Tíminn - 17.11.1973, Síða 15

Tíminn - 17.11.1973, Síða 15
Laugardagur 17. nóvember 1973. TÍMINN 15 SigrlOur SigurOardóttir, verzlunarstjóri Völuskrlns. Timamynd: Gunnar. Sérverzlun með þroskaleikföng hefur verið opnuð OPNUÐ hefur veriö ný verzlun aö Laugavegi 27. Völuskrin heitir hún og er sérverzlun meö þroska- leikföng og barnabækur. Leikföng eiga að glæða þroska barnsins, menntunarþrá og fróö- leiksfýsn. Það er þvi ekki sama, hvaöa leikföng barninu eru gefin. Bezt eru þau leikföng frá upp- eldisfræðilegu sjónarmiði, sem vekja barnið til umhugsunar, hvetur það til tilrauna og þroskar sem mest likamlega og andlega hæfileika barnsins. Frá fæðingu til 7 ára aldurs er leikur mikil- vægasti þáttur í athöfnum barns- ins, allt,sem það lærir, lærir það af leik. Leikföng eru verkfæri leiksins, góð leikföng hvetja og veita ánægju i leik. Sagt hefur verið, að við þurfum að læra meira á fyrstu sjö árun- um en það sem eftir er ævinnar, og mestur hluti þessa lærdóms er fenginn úr leikjum. Völuskrin er hlutafélag nokk- urra einstaklinga, sem vildu bæta úr þeim skorti á góðum leikföng- um, sem þeim fannst vera. Það fyrsta, sem maður rekur augun i, þegar komið er inn i þessa nýju verzlun, er hvað öll leikföngin eru sterklega gerð. Enda valin með það fyrir augum, að þau endist sem lengst, og eru flest leikfang- anna gerð úr viði. Þarna er fjöld- inn allur af raðspilum, kubbum og öðrum skapandi leikföngum, sem ég kann ekki að nefna. Byss- ur og önnur drápsvopn sjást ekki þarna, enda kemur það illa við mann að mæta smábarni, sem beinir að manni byssu og segir.— Ég er Kid Currey, bang bang, þú ert dauð. — Þarna er fjöldinn allur af barnabókum fyrir yngstu börnin, en það hefur ekki verið um aúðugan garð að gresja á barna- bókamarkaðinum fyrir þennan aldur. Flestar eru þessar bækur þýzkar, enskar og danskar. Sig- valdi, stóri tslendingurinn á Strikinu i Kaupmannahöfn, maðurinn i skritnu fötunum með skrítna barnavagninn, hefur gefið út skritnar barnabækur, sem skreyta hillurnar i Völuskrini. Myndskreyttar bækur sýna, hvernig börn koma i heiminn, og ætti að vera mörgu foreldri kær- komið, þvi að oft e.ru foreldrar i vandræðum með að svara börn- um sinum hreinskilnislega, þegar kynferðismál ber á góma. Þeir eru feimnir við að tala opinskátt og treysta sér ekki til að svara skynsamlega. Þessar fræðslu- bækur ættu að éinhverju leyti að geta hjálpað til. kr— O Bókhlaða um. Hins vegar er svo ráð fyrir gert að Melavöllurinn verði lagður niður innan tiðar, og um þessar mundir er verið að auka við iþróttamannvirkin i Laugar- dal, auk þess sem verið er að kanna, hvernig bæta megi aðstöðu iþróttafólks i Vestur- bænum, að sögn borgarverk- fræðings, svo að ástæðulaust er að óttast, að þessi mál leysist ekki þannig, að allir megi vel við una. Bókhlaðan verður á fjórum hæðum með kjallara undir hluta hússins. Nettó gólfflatarmál Sveinn Björnsson listmálari hefur komiö þessu stóra málverki fyrir á vegg I salarkynnum JL-hússins við Hringbraut, að beiðni verzlunareigenda. Þaö er málað á striga, 2x6 metrar aö stærö, og er þvi eitt af stærstu verkum, sem máluö hafa veriö á striga hérlendis. Sveinn vann aö þessu verki I öldutúnsskóla I Hafnarfiröi I vor, einkum um nætur og helgar. ,,Mér finnst þetta viröingarvert framtak hjá fyrir- tækinu”, sagði Sveinn. Aöur mun verk eftir Gisla Sigurösson hafa skreytt veggi JL-hússins. — Timamynd: GE. vivianit-járnfosfati, en þá i öðru formi, en ,,Mývatnskúl- urnar”, þ.e. sem flikrur eða blettir i mónum. Þorleifur sagði, að þetta efnasamband fyndist þó aldrei I miklu magni og væri ekki hagnýtanlegt. Litur þessa járnfosfats er fjólublár og mjög fallegur, og af þvi mun heitið „vivianit” komið. Járn- prósentan i efninu er talin 30-40%. Efnasamband þetta hefur, að Jórnfosfat sögn Þorleifs, orðið til við það, að fosfat úr beinum eða ein- hverjum dýraleifum, sem hafa i sér fosfat (fosfat mun ekki vera að finna að neinu ráði annars staðar) hefur gengið i samband við járn eða járn- sambönd á sama stað. Þetta kemur heim og saman við það, að beinarusl hefur komið við og við upp af botni Mývatns méð gúr að undanförnu , eins og skýrt var frá ekki alls fyrir löngu. — Step verður alls 10,530 fermetrar og húsið verður 41,600 rúmmetrar. Svo er ráð fyrir gert, aö húsið rúmi 866 þús. bindi bóka og les- sæti verði 830. Lessætafjöldinn skýrist bezt af þvi, að hér er um sameinað Lands- og Háskóla- bókasafn að ræða. Samkvæmt áætlun,er gerö var s.l. vor, verður kostnaður við smiði hússins um 450 milljónir króna, en við hann bætist siðan kostnaður vegna nauðsynlegs búnaðar af ýmsu tagi, og er talið, að hann muni nema um einum fimmta hluta byggingarkostnað- arins. Bókhlaðan verður höfð vel við vöxt, þannig að hún fullnægi þörf- um þjóðarinnar til næstu alda- móta. Aætlað er að fjögur ár taki að ljúka smiði Þjóðarbókhlöðunnar. Þegar hún hefur verið tekin i notkun mun Þjóðskjalasafnið fá til umráða Safnahúsið við Hverfisgötu, þannig að þá greiðist einnig úr húsnæðisvand- ræðum þess, en húsnæðisskortur kreppir nú mjög að þjóðskjala- safni. 1 byggingarnefnd Þjóðarbók- hlöðu eiga sæti landsbókavörður, húsameistari rikisins og háskóla- rektor.N Arkitektar eru Manfreð Vil- hjálmsson og Þorvaldur S. Þor- valdsson og þeim til aðstoðar er sérfræðilegur ráðunautur byggingarnefndar, brezkur maður að nafni H. Faulkner Brown. — HllJ. O Símakerfið flytja sjónvarpsmyndina að Skálafelli. Aðalframkvæmdirnar fyrir norðan eru i Þrándardalsfjalli milli Svartárdals i Húnaþingi og Skagafjarðar, en þar er unnið að byggingu radióstöðvar. Einmg er unnið að framkvæmdum á öxna- dalsheiði og við byggingu á smá- stöð að Björgum i Eyjafirði. Þegar þetta verður tilbúið verður þarna um svo kallað blandað kerfi að ræða. Milli Akureyrar og Blönduóss verður notað þetta örbylgjukerfi, frá Blönduósi i Borgarnes verða notaðir strengir og frá Borgar- nesi til Reykjavikur notað radió- tæki með Akranes sem millistöð. Með þessu nýja kerfi fjölgar rásum um 60. 1 framtiðinni er fyrirhugað að það nái alla leið á milli j'eykjavikur og Akureyrar og þá mun flutningsgetan fara upp i 960 simarásir, sem siðan yrði hægt að dreifa i allar áttir á leiðinni. Gústaf sagði, að hann vonaði, að byrjað yrði að setja tækin niður fyrir áramót og þá hægt að taka þau i notkun snemma á næsta ári. Yrði það þá að hluta sjálfvirkt simakerfi og handvirk- ar linur. Næsta sumar á svo að halda framkvæmdum áfram og þá bætt við tækjum og öðru, þannig að hægt yrði að senda sjónvarpsefni I gegnum kerfið, frá Blönduósi og norður um land. Við það ættu móttökuskilyrði i Skagafirði, Eyjafirði og á svæðinu þar fyrir austan, að batna verulega. Fræðsla Norræna húsið hefur þvi boðið fulltrúum islenzkra samtaka og stofnana, sem starfa á sviði frjálsrar alþýðumenntunar, að taka þátt i námskeiði i Norræna húsinu 16.-18. nóvember, þar sem fjallað varður um mikilvæga þætti i starfi norrænna heildar- samtaka um þessi mál. Leiðbeinendur verða Viktor. Krúger, ritari hjá Samnemnda for studiearbeid i Osló, og Ulla Poppius,ritariJijá Fólkbildiningsförbundet i Stokkhólmi. Þau eru fulltrúar tveggja heildarsamtaka, og á námskeiðinu munu þau að hluta fjalla um uppbyggingu sænsku og norsku fræðslusambandanna og að nokkru gera grein fyrir skipulagi og verkefnum heildar- samtakanna i hvoru landanna fyrir sig. Höfuðáherzla mun verða lögð á menntun leiðbeinenda. III! ALFNAÐ ER VERK ÞÁ HAFIÐ ER S SAMVINNUBANK INN o Víðivangur — Það er rétt, að áfengislög- gjöfina þarf að endurskoða vegna breyttra aðstæðna. 1 hana skortir t.d. refsiákvæði um leynivinsölu og ákvæði um upplýsingamiðlun um skað- semi áfengis. Fræðslustarf af þvi tagi á að lögfesta. — Þér minntuzt á leyni- vinsölu. Er ekki hætt við að hún lialdi áfram meðan menn fá ótakmarkaðar birgðir af áfengi afgreiddar frá A.T.V.R.? — Enn sem komið er hafa ekki verið settar neinar tak- markanir um hámark þess, sein afgreiða má til hvers ein- staklings, er I útsölu kemur. Þetta er nú 1 endurskoðun hjá ncfnd þriggja ráðuneyta, og vera kann, að takmarkanir veröi ákveðnar. Ennfremur er verið að endurskoða opnunar- tima útsalanna.”— TK. Ávallt fyrstur r a morgnana VATNS- HITA- lagnir og síminn er 1-30-94 SKIPAUTGtRB RÍKISINS M/s Hekla fer frá Reykjavik laugar- daginn 24. þ.m. austur um land í hringferö. Vörumóttaka: þriðjudag, miðvikudagog fimmtudag til Austfjarða- hafna, Þórshafnar, Raufar- hafnar, Húsavikur og Akur- eyrar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.