Tíminn - 05.10.1973, Blaðsíða 5
Föstudagur 5. október 1973.
TÍMINN
5
Athyglisverð skýrsla um störf
og þýðingu fjölþjóðafyrirtækja
A vegum Sameinuðu þjóðanna
var fyrir nokkru birt skýrsla um
áhrif fjölþjóðlegra fyrirtækja á
þróun mála i heiminum. Það var
efnahags- og félagsmáladeild
Sameinuðu þjóðanna, sem samdi
þessa skýrslu, og alþjóðlegur sér-
fræðingahópur fjallar nánar um
hana i New York i fyrri hluta
septembermánaðar. Verður þá
ennfremur rætt um áhrif þessara
fyrirtækja á alþjóðasamskipti og
framfarir.
Skýrslan er 195 blaðsiður, og
þar er að finna upplýsingar um
stærð, starfsemi og uppbyggingu
fjölmargra fjölþjóðlegra fyrir-
tækja, og lagt er mat á þýðingu
þeirra i efnahagsheiminum. Þá
er og fjallað um eðli þessara
fyrirtækja, hagnað og hvernig
eignarhaldi á þeim er háttað.
Þá er i skýrslu þessari gerð
grein fyrir áhrifum fjölþjóðlegra
fyrirtækja á alþjóðleg samskipti,
eins og áður var minnzt á, og
sambúð þeirra við stjórnvöld i
þeim löndum, þar sem þau hafa
höfuðstöðvar eða reka útibú.
t skýrslunni segir meðal annars
á þá leið, að fjölþjóðleg fyrirtæki,
ólikt þvi sem sé um rikisstjórnir,
„beri ekki beina ábyrgð á verkum
sinum og stefnu gagnvart stórum
hópi kjósenda”, og þvi sé það eitt
höfuðatriði þessa máls, „hvort
hægt sé að koma á fót einhvers-
konar kerfi, er hefði, ef svo mætti
Hér fæst Tíminn
Á Norðurleið og Austurlandi fæst Timinn:
HVALFIRÐI: Oliustöðinni
BORGARFIRÐI: Hvitárskálanum v/Hvitárbrú,
B.S.R.B., Munaðarnesi.
HRÚTAFIRÐI: Veitingaskálanum.Brú, Staðarskálanum.
BLÖNDUÓSI: Essö-skálanum, Hótelinu, hjá umbm. Þórunni
Pétursdóttur
SKAGASTRÖND: umbm. Björk Axelsdóttur, Túnbraut 9
SKAGAFIRÐI: Kf. Skagfirðinga Varmahlið
SAURARKRÓKI: hjá umbm. Guttormi
Óskarssyni Kaupfélaginu
SIGLUFIRÐI: umbm. Friðfinnu Simonardóttur Steinaflöt
ÓLAFSFIRÐI: umbm. Mary Baldursdóttur, Aðalgötu 32
DALVIK: umbm. Stefáni Jónssyni, Bjarkarbraut 9
IIRiSEY: umbm. Björgvini Jónssyni útibússtj. Norðureyri 9
AKUREYRI: umbm. Ingólfi Gunnarssyni, Hafnarstræti 95, i
öllum blaðsöluturnum
S-ÞINGEYJARSÝSLA: Reynihlið við
Mývatn.
HúSAViK: umbm. Stefáni Hjaltasyni, deildarstj.
KÓPASKER: Kf. N-Þingeyinga
RAUFARHÖFN: umbm. Hólmsteini Helgasyni
ÞÓRSHÖFN: Kf. Langnesinga
EGILSSTÖÐUM: Kf. Héraðsbúa, umbm. Ara Sigurbjörnssyni,
Bjarkahlið 3, Héraðsheimilinu Valaskjálf og Flugvellinum.
REYÐARFIRÐI: umbm. Marinó Sigurbjörnssyni, og i
bókabúðinni.
VOPNAFIRÐI: Kf. Vopnafirðinga og i bókabúðinni
ESKIFIRÐI: Óli J. Fossberg og i bókabúðinni.
SEYÐISFIRÐI: umbm. Þórdisi Bergsdöttur og i bókabúðinni
NORÐFIRDI: Gunnari Daviðssyni umbm., Þiljuvöllum 37 og i
bókabúðinni.
HORNAFIRÐI: Kf. A-Skaftfellinga, Höfn og i bókabúðinni.
Á Suðurlandi fæst Timinn:
SELFOSSI: Kf. Arnesinga og i bókabúð Arinbjarnar Sigurgeir-
sonar og hjá umbm. Jóni-Bjarnasyni Þóristúni 7
LAUGARVATNI: KA
ÞRASTASKÓGI: KA
EYRARBAKKA: KÁ, umbm. Pétri Gislasyni
STOKKSEYRI: KA, umbm. Sveinbirni Guðmundssyni
ÞORLAKSHÖFN: KA, umbm. Franklin Benediktssyni
HVOLSVELLI: KA, umbm. Grétari Björnssyni
HELLU: KA, umbm. Steinþóri Runólfssyni
HVERAGERÐI: Verzluninni Reykjafossi
Á vesturleið fæst Timinn:
BORGARNESI: Söluturninum, hjá unibm. Sveini M. Eiðssyni,
Þórólfsgötu 10
AKRANESI: Söluturninum, hjá umbm. Guðmundi Björnssyni,
Jaðarsbraut 9
HELLISSANDI: umbm. Þóri Þorvarðarsyni
ÓLAFSVÍK: umbm. Hrefnu Bjarnardóttur
GRUNDARFIRÐI: umbm. Jóhönnu Magnúsdóttur, Borgar-
braut 2
STYKKISIIÓLMI: umbm. Hrafnkeli Alexanderssyni
PATREKSFIRÐI: umbm. Magnúsi B. Ólsen, Aðalstræti
BÍLDUDAL: umbm. Hávarði Hávarðarsyni
SúG ANDAFIRÐI: umbm. Hermanni Guðmundssyni, Aðalgötu 2
BOLUNGAViK: umbm. Jóninu Sveinbjörnsdóttur
ÍSAFIRÐI: umbm. Guðmundi Sveinssyni og Bókaverzlun
Jónasar Tómassonar
segja, umsjón með störfum íjöl-
þjóðlegra fyrirtækja, þannig að
þau veröi, i verkum sinum og
stefnu, á einhvern hátt gerð
ábyrg gagnvart samfélagi þjóð-
anna”.
Þá kemur það og fram, að það
sem valdið hafi flestum áhyggj-
um, sé hvernig fjölþjóðlegu fyrir-
tækin beiti ofurvaldi sinu á ýms-
um sviðum, svo sem með þvi að
hafa áhrif á lif einstaklinga,
stefnu rikisstjórna og alþjóðleg
verkaskiptingu.
„Fjölþjóðleg fyrirtæki”, segir i
skýrslunni, „geta með ýmsum
þeim ráðum, sem þeim eru tiltæk,
vegið að sjálfstæði einstakra
rikja, með þvi að koma i veg fyrir
að þau geti framfylgt þeirri
stefnu, er þau telja ákjósan-
legasta”.
Meginhluti (tveir þriðju hlutar)
starfsemi hinna fjölþjóðlegu
fyrirtækja á sér stað i löndum,
þar sem markaðskerfið er orðið
háþróað, nema hvað slikra fyrir-
tækja, sem höfuöstöðvar hafa i
öðrum löndum, gætir einna
minnst i Japan, þar sem stjórn-
völd hafa fylgt þeirri stefnu að
takmarka mjög umsvif erlendra
fyrirtækja og dótturfyrirtækja
þeirra i landinu. Þessu er öfugt
farið með Kanada, þar sem um 60
prósent iðnfyrirtækja og um 65
prósent námu- og málmbræðslu-
fyrirtækja eru dótturfyrirtæki er-
lendra fyrirtækja.
Skýrslan greinir og frá þvi, að
þótt svo ekki nema einn þriðji
hluti starfsemi hinna fjölþjóðlegu
fyrirtækja fari fram i þróunar-
löndunum, þá séu áhrif þeirra
hlutfallslega meiri þar, en i
þróuðu löndunum: Um 18 prósent
allrar erlendrar fjárfestingar er
talið vera á vesturhveli jarðar, 6
prósent i Afriku, 5 prósent i Asiu,
og 3 prósent i Suðurlöndum nær.
Atta af niu stærstu fjölþjóðlegu
fyrirtækjunum eru með höfuð-
stöðvar sinar i Bandarikjunum,
og á þeirra snærum er meira en
helmingur allrar erlendrar fjár-
festingar, sem er á vegum slikra
fyrirtækja. Séu Bretland, Vestur-
Þýzkaland og Frakkland talin
með, kemur i ljós, að fyrirtæki i
þessum fjórum löndum eru með
um 80 prósent allrar erlendrar
fjárfestingar i veröldinni, sem
áætluð er um 165 billjónir Banda-
rikjadala.
Sá litiö á laridfræðilega skipt-
ingu útibúa hinna fjölþjóðlegu
fyrirtækja, kemur i ljós, að fyrir-
tæki með höfuðstöðvar i Evrópu
eru einkum með útibú i löndum,
sem áður voru evrópskar nýlend-
ur. 70 prósent útibúa bandariskra
fjölþjóðlegra fyrirtækja eru i
Suður Ameriku, en afgangurinn
skiptist nokkurn veginn jafnt
milli Afriku, Asiu og Miðaustur-
landa.
Þá kemur fram, að fjölmörg
þessara fyrirtækja eru umsvifa-
meiri á fjármálasviðinu en mörg
einstök riki. Þannig var til dæmis
framleiðsla hvers hinna tiu
stærstu fyrirtækja á þessu sviði
meira virði árið 1971, heldur en
þjóðartekjur rúmlega áttatiu
rikja (3 billjónir Bandarikja-
dala).
40prósent af starfsemi fjölþjóð-
legu fyrirtækjanna, sem fjailað er
um i skýrslunni, er iðnaðarfram-
leiðsla, en 29 prósent oliunám og
oliuiðnaður. 1 þróunarlöndunum
er um það bil helmingur fjár-
festingarinnar i námugreftri eða
oliuvinnslu, og um það bil
fjórðungur i iðnaðarframleiðslu.
Þessu er ekki alveg á sama hátt
farið i þróuðu löndunum, þvi þar
er um helmingur fjárfestingar-
innar i iðnframleiðslu, og um 30
prósent i námugreftri og oliu-
vinnslu.
Við þetta bætist svo, að fjöl-
þjóðlegu fyrirtækin hafa með
hverju árinu fært starfsemi sina
inn á ný svið, og hefur starfsemin
undanfarið sérstaklega farið vax-
andi á sviði bankamála, ferða-
mála og allskyns ráðgjafastarf-
semi. Frá árinu 1965 fram til árs-
ins 1972 þrefaldaðist tala útibúa
bandariskra banka erlendis, og
eru þau nú rúmlega eitt þúsund
talsins.
Meðal þess, sem lagt er til i
skýrslunni að gert verði til að
fylgjast með og hafa hæfilegan
hemil á starfsemi þessara fjöl-
þjóðlegu fyrirtækja, er eftirfar-
andi:
Sameinuðu þjóðirnar taki að sér
að dreifa itarlegum upplýsingum
um starfsemi þessara fyrirtækja.
Þar sem verðlagningarmál og
skattamál þessara fyrirtækja eru
afar flókin, þá verði komið á fót
einskonar „heimsskattanefnd” er
meðal annars hafi það hlutverk,
að vara þróunarlöndin við þeim
hættum, sem kunna að leynast i
samskiptum við þessi fyrirtæki.
Settar verði einhverskonar al-
þjóðlegar reglur um starfsemi
þessara fyrirtækja og samskipti
þeirra við stjórnvöld.
I skýrslunni er að finna 43 töflur
með allskyns upplýsingum um
fjölþjóðleg fyrirtæki. Þar er til
dæmis skrá yfir 211 stærstu fyrir-
tæki i veröldinni, er öllum er það
sameiginlegt, að árlega selja þau
framleiðsluvörur sinar fyrir
meira en billjón Bandarikjadali.
Þá er skrá um, að hve miklu levti
iðnfyrirtæki i þróunarlöndunum
eru eign erlendra aðila, og ótal
fleiri upplýsingar er að finna i
skýrslunni.
Samkvæmt skýrsiunni eru tiu
stærstu fyrirtæki i veröldinni sem
hér segir:
Arleg sala i milljónum
General Motors (USA) 28.264
Standard Oil (N.J.) (USA) 18.710
Ford Motors (USA) 16.433
Royal Dutch Shell (Holland-
Bretl.) 12.734
General Electric (USA) 9.429
IBM(USA) 8.274
MobilOil (USA) 8.243
Chrysler (USA) 7.999
Texaco(USA) 7.529
Unilever (Holland-Bretland) 7.483
^VILJIRÐU
HAFA ÞAÐ GOTT
er í Reykjavik...
a frjáls, slappa af í næöi, eða þá hitta
kunningja — í setustofu, veitingasal eða
á barnum — þá er að leita til Hótel Esju.
Þangað er auðvelt að komast
án þess að aka erfiðar umferðargötur, og
biðstöð strætisvagna er rétt við hótelið.
undlaugarnar og íþróttahöllin í Laugardal,
ir og skemmtistaðir af ýmsu tagi
næsta nágrenni. Næsta heimsókn
staðinn verður skemmtileg tilbreyting
og góð hvíld.
VELKOMIN Á HÓTEL ESJU
&HOTEI
SUÐURLANDSBRAUT 2 -SIMI 82200