Tíminn - 16.11.1973, Side 15

Tíminn - 16.11.1973, Side 15
Föstudagur 16. nóvember 1973. TÍMINN 15 Umsjón og ábyrgð: Samband ungra framsóknarmanna. Ritstjórar og ábyrgðarmenn fyrir hönd stjórnar SUF: Ólafur Ragnar Grimsson, Pétur Einarsson. Forustuhlutverk Framsóknarflokksins Um þessar mundir, þegar Framsóknarflokk- urinn hefur veitt vinstri stjórn forystu i rúm tvö ár, rembast nokkrir menn i flokknum við að sannfæra flokksmenn og aðra landsmenn um það, að Framsóknarflokkurinn sé alls ekki vinstri flokkur, heldur miðflokkur, sem vera eigi á hinu pólitiska uppboðiy og starfa með öðrum flokkum til hægri eða vinstri, eftir þvi sem kaupin gerast bezt á eyrinni. Hingar til hafa flokksmenn þó yfirleitt gert sér grein fyrir þvi, að Framsóknarflokkurinn hefur verið, er og á að vera vinstri flokkur. Vatnaskilin i islenzkum stjórnmálum hafa legið og eiga að liggja á milli Framsóknarflokksins og Sjálf- stæðisflokksins, en ekki i gegnum Framsóknar- flokkinn miðjan. Þetta gerðu Framsóknarmenn sér ljóst fyrr á árum. Og vart var á annað lögð meiri áherzla, a.m.k. mestan hluta stjórnarandstöðutimabils Framsóknarflokksins á Viðreisnartimanum, þegar það var opinber kenning forystu- manna flokksins, sem og flestra annarra flokks- manna, að Framsóknarflokkurinn ætti ekki aðeins að gegnasinu gamla hlutverki, heldur einnig að bæta við sig hlutverki Alþýðuflokksins — verða jafnt flokkur jafnaðarmanna sem sam- vinnumanna. Sem sagt, að vera forystuafl vinstri manna i landinu. Ungir framsóknarmenn hafa ávallt lagt megin- áherzlu á þetta forystuhlutverk Framsóknar- flokksins i málefnum vinstri hreyfingar á íslandi. Það er alvarlegt fráhvarf frá þeirri stefnu að geysast nú fram i ræðu og riti og boða fataskipti á Framsóknarflokknum. Vonandi býr ekkert al- varlegra á bak við hinn nýja boðskap en mis- skilningur, enda mun fólkið i Framsóknarflokkn- um vafalaust standa vörð um grundvallarhlut- verk flokksins. Hvatt til brottfarar hersins á kjörtímabilinu Það hefur oft komið fram, að ákvæði málefna- samnings stjórnarflokkanna um brottför hersins fyrir lok kjörtimabilsins eru i raun samhljóða stefnu Framsóknarflokksins i málinu — þeirri stefnu, sem flokkurinn hefur haft á stefnuskrá sinni frá árinu 1967. Enginn vafi er á þvi, að yfirgnæfandi meirihluti Framsóknarmanna er eindregið fylgjandi þess- ari stefnu og vill, að bandariski herinn fari af landinu fyrir mitt ár 1975. Þessi skýri vilji Framsóknarmanna hefur m.a. komið fram á ýmsum þeim kjördæmisþingum, sem haldin hafa verið að undanförnu. Siðasta dæmið um þetta er kjördæmisþingið i Suður- landskjördæmi, sem haldið var siðastliðinn laugardag. Þar var m.a. samþykkt að skora á þingflokk Framsóknarflokksins að hvika i engu frá þvi atriði i málefnasamningi rikisstjórnar- innar, sem fjallar um brottför varnarliðsins á kjörtimabilinu. Slikum yfirlýsingum kjördæmissambandanna ber að fagna. Allar slikar yfirlýsingar styðja rikisstjórnina til þess að gera fyrirheit sitt að veruleika. —EJ MIÐSTJÓRNARFUNDURINN HEFST KL. 14 Á MORGUN Aðalfundur mið- stjórnar Sambands ungra framsóknar- manna hefst i Félags- heimili Kópavogs kl. 14 á morgun, laugardag. Formaður SUF, Elias Snæland Jónsson, setur fundinn með ávarpi. Að lokinni kosningu starfsmanna verður flutt skýrsla stjórnar, en þvi næst verða al- mennar umræður um skýrsluna fram eftir degi. Siðan verður skipað i nefndir, og munu þær starfa á sunnudagsmorgun, en eftir hádegi á sunnudag hefst afgreiðsla mála. Stefnt er að þvi að ljúka fundinum siðdegis á sunnudag. Miðstjórnarmenn eru enn hvattir til þess að hafa samband við skrifstofu SUF að Hringbraut 30, simi 24480. r Olafur Ragnar Grímsson: Hin nýju lífsviðhorf Stjórnmálaskoðanir fólks eru sprottnar af margs konar rót- um. Hagsmunir og hugmynda- fræði, vani og áhrif vina og vandamanna hafa yfirleitt verið meðal helztu orsaka fyrir vali á einum stjórnmálaflokki frekar en öðrum. Asamt þessum or- sakaþáttum hefur viðhorf til þeirra lifsgæða, sem kappkost- að er að eignast og njóta, verið þungt á metunum í mótun á af- stöðu til hinna ýmsu stjórn- málastefna. Slikt viðhorf til lifs- gæða er myndað af samansafni afstaðna til þess, hvað einkum er talið hafa gildi i lifinu. Gildis- mat af ýmsu tagi er sá megin- þráður, sem lffsviðhorfið er spunnið úr. Þótt stjórnmálaskoðun ein- staklingsins sé mótuð af margs konar orsökum, þá gætir i henni ætið verulegra áhrifa frá þvi al- menna lifsviðhorfi, sem við- komandi einstaklingur hefur til- einkað sér. bað lifsviðhorf ber i flestum tilfellum eitthvert svip- mót af þvi lifsgæðamati, sem rikjandi er á hverjum tima. A siðustu árum hefur i æ rikari mæli borið á þvi, að þau lifsvið- horf, sem lengi hafa verið rikj- andi i hinum þróaða hluta heims, eru að hverfa i skuggann af nýjum viðhorfum. Þau gæði, sem áður var kappkostað að öðlast, virðast nú sifellt verða meiri gallagripir. Þessi breyt- ing á lifsviðhorfum er tviþætt. Annars vegar er afneitun á þeim meginsjónarmiðum, sem mótað hafa lif manna i þessum heimshluta siðustu áratugina. Hinsvegar er samansafn nýrra viðhorfa, sem með hverju ári hafa orðið meira rlkjandi. Til að skýra nánar, hvers eðlis þessi þróun er, verður hér fjallað um tvo þætti I þeirri afneitun fyrri viðhorfa, sem einkum hefur ein- kennt stjórnmálaumræður á siðustu árum, og fimm þætti i þeim nýju viðhorfum, sem hafa hlotið viðtækan hljómgrunn. Afneitun fyrri viðhorfa í kapphlaupi þjóðanna á undanförnum áratugum um auð, framfarir og áhrif hefur hagvöxturinn einkum þjónaö hlutverki verðlaunabikarsins. Þvi meiri hagvöxt, sem þjóð gat státað af, þvi meiri varð vegur hennar i samfélagi heimsins. Alþjóðastofnanir komu sér upp töflum um úrslit i hinum marg- vislega hagvaxtarmetingi. Þeim þjóðum, sem að þessu leyti sköruðu fram úr, var veitt- ur sérstakur gæðastimpill. Þær voru taldar til fyrirmyndar og rlkisstjórnir þeirra státuðu af afrekunum. Hins vegar gerði stórnarandstaða með þeim þjóð um, sem minni hagvexti höfðu náð, þá staðreynd að hinni helztu ávirðingu. Sigur- vegararnir i hagvax-tarkeppn inni hafa á siðari árum komizt að þvi, að verðlaunin, sem i fyrstu voru glóandi, eru ekki eintómt gull. Hinn mikli hag- vöxtur krefst til lengdar veru- legrar fórnar. Auðlindir náttúr- unnar ganga til þurrðar. Marg- háttuð mengun eitrar andrúms- loft og umhverfi. Hið vinnandi fólk verður þjakað af ýmiss konar áreynslu, andlegri og likamlegri, sem til lengdar skerðir lifsnautn þess. Sam- felldur hagvöxtur hefur i för með sér fjölmarga ókosti, sem á siöariárum hafa orðið æ ljósari. Þess vegna hefur þvi viðhorfi vaxið fylgi, að krefjist hag- vöxturinn verulegrar skerðing- ar á auðlindum náttúrunnar og frelsi hins vinnandi manns, beri frekar að afneita hagvextinum en fórna þessum gæðum á altari hans. Samfara hinni vaxandi gagn- rýni á hagvaxtarstefnuna hefur komið I ljós nýtt mat á hinu stórbrotna kapphlaupi um lifs- þægindin, sem hefur verið óað- skiljanlegur fylgifiskur hag- vaxtarþjóðfélagsins. 1 raun og veru hefur hin sifellda sókn i ný og fleiri lifsþægindi verið ein af meginforsendum aukins hag- vaxtar. An þess, að einstakling- ar væru I kapphlaupi hver við annan um meiri lifsþægindi, væri þjóð erfitt að ná árangri i hagvaxtarkeppninni. Metingur á ööru sviðinu kemur til góða á hinu. Lifsþægindakapphlaupið hefur lika til lengdar krafizt mikillar fórnar af einstak- lingunum. Þeir hafa orðið að leggja hart að sér. Jafnvel það eitt að standa i stað á hinum hlutfallslega lifsþægindamæli- kvarða hefur haft i för með sér verulega áreynslu. Þessi áreynsla i lifsþægindakapp- hlaupinu hefur orðið mörgum einstaklingum og fjölskyldum að andlegu eða likamlegu fjör- tjóni. Hin veraldlegu gæði, sem eru sigurlaun lifsþægindakapp- hlaups, hafa unnizt á kostnað heimilishamingjunnar og hinn- ar fjölþættu lifsnautnar, sem fólgin er i þvi að gefa sér tima til aö gaumgæfa hið einfalda og smáa i lifi hversdagsins og hinu náttúrulega umhverfi. Æ fleiri hafa á síðari árum komizt að raun um, að slikt gjald væri of hátt og þvi hafnað þátttöku i þessu kapphlaupi. Akvöröun þeirra hefur verið mótuð af nýj- um lifsviðhorfum. Þeir hafa i afstöðu sinni til lífsins lagt til grundvallar nýtt gæðamat. Hin nýju viðhorf 1 stað þeirra lifsviðhorfa, sem æ fleiri hafa á siðustu árum af- neitað, hafa önnur komið til sög- unnar. Þessi nýju viðhorf hafa birzt á margvfslegan hátt. Þau hafa þegar mótað afstöðu manna á margvislegan hátt. Sum hafa jafnvel legið til grundvallar nýjum stjórnmála- hreyfingum. bótt hin nýju við- horfséu ærið margþætt, þá má i stórum dráttum greina meðal þeirra fimm megintegundir við- horfa, sem hér verða sérstak- lega tekin til meðferðar. Þjakandi álag stórborgarlifs- ins og sú mikla mengun, sem fylgt hefur i kjölfar iðn- væðingarinnar, hafa á allra sið- ustu árum opnað augu milljóna manna fyrir þvi, hve rikur þátt- ur aðgangur að óspilltri náttúru er i andlegri og likam- legri heilbrigði einstaklingsins. Fjalllendi, viðáttur, sandar og sjávarstrendur, sem áður fyrr voru varla talin til gæða, er nú i margra augum meðal dýrmæt- ustu eiginleika umhverfisins. Hið endurnærandi samband mannsins við náttúruna er talið eitt hinna helztu lifsgæða. Að vera sviptur möguleikum til þess að njóta reglulega siiks sambands, er jafngildi fjötra á mannlegan þroska eða hindrun á vegi lifsfyllingar. Fögur, stór- brotin og óspillt náttúra er ein- hver dýrmætasta eign sérhverr- ar þjóðar. A seinni hluta nitjándu aldar og fyrstu áratugum þessarar beindust kröfur um aukið lýð- ræði nær eingöngu að kosninga- rétti og kjörgengi. Ef fólkið fengi jafna aðstöðu til að velja fulltrúa á þing, þá væri flestum lýðræðisskilyrðum fullnægt. Þessi þröngi skilningur á lýð- ræðishugtakinu hefur á undan- förnum árum orðið að vikja fyr- ir öðrum viðtækari. Ef raun- verulegt lýðræði á að rikja, þarf ákvörðunarréttur fólksins að vera viðurkenndur á mun fleiri sviðum. Fólk á að geta tekið þátt I að ákveða stefnu og að- gerðir á flestum þeirra sviða, sem hafa áhrif á lif þess og hag. Kosning þingmannaog sveitar stjórnarfulltrúa á fjögurra ára fresti veitir fólki hverfandi möguleika á raunverulegum áhrifum. Innan stjórnmála- flokkanna, á vinnustað, i bæjar- hverfum, I skólum og á fjöl- mörgum öörum sviðum, verður að tryggja fólki beina aðild að töku ákvarðana, eigi lýðræðið aö vera meira en formið eitt. Lifandi og regluleg þátttaka fólksins i mótun eigin lifs er hið sanna lýðræði. Hin þrönga heimssýn, sem fyrst og fremst var mótuð af hinum evrópsku nýlenduveldum og Bandarikjunum, hefur á siðasta áratug orðið algerlega úrelt. Hinar nýfrjálsu þjóðir i öllum heimsálfum hafa með ári hverju orðið sterkara afl. Innan hins kommúniska hluta verald- ar eru nú tvö stórveldi og nokk- ur fjöldi smærri rikja, sem öll leitast við að varðveita sérstöðu sina á mörgum sviðum. Valda- hlutföllin I heiminum eru orðin mun fjölþættari en áður. Svig- rúm smáþjóða til að leita sér bandamanna hefur aukizt til Framhald á bls. 23

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.