Tíminn - 17.11.1973, Page 13
Laugardagur 17. nóvember 1973.
TÍMÍNN
13
Kvöldsöluleyfi veitt
á Háteigsvegi 52
A fundi i borgarráði Reykja-
víkur var samþykkt með þremur
atkvæðum gegn tveimur að veita
leyfi til kvöldsölu að Háteigsvegi
52, þrátt fyrir eindregin tilmæli
fbúa í næstu húsum um að nýjum
eiganda þarna skyldi ekki leyfð
kvöldsala.
Lögreglustjóri og heilbrigðis-
eftirlit töldu þvi til fyrirstöðu, að
leyfið yrði veitt.
Kristján Benediktsson (F)
borgarfulltrú gerði þessa leyfis-
veitingu að umtalsefni á fundi
borgarstórnar i gær og taldi óeðli-
legt að veita kvöldsöluleyfi á
þessum stað, þvert ofan i vilja
þeirra ibUa, er i götunni bUa
(næstu hUsum). Þetta væri ibUða-
hverfi og kvöldverzlun hlvti að
byggjast á aðkomandi umferð og
væri kvartað undan bilaumferð
og sjoppuhangsi, með ónæði og
óþrifum, sem slikum rekstri
fyigja.
— J.G.
Landeigendafélag
Mosfellssveitar
gagnrýnir
AÐALFUNDUR Landeigenda-
félags Mosfellssveitar var hald-
inn að Hlégarði þann 13. október
s.I. Grimur S. Norðdahl setti
fundinn og tilnefndi siðan Sigstein
Pálsson til fundarstjórnar.
Á fundinum kom fram mikil
gagnrýni á nokkur mál, sem lögð
hafa verið fram á nvbvriuðu Al-
Jólakort
FEF
FÉLAG einstæðra foreldra gefur
að venju Ut jólakort til styrktar
hUsbyggingarsjóði sinum. Nýjar
gerðir i ár eru tvær, með teikn-
ingum eftir ellefu ára börn i
Alftamýrarskóla og unnin i
Kassagerð Reykjavikur. Þá
verða og á boðstólum smávægi-
legar birgðir frá i fyrra, en þá
var prentað mjög stórt upplag til
að spara prentunarkostnað 1 ár,
vegna vaxandi Utgjalda FEF við
byggingarundirbUninginn. Kortin
eru m.a. seld á skrifstofu félags-
ins i Traðakotssundi 6 og i Bóka-
bUð Lárusar Blöndal i Vesturveri.
NTB-Osló. — Tryggve Bratteli,
forsætisráðherra Norðmanna,
skyrði frá þvi við fjárlagaum-
ræðu i stórþinginu norska á
miðvikudagskvöldið, að
kauphallarviðskipti yrðu stöðvuð
i nokkra daga til þess að koma i
veg fyrir tjón af orðrómi, sem upp
hefur komið um hugsanlega
breytingu á gengi.
þingi, og ber þar einkum að nefna
þingsályktunartillögu um eignar-
ráð á landinu, gögnum þess og
gæðum, frumvarp til jarðalaga,
frumvarp til ábUðarlaga og
þingsályktunartillaga um virðis-
aukaskatt.
Töldu fundarmenn, að þessi
mál öll myndu skerða mjög rétt
landeigenda, ef þau næðu fram að
ganga i þvi formi, sem þau hefðu
veriðlögð fram. Sérstaklega voru
gagnrýndar 8. grein og 27. grein
frumvarps til jarðalaga, og hvatti
fundurinn menn til að vera vel á
verði gegn þessum þingmálum og
öðrum svipaðs eðlis, er fram
væru komin, eða kynnu fram að
koma.
A fundinum kom fram sU
skoðun, að ýmis atriði i hinum
nefndu þingmálumog frumvörp-
um væru hrein stjórnarskrárbrot,
ef lögfest yrðu.
Þá itrekaði fundurinn fyrri
samþykktir félagsins um
óánægju með skipuiagslögin.
Kom m.a. fram, að skipulags-
gjöld kæmu til greiðslu á mjög
óhentugum tima, og væri það eitt
atriði margra, sem þyrfti að
endurskoða i þeim lögum.
Þá fór fram stjórnarkjör, og
hefur stjórnin skipt með sér verk-
um þannig:
Grimur S. Norðdahl formaður,
Sigsteinn Pálsson vara-
formaður,
Jóhannes Bjarnason ritari,
Hörður Jónsson gjaldkeri og
Tryggvi Einarsson meðstjórn-
andi.
Varamenn eru: Jón Ingi Guð-
mundsson og Pétur Þorsteinsson.
WS&L t ||Bb .jpn
Málverkasýning í Keflavík
Laugardaginn 17. nóvember opnar Johann G. Jóhannsson málverkasýningu i sýningarsal Iönaðamanna
i Keflavlk. Sýningin veröur opin dagiega frá kl. 16-22. Jóhann lauk landsprófi og prófi frá Samvinnu-
skólanum áriö 1963-65 og hefur sföan aöailega starfaö sem tónlistarmaöur og nú sföast aö listamálum.
Hann hefur áöur haldiö þrjár málverkasýningar. Fyrst I Casanova áriö 1971, siöan f Harmagöröum áriö
1972 og 1973 Sýningu Jóhans lýkur sunnudagskvöldiö 25. nóvember næstkomandi. JG
J (Myndin er af Jóhanni og nokkrum mynd handa hans. Timamynd Gunnar).
Pólverjar leggja Dönum
til fisk
DöNSKU fiskiðjuverin fá ekki
nóg af fiski. i Esbjerg hefur
fjórum fiskvinnslustöövum veriö
lokað, en cigendur fiskvinnslu-
stöövanna i Hirtshals vilja allt til
vinna aö komast hjá sliku. Er frá
þvi skýrt i hlaðinu Vendilsýslu-
tiöindum, að fiskútflutningssam-
tök á Skaganum, ásamt fyrirtæki
i Fredericiuhafi ákveðið að taka
upp samvinnu við Pólverja og
hefur i þvi skyni verið stofnaö
félag, sem byggist á samvinnu
danskra og pólskra aðila. Fylgir
það með i þcssari samningagerð,
að pólskir togarar munu leggja
upp afla i Hirtshals. Forstjóri
þessa félags heitir Chris
Espersen, og hefur þegar veriö
settur á land íiskur illirtshals
samkvæmt þessari nýju skipan.
—r 1 sumar dróst aflamagn, sem
kom á land i Hirtshais sifellt
saman, segir Chris Espersen, i
réttu hlutfalli við hækkandi verð-.
lag á fiskafurðum. Við sáum fram
á, að þetta mýndi verða ennþá
verra með haustinu og fram eftir
vetri. Þess vegna höföum við gert
um það samninga, að sex pólskir
togarar, sem veiöa i Norðursjó og
Skagerak, leggi upp hjá okkur.
Við höfum fengið leyfi Utvegs-
málaráðuneytisins tii þess, og
fiskurinn verður seldur i löndum i
efnahagsbandalaginu.
HraðfrystihUs okkar hal'a gert
samninga, sem við verðum að
uppfylla, en þess var enginn
kostur, ef einungis hefði verið
veitt viðtaka fiski af dönskum
veiðiskipum. Þau veiða ekki
nærri nóg til þess.
— Við getum selt allt, sem við
getum unnið, sagöi Chris
Espersen ennfremur, og frysti-
hUsin geta afkastað miklu meira
en þau nU gera. Fari svo, sem ég
býst ekki við, að pólsku tog-
ararnir flytji að landi meiri fisk
en við getum látið vinna hér,
munum við leila samninga við
önnur dönsk fiskiðjuver um
vinnslu á hluta aflans. Við
munum reyna að ná samkomu-
lagi um, að pólsku logararnir
haldi ál'ram að landa hér fiski
næsta ár.
Fró aðalfundi FEF
m
;
Ólafur Helgason bankastjóri, Reynir Guösteinsson, stjórnarformaöur heilsugæzlustöövarinnar, Ingi-
björg R. Magnúsdóttir, fulltrúi Isl. Zontaklúbbanna og Auöur Auðuns, formaður Zontaklúbbs
Reykjavikur.
Gjöf til Vestmannaeyja
ZONTAKLÚBBARNIR á Norður-
löndum gáfu i gær 540.000 krónur
til heilsugæzlustöðvarinnar I
Vestmannaeyjum. Peningunum
skal varið til tækjakaupa.
Ingibjörg R. MagnUsdóttir,
fulltrUi islenzku klUbbanna, af-
henti gjöfina, en Reynir Guð-
steinsson, stjórnarformaður
heilsugæzlustöðvarinnar, veitti
henni viðtöku.
A Islandi eru þrir ZontaklUbb-
ar, i Reykjavik, á Akureyri og
Selfossi.
MJOG fjölmennur aðalfundur
Félags einstæðra foreldra var
haldinn að Hótel Borg þann 12.
nóvember sl. Fékkst samþykki
Þjónafélagsins fyrir fundinum,
en veitingar voru ekki aðrar en
Gvendarbrunnavatn og virtust
fundargestir ekki setja það l'yrir
sig.
Formaður FEF, Jóhanna
Kristónsdóttir, blaðamaður,
flutti skýrslu um störf stjórnar,
Adda Bára SigfUsdóttir las upp
endurskoðaða reikninga i fjar-
vei;u gjaldkera. Siðan var sam-
þykkt samhljóða tillaga frá
stjórninni um hækkun á árgjaldi i
500 krónur og þvi næst genngið til
s t j órnark j ö r s . Jóhanna
Kristjónsdóttir var endurkjörinn
formaður. 1 aðalstjórn voru kosin
Hafsteinn Traustason, Þóra
Stefánsdóttir, Ingibjörg Jónas-
dóttir og Bergþóra Kristins-
dóttir. Varastjórn skipa Páll
Ingólfsson, Þórunn Friðriksdóttir
og Margrét örnólfsdóttir. Endur-
skoðendur eru Bogi Þórðarson og
Guðbjörg Þórðardóttir. Þá var
greint frá skipun i starfsnefndir
og eru formenn þeirra sem hér
segir: formaður fjáröflunar-
nefndar Auður Faraldsdóttir,
form. hUsanefndar Hafsteinn
Traustason, form. kaffinefndar
Anna M. Guðjónsdóttir, form.
klUbbanefndar Jónas Þ. Jónsson
og formaður fundanefndar
Sigriður Friðriksdóttir.
Jólakort félagsins voru afhent
til dreifingar og sölu og að þvi
loknu flutti borgarstjórinn, Birgir
Isleifur Gunnarsosn, ávarp og
svaraði spurningum. Fjallaði
hann um dagvistunarmál, svo og
byggingarmál lélagsins,og gerði
allitarlega grein fyrir þeim leið-
um, sem hann taldi að FEF gæti
reynt að i'ara i þeim málum.,
Geta má þess að félagar i FEF
eru nU læplega 2400 talsins og
hafa um niutiu manns gengið i
félagið siðan um miöjan
september.
Prestskosning
í Kirkjuhvols-
prestakalli
PRESTSKOSNINGAR fóru fram
I Kirkjuhvolsprestakalli i Rang-
árvallaprófastsdæmi s.l. sunnu-
dag 11. nóv. Atkvæöi voru talin á
biskupsskrifstofunni á fimmtu-
dag. Einn prestur sótti um brauð^
ið, séra Kristján Róbertsson,
settur sóknarprestur þar. Á kjör-
skrá voru alls 319 manns. Atkvæði
greiddu 188, en einn seðill var
auður og umsækjandi hlaut þvi
187 atkvæði. Kosningin var lög-
mæt.
Batik
í bogasal
— AÐSÓKN aö batikmyndlistar-
sýningu niinni i bogasal þjóð-
minjasafnsins, hefur verið góð,
sagöi Katrin Agústsdóttir viö
Timann, og margar hafa selzt.
Þess er að geta, að sýningu
Katrinar lýkur á sunnudags-
kvöldið.