Tíminn - 05.10.1973, Síða 16
16
TÍMINN
Föstudagur 5. október 1973.
jUmsjón: Alfreð Þorsteinsson!
Þráinn hefur
sett átta
íslandsmet
á árinu
og sigraði á Fjölþrautam
Hann er mjög
f jölhæfur
íþróttamaður
óti Skarphéðins
EINN efnilegasti frjálsiþróttamaður landsins i dag
er Þráinn Hafsteinsson HSK. Til marks um það er
að hann hefur sett alls 8 sveinamet á þessu ári. S.l.
vetur kastaði hann drengjakúlu 13,20 m innanhúss,
og bætti sveinamet Grétars Guðmundssonar KR frá
1969 um 35 cm.
I sumar hefur Þráinn svo sett 6 sveinamet i kringlukasti, og bætt
metin meðöllum þyngdunum. Sveinakringlu hefur hann kastað 61,76 m
og bætt met Óskars Jakobssonar 1R um 4,58 m. Með drengjakringlu
hefur Þráinn bætt sveinametið þrivegis, lengst 47,81 m. Gamla metið
átti óskar Jakobsson tR, 45,78 m. Karlakringlu hefur Þráinn kastað
39,29 m og bætt 19 ára gamalt sveinamet Úlfars Björnssonar ÚtA um 14
cm.
En Þráinn er fjölhæfur iþróttamaður, og á Fjölþrautarmóti Skarp-
héðins 16. sept. s.l. sigraöi hann i fimmtarþraut. Hann hlaut 2552 stig og
bætti sveinamet Elisar Sveinssonar 1R um 129 stig. Árangur hans var
þessi: langstökk, 5,40 m — spjótkast, 43,64 m —200 m hl., 26,5 sek. —
kringlukast, 39,04 m — 1500 m hl., 4:54,9 min.
önnur úrslit i fimmtarþrautinni urðu þessi: 2. Guðmundur Jónsson,
2446 stig. (5,98 m — 37,69 m —24,0 sek. — 35,61 m — 5:37,9 min.) 3. As-
grimur Kristófersson 2325 stig. (5,65 m — 33,63 m — 25,3 sek. — 35,51 m
— 5:25,1 min.)
Einnig var keppt i þriþraut kvenna og urðu úrslit þessi: 1. Sveinbjörg
Stefánsdóttir 1476 st. (100 m hl., 14,2 sek. — langst., 4.50 m(kúluv., 8,63
m) 2. Þuriður Jónsdóttir 1355 st. (14,2sek. — 4,19 m — 8,08 m) 3. Aðal-
björg Hafsteinsdóttir 1239 st. (14,2 sek.—4,48 m — 5,75 m)
ísfirðingar
endurheimtu
2. deildar
sætið sitt
EINS ÖG viö sögðum frá hér á
siðunni 1 vikunni, unnu ls-
firðingar 3. deildar keppnina I
knattspyrnu. Þar meö endur-
heimtu þeir 2. deildar sætið,
sem þeir misstu sl. ár.
tþróttasiöan óskar tsfiröing-
um til hamingju með árangur-
inn, scm er lyftistöng fyrir
knattspyrnuna á tsafirði. Hér
birtum viö mynd af leikmönn-
um tsafjarðarliðsins, sem
unnu úrslitaleikinu gegn
Reyni frá Sandgerði 1:0.
Aftari röð frá vinstri:
Kristján Jóhannsson liðs-
stjóri, Tryggvi Sigtrygsson,
Albert Guðmundsson, Jón Jó-
hannesson, Rúnar Guðmunds-
son, Halldór Antonsson, Helgi
Kjartansson, Bjarni Alberts-
son, Páll Ólafsson og Gisli
Magnússon þjálfari.
Fremri röð: Guðmundur
Ólafsson, örnólfur Oddsson,
Hreiðar Sigtryggsson, Björn
Helgason, Jón B. Sigtryggs-
son, Pétur Guömundsson og
Gunnar Pétursson ( Tima-
mynd Gunnar)
AGÚST ÖGMUNDSSON...........sést hér skora gegn v-þýzka liöinu Göppingen, sem Geir Hallsteinsson leikur
nú með. Hvað gera Agúst og félagar hans I Val I kvöld?
Valsmenn mæta
Gummersbach
í Vestur-Þýzka-
landi í kvöld
Tveggja marka sigur nægir þeim til
óframhaldandi þótttöku í
--—-—--Evrópukeppninni í handknattleik
>H0fu.
tSLANDSMEISTARAR Vals I
handknattleik leika slöari ieikinn
gegn Gummersbach i kvöld i
V-Þýzkalandi. Valsmenn, sem
töpuðu fyrri ieiknum hér
heima 11:10, þurfa að vinna leik-
inn i kvöld með tveggja marka
mun til að komast áfram i
Evrópukeppninni I handknattleik.
Þaö verður erfiður róður hjá
Valsmönnum, því aö hið geysi-
sterka Gummersbach-lið er mjög
sterkt á heimavelli, og þar leika
leikmenn liðsins miklu haröari
handknattleik en þeir léku hér I
La ug a r d a lsh öll in n i: Ef
Valsmönnum tekst vel upp, er þó
ekki útilokað, að þeim takist að
vinna leikinn i kvöld. Leiknum
verður lýst i útvarpinu, og mun
Jón Ásgeirsson annast lýsinguna.
Vonandi verða það góðar fréttir,
sem berast. frá Þýzkalandi i
kvöld.
Afmælisleikur til
heiðurs Alberti
t TILEFNI af 50 ára afmæli
Alberts Guðmundssonar,
verður efnt til afmælisleiks
honum til heiðurs á laugar-
daginn á Melavellinum kl.
14.00. Þá leikur unglinga-
landslið KSl gegn Faxaflóaúr-
valinu frá 1971. Agóðinn af
þessum leik rennur i „Hauks-
sjóðinn”. Nánar verður sagt
frá þessum leik hér i blaðinu á
morgun.