Tíminn - 16.11.1973, Blaðsíða 19
Fiistudagur 16. nóvember 1973.
TÍMINN
19
Leika hér tvo landsleiki í handknattleik
GUNNAR EINARSSON.sést hér brjótast framhjá Vikingsvörninni og senda knöttinn f netifi. (Tfma-
mynd Róbert)
FH fór létt
með Víking
FH-liðið átti ekki i erfiðleikum Fins og fyrri daginn þá voru
FH-liðið átti ekki i erfiðleikum
með hið óþekkjanlega lið Vikings
á miðvikudagskvöldið. Vikings-
liöið, sem er óþekkjanlegt frá sl.
keppnistimabili, mátti þola sex
marka ósigur 18:24. Það er furðu-
legt hvað Vikingsliðið er komið
i mikinn öldudal. Liðið sem
lék svo skemmtilegan handknatt-
leik, leikur nú eins og byrjandi i
iþróttinni. Varnarleikurinn, sem
hefur alltaf verið höfuðverkur
Vikings, er nú orðin martröð. Þá
er sóknarieikur liðsins ekki
svipur hjá sjón. Langskytturnar
eru hættar að skora og linusend-
ingar sjást nú örsjaldan. Einar
Magnússon, sem skoraði 100
mörk sl. keppnistimabil í 1. deild-
inni, skorar nú ekki nema um
fimm mörk i leik og þar að auki
er hann hættur að gefa inn á linu.
FH-liðið, sem hefur oft verið
sterkara, átti ekki i erfiðleikum
með að brjóta Vikingsliðið niður.
iíins
Viðar Simonarson og Gunnar
Einarsson aðal menn FH-liðsins,
þeir skoruðu samtals tólf mörk og
áttu þátt i mörgum öðrum. FH-
ingar voru búnir að ná fjögra
marka forskoti i fyrri hálfleik, en
staðan i hálfleik var 12:8. t byrjun
siðari hálfleiks, komust FH-ingar
I 17:10 og siðan var sigur þeirra
aldrei i hættu. — Lokastaðan varð
24:18.
Viðar skoraði flest mörk FH-
liðsins, eða sjö. Aðrir sem
skoruðu, voru: Gunnar 5, Auðunn
3, Jón Gestur, Þórarinn, Ólafur
og Orn, tvö hver og Sæmundur,
eitt. Mörk Vikingsliðsins, skoruðu
þessir leikmenn: Guðjón 5, Einar
- (2 viti), Ólafur 4, Jón 3 og Páll ,
eitt.
Dómarar leiksins, þeir Karl
Jóhannsson og Hannes b.
Sigurðsson, dæmdu leikinn
SÆNSKA landsliðið I handknatt-
leik er nú að fara i keppnisferða-
lag til islands, Kandarlkjanna og
Kanada. Sænska liðið mun hefja
keppnisfcrðalagið með þvl að
leika landsleik gcgn tslendingum
n.k. þriðjudag i Laugardalshöll-
inni. Siðan hcldur liðið til Banda-
rikjanna og leikur þar tvo leiki 22.
og 24. nóvcmber. Þaðan mun það
halda til Kanada og leika einnig
tvo leiki gegn Kanadamönnum,
dagana 25. og 27. nóvember.
Sænska liðið lýkur svo keppnis-
fcrðlaginu hér, með þvi að leika
aftur gcgn islen/.ka liðinu i
Laugardalshöllinni 29. nóvember.
Sænska liðið, sem fer þessa
keppnisferð, verður skipað eftir-
töldum leikmönnum:
Ulf Gustafsson, Hellas, Hans
Jonsson, SAAB, Lars Karlsson,
Vástra Frölunda, markverðir.
Aðrir leikmenn: Björn Anderson,
SAAB, Bo Andersson, IFK
Malmö, Lars Enström, SAAB,
Dan Eriksson, Ludvika, John
Fischerström, Hellas, Bengt
Hansson, Drott, Jan Jonsson,
SAAB, Tommy Jansson, IFK
Milmö, Roman Marciniak,
Redbergslid, Thomas Persson,
Kristianstarf , Göran Haard,
IFK Molmö og Bertil
Sönderberg, Lidingö.
Skíðaganga
I
Hveradölum
ÞAK sem nægur skiðasnjór er nú
kominn við Skiðaskálann í Hvera-
dölum mun stjórn Skiðafélags
Iteykjavikur sjá um lagningu
gönguhrauta á sunnudaginn kem-
ur. Fyrir hádegi verða hrautirnar
opnaðar kl. II og eflir hádegi kl.
2. Göngusljórar verða Jónas As-
geirsson og Haraldur Pálsson.
Göngumcnn fjölmennið við
Skiðaskálann á sunnudaginn.
Umræðufundur
um dómgæzlu
handknattleik
I
Nú um helgina heldur Tækni-
nefnd KSl og Dómaranefnd KSl
umræðufund um dómgæzlu, þar
sem tveir þekktir danskir
dómarar kynna nýjustu
breytingar á leikreglum og túlkun
þeirra. Dómaranefnd KSt ætti að
skylda alla þá dómara, er dæma
muna i 1. deildinni i vetur, til að
mæta á þessa fundi og kynna sér
reglurnar. Þeir dómarar, sem
mæta ekki a fundinn, eiga
skilyrðislaust að vera settir frá
dómgæzlu i 1. deildinni i vetur.
Það er kominn timi til að fara að
taka fast á dómaramálum okkar
og er nú ekki gullið tækifæri til aö
fara að gera eitthvað róttækt i
málunum?
sos
„Verðum með
barátfunni
— segir Birgir Björnsson,
fyrirliði FH-liðsins
,,Við verðum með i baráttunni um íslands-
meistaratitilinn, eins og undanfarin ár”...
sagði Birgir Björnsson, hinn kunni fyrirliði og
þjálfari FH-liðsins, eftir leik FH gegn Vikingi
á miðvikudagskvöldið. Birgir er einn kunn-
asti handknattleiksmaður íslands, hann hefur
leikið 478 leiki með FH-liðinu og það er ekki að
sjá á Birgi, að hann sé að hætta að leika hand-
knattleik, þvi að hann er enn i fullu fjöri.
Birgir sagöi, aö það væri mikill missir fyrir liðið, aö hafa
misst Geir Hallsteinsson. Hann sagði að FH-liðið heföi undir-
búið sig vel fyrir Islandsmótið — og notað timann vel siðan
Geir fór til V-Þýzkalands, stokkaö upp i FH-liöinu og hagað
æfingum eftir aðstæðum. Þaö hefur vakið nokkra athygli, að
risinn Ólafur Einarsson, er orðinn linumaður hjá liðinu, en
hann hefur verið taíinn efnileg lang'skytta. Þegar við spurðum
Birgi, hvort FH-liðið heföi efni á þvi, að láta langskyttur leika
inn á linu, sagði hann: „Eru ekki allir leikmenn Vikingsliðsins
taldir langskyttur?”.
SOS
!
m
Svíar koma
Árni fram-
kvæmdastjóri
Keflvíkinga?
IÞRÓTTASIDAN hefur frétt
það, að tþróttabandalag
Keflavikur hafi mikinn hug á
að ráða framkvæmdastjóra
fyrir næsta keppnistimabil I
knattspyrnu. Framkvæmda-
stjórinn á að sjá um daglegan
rekstur félagsins t.d. tilkynna
þátttöku hinna ýmsu flokka i
tilheyrandi mót og keppnir,
sjá um að leikskýrslum sé
skilað á réttum tima.sjá um
ýmis viðskipt-og annað, sem
þarf að gera yfir knattspyrnu-
keppnistimabilið.
kemur knattspyrnu og einnig
sem unglingaleiðtogi.
Arni Agústsson, fyrrum
framkvæmdastjóri KSl, hefur
verið orðaður við fram-
kvæmdastjórastöðuna hjá
Kefl vikingum. Eins og
kunnugt er þá er Arni mjög
vanur öllum störfum, sem við
ARNI AGOSTSSON.