Tíminn - 17.11.1973, Síða 7
Laugardagur 17. nóvember 1973.
TÍMINN
7
Basar
sauma-
klúbbs
góð-
templara
SAUMAKLÚBBUR I.O.G.T.
heldur sinn árlega basar i
TemplarahöIIinni við Eiriksgötu
(2. hæð) laugardaginn 17. növem-
ber næst komandi. Húsið verður
opnað kl. 2 siðdegis. Saumaklúbb-
ur I.O.G.T. hefur starfað um ára-
tugi, hélt sinn fyrsta basar árið
1930.
Konurnar hafa alltaf vandað
mjög til þeirra vara, sem þær
hafa haft á boðstólum. Þær vinna
þær að meginhluta sjálfar, sauma
og prjóna nauðsynlegan fatnað,
einkum á börn og unglinga, auk
margháttaðra muna til heimilis-
prýði.
Konurnar hafa sýnt mikinn
dugnað og fórnfýsi með þessum
störfum sinum innan Góð-
templarareglunnar um áratugi.
Það fé, sem konurnar hafa safnað
á þennan hátt, hafa þær varið til
styrktar margháttaðri
menningarstarfsemi, bæði utan
Góðtemplarareglunnar og innan
hennar.
Tekið verður á móti munum á
basarinn næstu daga i skrifstofu
Templarahallarinnar frá kl. 2-5
siðdegis.
Alþjóðlegur
stúdentadagur:
Fundur
um
Chile
FYRIIÍ 32 árum komu saman
fulltrúar stúdenta frá þeim lönd-
um, sem börðust gegn fasisma,
og ákváðu,að 17. nóvember yrði
alþjóðlegur stúdentadagur. Það
var þann dag árið 1939, sem
þýzku nasistarnir myrtu
stúdentaleiðtoga og lokuðu
háskólum og æðri skólum i
Tékkóslóvakiu. En einmitt þessir
atburðir voru upphaf kúgunar
nasista á tékknesku þjóðinni.
Siðan hafa stúdentar haft dag
þennan sem tákn baráttu sinnar
gegn heimsvaldastefnunni.
Nú á timum, er hin fasiska her-
foringjastjórn i Chile heldur
áfram hryðjuverkum sinum, er
meiri nauðsyn á stuðningi við
alþýðu Chile en nokurn tima áð-
ur. Þess vegna mun alþjóðlegi
stúdentadagurinn verða helgaður
þvi málefni að þessu sinni.
Stúdentaráð Háskóla íslands
mun gangast fyrir fundi um mál-
efni Chile i Stúdentaheimilinu
v/Hringbraut laugardaginn 17.
nóvember og hefst hann klukkan
hálf þrjú.
Á þeim fundi munu hafa
framsögu þeir Sigurður
Hjartarson og Ólafur Einarsson.
Fundurinn er öllum opinn.
Staða norsku
flokkanna
NTB—Osló — Töflur hagstof-
unnar norsku sýna, að við stór-
þingskosningarnar i haust hafi
Verkmannaflokkurinn hlutfalls-
lega mest fylgi á iðnaðarsvæðum,
sem eru miðsvæðið, 40,8% en
minnst þar scm fólk stundar fisk-
veiðar og iðnað jöfnum höndum,
25,5%.
Hægrimenn nutu mests fylgis,
þar sem saman búa opinberir
starfsmenn og fólk, sem vinnur
að iðnaði, 23.9% en minnst i
sveitum, 6%.
Töflurnar bera einnig með sér,
að hægrimenn fengu siðasta
þingsætið i sex kjördæmum, Mið-
flokkurinn i þrem Sósialista-
bandalagið i tveim og Verka-
mannaflokkurinn og Kristilegi
þjóðarflokkurinn i einu. Munaði
viða fáum atkvæðum.
ÞM
Þú veróur ekki úti
meðan við búum bílinn þinn
undir hríðarveðrin!
— j
í ! L 1 ’ ? * |awt
1 r' •T.7^5. ÍJsfl iPj
Y ! ‘4 ! 1.1 ! |§t|ÍS
0 /C|
1 jjpVL •
Viö bjóöum þér aö koma inn úr kuldanum meö
bílinn þinn til aö fá snjóbaröana setta undir - líklega eina
verkstæöiö í borginni sem býöur slík þægindi.
Hröö og góö þjónusta.
Viö höfum Yokohama snjóbaröa í flestum stæröum, sem
gera þér alla vegi færa í snjó og slyddu, hríö og hálku.
HJÓLBARÐAR
Höfðatúni 8 * Sími 1-67-40 * Opið um helgina