Tíminn - 17.11.1973, Síða 5

Tíminn - 17.11.1973, Síða 5
Laugardagur 17. nóvember 1973. TÍMINN 5 TRILLA ÚR PLASTI — sett saman í bílskúr ÉG HELD að það sé mikil framtið i þessum bátum hér á landi. Þeir fúna ekki og engir eru saumarnir til að tærast, sagði Sigurður Jensson, „plastrari", eins og hann nefndi sig sjálfur, en hann er ásamt bróður sinum Gunn- ari Jenssyni og Þorgeiri Jóns- syni, að smiða 3 tonna plastbát fyrir þann siðastnefnda i bilskúr hér i Reykjavik. Þorgeir, sem verður útgerðar- maður skipsins, sagðist ætla að nota hann til grásleppuveiða og færi báturinn á flot snemma næsta vor. Báturinn er eins og áður sagði um 3 tonn, lengdin er 21 fet, en skelin var keypt tilbúin frá Engiandi snemma si. sumar, að sögn þeirra félaga. Kostaði hún i kringum 150 þúsund krónur en llutningskostnaður var um 40 þús. kr. Þeir eru nú búnir að vinna i bátnum i rúman mánuð og er samsetningin langt komin. — Þeir kalla mig „plastrara” vegna þess að i bátnum er ekki einn einasti nagli, aðeins nokkrar skrúfur, en að öðru leyti eru öll skilrúm og allar undirstöður festar með trefjaplasti, og ég er sérfræðingur skipasmiðastöðvar- innar i meðferð þess, segir Sigurður Jensson og hlær við. — Ég held að svona bátar hafi margt fram yfir venjulega súð- byrðinga af svipaðri stærð, sagði Sigurður ennfremur, — þvi þeir hafa meira burðarmagn, i þessum eru til dæmis mörg vatnsþétt skilrúm, þannig að hann getur jafnvel flotið þó botn- inn fari úr honum, enginn fúi eða tæring og þessi bátur er mun ódýrari. Hann kemur ekki til með að kosta nema 6-700 þúsund krónur með 20 hestafla Listervél og vökvaspili. Þessi bátur kemur til með að ganga 8-9 milur með 20 hestafla vélinni, en þeir félagar eiga annan skrokk, sem þeir ætla að láta 50 hestafla mótor i og mun sá bátur væntanlega ganga 13-14 milur, og er það nokkuð góður gangur fyrir fiskibát. Bræðurnir Sigurður og Gunnar Jenssynir hafa fullan hug á að halda þessari starfsemi áfram og smiða þá lika minni báta og stærri, jafnvel 10 lesta, en til þess þurfa þeir mun betri aðstöðu. t þvi skyni sóttu þeir um lóð fyrir aðstöðu og hafa nú fengið út- hlutað lóð inn i Ártúnshöfða, og munu þar, ef að likum lætur, verða framleiddir hentugir smá- bátar, ódýrari en nú þekkist, i nánustu framtíð. —hs— en farið er í vinnuna: Tíminn oq morgun kaffið - Gunnar Jensson vinnur hér að smiði brúarinnar. Timamynd Róbert. Ctgerðarmaðurinn, Þorgeir Jónsson, og „plastrarinn”, Sigurður Jcnsson, virða fyrir sér nýsmiðina, sem brátt verður tilbúin. — Tímamynd: Róbert. Auglýsið í Tímanum Electrolux Frd Kanada Atlas snjóhjólbarðar Stærð L 78-15 (915-15) með hvítum hringjum m.a. fyrir Bronco. Verð með nöglum kr. 4895 með söluskatti. Stærð H 78-15 (855-15) með hvítum hringjum m.a. fyrir Scout, Wagoneer, Willys og frambyggða rússajeppa. Verð með nöglum kr. 4427 með söluskatti. OPIÐ I DAG OG Á AAORGUN HJOLBARÐAR Höfðatúni 8 — Sími 1-67-40

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.