Tíminn - 16.11.1973, Blaðsíða 6

Tíminn - 16.11.1973, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Föstudagur 16. nóvember 1973. NtJ í VIKUNNI var lagt fram á alþingi svokallað fóstureyðingarfrumvarp, sem allt virðist benda til, að verði hið mesta deilumál, og almenningur, jafnt sem sérfræðingar, muni láta sig mjög miklu skipta. Lesendum Timans til glöggvunar er hér birt greinargerð sú, sem fylgdi frumvarpinu, ásamt skýringum á þvi, i hverju breytingarnar eru fólgnar. Hinn 5. marz 1970 skipaði þá- verandi heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra, Eggert borsteins- son,nefnd til endurskoðunar laga um fóstureyðingar, afkynjanir og vananir, þ.e. annars vegar lög nr. 38, 28.janúar 1935, um leiðbeining- ar fyrir konur um varnir gegn þvi að verða barnshafandi og um fóstureyðingar og hins vegar lög nr. 16, 13. janúar 1938, um að heimila i viðeigandi tilfellum að- gerðir á fólki, er koma i veg fyrir, að það auki kyn sitt. Formaður var skipaöur Pétur H. J. Jakobs- son, prófessor. Aðrir i nefndinni voru Tómas Helgason, prófessor og prófessor Sigurður Samúels- son. 1 janúar 1971 óskaði prófess- or Sigurður eftir þvi að veröa leystur undan starfi i nefndinni og tók þá sæti i nefndinni i hans stað Guðrún Erlendsdóttir, hæsta- réttarlögmaður. Höfðu ýmis samtök kvenna áður farið þess á leit við landlækni og Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið, að meirihluti nefndarinnar yrði skipaður konum. Frá 1. janúar 1971 var ráðin sem ritari nefndar- innarSvava Stefánsdóttir, félags- ráðgjafi. — 1 nóvember 1971 lagði Bjarni Guðnason fram á alþingi tillögu til þingsályktunar um fóstureyðingar, sem fjallaði með- al annars um réttindi konunnar til sjálfsákvörðunar og um nauðsyn þess, að löggjöf um fóstureyðing- ar i dag hnigi mér i frjálsræðisátt en nú er. Nefndin fékk tillöguna til umsagnar, og skýrði hún frá starfi sinu og jákvæðri afstöðu. — Hinn 12. nóvember 1971 tók Vilborg Harðardóttir, blaðamað- uij sæti i nefndinni. Nefndin hélt fyrsta fund sinn 30. nóvember 1970. Alls voru 24 iund- ir haldnir i nefndinni. Nefndin taldi mikilvægt að kanna, hvernig núgildandi löggjöf hefði reynzt i framkvæmd. begar nefndin hóf störf, var þvi ákveðiö að framkvæma eftirrannsókn á Fæðingardeild Landspitaians, með þvi að hafa viötöl við konur, sem framkallað hafði veriö fósturlát hjá á vissu árabili. Var sú rannsókn framkvæmd á árun- um 1971—1972. 1 sama tilgangi heíur nefndin safnað gögnum hjá landlækni um veitingu leyfa samkvæmt lögun- um frá 1938 um að heimila i við- eigandi tilfellum aðgerðir á fólki, er koma i veg íyrir, að það auki kyn sitt. Einnig hel'ur nefndin gert athugun á framkvæmd lag- anna frá 1935 um leiðbeiningar fyrir konur gegn þvi að verða barnshafandi og um fóstureyð- ingar úti á landi. Prófessor Pétur H. J. Jakobs- son hefur á undanförnum árum safnað nákvæmum upplýsingum um allar fóstureyðingar fram- kvæmdar á Fæðingardeild Land- spitalans á árunum 1950—1965. Nefndin hei'ur kynnt sér itar- lega erlenda löggjöf á þessu sviði og reynslu annarra þjóða, bæöi frá læknisfræðilegu og félagslegu sjónarmiði, en miklr breytingar hafaátt— og eiga sér enn stað á löggjöf og framkvæmd laga um fóstureyðingar og ófrjósemisað- gerðir erlendis á siðustu árum Pétur Jakobsson, formaður nefndarinnar, hefur heimsóthiýj- ar stofnanir erlendis, sem ein- göngu veita viðtöku sjúklingum, sem framkvæma á fóstureyðingu hjá. Efni frumvarpsins, nýmæli og breytingar. Nefndin taldi ekki unnt að semja nýja löggjöf um fóstureyð- ingar og ófrjósemisaðgerðir nema að gera ýmsum öðrum málum, sem varða kynlif og barneignir, skil samtimis. Nefndin leggur þvi til, að lög- gjöfin nái til aðgerða, sem stuðla að þvi að gera fólki kleift að stjórna viðkomu sinni eftir eigin óskum, og þegar slikt tekst ekki, að heimila i viðeigandi tilfellum aðgerðir, sem binda endi á ótima- bæra þungun og, ef nauðsyn kref- ur, að heimila ófrjósemisaðgerð- ir, sem varanlega koma i veg fyr- ir, að viðkomandi auki kyn sitt. Tillögur nefndarinnar hafa mótazt af þvi grundvallarsjónar- miði, að brýn nauðsyn sé: 1) Að gefa öllum kost á ráðgjöf og fræðslu um kynlif og barneignir og ábyrgð foreldrahlutverks. 2) Að veita öllum fræðslu og ráð- gjöf um notkun getnaðarvarna og útvegun þeirra. 3) Að veita aðstoð þeim, sem ihuga fóstureyðingu eða ófrjósemisaðgerð. 4) Að auka félagslega aðstoð i sambandi við þungum og barnsburð. Tillögur nefndarinnar miðast við ástæður eins og þær eru i dag. Viða erlendis er unnið að rannsóknum á sviði þungunar- varna. Notkun lyfja, sem stöðva fósturþróun strax eftir getnaðinn (hormónalyf, „daginn-eftir- pilla”) verður óháð löggjöf um i'óstureyðingar og einungis háð löggjöf um notkun læknislyfja. Varnaðarstarf. Nefndin leggur höfðuöáherzlu á nauösyn þess að fyrirbyggja ótimabæra þungun, sem leiðir til þess, að farið er fram á fóstur- eyöingu. Nefndin litur svo á, að fóstureyöing sé alltaf neyðarúr- ræði, vegna þess að um er að ræöa læknisaðgerð, sem getur haft áhættu i för meö sér, og krefst sérhæfðs starfsfólks og fullkomins útbúnaðar til sér- hæfðrar læknismeðferðar, ef eitt- hvað ber út af. Aðgerðin verður þess vegna að fara fram á sjúkrahúsum og verður þvi all kostnaðarsöm getnaðarvörn fyrir þjóðfélagiö. bað er reynsla annarra þjóða nú, til dæmis frændþjóða okkar, að einmitt varnaðarstarfið hafi verið stórlega vanrækt. bess er getið, að auðveldara sé orðið að fá framkvæmda fóstureyðingu, þar sem löggjöf hefur verið rýmkuð, en að fá leiðbeiningar um getnaðarvarnir. Við endurskoðun laganna er það þvi áHt- nefndarinnar, að ráðgjöf og leiðbeiningar um kynlif, barn- eignir og takmörkun barneigna skuli fá aukið rúm i löggjöfinni. Afnema skuli ákvæði þaö i lögun- um frá 1935, sem bannar öörum en læknum að láta i té leiöbein- ingar um takmörkun barneigna. Ef aðrir starfshópar, svo sem ljósmæður, h júkruna rfólk, félagsráðgjafar og kennarar i samræmi við kunnáttu,taka þátt i leiöbeiningarstarfinu, er unnt að ná með fræðslu og ráðgjöf til fleira fólks. Til þessa hefur varnaðarstarfi verið of litill gaumur gefinn hér á landi, bæði hvað snertir kynlifs- fræðslu i skólum og ráðgjöf fyrir fullorðna. t þvi skyni að efla framangreint varnaðarstarf leggur nefndin til að skipulagðri ráðgjafaþjónustu verði komið á fót við sjúkrahús og heilsu- verndarstöðvar á öllu landinu og að unnið verði að aukinni fræðslu á þessu sviði i skólum i samráði við fræðsluyfirvöld. Fóstureyöingar. Til þess að tryggja hag konunn- ar, er þörf löggjafar, sem segir til um, hvaða aðstæður veiti konu réttindi til að fá framkvæmda fóstureyðingu. beir læknar. sem taka á sig þá ábyrgð að fram- kvæma aðgerðir þessar, verða einnig að hafa lög og reglur að styðjast við. Nefndin hefur mótað tillögur sinar urn,i hvaða tilvikum fóstur- eyðingar skuli heimilará grund- velli þeirra niðurstaða, sem feng- ist hafa i eftirrannsókn á högum kvenna, sem framkvæmd hefur verið fóstureyðing hjá, og með hliðsjón af þeirri læknisfræðilegu reynslu, sem fengist hefur varð- andi áhættu, sem getur verið samfara aðgerð i hverju einstöku tilfelli. Einnig hefur nefndin tekið tillit til félagslegra aðstæðna einstæðra mæðra. bá hefur og verið tekið tilliti til þróunar lög- gjafar i nágrannalöndum svo og til sjálfsákvöröunarréttar einstaklinganna. Nefndin leggur til, að breytt verði ákvæðum um tilefni fóstur- eyðinga á þá lund, að þær skuli heimilar af félagslegum ástæðum einum saman, ef þær eru erfiðar og ekki verður úr bætt með félagslegri aðstoð. Er þetta i samræmi við, að skýrgreining á hugtakinu heilsa hefur áseinni ár um færzt i þá átt að ná til félags- legrar heilsu. Tekið skal i aukn- um mæli tillit til mats viðkom- andi sjálfra á aðstæðunum. Nefndin leggur til, að endanleg- ur ákvörðunarréttur skuli vera hjá konunni, ef engar læknis- fræðilegar ástæður mæli móti að- gerð, og ef aðgerð verður fram- kvæmd fyrir lok 12. viku með- göngu. Konan-skal þá hafa verið frædd um áhættu samfara aðgerð og þá félagslegu aðstoð, sem stendur til boða, ef hún kýs að fæða. — bessi tillaga hefur mót- ast af þvi sjónarmiði, að óréttmætt sé og óæskilegt að neyða konu til að taka á sig þá ábyrgð að fæða barn, þegar hún vill sjálf og álitur rétt að binda endi á þungun. Er þar ekki sizt höfð i huga ótimabær þungun ungra stúlkna, sem ef til vill hef- ur orsakast af fávisi og barna- skap. — Stúlka, sem er 16 ára gömul og,eignast óskilgetið barn, hefur skyndilega mikinn hluta lifsleiðarinnar ákveðinn fyrir- fram. t flestum tilvikum hættir hún frekari skólagöngu, jafnvel þótt einhver i fjölskyldunni hjálpi henni að annast barnið. Sennilega á hún erfitt með að fá fasta vinnu, sem borguð er það vel, að hún geti séð fyrir sér og barninu. Ef til vill finnst henni hún vera tilneydd aö giftast einhverjum, sem hún ann- ars hefði ekki gifzt. Hefði hún getað frestað fæðingu fyrsta barnsins, hefðu framtiðarhorfur hennar verið allt aðrar. Ekki er siður nauðsyn að hafa i huga erfiðleika og horfur óvel- komins barns. Sú áhætta er fyrir hendi, að þegar barnið er fætt, haldi það áfram að vera óvelkom- ið og andúðin á þvi fremur vaxi en minnki, þegar barnið á sinn eðli- lega hátt krefst allrar umhyggju og ástúðar móður, sem á erfitt með að láta slikt i té. 1 slikum tilvikum er veruleg hætta á and- legri misþyrmingu barna og jafn- vel likamlegri. Orð Vilmundar Jónssonar, landlæknis i greinargerð hans með lögunum frá 1935, ,,að varla megi minna krefjast til handa hverju barni, sem fæðist, en að það sé að minnsta kosti aufúsu- gestur móður sinnar” eru enn i dag i fullu gildi og vafasamt hversu miklu eftirsóknarverðari vistarvera heimurinn er i dag, en hann var þá. Föðurhlutverkinu hefur til þessa verið alltof litill gaumur gefinn i sambandi við óskilgetin börn. Fjöldi barna i nútima þjóð- félagi liða fyrir það, að þau skort- ir tilfinnanleg tengsl við föður sinn og alltof mikil brögð hafa verið að þvi til þessa að feður kæmust upp með að yfirgefa börn sin umhugsunarlaust undir þvi yfirskini. að það væri hlutverk móðurinnar einnar að annaðst og ala upp börnin. Hlutverk föðurins i umönnun og uppeldi barna er engu þýðingar- minna en móöurinnar. Eflaust mætti með aukinni kynlifs- og samfélagsfræðslu i skólum draga úr ábyrgðarleysi ungra pilta i þessum málum og vekja ábyrgðartilfinningu þeirra gagn- vart föðurhlutverkinu. Fóstureyðingar að læknisráði og að undangenginni félagsráð- gjöf, þar sem henni verður við komið, eru heimilar af læknis- fræðilegum ástæðum, erfða- og fósturskaðaástæðum, félagslækn- isfræðilegum ástæðum, félags- legum ástæðum og siðferðis- ástæðum. Nefndin telur nauðsynlegt að setja ákveðin timatakmörk i lög- gjöf og leggur áherslu á, að fólki skuli veitt fræðsla um það, að fóstureyðingar skuli fram- kvæmdar eins fljótt og auðið er. Með tilliti til heilsu móður, and- legrar og likamlegrar, er æski- legt, að fóstureyðing sé fram- kvæmd áður en fyrstu 12 vikur meðgöngutima eru liðnar. Astæður geta þó veriö á þann veg, að þungun, er binda ætli endi'á, uppgötvaðist ekki fyrr en eftir 12. viku meðgöngu, og telur nefndin þvi nauðsynlegt að heimila fóstureyðingar að læknisráði fram til 16. viku meðgöngu. Eftir þann tima verði fóstureyðingar einungis heimilar af ótviræðum mannúðar- og heii 1 brigðis- ástæðum. — 1 þvi skyni að stuðla að þvi, að fóstureyðingar séu framkvæmdar eins fljótt og auðið er á meðgöngutimanum, mælir nefndin með þvi, að aðgerðir þessar verði leyföar viðar en hingað til hefur verið, á fleiri sjúkrahúsum, sem heilbrigöis- yfirvöld viðurkenna i þvi skyni. Nefndin leggur einnig áherslu á, að meðferð umsókna verði hraðað eftir föngum. Þeim, sem ihuga fóstur- eyðingu, skal veitt aðstoðjeftir þvi sem við á, svo sem hér segir: Læknishjálp, þungunarprófanir, ráðgjafar- og stuðningsviðtöl, félagsleg aðstoð og aðstoð við umsókn og tilvisun til sjúkrahúss. — Megináhersla skal lögð á óhlut- dræg ráðgjafar- og stuðnings- viðtöl við lækni og félagsráðgjafa. Mikilvægt er að hjálpa konunni (og karlinum) að gera sér grein fyrir þvi, hvort fóstureyðing sé rétt lausn mála og hvort umsókn sé orðin til af frjálsum vilja, án þvingunaraðgerða frá öðrum.— Nefndin leggur eindregið til, að efld verði félagsleg aðstoð fyrir konur, sem þrátt fyrir erfiðar ástæður vilja ganga með og fæða sitt barn. Eftirrannsókn á högum kvenna, sem gengist hafa undir fóstureyðingu, gefur til kynna, að konurnar hafi átt og eigi oft við alvarlega félagslega örðugleika að striða. Niðurstöður eftirrann- sóknarinnar benda til þess, að uppeldi og aðbúnaði barna, sem fyrir eru, sé ábótavant og hlut- skiptis þeirra sé ekki gætt sem skyldi. — Nefndin hefur kynnt sér, hvaða félagsleg aðstoð stend- ur til boða i þjóðfélaginu fyrir þungaða konu og við barnsburð, og telur, að henni sé i ýmsu ábótavant. Einnig mun þörf auk- innar fræðslu um þá aðstoð, sem nú er fyrir hendi. Þær félagslegu aðstæður, sem nefndin telur brýnt að bætt verði úr, er húsnæöis- og dagvistunar- skortur, skortur á atvinnuöryggi kvenna i sambandi við þungun og barnsburð. lenging barnsburðar- frisog að tryggð verði afkoma kvenna, sem missa tekjur, með greiðslum almannatrygginga- bóta. 011 heilbrigðisþjónusta i sambandi við þungum og barns- burð verði ókeypis, sjúkrasamlög taki þátt i greiðslu getnaðar- varna. ófrjósemisaðgerðir. Nefndin leggur til. að ákvæðin um ófrjósemisaðgerðir (i gild- andi lögum nefndar vananir) verði rýmkuð. Ofrjósemisaðgerð verði heimiluð, þegar viðkom- andi óskar eftir þvi að vel ihuguðu máli. Þegar um hjón er að ræða, er eðlilegt að taka til athugunar, hvorn makanna sé æskilegra að gera ófrjóan. — Nefndin vill setja ákvæði um bann við ófrjósemis- aðgerðum hjá yngra fólki en 18 ára, nema um mikinn greindar- skort sé að ræða samkvæmt áreiðanlegum greindarmæling- um. Um ráðgjöf og fræðslu i sam- bandi við umsókn um ófrjósemis- aðgerð gildir sama og um fóstur- eyðingar. Eftirlit með framkvæmd lag- anna. Heilbrigðisyfirvöldum ber að hafa eftirlit með framkvæmd lag- anna og stuðla að samræmi i framkvæmd þeirra i öllum lands- hlutum. Mikilvægt er, að réttur fólks i dreifbýlinu, verði ekki fyrir borð borinn. Allar framkvæmdar aðgerðir og synjanir um framkvæmd að- gerða skulu tilkynntar heil- brigðisyfirvöldum. Ráðherra skal skipa nefnd sérfróðra manna, sem annast úrvinnslu gagna og skal hafa eftirlit með framkvæmd laganna. Til þeirrar nefndar geta umsækjendur beint áfrýjun vegna synjunar um framkvæmd aðgerðar og leggur nefndin úr- skurð á málið. Þar eð starfið að framkvæmd laganna er einkar vandasamt, leggur nefndin áherslu á nauðsyn þess, að heilbrigðisyfirvöld veiti fræðslu og leiðbeiningar öllum þeim, sem á þessu sviði starfa. Refsiákvæði. Nefndin leggur til, að ákvæði i almennum hegningarlögum um refsirigu fyrir konu vegna fóstur- eyðingar veröi felld niöur. Akvæðin samræmast ekki nútima hugsunarhætti. Þau virðast ekki hafa nein almenn varnaðaráhrif. og eru ekki notuð i reynd. Auk þess koma þau ákaflega hart niður á konunni. — Heilbrigðis- ástæður konu, sem leggur það á sig að gangast undir ólöglega fóstureyðingu, með þeirri áhættu og þeim erfiðleikum, sem þvi er samfara, uppfylla þær kröfur sem gerðar eru um læknisfræði legar ástæður fyrir löglegir. fóstureyðingu. Afkynjanir. Akvæði um afkynjun á ekki heima i þessari löggjöf, að dómi nefndarinnar. Höfuðtilgangur af kynjana er samkvæmt greinar gerð Vilmundar Jónssonar, land læknis, að hindra glæpsamlegt at ferli, sem orsakast af sjúkdómi Hlýtur afkynjun þvi að skoðasl sem læknisaðgerð að þeim sjúk dómi og falla undir læknalögin nr 80/1969. — Visindaniðurstöður innkirtlafræðum benda til þess að takmörkuðum árangri verði náð með þessum aðgerðum og ei þeim mjög sjaldan beitt. Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins. Um 1. gr. 1 1. gr. kemur fram nokkurs konar stefnuyfirlýsing, þar sem nefndin álitur, að ráðgjöf og leið- beiningar um kynlif, barneignir og takmörkun barneigna eigi að fá aukið rúm i löggjöfinni. 1 greininni er þvi lýst yfir, að fólk skuli eiga kost á ráögjöf og fræðslu varðandi kynlif og barn- eignir. Ætlast er til, að reynt verði að ná með fræðslu og ráð- gjöf jafnt til karla og kvenna, jafnt til ungs fólks sem eldra. Um 2. gr. Þessi grein er nýmæli og er nánari útfærsla á þvi i hverju ráð- gjafarþjónustan er fólgin. Þar er tekið fram, að hjá ráðgjafarþjón- ustunni geti fólk fengið fræðslu og ráðgjöf um notkun getnaðar- varna og útvegun þeirra. Auk þess verður þar ráðgjöf fyrir fólk, sem fer fram á fóstureyðingu eða ófrjósemisaðgerð, sbr. nánar um 6. gr. Einnig er ætlast til, að ráð- gjafarþjónustan veiti fræðslu og ráðgjöf um kynlif og um ábyrgð foreldrahlutverks. Nefndin leggur áherzlu á, að miklu máli skipti um árangur ráðgjafarþjónustunnar, að sem hæfast starfsfólk ráðist þar til starfa. Sérstaklega er mikilvægt, að öll fræðsla og ráðgjöf sé veitt á óhlutdrægan hátt.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.