Tíminn - 17.11.1973, Page 16
16
TÍMINN
Laugardagur 17. nóvember 1973.
Verður Jóhannes eini
íslenzki 1. deildar-
þjólfarinn í knatt-
spyrnu næsta sumar?
Hann mun þjdlfa bikarmeistara Fram. Hin
d höttunum eftir erlendum þjdlfurum
JÓHANNES ATLA-
SON....verður að öllum
likindum eini íslenzki
knattspyrnuþjálfar-
inn, sem þjálfar ís-
lenzkt 1. deildar lið
næsta keppnistímabil.
Jóhannes mun þjálfa
«««
JÓIIANNKS ATLASON... þjálfari
Kra m.
bikarmeistara Fram,
en hann hefur leikið
með Framliðinu und-
anfarin ár. Jóhannes
þjálfaði Akureyrarlið-
ið með góðum árangri
sl. keppnistimabi I.
Félögin eru Fram,
Valur og Vestmanna-
eyjar. Rússinn Dr.
louri llitchev verður
áfram með Valsliðið,
1. deildarliðin eru
og Skotinn Duncan Mc-
Dowell verður áfram
með Eyjaliðið.
Hin 1. deildar liðin, Kefla-
vik, KR, Vikingur, Akureyri
og Akranes, eru öll á höttun-
um eftir erlendum þjálfur-
um. Keflavikurliðið hefur
leitað til Englands, og mun
enskur þjálfari, George
Smith, væntanlegur til
landsins fljótlega til að
spjalla við Keflvikinga. Þá
hefur iþróttasiðan frétt, að
Joe Hooley, fyrrum þjálfari
Keflvikinga, sé væntanlegur
til landsins til að spjalla við
KR-inga en þeir hafa mikinn
hug á að fá hann til að þjálfa
KR-liðið næsta keppnistima-
bil. Akureyringar hafa leitað
til danska þjálfarans Henn-
ing Enoksen, en hann þjálf-
aði islenzka landsliðiö sl.
keppnistimabil.
Vikingsliðið er að leita
fyrir sér i Englandi, og
sömuleiðis Skagamenn. Á
þessu sést, að 1. deildar lið-
unum, leikur mikill hugur á
að fá erlenda þjálfara til að
þjálfa knattspyrnumenn
sina. — SOS.
,,Ég vona að ég geti gert
eitthvað 900111601'*......
sagði Reynir
Olafsson, sem tekur
sæti í nýju landsliðs
nefndinni
í handknattleik
,,(CG VONA að ég geti gcrt eitt-
hvað gagnlegt i málum lands-
liðsins”... sagði Reynir Ólafs-
son, sem tekur nú sæti að nýju i
landsliðsnefndinni i liandknatt-
leik, en hann var i nefndinni
fyrir tveimur árum. Sú brcyting
hcfur vcrið gerð á landsliös-
nefndinni, að nú skipa aðeins
tveir inenn nefndina i staöinn
fyrir þrjá áður. Landsliðs-
nefndin er skipuö þeim Reyni
Ólafssyni og Páli Jónssyni, Karl
Bcncdiktsson. sem var i nefnd-
inni áöur, veröur áfram lands-
liðsþjálfari.
—SOS
ELLEFU ÞJOÐIR
ÖRUGGAR í HAA
í V-ÞÝZKALANDI
DO DO
REYNIR ÖLAFSSON... tekur
sæti i landsliðsnefndinni i hand-
knattleik.
NiU lönd hafa nú tryggt sér
rétt til að leika i heimsmeist-
arakeppninni i knattspyrnu i
Vestur-Þýzkalandi 1974, og
eru þvi ellefu lönd örugg i úr-
slitakeppnina. Gestgjafarnir
vestur-þýzku og heimsmeist-
ararnir frá Brasiliu hafa ekki
þurft að taka þátt i undan-
keppninni. Þau niu lönd, sem
hafa tryggt sér rétt, með þvi
að vinna riðla sina i undan-
keppninni, eru: Pólland, A-
Þý z k a I a n d , S k o 11 a n d ,
Búlgaria, italia, Argentina,
Urugua.y, Chile og Astralia.
Sex af þessum löndum
kepptu ekki i lokakeppni HM i
Mexikó 1970. Það eru Argen-
tina, Chile, Pólland, Austur-
Þýzkaland, Skotland og
Astralia. Fimm sæti eru nú
laus i lokakeppninni, þrjú
Evrópusæti, eitt sæti fyrir
Mið-Ameriku og eitt fyrir Af-
riku. Allt bendir til að þessi
lönd komist i lokakeppnina frá
Evrópu: Júgóslavia, Holland
eða Belgia, Austurriki eða
Sviþjóð. Frá Mið-Ameriku
kemur að öllum likindum
Mexikó og Ghana frá Afriku.
Söfnunarfé
íþróttafrétta-
manna afhent
í FYRRADAG af-
henti Jón Ásgeirs-
son, formaður Sam-
taka iþróttafrétta-
manna, Brynju Guð-
mundsdóttur, ekkju
Hauks heitins
Haukssonar, söfnun-
arfé það, sem
safnaðist i fjársöfn-
un iþróttafrétta-
manna. Alls nam
u p p h æ ð i n k r .
1.577.029.10.
IIFR á myndinni sjást Jón
Asgeirsson, formaður sam-
taka iþróttafréttamanna,
Lúðvik Vilhjálmsson, for-
maður Knattspy rnudeildar
Armanns, Haukur Bjarna-
son, formaður fulltrúaráös
Armanns, Gunnar Eggerts-
son, formaður Armanns,
Brynja Guðmundsdóttir,
ekkja Hauks heitins og dótt-
irin Steinunn Hauksdóttir.