Tíminn - 02.12.1973, Page 2
2
TÍMINN
Sunnudagur 2. desember 1973.
t
\
í
Skriðuland i Kolbeinsdal í Skagafirði (1968)
Magnús, Finnur og Gröntved við Hálskofa undir Snæfelli (1935)
ur Davíðsson
Þvi valda stökur Hjálmars.
Nú skulum við bregða upp
myndum af leiðangursmönnum
við gamla leitarmannakofa, langt
upp af Fljótsdal sumariö 1935.
„Fram á re^infjallaslóð, fyröar
ljótir búa,” segir i Skuggasveini!
En þetta voru bara forvitnir
náttúrufræðingar á skoðunar-
ferð, flestir með viku skegg! Það
húðrigndi dögum saman og var
gott að leita i gangnakofana, þ.e.
Laugakofa, Hálskofa og Eyja-
bakkakofa. Tjöldin okkar hétu
Himnariki og Helviti og var hið
siöarnefnda hlýrra. Fram með
Jökulsá á Dal voru
starengjarnar nú hvitar af fifu og
fjöldi hrossa þar á beit. Og
hraukarnir (jökulryðnings-
hólarnir), rét- við jaðar Eyja-
bakkajökuls, gulir af fíflum og
sóleyjum. Talið var reimt i
Hálskofa undir Snæfelli, en að
morgni sitja þeir Magnús
Björnsson fuglafræðingur,
Finnur Jónsson málari og ' J.
Gröntved, danskur grasafræðing-
ur, hinir borubröttustu á farangri
sinum. Framan við Eyjabakka-
kofa standa fararstjórarnir
Pálmi Hanesson og Steindór
Steindórsson fyrir miðju, en
Finnur og Magnús Pálma á hægri
hlið. Yzt til hægri stendur
fylgdarmaðurinn Sigurður frá
Brún, þá Ingólfur Daviðsson,
Sigurður Þórarinsson og
Gröntved, hjartamegin
Steindórs. Þessir blessaðir kofar
standa á alkunnum hreindýra-
slóðum, enda „flaggaði” Lauga-
kofi með myndarlegu hreindýrs-
horni upp úr þekjunni.
Unastaðir i Kolbeinsdal (1964)
Við Laugakofa (1935)
Við Eyjabakkakofa (1935)
Bóla i Skagafirði (1960)
Fjall i Kolbeinsdal (1964)
mm