Tíminn - 16.11.1973, Qupperneq 24
Auglýsingasími
Tímans er
fyrir góöan mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Magnaðar stúdenta-
óeirðir í Aþenu
NTB—Aþena. Miklar stúdenta-
óeirðir eru nú I Grikklandi, og
hafa mörg þúsund manna sest aö
I tækniháskólanum i miðhluta
Aþenu. Þar hafa þeir komiö upp
útvarpsstöö og útvarpa ádeilum á
stjórnina og áróöri, sem beint er
gegn henni
Þessar óeiröir hófust á miö-
vikudaginn og hafa færzt I aukana
meö hverjum degi, er liöiö hefur.
Hafa stúdentar lagt undir sig
allan tækniháskólann og hinar
næstu götur viö hann og stöövaö
þar alla umferö. Lögreglunni hefur
veriö bannaö aö ráöast aö þeim
aö svo stöddu, nema þeir hrindi
af staö mótmælagöngum á götum
borgarinnar. Bíöur mikill fjöldi
lögreglumanna átekta I stórum
vöngum i hliöargötum i grennd
viö tækniháskólann.
Griska stjórnin, sem nú er,
hefur fariö meö völd i einn
mánuö, og hefur hún skoraö á
stúdentana aö leysa upp flokk
sinn, en þeir haft að engu.
Vigorö þeirra eru: „Til fjandans
meö Papadopoulus”, „burt meö
Bandarikjamenn” og „fasisminn
skal ekki sigra”. Klingja þessi
vigorö sifellt i útvarpi þeirra.
1-2 ungar á hverj-
ar tíu æðarkollur
— ÞVt MIÐUR! Þaö er ekki svo
vel, aö hér á landi komist upp
einn ungi eöa tveir á hverja æöar-
kojlui, enda mætti þaö heita gott,
samanboriö viö afföllin, sem hér
veröa. lliö rétta er, aö upp kom-
ast einn til tveir ungar á hverjar
tiu kollur, og þaö er geigvænlegt.
Þetta sagöi Arni G. Pétursson
ráöunautur, sem leiöbeinir varp-
bændum og leggur þeim lið við
margvisleg verkefni. Af þessu má
ráöa, hversu æðarfuglastofninn
stendur höllum fæti hérlendis.
A hinn bóginn er æöarfuglinn
mikill nytjafugl, sihækkandi verð
á æöardúni og margir hafa hug á
aö auka varpið, i stað þess að
horfa upp á það koöna niður, auk
þess sem sums staöar er til ým-
issa ráða gripið til þess að búa
æðarfuglinum ný varplönd. Er
Innbrotið á
Egilsstöðum
FYRIR nokkru var sagt frá þvl
hér I blaöinu i sambandi viö inn-
brot á Egilsstööum, aö þar heföu
veriö aö verki menn, sem voru I
vinnu á Fáskrúösfiröi I sumar.
Þessi óljósu ummæli hafa oröiö til
þess, aö menn, sem þar komu
hvergi nærri, hafa af ókunnugum
veriöoröaöir viö þennan verknaö.
Þess vegna hefur þess veriö
óskaö getiö, aö þarna voru að
verki ölvaöir menn úr Reykjavik,
er fóru af aðkomuskipi á Fá-
skrúðsfiröi i helgarfri, en fengu
ekki far með flugvél frá Egils-
stööum samdægurs vegna
drykkjuskapar. Um nóttina brut-
ust þeir i ölæöi inn i verzlun Elis-
ar Guönasonar.
þar til dæmis, að Arni G. Péturs-
son hefur athugaö aöstööu til þess
aö koma upp nýjum varpstöövum
á aö minnsta kosti fjórum stööum
á siöustu misserum — i Botni i
Súgandafirði, á Laugabóli i Isa
. fjarðardjúpi, Lágamúla I
Rauöasandshreppi og i Eyhildar-
holti I Skagafiröi.
Lógmarks-
verð á
rækju kr.
41.50 kg.
I YFIRNEFND Verðlagsráðs
sjávarútvegsins hefur ákveðið
eftirfarandi lágmarksverð á
rækju frá 1. nóvember 1973 til 31.
mai 1974.
Rækja, óskelflett i vinnsluhæfu
ástandi:
Stór rækja, 220 stk. i kg eöa
færri (4.55 gr. hver rækja eöa
stærri,) hvert kg.kr. 41.50.
Smá rækja, 221 stk. til 350 stk. i
kg (2.85gr til 4.55gr hver rækja),
hvert kg.kr. 24.00.
Verðiö er miöað við, aö seljandi
skili rækju á flutningstæki við hliö
veiöiskips.
Fulltrúum i Verölagsráöi er
heimilt aö segja verðinu upp meö
15 daga fyrirvara miöað við 1.
febrúar 1974.
Verö þetta var ákveðið meö
samhljóöa atkvæöum allra yfir-
1 nefndarmanna.
Borgarstjórn stekkur
yfir gjóna í óföngum
1 GÆR hélt borgarráö fund og
lagöi fram eftirfarandi tillögu:
Stefnt veröi aö þvi að gera
Austurstræti aö göngugötu til
frambúöar. Veröi þaö gert i tveim
áföngum. I fyrri áfanga veröi
gatan lokuö milli Lækjargötu og
Pósthússtrætis og verði hún þvi
ekki opnuð á þeim kafla. Hins
vegar veröi nú leyfö umferö um
Pósthússtræti i Austurstræti i
vesturátt, svo og gegnumakstur i
Pósthússtræti að Hafnarstræti.
Nú þegar hefjist undirbúningur
aö þvi aö ganga endanlega frá
austurhluta götunnar sem göngu-
götu m.a. með þvi að slétta
götuna milli gangstéttarbrúna og
lagfæra götuna á annan hátt i þvi
skyni aö skapa þar andrúmsloft
göngugötu. Veröi jafnframt stefnt
aö þvl aö vinna aö frágangi
Lækjartorgs. Endanlegar til-
lögur um útlit veröi lagðar fyrir
borgarráð til samþykktar og
verkiö veröi unniö i vetur.
Borgarráö felur borgarverk-
fræöingi og umferöarnefnd aö
gera tillögur um frágang
bifreiöastæða á miökjarnanum og
nýtingu þeirra, svo og aö gera til-
lögur um aörar umferöar-
breytingar.
Tillaga þessi var samþykkt
með 3 atkvæöum gegn 2. Kristján
Benediktsson vill, að Austur-
stræti allt veröi göngugata.
Sigurjón Pétursson vill þaö sama.
Björgvin Guömundsson segir hins
vegar, aö aöeins sé um tvo mögu-
leika að ræöa: að gatan veröi öll
umferöargata, ellegar lokuö.
Steinunn Finnbogadóttir vill aö
gatan veröi göngugata.
Bent var á, aö fram hefði komiö
i könnun, er gerö hafi verið, að
93% spuröra vildu, að götunni
yröi lokaö fyrir bilaumferö.
VEITINGAHÚSIN LOKUÐ ÁFRAM
Veitingamenn á fund róðherra með nýjar tillögur um lausn?
Klp-Reykjavik. — Ekkert
hefur miðaö I samkomulags-
átt I deilu framreiöslumanna
og veitingamanna, sem nú
hefur staöiö yfir I rúma viku.
Enginn fundur hefur veriö
boðaöur meö deiluaöilum, svo
öruggt má telja, aö öll eöa
flest öll veitingahús veröi
lokuö um þessa helgi eins og
um helgina þar á undan.
Veitingamenn kanna nú
nýja hugmynd aö samnings-
leiö, en áður en hún veröur
lögö fyrir fund munu veitinga-
menn leggja hana fyrir ráö-
herra og fá samþykki hans.
Veitingasalir hótelanna eru
opnir eins og áður, en þeir einu
sem fá afgreiðslu þar, eru
dvalargestir. Þessa dagana
eru þeir heldur fáir, en sam-
kvæmtupplýsingum, sem viö
Framhald á bls. 8.
Glæsilegar ameriskar glervörur
frá ANCHOR HOCKING
Fást hjá kaupfélögunum og
búsáhaldaverslunum
■’iX
V>-‘
: ■ i", l j!
Samband íslenzkra samvinnufélaga
Innflutningsdeild
SambandshúsiÖ Rvík sími 17080