Tíminn - 17.11.1973, Page 3

Tíminn - 17.11.1973, Page 3
Laugardagur 17. nóvember 1973. TÍMINN 3 Styrkir til söngfólks INNAN skamms verða veittir styrkir úr minningarsjóöi Kjart- ans Sigurjónssonar söngvara frá Vik i Mýrdal. Umsóknir skulu sendar til Báru Sigurjónsdóttur, Austurstræti 14, Reykjavik, fyrir 1. des. n.k. 1 verzlun Báru i Austurstræti eru enn fremur til sölu minningarspjöld sjóösins. Aöur hafa fengiö styrkiúrsjóön- um þau Arni Jónsson söngvari, Sigurveig Hjaltested söngkona, Erlingur Vigfússon söngvari og Sigriöur E. Magnúsdóttir söng- kona. Norskar fjár- veitingar til hjálparstarfs NTB—Osló. — Norska rlkis- stjórnin ákvaö I gær aö taka á móti hundrað flóttamönnum frá Chile, og hefur veriö stungið upp á þvi, aö stórþingiö veiti um fjór- tán milljónir króna i þessu skyni. Norska hjálparstarfiö mun bæði taka til Chileborgara og út- lendinga, sem leitað höfðu at- hvarfs i Chile i valdatiö Allendes. Mun fólk, sem leitaö hefur at- hvarfs i norska sendiráðinu i Santiago, alls þrettán manns, verða flutt til Noregs jafnskjótt og heimild fæst til þess. Rikisstjórnin hefur einnig lagt til, að 150 milljónum króna verði varið til endurreisnar i Norö- ur-VIetnam og hjá báöum aöilum I Suöur-Vietnam, og loks hefur verið veitt fé til hjálparstarfs i Indlandi og Bangladesh. Jennifer Vyvyan. Jenifer Vyvyan hjá Tónlistar- félaginu BREZKA söngkonan Jennifer Vyvyan er stödd hér á landi og hefur hún nýlokiö viö aö syngja meö Sinfóniuhijómsveit tslands á sl. fimmtudag J. Vyvyan mun einnig syngja fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagsins, og mun Arni Krist já nsson, p ia nóleik ar i, annast undirleikinn. A efnisskrá tónleikanna eru verk eftir: Hándel, Debussy, Hugo Wolf og siðan þjóðlög frá Bretlandseyjum. Tónleikarnir verða haldnir á mánudagskvöld kl. 7, i Austurbæjarbiói. Tónlistarfélagið biður þess getiö, að þaö getur bætt viö sig fleiri styrktarfélögum. Árni Kristjánsson. A myndinni eru nokkrir fulltrúar þeirra, sem leitaö hafa til ráöuneytisins, ásamt lögfræöingi. Myndin er tekin skömmu fyrir fundinn, sem ráöuneytisstjóri boðaöi til. Timamynd: G.E. Alvarlegar sakir bornar á B.S.A.B. ERU BRÖGÐ í TAFLI? AAálið í athugun í félagsmálaráðuneytinu ALLIR þeir. sem átt hafa leiö um Breiðholtið hafa eflaust tekiö eftir hinum miklu by ggingafram- kvæmdum, sem þar fara fram og sumir jafnvel séö skilti sem á stendur: Hér byggir B.S.A.B. Stjórn þessa byggingasamvinnu- félags stendur nú i tugum mála- ferla viö kaupendur Ibúöa, sem byggðar hafa veriö á undan- förnum árum, en kaupendurnir hafa ekki viljaö sætta sig viö vinnuaöferðir sljórnar félagsins, og þvi kært þaö til félagsmála- ráðuneytisins. Ráöuneytisstjóri boðaöi nokkra fulltrúa ibúöa- eigenda á sinn fund I gærmorgun ásamt framkvæmdastjóra B.S.A.B. Aðdragandi þessa máls er langur, eöa frá árinu 1965, en þá fór félagiö aö auglýsa ibúðir á mjög hagstæöu veröi. Margir freistuðust til aö taka boðum félagsins og óskuðu eftir þvi aö gerast byggjendur ibúöa, sem félagið sæi um að reisa. Nú viröist svo komið, aö áætlanir félagsins hafi á engan hátt staðizt og hafa orðið allt aö 60-70% hækkanir frá upphaflegum áætlunum og eru hækkanir enn að berast, sem ýmsum mun finnast nokkuð seint eftir öll þessi ár. Hafa menn ekki viljað una þessum siðbúnu reikn ingsuppgjörum og óeðlilegu hækkunum og þvi kvartað til ráðuneytisins, og farið þes á leit að það rannsakaði bókhaldið og allar starfsaðferöir félagsins. Virðist mönnum, sem áætlana- gerðir félagsins hafi fyrst og fremst miðað að þvi, að fá sem flesta til að gera byggingasamn- inga, en ekki endilega að áætlanirnar stæðust. Aðspurður fyrir fundinn i gær- morgun, sagðist Öskar Jónsson hafa verið boðaður á hann i fyrra- kvöld, án þess að vita hvað væri á seyði, fyrr en hann sá þennan friða flokk manna, eins og hann orðaði það, fyrir fundinn. Ekki sagðist hann álita að á ferðinni væri neitt fréttnæmt mál. Að sögn Hallgrlms Dalberg ráðuneytisstjóra að fundi loknum, bar mikiðá milli og hann gat ekki sagt neitt um málið að svo stöddu. Hann sagði, aö sam- kvæmt lögum um samvinnufélög ættu kærur um visvitandi rangar skýrslur og reikninga að fara að hætti opinberra mála, þannig að mál þetta yröi lagt fyrir saka- dóm. Hann sagði, aö ásakanir i þessa átt hafi komið fram á fund- inum og aö þeir hjá ráðuneytinu myndu rannsaka það, hvort sam- þykktir félagsins hafi verið brotnar. Fulltrúi 3. byggingaflokks, Armann Magnússon sagði blaðamanni fyrir fundinn, að á aðalfundi i félaginu hafi verið samþykkt reglugerð, sem bryti i bága við samþykktir þess, en slikar breytingar má ekki gera nema með samþykki ráðuneytis. Hann sagðist hafa miklu meira um þetta mál allt að segja og myndi reyna að koma þvi á framfæri sfðar. Eftir fundinn i ráðuneytinu i gær haföi blaðiö samband við Grétar Andrésson, en hann mun hafa lagt fram alvarlegar ásakanir á hendur framkvæmda- stjóra og stjórn félagsins á fund- inum. Báðum við hann þvi að segja örlitið frá þvi máli. Hann segir svo frá: ----Ég baö um leyfi til að selja mina ibúö i ágúst 1972, en slikt er nauðsynlegt samkv. lögum félagsins, ef selja á ibúöir á frjálsum markaði, og var leyfiö veitt af framkvæmdastjóra félagsins á venjulegan hátt. Eftir að hafa sett ibúðina i sölu fara þeir af stað með innheimtu.sem er byggö á ljósriti úr veömála- bókum. Lögmenn hafa öðlazt hefðbundið traust hjá fógetaem- bættinu, sem lögmaður félagsins notaði sér til að fá birt nauð- ungaruppboð á Ibúð minni, út á ljósrit eitt saman. Frumritiö aö skuldabréfinu hef ég aldrei afhent og var þaö þvi ekki i vörzlu lög- mannsins þegar hann baö um áðurnefnt uppboö. Astæður fyrir þessu skuldabréfi eru þær, að ég bað félagiö um aö fá rikistryggð skuldabréf og af henti þvi félaginu eintak merkt ráðuneytinu, sem þeir tóku siöan út á rikistryggöu sérskuldabréfin að upphæö 300 þúsund krónur hjá ráðuneytinu, sem þeim bar að skila mér. Þegar ég ætla aö taka þessi bréf á skrifstofu félagsins kvaöst framkvæmdastjóri vera búinn að ganga frá þeim i banka og bauð mér 60% af andvirði þeirra i peningum. Þar sem ég haföi áður tryggt mér sölu á nafnverði bréfanna, neitaði ég þessu og krafðist þess að fá bréfin afhent. Hann kvaðst ekki geta það og vildi ekki greiöa meira fyrir þau og afhenti ég þvi ekki innheimtubréfið og tók ekki við greiðslu. Nauðungaruppboð var auglýst, enégmótmælti þvi á þeirri for- sendu, að ég hafði frumritið undir höndum. Meöan beðið var eftir dómi hjá fógeta hafði lög- maður félagsins fengið vitneskju um að kaupandi að ibúð minni, en ég hafði áður gengið frá sölu á henni, ætti að greiða kr. 300. þús. til fasteignasalans sem annaðist söluna. Lögmaður félagsins fór á fund fasteignasalans og vildi ekki kannast við að hafa gefið sölu- leyfið né heldur framkvæmda- stjórinn, en þetta haföi fasteigna- salinn fengið staðfest simleiöis. Bauö hann nú söluleyfiö gegn þvi að fasteignasalinn greiddi upp- boðskröfuna og héldi jafnframt eftir öllum greiðslum, sem eftir ættu aö koma fyrir ibúðina. I dag er þvi haldiö fyrir mér peningum, sem ég raunverulega á aö upp- hæö kr. 900 þúsund u.þ.b. Lögmaður félagsins segir fyrir dómi er hann afturkallar upp- boöskröfuna að sá, sem hafi keypt af mér hafi greitt veöskuldina, sem lögmaöurinn gerði sjálfur, til þess eins að fá ekki felldan efnis- legan dóm i málinu. Þetta eru hins vegar helber ósannindi, eins og fram hefur komið. Þegar dómur féll seinna var félagið dæmt til að greiöa allan máls- kostnaö, en ef efnislegur dómur heföi falliö hefði ég einnig unnið málið. Ég hef orðið fyrir miklum _ skaöa vegna þess, aö þessari miklu upphæð hefur ranglega veriö haldið fyrir mér, og lýsi fullri ábyrgö á hendur félaginu og lögmanni þess. Astæðan fyrir þvi, að peningunum er haldiö fyrir mér er sú, að veriö er aö reyna að neyða mig til að ganga aö reikn- ingsuppgjöri eins og þeim þóknast. Nú standa málin þannig, að félagiö neitar að gefa út afsal til þess, er keypti ibúðina af mér, svo og að leggja fram lokareikning vegna ibúöarinnar, en bygging hennar hófst fyrir tæpum átta árum, nema ég leggi fram skuldabréfiö og gangi að þeim okurkjörum, sem ég hef áöur lýst. en þaö myndi valda mér tjóni, eftir að þeir tóku féð hjá fast- eignasalanum upp i bréfið, sem þeir hafa aldrei greitt mér að upphæð kr. 414,761. — auk vaxta i fjögur ár. Þetta er m.a. þaö, sem ég hef kært til ráöuneytisins og hef óskað eftir þvi að það hlutist til um að rétta minn hlut. Vegna þessarar kæru var ég boðaður á fund ráðuneytisstjórans ásamt nokkrum öðrum, sem hafa orðið fyrir svipaöri reynslu. Að lokum gat Grétar þess, að hann muni fara fram á fullar skaðabætur vegna þess tjóns, sem hann telur sig hafa orðið fyrir. Timinn mun reyna að fylgjast með þessu máli og framvindu þess, en ljóst er, að um alvar- legar ásakanir er aö ræða I garð stjórnar félagsins. —hs— Barnabókakynning á Akranesi BÆJAR- OG HÉRAÐSBÓKA- SAFNIÐ £ Akranesi efnir tii kynningar á barnabókahöfundum og verkum þeirra. Eftir að safnið flutti i ný húsa . kynni og aðstæður leyfðu, var tekinn upp sá háttur að efna til kynninga á íslenzkum bók- menntum. Hófst sú starfsemi með sýningunni „Prentverk i Borgarfirði”. Siðast liðinn vetur voru kynntir borgfirzkir rit- höfundar og lásu þeir úr rit- verkum sinum. Starfsemi þessi hefur fengið mjög góðar undirtektir bæjarbúa og verður þvi fram haldið og nú efnt til kynningar á eftirtöldum barnabókahöfundum, sem lesa úr verkum sinum: Armann Kr. Einarsson, Jenna og Hreiöar Stefánsson og Stefán Júliusson. Þess er sérstaklega vænst, að foreldrar bendi börnum sinum á aö notfæra sér þessa kynningu. Taka þarf upp skipulega fræðslu um ófengismdl í skólum 1 10. tbl. Frjáisrar verziunar er athyglisvert vifttal við Jón Kjartansson, forstjóra Afeng- is- og tóbaksverziunar rfkis- ins, um áfengissölu, áfengis- löggjöf og nauftsyn aukinnar fræöslustarfsemi til að sporna gegn misnotkun og ofneyzlu áfcngis. Er hér á eftir birtur stuttur kafli úr þessu vifttali, cn millifyrirsagnir eru Tim- ans: „— Er áfengisneyzlan mjög áberandi vaxandi meftal ls- lendinga? — llún er vaxandi, en þó nokkuft hægfara. i fyrra nam neyzlan 2,8 iitrum af hreinu alkóhóli á mann, 2,7 Iitrum 197 1 og 2,5 litrum 1970. Aukningin er ekki meiri bér en annars staftar og við erum enn lægstir i neyzlu af öllum Evrópuþjóftum. — Sér A.T.V.R. góðtemplur- um á islandi fyrir einhverjum peningastyrkjum ? — Nci. Þaft er mikill mis- skilningur, aft bindindishreyf- ingin hafi beinar tekjur frá okkur. Hins vegar leggjum vift til ákvcftna upphæft I gæzlu- vistarsjóft , sem ætiaftur er tii byggingar iokaðs visthælis fyrir áfengissjúklinga, og sú upphæft var 20 millj. i fyrra. Misnotkun áfengis er okkur hér hjá þessari stofnun áhyggjuefni sem öftrum, og að minu mati þurfum við aft lcggja mikiu meira upp úr fræftslustarfi en gert er. Þaft þarf á skynsamiegan hátt aft hefja fyrirbyggjandi aftgerftir þegar i barnaskóla.meft þvi að leifta nemendum fyrir sjónir, hverja hættu áfengisneyzlan getur haft I för meft sér. Um þessi mál þarf aft fjalla af fullu hispursleysi, en þvi miftur hafa áfengismál hér alltaf verift hálfgert feimnismál, sem menn vilja helzt ekki minnast á. t bandariskum skólum veit ég, að haldið er uppi öflugri fræftslu. sem þyk- ir gefa gófta raun, og gagnvart unglingum og öftrum almenn- ingi i Sviþjóð veit ég aft einka- sölurnar halda beinlinis uppi áróftri fyrir þvi, aft neytendur kaupi létt vin, en ekki þau sterku. Til slikra aðgerfta skortir okkur heimildir. Skaðsemi vindlinga — Er þaft ekki svolitift mót- sagnakennt að sitja hér i for- stjórastól og afla rikissjóftnum þúsunda milljóna I tekur meft þvi að selja landsmönnum tó- bak og brennivin, en vinna svo jafnlramt aft þvi I nefnd, meft fjármagni frá X.T.V.R., aft hvetja fólk til aft neyta ekki söluvöru ykkar, þar scm tóbakift er? — Þaft er fullkomiega rétt athugaft, að þetta er alveg einstök aftstaöa.sem ég er i aö þessu leyti. Eftli málsins er þaft, aft stór hluti þjóðarinnar vill innflutning á tóbaki til landsins. Löggjafarsamkund- an er honum fylgjandi sömuleiöis. Aftur á móti hafa rannsóknir siftustu ára leitt i Ijós, aft vindlingareykingar eru stórskaftlegar og þvf talift rétt, aft rikift vari vift þeirri hættu. A þessu ári verftur varift rúmum 2 millj. króna til áróöurs gegn sigarettureyk- ingum, en verfti ekki sjáanleg- ur samdráttur á sölu siga- retta, mun það aö sjálfsögðu verfta endurmetift, hvort þeirri starfsemi skuli fram haldift efta ekki. — Afengislöggjöf okkar hef- ur af ýmsum ástæftum þótt úr sér gengin, og margir hafa hvatt til þess, aö hún yrði endurskoftuft. Hverja teljift þér helstu vankantaá löggjöfinni? Framhald á bls. 15.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.