Tíminn - 17.11.1973, Qupperneq 6
6
TÍMINN
Laugardagur 17. nóvember 1973.
FLUGVÉLABÓKIN
Mesta ritið, sem Fjölvi hefur gefið út
STÓRA flugvélabókin er ný bók.
sem komin er út hjá Fjölvaútgáf-
unni. Þar er lýst í máli og mynd-
um sögu flugsins i heiminum, og
sérstakur kafli i henni um sögu
flugs á tslandi.
Flugvélabókin er i stóru broti
288 bls. 1 henni eru myndir og ná-
kvæmar tæknilegar upplýsingar
um meira en 1000 flugvélar allra
landa, gamlar og nýjar, hervélar
og atvinnuvélar. Bókin er miðuð
við að vera fullkomið upplýsinga-
rit varðandi allt, sem lýtur að
flugtækni. En vegna hins mikla
fjölda mynda, ásamt söguiegum
atriðum um flugkappa og ein-
stakar flugvélategundir, er nún
mikilvæg fyrir unglinga, sem
leggja stund á módelgerð.
Meginhluti Flugvélabókarinnar
skiptist i 12 kafla. Sá fyrsti fjallar
um brautryðjendur fluglistar-
innar, allt frá Leonardo da Vinci,
um loftbelgi og loftskip og um
þrotlausa baráttu ótal. hugs-
jónamananna. Annar kaflinn
segir svo frá flugafreki Wright-
bræðra 17. des. 1903 og um
bernsku flugsins.
Þá kemur stór kafli um tækni-
framfarir flugsins i fyrri heims
styrjöldinni, t.d. Fokker og
Albatros, Sopwith og Nieuport-
flugvélarnar. Sagt frá miklu flug-
köppunum von
Richthofen, Fonck og Gyunemer.
Þá koma hin fjörugu millistriðsár
1918-1938, ár flugkappanna
Lindberghs og Balbós. Og þar
er ýtarlega skýrt frá stofnun flug
félaga og upphafi atvinnuflugs.
bar segir frá frægum flugkeppn-
um og gullöld flugbátanna.
Einn stærsti kafli Flugvéla-
bókarinnar fjallar um öra tækni-
þróun flugsins i seinni heims-
styrjöldinni. Nefna má nokkrar
tegundir: Spitfire, Murricane,
Messerschmitt, Junkers, Heinkel
Focke-Wulf, Flugvirki, Catalina,
Limberator, Lithtning, Thunder-
bolt, Zero.
Siðan koma margir kaflar um
þróun og stöðu flugsins i nútiman-
um. Um miklar tæknikröf
ur nútima hernaðarflugs,
Phanton, Mirage og MIG. Og
miklir kaflar um þróun og vanda-
mál nútima farþegaflugs, um
Boeing 707, og 727 og Douglas DC
4, 6 7 og 8, um Caravelle og
Concorde. Loks eru kaflar um
þyrlur, tilraunavélar og greim-
ferjur framtiðarinnar.
Hér er bókin þó ekki nærri
búin , þvi nú hefst siðari hluti
hennar ,,blái hlutinn” eins og
hann er kallaður með tölulegum
tækniupplýsingum um hreyfla-
gerðir og afl þeirra, stærðir,
þyngd, burðarþol, hraða, flugþol,
flughæð, tölu áhafna og farþega,
og vopnabúnað hervéla. Þar er
kafli um sögu flugs á tslandi,
Annáll siðari heimsstyrjaldar,
bókaskrár og miklir nafnalistar.
Þar eru flugeinkennisstafir allra
landa og einkennismerki flug-
herja og flugfélaga allt i fullum
litum.
Stóra flugvélabókin er samin af
Enzo Angelucci, en Þorsteinn
Thorarensen hefur þýtt hana
úr itölsku. Fjöldi listamamna hef
ur unnið að gerð hins mikla fjölda
mynda og teikninga. Textinn er
settur i Prentstofu G. Benedikts-
sonar ljósmyndun á texta hjá
Grafik h.f., en bókin prentuð hjá
Arnoldo Mondadori á ítaliu.
Hestamenn - bændur
hestamenn
10. júlis.l. tapaðist úr Laxnesgirðingunni i
Mosfellssveit stór, nösóttur, rauður
hestur, 6 vetra, markaður: Stýfthægra,
gagnbitað vinstra.
Þeir sem kynnu að vita hvar hesturinn er,
eru vinsamlega beðnir að láta undir-
ritaðan vita.
Birgir Þorvaldsson,
Simar 35455 og 35555.
Frá fundinum i Stykkishólmi.
Fundahöld Klúbbanna
ÖRUGGUR AKSTUR í
október og nóvember
FRA ÞVt um miðjan okt. og fram
til siðustu mánaðamóta hafa átta
klúbbanna ÖRUGGUR AKSTUR
víðsvegar um landið haldið aðal-
fundi sina.
Fyrsti fundurinn var á AKRA-
NESI 13. okt., þar sem Jóhannes
Jónsson bakarameistari var
endurkjörinn formaður klúbbs-
ins. Annar fundurinn var svo
haldinn á Búðardal 14. okt. Nýr
formaður var kosinn þar, Öskar
Sumarliðason vélgæzlumaður. A
þessum fundum var Stefán
Jasonarson i Vorsabæ, formaður
Landssamtaka klúbbanna
ÖRUGGUR AKSTUR, frummæl-
andi.
Þriðji fundurinn var haldinn á
Þórshöfn 16. okt. Eins og jafnan
áður frá upphafi, var Aðalbjörn
Arngrimsson fulgvallarstjóri
endurkosinn formaður. Fundur-
inn var bæði fjölmennur og
fjörugur, og m.a. sóttur af
væntanlegum nemendum á
meiraprófsnámskeiði, með lög-
regluþjón staðarins i broddi
fylkingar. Samþykkt var tillaga
— þó ekki einróma — til stuðnings
Sverri Runólfssyni vegagerðar-
manni i viðureign hans við
máttarvöld vegagerðarinnar i
landinu.
Fjórði fundurinn taldist svo á
Vopnafirði 17. okt. Stjórnin situr
áfram, og er formaður hennar
Sigurður Ólafsson, bóndi, Vatns-
dalsgerði.
Baldvin Þ. Kristjánsson var
gestur og frummælandi á þessum
fundum.
Fimmti fundurinn var haldinn i
Stykkishólmi sunnud. 28. okt. að
aflokinni vel heppnaðri góð-
aksturskeppni Bindindisfélags
ökumanna og klúbbanna á
Nesinu, sem sagt er frá á öðrum
stað. Þorvarður Guðmundsson
skipasmiðameistari var endur-
kjörinn form. Aðalfrummælandi
á þessum fundi var Óskar Ólason
yfirlögregluþjónn umferðarmála
i Reykjavik og sýndi hann einnig
litskuggamyndir úr umferðinni.
Gestir fundarins voru einnig
Sveinn H. Skúlason,
framkvæmdastj. BFÖ, og Bald-
vin Þ. Kristjánsson, sem báðir
voru meðal ræðumanna á hinum
fjölmenna fundi.
Sjötti fundurinn var samdæg-
urs i Valaskjálf á Egilsstöðum.
Þar tók nýr formaður Haraldur
Gunnlaugsson bifreiðarstjóriyvið
af Marinó Sigurbjörnssyni,
verzlunarstjóra á Reyðafirði,
sem verið hefir formaður klúbbs-
ins, en baðst nú eindregið undan
endurkjöri. Umræður voru
fjörugar að vanda.
Sjöundi fundurinn var enn að
kvöldi sama dags, i Neskaupstað,
rneðal fárra en góðra manna.
Stjórnin situr áfram undir for-
mennsku Gunnars Daviðssonar
bifreiðarstjóra, sem verið hefur
formaður undanfarin ár.
Áttundi og siðasti fundurinn i
okt. var svo haldinn á Fáskrúðs-
firði mánud. 19. Stjórnin var
endurkosin, og er formaður henn-
ar Jóhann Antoniusson útgerðar-
maður. Fundurinn var bæði fjöl-
mennur og fjörugur, ogm.a. sóttu
hann margar konur. Einnig fjöl-
menntu unglingar.
Frummælandi á öllum Aust-
fjarðafundunum var Arnþór
Ingólfsson, lögregluvarðstjóri i
Reykjavik.
A öllum þessum fundum munu
um 150 viðurkenningar- og verð-
launamerki Samvinnutrygginga
fyrir 5, 10 og 20 ára öruggan akst-
ur u"fa ''“rið afhent.
S.L. FÖSTUDAGSKVÖLD hélt
klúbburinn ÖRUGGUR AKSTUR
i Vestur-Skaftafellssýslu aðal-
fund sinn að Leikskálum i Vik.
Öskar Ólason, yfirlögregluþjónn
umferðarmála i Reykjavik, flutti
erindi um umferðaröryggismál
og sýndi jafnframt litskugga-
myndir frá umferðinni í Reykja-
vík. Sýnd var einnig umferðar-
kvikmyndin VETRARAKSTUR.
Þennan fund sóttu um 50
manns, flest ungir ökumenn á
meiraprófsnámskeiði i bifreiða-
akstri, sem nú stendur yfir i Vik.
Ahugi rikti á fundinum, og um-
ræður voru fjörugar og stóðu
fram til miðnættis. Þátttakendur
i fundinum auk heimamanna
voru Baldvin Þ. Kristjánsson og
Þorsteinn Bjarnason frá Sam-
vinnutryggingum.
Stjórn klúbbsins var endurkos-
in, að úndanteknum formannin-
um, Reyni Ragnarssyni, sem nú
baðst undan endurkjöri, en hann
hefir verið formaður klúbbsins
frá upphafi árið 1966. Hinn ný-
kjörni formaður er Sigurður Hall-
grimsson bifreiðarstjóri.
TIMINN
ER
TROMP
SANDVIK
snjónaglar
SANDVÍK SNJÓNAGLAR veita öryggi
snjó og hólku. Látið okkur athuga gömli
hjólbarðana yðar og negla þá upp
Skerum sniómunstur í slitna hjólbarða
Verkstæðið opið alla daga kl. 7.30 til kl. Z!
H
F.
ARMULA7*3050I&84844