ SIG
BEZT í GÆRKVÖLDI
HREINN Ilalldórsson
stóð sig bezti íslending-
anna á siðari degi
Ágústleikanna i Osló i
gærkvöldi, hann varð
þriðji i kúluvarpinu,
varpaði 17,70 metra.
Olympiu meistarinn
Komar frá Póllandi
sigraði, varpaði 19
metra rétta og Björn
Bang Anderson, norski
methafinn varð annar
með 18,40 metra.
Bjarni Stefánsson ætlaði upp
haflega að taka þátt i 400 m
hlaupinu siðari daginn, en fékk
þvi breytt, hann hljóp aftur 200
metra. Aleit sig hafa möguleika á
að setja met. Sú von brást, hann
hljóp ekki eins vel og daginn áður
og varð fimmti á 21,9 sek.
Stefán Hallgrimsson tók þátt i
110 m grindahlaupi og varð
fimmti á 15,6 sek.
Eitt norskt met var sett á
mótinu, Kvalheim i 3000 m
hindrunarhlaupi, hann hljóp á
8:25,6 min. Sigurvegarinn Mayer
setti vestur-þýzkt met hljóp á
8:23,0 min
íslenzki flokkurinn fer nú til
Odda i Vestur-Noregi og keppir
þar á móti um helgina.
Æfðu í
Þjórsár-
dal
HANDKNATTLEIKSDEILD
Fram gerði tilraun til að fá
inni fyrir handknattleiksfólk
sitt i iþróttamiðstöð ÍSÍ að
Laugarvatni, en fékk neitun,
þar sem fullbókað var og
margir á biðlista.
Ekki létu forráðameun
deildarinnar þetta á sig fá,
heldur efndu til ferðar fyrir
leikmenn og fjölskyldur þcirra
i Þjórsárdal. Var slegið upp
tjöldum þar og handknatt-
Jcikur æfður á nálægum gras-
l'lötuin. Þótti þessi æfingaför
lakasl bið lie/.ta.
íslandsmót kvenna haldið ó Húsavík um helgina:
Fremur dræm þátt-
taka, en beztu
liðin mæta samt
FREMUR litil þátttaka
er i íslandsmóti kvenna í
útihandknattleik
( meistaraflokkur), sem
háð verður á Húsavik
um helgina, en þátttöku-
liðin eru aðeins sex tals-
ins. Þau eru Ármann,
Valur og
Reykjavik,
eyri,
vogi
ur
Fram
Þór, Akur-
Breiðablik, Kópa-
og Völsungur,
Unglingalandsliðið
gegn Dönum valið
UNGLINGALANDSLIÐ tslend-
inga i frjálsum fþróttum, sem
keppir við Dani í Kaupmannahöfn
28. og 29. ágúst n.k., hefur verið
valið og er þannig skipað:
Jón S. Þórðarson, ÍR.hástökk og
110 m grindahlaup.
Jason ívarsson, HSK.þristökk og
110 m grindahlaup.
óskar Jakobsson, 1R, spjótkast,
Akureyri
og KR
leika á
morgun
A MORGUN, laugardag, mætast
1. deildar lið Akureyrar og KR á
Akureyrarvellinum. Er þessi
leikur fjáröflunarleikur vegna
Danmerkurferðar Akureyr-
ar-liðsins i næsta mánuði. Hefst
leikurinn kl. 14 á morgun.
kúluvarp, kringlukast og sleggju-
kast.
Arni Þorsteinsson, FH, hástökk
og stangarstökk.
Vilmundur Vilhjálmsson, KR, 100
m, 200 m og 400 m hlaup, 300 m
grindahlaup og langstökk.
Július Hjörleifsson, ÍR, 400 m og
800 m hlaup.
Guðni Halldórsson, HSÞ,
kúluvarp, kringlukast og sleggju-
kast
Einar Óskarsson, UMSK, 3000 m
og 2000 m hindrunarhlaup.
Þórólfur Jóhannsson, KA, 3000 m
og 2000 m hindrunarhlaup.
Sigurður Sigurðsson, A, 100 m
hlaup, 200 m hlaup og langstökk.
Jón Diöriksson, UMSB, 800 m
hlaup og 1500 m hlaup.
Markús Einarsson, UMSK, 1500
m hlaup.
Magnús Geir Einarsson, ÍR, 400
m grindahlaup.
Sigurður Kristjánsson, ÍR,
stangarstökk.
Snorri Jóelsson, ÍR, spjótkast.
Gunnar P. Jóakimsson, ÍR,
boðhlaup.
Fararstjóri verður Magnús
Jakobsson, formaður laganefnd-
ar F.R.Í.
Húsavik.
Sennilegasta skýringin á þvi,
hve dræm þátttakan er, er sú, að
kvennalið Þórs á Akureyri vann
rétt til að leika i 1. deild á næsta
keppnistimabili. Það þýðir, að 1.
deildarliðin úr Reykjavik og ná-
grenni þurfa að greiða meiri
ferðakostnað vegna keppni næsta
vetur, en þau hafa gert hingað til.
Er þess vegna horft i kostnað nú,
þegar mótið er haldið á Húsavik.
En þótt ýmis félög láti sig vanta
ikeppnina á Húsavik um helgina,
verða þó öll sterkustu kvennaliðin
samankomin þar, þ.á.m. Vals-lið-
ið, sem hefur verið ósigrandi i úti-
mótum um langt skeið.
Víkingar nálgast
I. deildina
VÍKINGAR eru nú nær öruggir
mcð 1. dcildarsæti næsta ár. Þrátt
fyrir óvæntan sigur Völsunga yfir
Vikingi 2:1, seni hcfði getað aukið
spcnnu i 2. dcildina. En FH-ingar
sáu fyrir þvi að svo yrði ckki, mcð
þvi að sigra Þrótt frá Reykjavik
2:0. Víkingsliðið á nú tvo leiki
cftir i dcildinni, gegn Þrótti frá
Neskaupsstað og FH-Vikingar
þurfa aðeins að vinna Þróttara til
að tryggja sér 1. deildarsæti.
Staöan er nú þcssi i 2. deild.
bjargað Þrótti frá Neskaupsstað
frá falli. IAðið tapaði fyrir
Armanni 5:2 um helgina. A sama
tima sigruðu Selfyssingar Hauka
2:1.
Víkingur
Þróttur R
Völsungar
FH
Ármann
Haukar
Selfoss
Þróttur N
12 9 1 2
12 6 3 3
12 7 1 4
116 2 3
12 6 2 4
12 3 3 6
12 3 0 9
110 2 9
34:8
27:17
21:22
25:12
20:21
15:20
12:33
9:29
19
15
15
14
14
9
6
2
Ekkert nema kraftaverk getur
Minnis
peningar
FRÍ
MINNISPENINGAR FRt i tilefni
Evrópubikarkeppninnar i fjöl-
þrautum eru nær uppseldir, en
nokkrar ósóttar pantanir er hægt
að fá hjá Frimerkjamiöstöðinni,
Skólavörðustig 21a. Einnig eru til
sölu nokkrir minnispeningar frá
fyrri tið.
þús.
KRR
60
frá
til
Hauks-
söfnunar
KNATTSPYRNURAÐ
Reykjavikur ákvað á fundi
sinum nýlega, i samráði við
aðilda,'iélög sin, að gefa 60
þúsund krónur til Haukssöfn-
unarinnar, en sú upphæð eru
tekjur ráðsins af siðasta
pressuleik.
I stuttu viðtali við Ólaf
Erlendsson, formann Knatt-
spyrnuráðsins, sagðist hann
vona. að iþróttafélög um land
allt legðu sitt af mörkum til
Haukssöfnunarinnar, annað
hvort með beinum framlögum
eða gengust fyrir söfnun
meðal iþróttamanna sinna.
Handknattleiksmenn ráðast
á golfboltann á þriðjudag
HIN árlega golfkeppni hand-
knattleiksmanna fer fram n.k.
þriöjudag — 28. ágúst. Aö þessu
sinni fer keppnin fram á velli
Golfklúbbs Ness á Seltjarnarnesi
og mun hefjast eigi siðar en kl.
17,00.
Þetta er i þriðja sinn, sem þessi
keppni fer fram, en jafnan hafa
margir tekið þátt i henni, þvi
mikill hluti handknattleiksmanna
leikur golf yfir alla sumar-
mánuðina.
Keppendum verður skipt i tvo
hópa. I öðrum þeirra veröa þeir,
sem þegar hafa hlotið forgjöf i
einhverjum klúbb, en i hinum
verða byrjendur i þessari iþrótt.
Þeir munu leika 9 holur af fremri
teigum en þeir, sem eitthvað
kunna fyrir sér, fá að glima við 18
holur af aftari teigum.
Þeir, sem hafa rétt til að taka
þátt i þessu vinsæla móti, eru þeir
handknattleiksmenn, sem leikið
hafa heilt keppnistimabil með 1.
og 2. deildarliði. Allir handknatt-
leiksmenn —,hvort sem þeir hafa
slegið golfbolta eða ekki — eru
velkomnir i mótið svo fremi að
þeir uppfylli þessi skilyrði.