Tíminn - 30.08.1973, Qupperneq 16
.....
Fimmtudagur 30. ágúst 1973.
-
<zm G0ÐI
MERKIÐ, SEM GLEÐUR fyrir yóátm mai
HHtumst i kaupfélaghtu $ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Forstjóri BP
★ hvert orð dagsatt, segir
blaðamaður Vísis
★ höfðum ef til vill mál á móti, segir
ritstjóri Vísis
★ ótuktarskapur og kvikindisháttur
blaðakonunnar, segir forstjóri BP
stefnir Vísi
Jarðskjálftinn
í Mexikó:
575 lík
fundin
NTB—Mexlkóborg. — Um 50 þús-
und manns eru nú heimilislausir i
Mexikó eftir jaröskjálftann á
þriðjudaginn, sem jafnaði tvo bæi
viö jörðu og olli miklu tjóni á 300
km löngu belti i miðhluta lands-
ins. Samkvæmt tölum frá mexi-
kanska innanrikisráðuneytinu
hafa fundizt 575 lik, en búist er við
að sú tala hækki talsvert eftir þvi
sem á liður leitun i rústunum.
Jarðskjálftamiðstöðin i Colo-
rado sendi i gær frá sér tilkynn-
ingu, þar sem segir, að þessar
hamfarir séu hinar mestu i
Mexikó á siðari timum. Kippur-
inn mældist meiri á jarðskjálfta-
mælum viða um heim, en sá sem
lagöi Managua i rúst um jólin.
Bæirnir Orizaba og Quecholac
sem eru um 200 km austan við
Mexikóborg, lögöust svo til alveg
i rústir. 1 Orizaba létust 100
manns, þegar 3ja hæða ibúða-
blokk hrundi. Margir skólar eru
ónýtir og sjúkrahúsið stór-
skemmt. Stórar deildir hersins
hafa verið settar til að vinna aö
björgunarstörf um.
í eina
sæng
NTB—Beirut. — Egyptaland og
Lýbia urðu i gær opinberlega að
einu riki, að sagt var i fréttasend-
ingu Kairó-útvarpsins, sem hler-
uð var i Beirut. Var þetta tilkynnt
ibúum landanna frá yfirstjórn
rikjanna. Rikið mun styðja mál-
efni byltingarinnar og vinna að
þvi að endurheimta herteknu
svæðin frá Israel. Eining er nauð-
syn til að lifa af, sagði i til-
kynningunni.
HÖFUÐFRÉTTIN á forsiðu
Visis siðastliðinn laugardag
hefur vakið mikla athygli. Þar
voru þau ummæli höfð eftir
önundi Ásgeirssyni forstjóra
BP, aö hann ætti i rauninni að
fá fimmtiu krónur fyrir hverja
veiðibjöllu, sem dræpist af
völdum oliulekans. Nú hafa
þau tíðindi gerzt, að önundur
hefur sent fjölmiðlum bréf,
þar sem segir, að hann hafi
aldrei látið sér þessi orð um
munn fara og frétt Vísis sé til-
búningur frá rótum.
„Bréf önundar ber fyrir-
sögninga „Sorpfrétt leiörétt”,
en sfðan segir orðrétt:
„1 forsiðufrétt Visis s.l.
laugardag gerir Þórunn Sig-
urðardóttir (ólasonar hrl.)
blaðakona mig að miklu ill-
menni, sem óski þess, að sem
flestir fulgar drepist I oliubrák
og vilji ég fá 50.- fyrir fuglinn.
Allt er þetta óhrjálega mál
tilbúningur frá rótum og sett
fram af miklum ótuktarskap
og kvikindishætti af hendi
blaðakonunnar. Sorpfrétt
þessi væri ekki svars verð, ef
svo vildi ekki til, að einhverjir
auötrúa áhengendur Þjóðvilj-
and og rikisútvarpsins lögðu
trúnað við og tóku að spinna
lopann I sama dúr út af þess-
ari vitleysu.
Tilefni þess, að blaðakonan
hringdi i mig, var forsíðufrétt
Visis s.l. föstudag, þar sem
forsvarsmenn fuglaverndun-
arfélagsins sögðu þúsundir
fugla mengaða af oliu. Ég
sagði henni, að mér væri
ókunnugt um, að slikt ástand
hefði skapazt og taldi það
mjög ósennilegt, var þetta
reyndar staðfest af lögregl-
unni s.l. laugardagskvöld,
þegar rikisútvarpið birti þá
frétt, að einn — segi og skrifa
einn — fugl hefði verið skotinn
þann dag, það er sama dag og
grein Þórunnar var birt. Hún
spurði að þvi, hvað félagið ætl-
aði að gera i sambandi viö
oliublauta fugla, og sagði ég
henni, að engin ákvörðun hefði
verið tekin um það, enda mál-
ið ekki komið til umræðu. Hins
vegar sagði ég henni, að það
hlyti að koma i hlut lögregl-
unnar i Reykjavik að skjóta þá
fugla, sem menguðust af oll-
unni, þar sem skv. lögreglu-
samþykkt Reykjavikur er öll-
um öðrum en lögreglunni
óheimilt að fara með skotvopn
innan lögsagnarumdæmisins.
Á félaginu hvildi hins vegar
sú skylda að leitast við að
forða þriðja aðila frá tjóni af
völdum oliu þeirrar, sem fór
niður, og væru þvi starfsmenn
félagsins uppteknir við að
hreinsa upp oliuna. Félagið
væri tryggt fyrir leka og fyrir
tjóni gagnvart þriðja aðila, en
ekki væri um neinar bætur að
ræða vegna fugla, þótt þeir
færust af völdum oliunnar.
Myndi það væntanlega mest
verða máfur, sem væri frið-
laus, og væru kr. 50,- lagðar til
höfuðs hverjum fugli skv. lög-
um. Er þetta aðeins efnislega
rétt og staðreynd málsins, þótt
bæði mér og öðrum þyki leitt
að fuglar farist i oliubrák.
Sem betur fer er oliubrák á
fugli miklum mun minni en
ástæða var til að óttast. Mesta
hættan af oliumengun er liðin
hjá. Olian hefur að mestu ver-
ið verkuð upp, og mjög óveru-
leg oliubrák verður á sjónum
kringum oliustöðina á Klöpp
nú um skamma hrið. Er þetta
óviöráðanlegt og mun væntan-
lega litlu eða engu tjóni valda,
vonandi ekki heldur á fugli.
Ég er þakklátur þeim
starfsmönnum Oliuverzlunar
Islands h.f., sem lögðu á sig
mikið erfiði við að vinna mjög
óhreinlegt verk við hreinsun
oliunnar við hinar erfiðustu
aðstæður. En kvikindishætti
Þórunnar Sigurðardóttur og
dagblaðsins VIsis i sambandi
við þetta mál mun verða svar-
að á öðrum vettvangi.”
Reykjavik, 28. ágúst 1973
önundur Asgeirsson.
Höfðar meiðyrðamál
á hendur Visi
Timinn hafði tal af önundi
vegna þessa bréfs, enda er hér
um alvarlegar ásakanir að
ræöa.
önundur kvað það ekki
vanda sinn, eða BP, að elta ól-
ar við missagnir i blöðum, en
hins vegar hefði hann orðið
fyrir svo miklu aðkasti vegna
þessarar fréttar i Visi, að
hann gæti ekki látið þetta
kyrrt liggja, og sagðist mundu
höfða mál á hendur blaðinu
innan skamms og stefna þvi
fyrir meiðyrði, og hefði hann
þegar haft samband við lög-
fræðing vegna þessa.
Viðtalið rétt eftir
haft, segir Þórunn
Þá hafði Timinn samband
viö Þórunni Sigurðardóttur,
sem skrifaði umrædda grein.
Þórunni fórust orð á þessa
leið:
— Mér þykir mjög fyrir þvi,
að vera ekki jafnvel að mér
um ætt önundar Ásgeirssonar
og hann er um mfna og verð
þvi að sleppa öllum ættartöl-
um, sem sannað gætu þann
kvikindisskap, sem virðist
ætla landsfrægur að verða, ef
dæma má eftir bréfi önundar.
Sýnist mér það tala öllu skýr-
ara máli en fátækleg orð frá
mér, en legg drengskap minn
aö veði, að viðtalið er rétt eftir
haft nema hvað i stað orðanna
„helber ósannindi” átti i raun-
inni að standa „helvitis lygi”.
Þar var rætt um ummæli Ste-
fáns Bjarnasonar mengunar-
sérfræðings Siglingamála-
stofnunarinnar, um einn
geymana á Klöpp, en Stefán
sagði i viðtali viö blaðið, að
forsvarsmenn BP hefðu sagt,
að engin olia væri i tilteknum
geymi, en siðan hefði reynzt
vera oíia þar i fjögurra metra
hæð. Dró ég þvl litillega úr
stóryrðunum og leiðréttist það
hér með. Varð mér mjög mik-
ið um þetta samtal og ræddi
við ritstjóra um það strax að
þvi loknu og sýndi honum það,
sem ég hafði handskrifað eftir
önundi, sem ég geymi enn.
Læt ég svo öllúm vörnum lokið
um þetta, en vona, að önundur
standi lengur við orð sin um
mig en um blessaðan fuglinn.
Vitni að samtalinu
segir ritstjórinn
Þá hafði Timinn tal af Jóni
Birgi Péturssyni ritstjóra VIs-
is, og spurði hvað honum fynd-
ist um þær ásakanir i garð
Visis, sem fram kæmu I bréfi
önundar, sem og hvernig VIs-
ir mundi bregðast við.
Jón Birgir sagði:
— Þetta orðalag bréfsins
dæmir sig sjálft, þvi að það er
ansi oijðhákslegt. Það voru
vitni að þessu samtali Þórunn-
ar og önundar, sem heyrðu,
að hún spurði mjög undrandi,
hvort hafa mætti þessi um-
mæli eftir. Það er lika firra að
Framhald á bls. 13
..1,1 H
Bátsbruni út af Skaftárósi:
Afturhlutinn logaði
er hjálpin barst
Mikil eftirspurn
eftir þangmjölinu
— selt á 20 þús. kr. tonnið
Klp—Reykjavík. I fyrrinótt kom
upp eldur i vélbátnum Sólfara AK
170, sem gerður er út frá Þorláks-
höfn, þar sem báturinn var út af
Skaftárósi.
Eldurinn kom upp aftan til i
bátnum og réðu skipverjar ekkert
viö hann. Þeir sendu út neyðar-
kall um klukkan þrjú um nóttina
og skömmu siðar kom flutninga-
og farþegaskipið Esja á vettvang
og tók Sólfara i tog.
Atta manns voru um borð i
bátnum, þeir fóru allir i gúmmbát
og var bjargað um borð I Esjuna.
Aður höfðu þeir bundið taug i bát-
inn, og tók Ejsa hann i tog.
Þegar við höfðum samband við
loftskeytamanninn um borð i
Esju seinni partinn i gær, sagði
hann, að enn væri reykur um borð
I Sólfara, en þá skömmu áður
hefði aftur blossað upp eldur, lik-
lega vegna oliu, sem hann hefði
læst sig i.
Þeir væru nú að koma inn til
Vestmannaeyja, þar sem þeir
hugðust slökkva betur I bátnum
og laga sig til áður en haldið yrði
fyrir Reykjanes. Hann bjóst við,
að annað hvort yrði farið til
Keflavikur eða Reykjavikur, og
taldi hann líklegt, að þangað yrðu
skipin komin undir hádegi i dag.
Það færi þó allt eftir þvi, hvor
staðurinn yrði fyrir valinu.
Bíllinn féll
ofan á
manninn
Klp-Reykjavik. Réttfyrirkl. 19,00
i gær, miðvikudag, varð maður
undir bfl, sem hann var að vinna
við á Veghúsastig.
Var maðurinn að skipta um
höggdeyfi að aftan á Land Rover
jeppa og hafði hann tjakkað bilinn
upp og tekið vinstra afturhjólið
undan honum.
Maðurinn sat þarna undir biln-
um, þegar hann rann allt i einu af
tjakkanum og lagöist önnur hjól
skálin yfir nára mannsins. Ekki
er vitað, hvað hann sat svona
lengi, en það hefur verið góð
stund, þvi að nokkuð var af hon-
um dregið, þegar hjálp barst.
Maðurinn var þegar fluttur á
Slysavarðstofuna og var hann i
rannsókn þar, þegar siðast frétt-
ist.
SB-Reykjavík — 1 Fóðuriðjunni i
Saurbæ hafa nú verið framleidd
200 tonn af heykögglum og 35 tonn
af þangmjöli i sumar. Búið er að
panta alls 400 tonn af heyköggl-
um, og standa vonir til, að ekki
veröi vandræði með að vinna það,
sem upp á vantar. Eftir er að slá
um 100 hektara lands, en þó að
rigni, er hægt að vinna, það geng-
ur bara litið eitt hægar.
Forstöðumaður verksmiðjunn-
ar sagði i viðtali við Timann i
gær, að mjög vel hefði gengið að
vinna þangið, sem skorið var um
daginn i Breiðafirðinum I til-
raunaskyni. Fengust úr þvi um 35
tonn af mjöli og mun megnið af
þvi verða selt til Englands, en
bændur hér hafa spurzt mikið fyr-
ir um það, svo og fóðrurmjöls-
framleiðendur. Verð á tonninu
mun vera um 20 þúsund krónur.
Ekki er neitt á móti þvi, að
verksmiðjan vinni meira þang, ef
hægt verður að fá það i haust,
þegar heykögglaframleiðslunni
lýkur, sennilega I byrjun október.
Markaður fyrir heyköggla fer
sifellt vaxandi hér á landi og eru
nú þrjár verksmiðjur við fram-
leiðslu. I Fóðuriðjunni er unnið
allan sólarhringinn á tviskiptum
vöktum. Þar vantar þó tækjabún-
að, sem vonir standa til, að kom-
inn verði næsta sumar. Þá fær
verksmiðjan einnig meira land,
og framleiðslan eykst þá að lik-
indum. Enginn vandi er að losna
við heykögglana, eins og áður
segir, þó að talsvert meira verði
framleitt af þeim.
Tveir menn
fastir í kafbát
NTB—Dublin. — Tveir menn
eru fastir i kafbát niðri á botni
Atlantshafsins um 120 milur
sv. af Cork á Irlandi. Allt er i
lagi með þá ennþá, en i gær
var talið að sólarhringur gæti
liöið, þar til báturinn næðist
upp. Ekki er vitað hvers vegna
mennirnir gátu ekki komið
honum upp á yfirborðið.
Mennirnir voru að leggja
sæstreng, sem liggja á frá
Cornwall i Englandi til Hali-
fax i Kanada, þegar báturinn
festist. Hann er sex metra
langur og vegur 11 lestir,- Um
borð er nægilegt loft i 72
klukkustundir.
Ræninginn sér eftir
að hafa gefist upp
NTB-Stokkhólmi —■ Jan Erik Ols-
son, bankaræninginn, sem lög-
reglan yfirbugaði i fyrrakvöld,
hefur sagt, að hann sjái eftir að
hafa gefist upp. Hann og félagi
hans verða yfirheyrðir i dag.
Yfirmenn lögreglunnar ræddu i
gær við gislana fjóra, en ekki hef-
ur verið látið uppi, hvað þeir
sogöu. Læknar vilja ekki leyfa að
þeir verði yfirheyrðir fyrr en þeir
hafa náö sér fyllilega.
Sá elzti gislanna, Birgitta
Lundblad, 31 árs, virðist hafa far-
ið einna verst út úr þessu. Hún og
karlmaðurinn, sem er 25 ára,
hafa sofið siðan þau komust út úr
bankanum.