Tíminn - 21.09.1973, Blaðsíða 19

Tíminn - 21.09.1973, Blaðsíða 19
Föstudagur 21. september 1973 TÍMINN 19 0 Timbur Flotbryggjur í Klakksvík iö till it til þess viðarmagns, sem við bætist á hverju ári, en meðal- ársvöxtur lerkis er 5-6 tenings- metrar, þegar trén hafa náð átján ára aldri og fer vaxandi eftir þvi sem trén eldast. Svipuðu máli gegnir um fullþroska greni, en það er talið fullþroska hálfrar aldar gamalt. Geysileg framtiðarverðmæti Eins og sjá má af þessum út- reikningum, þótt ófullkomnir séu og segi ekki alla sögu, leynast nú þegar mikil verðmæti i islenzku skóglendi og þessi verðmæti auk- ast með ári hverju. Þá má ekki heldur gleyma þvi, aö hver spýta sem við fáum úr innlendum trjám, sparar okkur dýrmætan erlendan gjaldeyri, sem ella verður að mestu að sækja i greipar hafsins. Skógur vex hins vegar hægt og það tré,sem gróðursett er i dag kemur ekki að gagni fyrr en að áratugum liðnum og þess vegna liggur mikið við, að forsjálni sé höfð i þesum efnum og islenzk skógrækt verði efld til muna. HHJ Myndin er frá Klakksvik. Bryggjurnar eru komnar á sinn stað, en eftir er að leggja vatn og ljós og lagfæra aðstöðuna T Iandi. Trillurnar komast f örugga höfn Tilkynning til bifreiðaeigenda Frestur til að sækja um endurgreiðslu gjalda af bifreiðum, sem teknar hafa verið af skrá hluta úr árinu 1972, rennur út 30. þ.m. Fyrir þann tima þarf þvi að sanna rétt til endurgreiðslu gjaldanna fyrir inn- heimtumanni' rikissjóðs með greiðslu- kvittun og vottorði bifreiðaeftirlits, ella fellur hann niður skv. 1. mgr. 91.gr. laga nr. 80/1973. Fjármálaráðuneytið, 20. september 1973. SVIPAÐ ástand hefur til skamms tima ríkt i Klakksvik i Færeyjum og ríkir enn i mörgum höfnum okkar, þ.e. viðunandi aðstaða hefur ekki verið fyrir hendi handa smábátaflotanum. Þetta vanda- mál hafa Klakksvikingar leyst með þvi að kaupa flotbryggjur frá Sviþjóð. Bryggjurnar, sem þeir i Klakksvik hafa verið að setja niður, eru þrjár að tölu, en hver bryggja er samsett úr fjórum 12mx3m einingum. Hæðin er 1.50 metrar og standa 75 cm upp úr. Bryggjurnar eru keyptar frá A/B Pontona i Sviþjóð og samanlagð- ur kostnaður er um 1 milljón krónur færeyskar, eða um 15 milljónir isl. kr. Einingarnar eru festar saman með keðjum og á milli þeirra eru göngubrýí, og hver eining vegur um 19 tonn. Lengd hverrar bryggju er nálægt 60 metrum. Ljós- og vatnslagnir munu verða á bryggjunum. Bátarnir koma til með að liggja með stefnið að bryggju, en festir að aftan við baujur, þannig að r.eikn- að er með, að hver bátur taki ekki nema um 3 metra pláss. Við hverja bryggju komast þvi um 40 smábátar, eða 120 samanlagt við allar þrjár bryggjurnar. — hs — Árekstur á Jökuldal Þriðjudaginn 18. september varð harður árekstur milli vörubfls og fólksbils af gerðinni Moskwitch skainmt frá Hofteigi á Jökuldal. Áreksturinn varð i blindbeygju, og rann fólksbillinn siðan niður allháa brekku. Hann mun vera gjörónýtur. Tveir farþegar voru i fólks- bilnum, en engin meiðsli urðu á mönnum. Eigendur bilanna eru báðir búsettir á Jökuldal. Styrktarfélag van- gefinna ó Austurlandi heldur fræðslu- og kynningarmót fyrir for- eldra vangefinna og seinþroska barna, svo og aðra þá, er áhuga kynnu að hafa, að Staðarborg i Breiðdal, dagana 28. til 30. september. Þeir, sem hug hafa á að sækja þetta mót, hafi samband við trúnaðarmann félagsins i sinum hreppi, eða snúi sér til Ardisar Gisladóttur, Djúpavogi, eða Kristjáns Gissurar- sonar, Eiðum, sem veita allar nánari upplýsingar. Stjórnin. Óskum að rdða stúlku í bókband Prentsmiðjan Edda h.f. Sími 2-60-20 & w BLÓMASALUR n LOFTLBÐIR BORÐAPANTANIR I SIMUM 22321 22322 BORÐUM HALDIÐ TIL KL 9. VÍKINGASALIJR

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.