Tíminn - 28.08.1973, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
Hans Fallada:
Hvaðnú,ungi maður?
Þýðing Magnúsar Ásgeirssonar
lltur á hana, litur undan og veit
ekki —
„Gleður mig að kynnast yður,”
segir ungfrú Coutureay, sem
enga spjör hefir á líkamanum.
„Vonandi sannfærist þér hérna
um það, að við erum á réttri
leið.”
En nú hefir Pinneberg i þessari
ýtrustu neyð uppgötvað sima-
klefa sér til bjargar. Hann stam-
ar fram úr'sér afsökun og segist
þurfa að sima. Heilbutt kallar á
eftir honum og segir að þau verði
I 37. klefa, en Pinneberg fer sér
engu að siður sem allra hægast og
er timunum saman inni i sima-
klefanum. Það er allt of snemmt
að hringja til spitalans enn þá.
Klukkan er ekki nema kringum 9
ennþá. Eftir langar bollalegging-
ar um Pússer, sjálfan sig og nekt-
arhreyfinguna leggur hann skild-
inginn i rifuna á sjálftalanum og
biður um númer sjúkrahússins.
Drottinn minn góður, hvað hann
verður lengi að biða eftir sam-
bandi! Hjartað berst og hamast i
brjósti hans. Kannski fær hann
aldrei að sjá hana framar-------
Systirin segir að allt gangi sinn
eölilega gang, en það muni þó
verða þrir, fjórir klukkutimar
þangað til ennþá. Hann geti reynt
að hringja aftur um miðnætti.
Hann leggur heyrnartækið niður
og hringir af. Heilbutt biður eftir
honum á 37. Hvernig i ósköpunum
datt honum sú vitleysa i hug að
fara að flækjast hingað með hon-
um? Þegar hann ber að dyrum á
baðklefanum, sitja þau bæði
hvort við hliðina á öðru á litlum
bekk, og það er ekki á þeim að
sjá, að þau hafi gert annað en tal-
azt við. Kannske er það einmitt
hann sjálfur, en ekki þau, sem
eitthvað er athugavert við i þessu
sambandi, hann er ef til vill, eins
og frú Witte, allt of spilltur i þess-
um efnum. Heilbutt leggur til að
þau skuli nú ganga niður að sund-
lauginni, og Pinneberg fær að
ganga á eftir þeim báðum og
kemst við það einu sinni enn að
raun um það, að þetta allt hefir
voðaleg áhrif á hann.
„Hvernig liðurkonunni þinni?”
spyr Heilbutt og skýrir ungfrú
Coutureau frá þvi, hvernig ástatt
sé um frú Pinneberg. Og þegar
hann heyrir, að enn séu 3-4 timar
til stefnu, segir hann hinn róleg-
asti: „Nú, þá held ég að þú hafir
tima til að virða fyrir þér hlutina
hérna.”
En Pinneberg notar þó timann
fyrst og fremst til að láta sér
gremjast við Heilbutt. Við stökk-
pallinn i sundlauginni stendur
hópur karla og kvenna, alveg æf-
intýralega nakin! Þau stökkva
fram hvert af öðru og standa á
höfði i lauginni. Heilbutt leggur til
að Pinneberg biði þar sem hann
er, og hann er meira en feginn, að
mega vera eftir úti i horni, meðan
hin tvö blanda sér i hópinn við
stökkpallinn. Það litur út fyrir að
Heilbutt sé aðalmaðurinn hérna,
þvi aö þau rjúka Öll upp til handa
og fóta til að heilsa honum, og
Jóakim! Jóakim! kveður við úr
öllum áttum. t hópnum eru itur-
vaxnir ungir piltar og kornungar
stúlkur með þrýstna, fjaður-
magnaða likami, en þau eru i
sorglegum minnihluta. Megin-
þorrinn eru miðaldra karlmenn,
bústnir og virðulegir, og holdugar
frúr, sem Pinneberg gæti sem
bezt hugsað sér sitja inni á kaffi-
húsi og belgja i sig hvern bollann
eftir annan og hlusta á hergöngu-
lög. En á þessum stað og i þessu
ástandi eru þau eiginlega alveg
óhugsanleg.
„Fyrirgefið þér — þér eruð má-
ske gestur hérna lika?” spyr
mjög hógvær og kurteisleg rödd á
bak við hann, og þegar Pinneberg
hrekkur við og litur i kringum sig,
sér hann að bak við hann stendur
kvenmaður næsta gildvaxinn og i
fötum, —guði sé lof! — með horn-
spangargleraugu á krókbognu
kónganefi.
„Já — jú, ég er gestur hérna,”
segir hann.
„Það er ég nefnilega lika. Ég
heiti Nothnagel.”
„Pinneberg.”
„Hérna er fróðlegt að vera,
þykir yður það ekki? Eitthvað
óvanalegt.”
„Þegar hann hefir játað að sér
þyki hér lika fjarska fróðlegt —
og óvanalegt, vill konan vita,
hvort hann hafi ákveöið að ganga
i nektarhreyfinguna. Hún sjálf er
hérna i kvöld I þriðja sinn, en á
ennþá erfitt með að taka ákvörð-
un. „Þaðer ekki svo að þvi hlaup-
ið, þegar maöur er kominn á
minn aldur,” segir hún og virðir
svip hans fyrir sér með varúð, og
þegar Pinneberg lætur i ljós þá
skoðun, að yfirleitt sé ekki svo
auðvelt að átta sig á neinu máli,
segir hún glöð i bragði, að það sé
einmitt þetta, sem hún segi alltaf
við Max vin sinn — og honum er
sýndur Max dökkur og sterklega
byggður maður á fimmtugsaldri,
fullkomin imynd kaupmannsins,
sem vill áfram og veit hvað hann
vill. — „Ég segi einmitt alltaf við
Max, að það sé alls ekki svo auð-
velt, að taka ákvörðun i þessu
máli, sizt fyrir kvenfólk, en Max
litur nú alltaf á ábatavoniria, sjá-
ið þér, og brýnir fyrir mér sýknt
og heilagt, að það myndi verða
hagnaður að þvi fyrir mig, að
ganga i félagið. Og þetta er rétt af
honum, þvi að hann hefir haft
mikið upp úr þvi að gerast fé-
lagi.”
„Erþað mögulegt?” Pinneberg
spyr af einlægri og uppgerðar-
lausri forvitni.
„Nei, þetta er ekki neitt ólög-
legt, og ég get vel sagt yður
hvernig i öliu liggur. Max hefir
ábreiður og gluggatjöld i umboðs-
sölu, en verzluninni hrakaði dag
frá degi þangað til hann gekk i
hreyfinguna. Hvenær sem hann
heyrir getið um einhvern mann-
margan félagsskap, gengur hann
I hann og selur siðan hinu félags-
fólkinu. Hann gefur þeim auðvit-
að riflegan afslátt, en hann segist
lika standa sig vel við það. Nei,
þetta er -auðvitað enginn vandi
fyrir mann með útlitinu hans
Max, sem kann eins marga
brandara og hann og er annar
eins samkvæmismaður. Það er
allt annað og erfiðara fyrir mig,”
segir hún og stynur þungan.
„Þér rekið ef til vill verzlun
lika?” spyr Pinneberg og virðir
þessa vesalings, gegnumgráu,
bjálfalegu kvenmannsrolu fyrir
sér.
„Já,” segir hún og bætir við i
trúnaðarrómi: „En þetta hefir
ekki viljað heppnast fyrir mér.
Fyrst hafði ég ágæta sælgætisbúð
á góðum stað, en mig hefir auð-
sjáanlega vantað hæfileikana, þvi
að allt varð að engu hjá mér.”
Hún hristir höfuðið döpur i
bragöi.
„Attuð þér þá engan að, sem
gat gefið yður góð ráð og hjálpað
yöur eitthvað?”
„Nei, alls ekki neinn. Ég kynnt-
ist Max ekki fyrr en seinna, og þá
var ég búin aö sleppa búðinni.
Max útvegaði mér siðan umboð
til að selja magabindi, mjaðma-
belti og brjóstahöld, og það kvað
meira að segja vera ágætt um-
boð, en ég sel samt sem áður ekk-
ert eða sama sem ekkert.”
„Nei, en það eru lika erfiðir
timar núna,” segir Pinneberg.
„Já finnst yður það ekki? Það
eru blátt áfram voðalegir timar.
Ég hleyp hús úr húsi allan guðs-
langan daginn frá kjallara og upp
á hanabjálka, og oft kemur fyrir
að ég sel ekki fyrir nema fjögur,
fimm mörk, segi og skrifa fjögur,
fimm mörk. Jæja, það er nú samt
ekki það versta af öllu,” segir hún
og reynir að brosa. „Fólk er alveg
peningalaust. Bara að margir
væru ekki eins ruddalegir og
ókurteisir við mann og þeir eru.
Ég er nefnilega af Gyðingaætt-
um, skal ég segja yður — hafið
þértekið eftirþvi?” Og hún litur á
hann eftirvæntingaraugum.
„Nei — ekkert sérstaklega,”
segir Pinneberg vandræðalega.
„Já, þarna kemur það: þér haf-
iö samt tekið eftir þvi. Þetta segi
ég lika alltaf við Max. Bara að
Gyðingahatararnir vildu setja
sérstök merkisspjöld á dyrnar
hjá sér svo að maður gæti forðast
að æsa þá upp. Siðast i gær sagði
einn við mig: „Snautið i burtu
með þetta böívað óþrifnaðar-
skran yðar, gamla Gyðinga-
meri!”
„En það kvikindi!” segir
mm
1485
Lárétt
1) Innheimtumaöur.- 6)
Dreif,- 7) 1001.- 9) Utan,- 10)
Himnaverurnar.- 11) Eins.-
12) Útt,- 13) Bókstafi,- 15)
Ilátinú.-
Lóðrétt
1) Land,- 2) Mynt.- 3)
Hrópaði.- 4) Keyr.- 5)
Samanvið.- 8) Fljót,- 9)
Kindina.- 13) Keyri.- 14).
Greinir,-
Ráðning á gátu No. 1484.
Lárétt
1) Vending,- 6) Ýrð.- 7) Es.- 9)
Mu,-10) Tjónkar.-11) Ná,- 12)
LI.- 13) Aum.- 15) Maniinn.-
Lóörétt
1) Vietnam,- 2) Ný,- 3)
Drangur,- 4) Ið.- 5) Gaurinn,-
8) Sjá,- 9) Mal,- 13) AU.- 14)
MI,-
« i. y R f?-
E5
%
!<•
Handan fjallanna eru nokkrir T;
stórir bæir. Þegar þangað er §
komið, geta milljón dollarar j
borgað nýtt andlit á Lester r|
5L gamla og nýtt l;f -• ijjT^STM
Einhver
• er að
^koma.
rj Nema
gamli
hirðirinn
og hann
erdauður. ,
f Engin ástæða til að
drepa sjálfan sig. Þaö
1 sá enginn að ég . j
>yfirgaf þorpiðjjB
H
li
■■
■■
::
■ ■
::
|i
s
■
S|
..
£
s:
■i
|::|
B*.
5«
tU
ep
Þriðjudagur 28. ágúst 1973.
i 11:1! I
1
■
Þriðjudagur
28. ágúst
7.00 Morgunútvarp.
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl). 9,00
og 10.00. Morgunbæn kl.
7.45. Morgunleikfimi kl.
7.50. Morgunstund barn-
anna kl. 8.45: Þorlákur
Jónsson heldur áfram að
lesa um „Börnin i Hólma-
götu” eftir Ásu Löckling
(8). Tilkynningar kl. 9.30.
Létt lög á milli liða. Við sjó-
inn kl. 10.25: Sturlaugur
Böðvarsson verkfræðingur
talar um eftirlit með
hreinlæti og búnaði á fisk-
veiðiskipum. Morgunpopp
kl. 10.40: The Doobie Broth-
ers leika og syngja. Fréttir
kl. 11.00. Hljómplöturabb
(endurt. þáttur G.J.)
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Eftir hádegið Jón B.
Gunnlaugsson leikur létt lög
og spjallar við hlustendur.
14.30 Sfðdegissagan: „Óþekkt
nafn” eftir Finn Söeborg.
Þýðandinri, Halldór
Stefánsson les (11).
15.00 Miðdegistónleikar:
Tónlist eftir Beethoven.
Filharmóniuhljómsveitin i
Berlin leikur
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.15 Yeðurfregnir.
16.20 Popphornið.
17.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Fréttaspegill.
19.35 Umhverfismál. Dr.
Jónas Bjarnason efnaverk-
fræðingur talar um fóður-
öflun og umhverfi.
19.50 Lög unga fólksins.
Ragnheiður Drifa
Steinþórsdóttir kynnir.
20.50 tþróttir. Jón Asgeirsson
sér um þáttinn.
21.10 Kórsöngur. Krosskórinn
I Dresden syngur þýzk þjóð-
lög, Rudolf Mauersberger
stjórnar.
21.30 Skúmaskot. Hrafn
Gunnlaugsson stjórnar
þættinum.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Eyjapistill.
22.35 Harmonikulög. Hans
Wahlgren og hljómsveit
leika.
22.50 A hljóðbergi. Danski
leikarinn Adam Poulsen les
tvö söguljóð eftir Oehlen-
schlæger, „Gullhornin” og
„Hákon jarl”. A undan
verður flutt stutt erindi um
söguleg tildrög kvæðanna.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Þriðjudagur
28. ágúst
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Riddarinn ráösnjalli.
Franskur ævintýramynda-
flokkur. 7. og 8. þáttur. Þýð-
andi Dóra Hafsteinsdóttir.
Efni 5. og 6. þáttar: Riddar-
inn og þjónn hans falla i
hendur stigamanna. Þar
eru einnig i haldi Gospelle
greifi af Savoja og dóttir
hans, en riddaranum tekst
að flýja og frelsa þau. Spán-
verjar koma með herlið til
Savoja til að vinna á stiga-
mannaflokknum, og herða
einnig leitina að riddaran-
um.
21.20 Fimmtiu milur i eitt ár.
Umræðuþáttur i tilefni af
þvi, að 1. september er ár
liðið frá útfærslu landhelg-
innar i 50milur. Meðal þátt-
takenda verður ólafur Jó-
hannesson. forsætisráð-
herra. Umræðunum stýrir
dr. Kjartan Jóhannsson.
22.05 iþróttir. Umsjónarmað-
ur Ómar Ragnarsson.
Dagskrárlok óákveðin.