Tíminn - 17.11.1973, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Laugardagur 17. nóvember 1973.
Ókeypis strætis-
vagnaferðir
Nú er svo komið, að menn geta
ferðazt ókeypis i strætisvögn-
um. Þetta er reyndar ekki hægt
hérálandienn sem komið er, en
hver veit nema SVR taki upp
þessa nýbreytni áður en langt
liður. 1 borginni Colomiers i
Frakklandi hafa menn getað
ferðazt ókeypis i strætisvögnum
borgarinnar undanfarin tvö ár.
Kostar þetta borgaryíirvöld um
90 þúsund dollara á ári, en þrátt
fyrir það telja yfirvöldin þetta
borga sig, þvi um leið dregur
mjög úr notkun einkabila i borg-
inni. Sagt er, að margar aðrar
borgir i Frakklandi, sem hafa
áhuga á að draga úr bilanotkun
borgaranna, fylgist nú af áhuga
með framvindu mála i Colomi-
ers, með það fyrir augum að
notfæra sér þær upplýsingar og
reynslu, sem þar fæst.
Lífshættuleg bók
innkölluð i Svíþjóð
Nýlega kom út i Sviþjóð bók,
sem heitir. Svampar och
svampratter. Þessi bók er með
Itarlegum upplýsingum um
sveppi og uppskrift af sveppa-
réttum er einnig að finna i
henni. Stóralvarlegt slys hefur
þó orðið við útkomu bókarinnar,
svo alvarlegt, að ákveðið hefur
verið að kalla allt upplagið inn
aftur og banna sölu á henni.
Tveimur sveppategundum hef-
ur verið ruglað saman þannig,
að banvænn sveppur er gerður
að hinu mesta góðgæti, og öf-
ugt. Þessi bók er þýdd úr
finnsku, og er eftir Reijo Linko-
aho og Maija Rantala, en útgef-
andinn i Sviþjóð er fyrirtækið
Wahlström & Widstrand. Eru
allir þeir Sviar og auðvitað
aðrir, ef einhverjir kynnu að
hafa keypt bókin i Sviþjóð, þótt
af öðru þjóðerni séu, varaðir við
þessari villu og beðnir að skila
gallaða eintakinu og fá siðan
annað villulaust eintak i stað-
ínn.
*
100 leikhúsgestir gengu hneykslaðir út!
Tony Curtis varð fyrir erfiðri
reynslu I Detroit um daginn.
Hann hefur komið upp nýju og
mjög djörfu (að þvi er segir i
bandariskum blöðum) leikriti,
en var hikandi við að byrja með
það á Broadway, eins og til stóð.
Leikritið nefnist „Turtlenecks”,
en höfundur er Bruce Jay
Freidman. Efni leikritsins er
um þrihyrninginn eilifa, sem
kallað er, en nú var farið svolit-
iðóvenjulega meðefnið. 1 fyrstu
verður aðalleikarinn ástfanginn
i öðrum karlmanni (fyrsta
hneykslið), þvi næst fellur hann
fyrir fyrrverandi kærustu vinar
sins (annað áfallið fyrir leikhús-
gestina), en svo endar 1. þáttur-
inn á óskaplegri svallveizlu,
sem þau taka öll þátt i (þriðja
„sjokkið”) Þetta varð of mikið
af þvi góða fyrir áhorfendur, og
gengu yfir 100 leikhúsgestir út
úr salnum, meðan trióið lék list-
ir sinar! — eins og segir i um-
sögn um leikinn I blaði —.
Framkvæmdastjóri fyrir þess-
ari leiksýningu, David Merrick
tautaði eitthvað um það, er
hann var spurður af blaða-
mönnum, að Detroit-borg væri
bara svo gamaldags, og fólk i
New York væri áreiðanlega ekki
eins einstrengingslegt i
hugsunarhætti, en kannski yrði
nú eitthvað umskrifað i leikrit-
inu áður en þeir færu með það á
Broadway. Það þætti engum
mikið! sögðu blaðamenn i De-
troit. Tony Curtis leikur aðal-
hlutverkið og stjórnar þessu öllu
saman, og sagðist hann vera
leiður yfir þessum móttökum, —
en við sjáum nú til hvernig fer i
New York, sagði hann og brosti.
Fréttir fró Noregi
— órið 1930!
Nýjasta bók eftir islenzka
skáldið Kristmann Guðmunds-
son, „Livets Morgen” hefur
fengið sérlega góðar viðtökur i
Noregi. Að þvi er bóksalarnir
segja, selst hún svo vel, að
aðeins tvær skáldsögur, sem út
komu I haust á norsku, hafa
selzt betur. Eru það bækur
þeirra Johans Bojer og Peters
Egge. Má Kristmann vel við
una, að skipa þriðja sætið,
þegar jafn þjóðkunnir menn og
þessir tveir sitja i tveimur þeim
efstu.
Hinn 21. desember voru liðin
50 ár siðan „Et Dukkehjem”
eftir Ibsen var leikið i fyrsta
sinni (Frumsýnt 21. des. árið
1880) Var það i konunglega
leikhúsinu i Kaupmannahöfn.
Þá lé frú Betty Hennings aðal-
hlutverkið Noru. Frú Hennings
lifir enn (árið 1930) og kemur
fram á leiksviði við og við. A
50 ára afmæli Noru var frú
Hennings sæmd riddarakrossi
Olafsorðunnar norsku.
I ■!
Kathleen Kennedy og kærastinn
Það er allt talið til frétta, ef
nafnið Kennedy er annars veg-
ar. Tii dæmis birtist nýlega
mynd i amerísku blaði af þess-
um ungu kærustupörum og
fylgdi myndinni sú frétt, að lik-
lega myndu þau gifta sig i
haust. Þetta er dóttir Ethels og
Roberts Kennedy og heitir
Kathleen, og er hún elzt eða
næstelzt af systkinahópnum, 22
ára. Kærastinn hennar heitir
David Lee Townsend, hann er
stúdent við Harvardháskóla og
er hann 25 ára gamall.
Húrtízka karlmanna
Sænskir rakarar segja, að þann-
ig eigi að klippa herrana i vetur.
Hárgreiðslan heitir á sænsku
„inform”, og hefur vakið mikla
ánægju. Haldin var sýning i
Gautaborg nýlega, og þá mættu
162 hárskerar til þess að kynna
sér allt hið nýjasta og bezta i
klippingu, og þar vakti þessi
nýja klipping mesta athygli.
Kannski islenzkir herrar láti
klippa sig svona lika, já, og vel
má vera, að þeir séu þegar byrj-
aðir á þvi, þótt við höfum ekki
tekið eftir þvi.
— Ætlið þér enn að halda þvi
fram, að þér tyggið matinn 32
sinnum?
— Afsakið aðéger of sein, en það
var strákur að elta mig, og hann
gekk svo hægt.
o o 6] -S r1 c
\e Pp
H0II
— Þetta er hræðilegt,
Emma Ég
held, að ég
Osé að verða
gráhærður.
am
DENNi
DÆMALAUSI
En huggaðu þig við það, að ef þú
hefðir ekki stigið ofan á hann og
dottið, þá hefðirðu ekki náð
honum.