Tíminn - 16.11.1973, Síða 5

Tíminn - 16.11.1973, Síða 5
Föstudagur 16. nóvember 1973. TÍMINN 5 Frá góöaksturskeppninni. FYRSTA GÓÐAKSTURSKEPPNIN Á SNÆFELLSNESI HINN 28. okt. s.l. fór fram i Stykkishólmi á vegum Bindindis- félags ökumanna og klúbbanna ÖRUGGUR AKSTUR á Snæfells- nesi fyrsta góöaksturskeppnin, sem haldin liefir verið þar vestra. Keppnisstjóri var Sveinn II. Skúlason, framkvæmdastjóri BFÖ, en fjöldi manna aðstoðaði viö keppnina, ekki sizt lögreglu- þjónar staðarins. Þrátt fyrir hið leiðinlegasta veður, hvassviðri og slyddu, urðu þátttakendur fleiri en búizt hafði verið við og raunar átti að vera — eöa samtals 14 — 12 karlar og 2 konur, og luku allir prófi, þótt harðsótt væri. Að lokinni keppni siðla dags — kl. 17.00 — var svo haldinn fjöl- mennur aðalfundur klúbbsins ÖRUGGUR AKSTUR i Stykkis- hólmi. 1 byrjun þáðu allir fundar- menn kaffiveitingar i boði Sam- vinnutrygginga, en þær gáfu alla verðlaunabikarana, sem keppt var um, samtals fjóra. Eftir að mótstjóri haföi lýst keppni og úrslitum, afhenti Jónas Gestsson, bankaútibússtjóri i Grundarfirði, verðlaunin, en hann er einnig umboðsmaður Samvinnutrygginga þar á nesinu, og var helzti hvatamaður að keppninni. Fyrstu verðlaun hlaut Skúli Ingvarsson. Náði hann beztum árangri og veitti viðtöku fögrum farandbikar úr silfri, sem ætlunin er að keppt verði um framvegis. Einnig hlaut hann sérstakan bik- ar til persónulegrar eignar, eins og hinir verðlaunahafarnir, en þeir voru Þór Sigurðsson, einnig frá Stykkishólmi, sem hlaut 2. verðlaun, og Gunnar Kristjáns- son Grundarfirði, sem fékk 3. verðlaun. Að verðlaunaafhendingu lok- inni urðu fjörugar umræður og tóku m.a. þátt i þeim auk, Sveins H. Skúlasonar, Öskar Ólason yfir- lögregluþjónn og Baldvin Þ. Kristjánsson félagsmálafulltrúi. Þessi góðaksturskeppni vakti mikla athygli i kauptúninu, og fylgdust margir ibúanna með henni, enda þótt veðrið væri ekki sem bezt. Fundi þessum stjórnaði Þor- varður Guðmundsson, formaður klúbbsins, en ritari var Sigurður Ágústsson. ökuskirteinishafi nr. 2 I lögsagnarumdæminu, Sigurður Sigurgeirsson vélsmiður, sat fundinn. pólska dróttarvélin Við getum afgreitt núna nokkrar URSUS dráttar- vélar, 40 og (»0 hestafla, ennþá á sérstaklega hagstæðu verði: 40 hö: Verð kr. 226.000,00 60 hö: Verð kr. 309.000,00 Leitið upplýsinga og kynnist fjölþættum útbúnaði URSUS dráttarvélanna. vtiáBcce Skeifunni 8 * Reykjavík * Sími 8-66-80 Auglýsið í Tímanum 1 ■■............................................ Jónas Gestsson afhendir sigurvegaranum verðlaunin. JOHNS-MANVILLE glerullar- 9 einangrun er nú sem fyrr vinsælasta og öruggasta glerull- areinangrun á markaðnum i dag. Auk þess fáið þér frian álpappir með. Hagkvæmasta einangrunarefnið i flutningi. Jafnvel flugfragt borgar sig. Muniö Johns-Manville i alla einangrun. Hagkvæmip greiðsluskilmálar. Sendum hvert á land sem er. JÓN loftsson mf7 Bankastræti 9 - Sími 11811 NYTT - NYTT Dömuleðurjakkar 2 snið - 6 litir Herraleðurjakkar Jé Síð pils í ótrúlegu úrvali Síðir skokkar Dömu- og herra- peysur - Treflar og prjónahúfur SJON ER SOGU RÍKARI VERIÐ VELKOMIN! Hringbrogt 1J1 Simi 10-400

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.