Tíminn - 17.11.1973, Blaðsíða 20
Laugardagur
17. nóvember 1973.
f
V.
Auglýsingasími
Tímans er
GBÐI
fyrir gódan mat
^ kjötiðnaðarstöo sambandsins
-
Verkfallsveröir og eigendur Óöals inni f veitingahúsinu
Hasar við
veitingahúsín
í gærkveídi
Klp-Reykjavík. — í gær-
kveldi tóku verkfallsverðir
úr röðum þjóna sér stöðu
við tvö veitingahús í borg-
inni til að koma í veg fyrir
að þar yrðu framin verk-
fallsbrot, eins og þeir
orðuðu það.
Um 30 þjónar tóku sér stöðu við
Veitingahúsið Óðal, þar sem
eigendurnir, bræðurnir Haukur
og Jón Hjaltasynir ásamt eigin-
konum sinum ætluðu að hafa opið.
Þjónarnir tóku sér stöðu fyrir
utan húsið og einnig i göngunum
og bentu fólki, sem ætluðu inn á
að það stæði yfir verkfall, og báðu
þaö um að hverfa fra.
Kallað var á lögregluna, en
hún sagði að hún hefði ekki leyfi
til að skipta sér af verkfalls-
vörðum og hvarf á brott. Þá báðu
þeir bræður verkfallsverðina að
fara út úr húsinu og gerðu þeir
það, en tóku sér stöðu við
útidyrnar.
Gestir, sem ætluðu inn i húsið
snéru flestir, ef ekki allir við, eftir
að þjónarnir höfðu rætt við það.
Þeir bræður skrifuðu bréf, sem
Haukur fór með i fylgd lögreglu á
skrifstofu Félags framreiðslu-
manna. Þar lýsa þeir ábyrgð á
hendur félaginu fyrir þessar að-
gerðir, og krefjast skaðabóta
fyrir meint tjón.
Þá fóru i gærkveldi um 10
þjónar að veitingahúsinu Glæsi-
bæ, en þar höfðu þeir frétt að
eigandinn ætlaði að hafa opið hús
fyrir einhvern hóp, og afgreiða
sjálfur vinið.
Ekki tókst þeim að stöðva
þessar aðgerðir i tima, en seint i
gærkveldi var verið að smala
saman fleiri þjónum og var
hugmyndin að fjölmenna að
Glæsibæ og koma i veg fyrir að
hann gæti haft opið.
A einum stað var veitt undan-
þága til að hafa opið i gær. Var
það i Tjarnarbúð,þar sem Sjálf-
stæðismenn héidu sinn flokks-
ráðsfund. Fékkst undanþága
fyrir vatn og brauð handa þeim
að sögn verkfallsvarða, sem við
náðum tali af i gærkveldi.
Vaxtahækkun ekki
AAagnús
kjörinn
vara
formaður
Karlmannleg sveit vaskra þjóna tók sér stööu viö dyr óöals viö Austurvöll og beindu gestum frá.
gild fyrr en 16. maí
MAGNOS Jónsson, bankastjóri
var kjörinn varaformaöur Sjálf-
stæöisflokksins á flokksráösfundi
i gær, meö yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæöa.
Þegar Jóhann Hafstein sagði af
sér formennsku i flokknum varð
þáverandi varaformaður, Geir
Hallgrimsson, formaður, og
flokkurinn varð varaformanns-
laus. Er nú bætt úr þvi.
Kristján Benediktsson borgarráösmaöur setur sveitarstjórnarráöstefnu Framsóknarmanna.
Timamynd: Róbert.
Lögreglumenn og þjónar viö óöal. Verkfallsveröir báöu um lögregiuaöstoö og eigendur óöals báöu um
lögregluvernd, og fóru þá lögregiumenn á brott, og sögöust ekkert skipta sér af málinu. Tfmamyndir
Róbert.
AÐ gefnu tilefni vill stjórn Hús-
eigendafélags Reykjavikur benda
félagsmönnum sinum á eftir-
farandi:
1. Með auglýsingu dagsettri 1.
mai 1973 auglýsti Seðlabanki
Islands hækkun vaxta.
2. Auglýsing þessi birtist i 35.
tölublaði Lögbirtingablaðsins
þann 16. mai s.l.
3. Nýlega hefur hæstiréttur
kveðið á um það, að vaxta-
prósenta skuli breytast frá 16.
mai 1973.
4. Er þvi löglaust að innheimta
hækkaða vexti fyrir timabilið 1.
mai — 16. mai 1973.
5. Þar sem mikil brögð eru að
þvi, að skuldareigendur hafa
reynt að innheimta nýju vextina
frá 1.-16. mai 1973, þá vill stjórn
félagsins eindregið vara félags-
menn sina við tilraunum i þessa
átt og ráðleggur þeim að krefjast
endurgreiðslu oftekinna vaxta.
Sveitarstjórnar-
rdðstefna Fram-
sóknarmanna
SVEITARSTJÓRNARRAÐ-
STEFNA Framsóknarmanna
var sett aö Hótel Esju I gær
klukkan fjögur. Þaö geröi
Kristján Benediktsson
borgarráösmaöur, sem bauð
fuiitrúa velkomna til starfa.
Voru þeir alls um fimmtiu, er
komnir voru á ráöstefnuna I
gær.
Er Kristján hafði sett
ráðstefnuna,flutti Ólafur Jó-
hannesson forsætisráðherra
ávarp, en siðan flutti Bjarni
Einarsson, bæjarstjóri á
Akureyri, stórfróðlegt erindi
um lögin um tekjustofna sveit-
arfélagaogreynsluna af þeim.
Siðan ' voru almennar
umræður til kvölds og
fyrirspurnir bornar upp. Tóku
margir til máls.