Tíminn - 28.08.1973, Síða 9
Þriöjudagur 28. ágúst 1973. TíklNN 9°
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór-
arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson,
Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif-
stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif-
stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug-
lýsingasimi 19523. Askriftagjald 300 kr. á mánuði innan lands,-
i lausasöiu 18 kr. eintakið.
Blaðaprent h.f
------ '____________________________________,
Leikið tveim skjöldum
Innan skamms munu hefjast viðræður milli
verkalýðssamtakanna og atvinnurekenda um
nýja kaupsamninga, þar sem gildandi samn-
ingar renna út i haust. Að sjálfsögðu er hafin
af beggja hálfu undirbúningur að þessari
samningagerð og rikisstjórnin fylgist einnig
vel með og mun gera sitt til að stuðla að þvi, að
samkomulag náist, án þess að til átaka þurfi
að koma.
Það er ekki nema eðlilegt, að stjórnarand-
staðan fylgist einnig vel með þessari samn-
ingagerð og vilji koma þar nokkuð við sögu.
Þegar bendir lika margt til, að framlag hennar
muni verða með nokkuð sérstökum hætti.
Þannig birtir aðalblað stjórnarand-
stöðunnar, Morgunblaðið, forustugrein á
sunnudaginn var um kröfugerð verkalýðs-
félaganna. Þar er látin i ljós mikil samúð með
láglaunafólki og sagt, að hlutur þess hafi farið
versnandi siðan núv. rikisstjórn kom til valda.
Mbl. krefst þvi, að verkalýðsfélögin geri rif-
legar kröfur fyrir hönd þess. I sunnudagsbréfi
blaðsins, sem birtist i sömu opnu og forustu-
greinin, er látið að þvi liggja, að leiðtogar
verkalýðsfélaganna eigi að krefjast 20%
kjarabótar sem rikisstjórnin hafi lofað, en
Mbl. telur að hún hafi ekki efnt.
Af þessum skrifum má marka, að Mbl. ætlar
að gerast öflugt verkalýðsblað i sambandi við
þa' kaupsamninga, sem eru framundan.
En þetta er ekki öll sagan varðandi skrif
Mbl. um þessi mál. Jafnhliða þvi, sem Mbl.
vottar láglaunafólkinu samúð, tjáir það ann-
arri stétt enn eindregnar samúð sina en það
eru atvinnurekendur. —-Mbl. á ekki nógu sterk
orð til að lýsa þvi, hve kauphækkanir siðustu
mánaða hafa gengið nærri atvinnurekendum
og sé þvi þegar um hallarekstur að ræða hjá
mörgum þeirra. Þess vegna komi ekki til mála
að auka byrðar þeirra með nýjum kauphækk-
unum hjá láglaunafólki.
Þannig hrópar nú Mbl. þegar það snýr til
launafólks: Krefjist mikilla kjarabóta, þegar
það snýr sér að atvinnurekendum: Engar
kauphækkanir!
Vafalaust munu þessi skrif Mbl. færast i
aukana eftir að nær dregur samningagerðinni
og þó einkum eftir að hún hefst. Þau munu
verða þjóðinni glögg visbending um, að
stjórnarandstaðan ætlar sér annan þátt i
þessum málum en að greiða fyrir sam-
komulagi. En eftir er að sjá, hvort það muni
auka veg hennar og tiltrú. Oft hefur
misheppnazt að leika tveim skjöldum.
. og Pravda
í heimsblöðunum hefur tvennt borið efst i
fréttum að undanförnu. Annað er Watergate-
málið, en hitt eru miklar verðhækkanir hvar-
vetna um heim. í þvi sambandi hefur kunnur
Sjálfstæðisflokksmaður sagt, að tvennt væri
likt með tveimur blöðum, sem bæði telja sig
fullkomin fréttablöð: — Pravda minnist aldrei
á Watergatemálið, en Mbl. minnist aldrei á
verðhækkanir erlendis. Eitthvað virðist þvi
sameiginlegt með fréttamennsku þessara
merku blaða
Þ.Þ.
Forustugrein úr The Economist:
Sigur Araba í Öryggis-
ráðinu er minni en sýnist
Samhljóða ályktun ráðsins hefur minna gildi en
ætla mætti í fljótu bragði
ARABAR eru búnir að læra
ýmislegt um Sameinuðu þjóð-
irnar og munu þvi ekki leggja
sérlega mikið upp úr sigri
slnum i öryggisráðinu um
daginn. Nýlunda var fyrir þá
aö sjá alla 15 fulltrúana,
jafnvel fulltrúa Bandarikj-
anna, fordæma Israelsmenn
fyrir að neyða Caravelleþot-
una til að lenda 10. ágúst, leita
I henni að skæruliðum og
afhenda Libanonsmönnum
hana aftur að þvi loknu. Þeim
var þetta viðlika mikil
nýlunda og að sjá arabiska
farþegavél á leið frá Libýu
verða flugvélarræningjum að
bráð rétt á eftir.
Israelsmenn virðast standa
einir og yfirgefnir eftir þessa
einróma samþykkt i öryggis-
ráðinu. Það þýðir einnig auk-
inn skilning Araba á afstöðu
Sameinuðu þjóðanna að þeir
kröfðust ekki samþykktar,
sem kvæði á um refsingu auk
fordæmingarinnar, en þá
hefðu Bandarikjamenn beitt
neitunarvaldi sinu gegn
samþykktinni.
ÖRYGGISRÁÐIÐ hefir að
undanförnu gerzt sams konar
samkunda og Allsherjar-
þingiö, að minnsta kosti hvað
Israel áhrærir. Það er sam-
koma, þar sem atkvæði eru
ekki sföur greidd vegna svips-
ins, sem atkvæðagreiðslan
ber, en til þess að hafa raun-
veruleg áhrif, eða ekki siður
til þess að gleöja vini sina, eða
forðast að minnsta kosti að
styggja þá, en til þess að fella
raunverulegan dóm um rétt
eða rangt i máli þvi, sem um
er fjallað.
Arabar skipta Vestur-
Evrópumenn máli — og
Bandarikjamenn i auknum
mæli — vegna þess, að þeir
eiga oliu. Margar rikisstjórnir
— þar á meðal rikisstjórn
Bretlands — hafa þvi komið
auga á, að atkvæöagreiöslur
fulltrúa þeirra hjá Sameinuðu
þjóðunum er ein aðferöin til
þess að halda vináttu við
Araba, einkum þó meðan
treysta má á, að Bandarikja-
menn hindri hverja þá
samþykkt, sem yröi
Israelsmönnum til verulegs
miska. Þetta hefir þann galla,
aö það eykur á áhugaleysi
manna á Sameinuðu þjóöun-
um. Arabar ættu eigi að siður
að minnast þess og gera ekki
of mikið úr samþykkt
öryggisráösins um daginn.
HEITA má, að unnt sé að
beita alþjóðalögum til hvers
sem er. israelsmenn hefðu þvi
jafnvel getað lagt fram rök-
semdir til varnar þvi, hvernig
þeir fóru með farþegaþotuna,
ef þeir hefðu viljað. Flugfélag
i Irak haföi þotuna á leigu og
þangað var hún að fara, en
stjórn Iraks segist eiga I
styrjöld viö Israelsmenn.
Stjórnir rikja, sem eiga i
styrjöld, vita vel, aö and-
stæöingarnir taka skip þeirra
stundum á sitt vald og leita i
þeim. Ekki er alls kostar fjar-
stætt að yfirfæra þennan
möguleika með skip yfir á
flugvélar, jafnvel þó að
sýnilega sé áhættusamara að
trufla farþegaflugvél en að
skipa skipstjóra aö nema
staöar.
Sá annmarki er þarna á, aö
Libanonsmenn segjast ekki
eiga i styrjöld við
Israelsmenn, en aðförin aö
vélinni virðist hafa verið hafin
i lofthelgi Libanons. Libanons-
menn hafa hins vegar ekki
gert neinar ráðstafanir gegn
skæruliðum, sem hafa aöal-
bækistöðvar i landi þeirra, og
lita mætti svo á, að hlutleysi
þeirra væri þar með undir-
orpið vafa. Libanonsmenn
hefðu vissulega átt að aðhaf-
ast eitthvað fyrir alllöngu
gegn dr. Habash, en
Israelsmenn voru fyrst og
fremst að leita hans.
Liðsmenn dr. Habash hafa
skipulagt mörg þeirra flug-
vélarána, sem framin hafa
verið siðastliöin fjögur ár, og
sama er að segja um mann-
drápin i Lyddai fyrra. Hann
fullyrðir að visu, að hann sé
orðinn andvigur þess konar
hryðjuverkum, en sú stað-
hæfing getur varla talizt sann-
færandi fyrri en hann agar þá
undirmenn sina, sem aðra af-
stöðu taka.
ÞETTA sem talið var hér á
undan, hefði mátt nota sem
undirstöðu að vörnum Israels i
deilum um flugvélartökuna.
En Israelsmenn gerðu ekki
minnstu tilraun til þess.
Dayan varnamálaráöherra
Israels sagði aftur á móti, að
honum væri vel ljóst, að
Israelsmenn hefðu með fram-
komu sinni brotið reglur i
augum flestra, og lét sér
nægja að bæta við, að þeir
hefðu ekki átt annars kost.
Dayan varnamálaráðherra
mun komast að raun um, að
flestum fellur þessi röksemd
betur en tilraun til þess að feta
einhvern krákustig um jarð-
sprengjusvæði alþjóöalaga.
Meginþorri manna i Evrópu
og Bandarikjunum hefðu
sennilega einkum tvennt fram
að færa um töku farþega-
þotunnar, hvað sem hinum
liður, sem þurfa að reikna út
áhrif atkvæðagreiðslunnar i
öryggisráðinu.
HIÐ fyrra er, að ef Israels-
menn hafi brotiö reglur með
þvi að neyða þotuna til að
lenda, ætti ekki að koma fram
við þá á annan veg en aöra,
sem brotið hafa hinar sömu
reglur. Atburöir sem þessir
gleymast furðu fljótt, en þó er
ekki gleymt enn, að rikisstjórn
Libýu lét neyða brezka
farþegaþotu til þess að lenda i
Benghazi árið 1971 að viö-
lagðri hótun um að skjóta
hana niður. Siðan voru fjar-
lægðir tveir Súdanmenn úr
hópi farþega, sendir heim og
skotnir þegar þangað kom.
Ekki er heldur gleymt, að
franskar orrustuflugvélar
neyddu farþegaflugvél frá
Marokko, til þess að lenda á
flugvelli, sem frakkar réðu
yfir, en Ben Bella var farþegi i
þessari vél og honum vildu
Frakkar ná. Arið 1967 var
frezkri farþegaflugvél, sem
flutti Tshombe fyrrverandi
forsætisráðherra i Kongó,
beint til Alsir. Rikisstjórn
Alsirs hefir ef til vill ekki borið
ábyrgð á flugvélartökunni, en
hún hafði Tshombe i haldi unz
hann lézt.
Töku allra þessara flugvéla
var andmælt, en engin þeirra
fordæmd i öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna og ekki
einu sinni til þess leitað i
sambandi við þæir. Það er talið
skera úr um nýtileika lagak,
að þeim sé ávallt beitt eins við
sama brot. Sú hefir raunin
ekki orðið um flug-
vélatökurnar, og Israelsmenn
heföu fullan rétt til að benda á
það.
HIÐ siðara, sem þorri
manna i Evrópu og Banda-
rikjunum vildi segja i
sambandi við töku Caravelle-
þotunnar er þetta: Sjálfsag-
inn, sem þeir ætlast til að
ísraelsmenn beiti i viðureign
sinni við hermdarverkamenn,
sem hafi höfuðstöðvar sinar i
öðrum löndum, fari eftir þvi,
hvað heimurinn hafist að til
þess að binda endi á hermdar-
verk.
Kenningin segir, að siðan
Sameinuðu þjóðirnar urðu til,
eigi engri einstakri þjóð að
liöast að ,,taka lögin i sinar
hendur” i þessum málum,
eins og Sir Donald Maitland
komst að oröi i umræðunum i
öryggisráðinu um Caravelle-
þotuna, þar sem nú sé til
alþjóðakerfi til þess að
bregðast við á réttan hátt. Sá
hængur er þó þarna á, að
þegar hin nýja tegund
hermdarverka á i hlut er sem
hið alþjóðlega kerfi gangi allt
á afturfótunum.
SAMEINUÐU þjóðirnar
skipuðu nefnd eftir morðin i
Munchen i fyrra. Hún hefir
ekki einu sinni komið sér
saman um, hvaða skýrslu hún
eigi að leggja fyrir Allsherjar-
þing Sameinuðu þjóðanna i ár.
Alþjóðasamtökum um
farþegaflug verður sennilega
gefinn kostur á að taka við
nýjum reglum, sem kveða á
um refsingu þeirra rikja, sem
liða flugvélarræningjum að
lenda á flugvöllum sinum, en
refsa þeim siðan ekki né
framselja þá.
Þetta er ágæt hugmynd en
ekki annað enn sem komið er.
Og enn er alls óvist, að hún fái
nægilegt fylgi hjá alþjóðasam-
tökum um farþegaflug til þess
aö verða viöurkennd sem
regla. Ekki er heldur vist, að
vilji reynist til þess að fyl?ja
henni fram, jafnvel þó að hún
verði samþykkt formlega.
Israelsmenn hafa bent á, að
meirihluti arabiskra
hermdarverkamanna, sem
handteknir hafa veriö i
Vestur-Evrópu, hafi siöar
verið sleppt lausum i kyrrþey
án þess að koma fyrir rétt. Ný
samþykkt um viðurlög við
flugvélaránum gæti runnið út i
sama sandinn.
EIGI að eftirláta alþjóðlegu
eftirliti aö fást við hermdar-
verkamenn verður það eftirlit
að sýna einhverjar athafnir og
þær veröa að vera óhlut-
drægar. Þetta tvennt myndu
flestir fallast á, það er að
segja aðrir en þeir, sem hátt
eöa i hljóði aðhyllast
hermdarverk og telja þau
þjóna sinum málstað, og þeir
eru næsta margir. Þetta eru
þó ekki einu atriðin, sem rikis-
stjórnir þurfa að hafa i huga,
þegar þær láta fulltrúa sina
greiða atkvæði hjá Sameinuðu
þjóðunum.
önnur atriöi, sem áhrif hafa
á afstöðu rikisstjórna, eru
sýnilega ærin, og engin ástæða
til að skammast sin fyrir þau.
Þau eru ekkert annað en fylgi-
fiskar annarra viðfangsefna.
Meginviðfangsefni við at-
kvæöagreiðslur hjá Samein-
uðu þjóðunum er blátt áfram
stjórnmál, með þeim mála-
miölunum, yfirvarpi, hrossa-
kaupum og hálfsannleika, sem
þeim er áskapað. Atkvæða-
greiðslurnar eru i minna mæli
lagaleg leit að óhlutdrægum
dómi, — og meira að segja
minnkandi mæli.
Engum skynsamlegum
tilgangi þjónar að rugla þessu
tvennu saman. En engu að
siðurer þörf að benda á, hvers
vegna fulltrúar greiða
stundum atkvæði á þann hátt,
sem raun ber vitni.