Tíminn - 25.01.1974, Qupperneq 3
Föstudagur 25. janúar 1974.
TÍMINN
3
Sauðárkrókur:
Endurnýjun
véla- og
tækjakosts
samlagsins
G.J.-Ási, Vatnsdal. Tveir menn
úr Vatnsdal fóru nýlega til heiða i
sauðfjárleit. Þeir fundu enga
kind, en aftur á móti fundu þeir
eina hryssu með folaldi út f hólma
á Friðmundarvatni, sem er milli
Auðkúluheiðar og Grimstungu-
heiðar. Vatnið varisilagtog hafði
hryssan farið út i hólmann vegna
þess að hann er lyngi vaxinn, en
jarðlaust má heita i heiðunum.
Sæmileg tið hefur verið norðan-
lands, en haglitið og flestir tekið
hross sin á gjöf.
Nú er áætlað að tankvæða nær-
sveitir Blönduóss, og verða
mjólkurtankarnir sennilega
teknir i notkun næsta sumar.
Á efnisskrá tónleikanna eru
verk eftir: G. Legrenzi, G.
Pergolesi, Durante, Mozart, Aulis
Sallienen, Pál ísólfsson, Gabriel
Fauré og A. Dvorák
Valjakka kom fram á
tónleikum hjá Sinfoniuhljómsveit
íslands á fimmtudaginn, ásamt
finnska söngvaranum Kim Borg.
GÖ-Sauðárkróki-24/l — Nú
standa yfir miklar framkvæmdir
hjá Mjólkursamlagi Kaupfélags
Skagfirðinga á Sauðárkróki.
Verið er að endurnýja véla- og
tækjakost samlagsins. Eru
vélarnar fluttar inn frá Sviþjóð,
og fjórir sænskir vélamenn vinna
nú að uppsetningu vélanna með
aðstoð frá verkstæðum kaup-
félagsins, vélaverkstæði og raf-
magnsverkstæði. Einnig er unnið
að endurbótum á húsi mjólkur-
samlagsins og verið að bæta
aðstöðu starfsfólksins. Annast
trésmiðaverkstæði K.S. þær
viðgerðir.
Mjólkurstöðin var byggð 1950
og flutti samlagið inn i stöðina
1951. Þá var mjólkurmagnið, sem
samlagið tók á móti 2.064,710
litrar, en siðastliðið ár var
mjólkurmagnið, sem samlagið
tók á móti, 9.035,224 litrar.
Árið 1951 störfuðu 11 manns i
Mjólkurstöðinni, en nú 19 manns.
Aætlað er, að framkvæmdunum
ljúki um mánaðamótin april-
marz. Eins og ofangreindar tölur
sýna, hefur mikil framleiðslu-
aukning orðið á mjólkurfram-
leiðslusvæðinu á þessu timabili.
Eru enda mikil þrengsli orðin i
Mjólkurstöðinni, og munu for-
ráðamenn Kaupfélags Skag-
firðinga hyggja á endurbyggingu,
áður en langt um liður.
Mjólkursamlagsstjóri er
Jóhann Sólberg Þorsteinsson.
Ingólfur Arnarson, fánum prýddur viö bryggju f Reykjavík f gær. Vonandi reynist hann betur en sumir
hinna fyrri Spánartogara. (Timamynd Róbert).
Tónleika
r
og Arna
LAUGARDAGINN 26. janúar
verða haldnir tónleikar á vegum
Tónlistarfélagsins i Reykjavik,
kl. 3 i Austurbæjarbiói. Þar koma
fram söngkonan Taru Valjakka
og Árni Kristjánsson, pianó-
r Taru Valjakka
Kristjánssonar
Fundu enga kind
en eina hryssu
leikari. Taru Valjakka er finnsk
óperusöngkona, sem stundaði
nám hjá frú Lahja Linko árið 1964
og var þá ráðin að finnsku óper-
unni. Hún kenndi söng við
Sibeliusarakademiuna árin 1966-
68 og hlaut önnur verðlaun i al-
þjóðlegri söngkeppni i Brasiliu
árið 1967. Framhaldsnám
stundaði hún m.a. hjá Erik Werba
og Gerald Moore. Hún hefur
sungið á fjölmörgum tónlistar-
hátiðum og i útvarp og sjónvarp
viða um lönd.
Fjársöfnun fyrir holdsveika
SÍÐASTI sunnudagur i janúar er
alþjóðlegur hjálpar- og bæna-
dagur fyrir holdsveika og ber nú
upp á 27. jan. Franski sendi-
herrann á islandi er forgöngu-
maður fyrir almennri fjársöfnun
hér á landi til styrktar holds-
veikum, með aðstoð Rauða kross
islands og Hjálparstofnun kirkj-
unnar.
Féð, sem safnast, rennur til
hjálparstofnunar I Paris, Ordre
de la Charité, sem mannvinurinn
Raoul Follereau veitir forstöðu.
Rúmlega 15 milljónir manna
eru enn holdsveikir i heiminum
og aðeins 3 milljónir njóta læknis-
hjálpar. Holdsveikin er einkum
útbreidd i fátækum löndum og má
segja að fátækt og holdsveiki
haldist i hendur.
Siðasta holdsveikitilfellið á
íslandi kom upp 1957 og enn eru
tveir holdsveikisjúklingar á
Kópavogshæli, en fyrir löngu
læknaðir. Um siðustu aldamót
voru um 200 sjúklingar hér á
landi. Stærsta skref til að útrýma
sjúkdómnum var, þegar danskir
Oddfellowar létu reisa Laugar-
nesspitala.
Ástand i fátækum löndum i
Afriku og Asiu er eins og var hér,
heilbrigðir menn hafa neikvæða
afstöðu gegn holdsveikum og þeir
sem sýkjast leyna þvi i lengstu
lög til að forðast útskúfun. Þvi
lengur sem dregst að veita hjálp,
þvi erfiðara er að lækna- sjúk-
dóminn. Árlegur meðalakostn-
aður á hvern sjúkling er aðeins
um 3 dollarar, eða um 270
islenzkar.
Landsmenn eru hvattir til að
taka söfnuninni vel, minnugir
þess að með 300 króna framlagi
greiða þeir meðalakostnað eins
sjúklings i heilt ár. Landsbankinn
veitir framlögum móttöku i öllum
afgreiðslum sinum og i Giró-
reikning nr. 455. Einnig má senda
framlög til Hjálparstofnunar
kirkjunnar og Rauða krossins,
svo og taka prestar við fram-
lögum næsta sunnudag.
Allar kvittanir og giróseðlar
skulu bera með sér áletrunina
„Gjöf til holdsveikra”. Söfnunin
stendur yfir alla næstu viku.
gbk.
Taru Vaijakka
Franski sendiherrann á tslandi, Jacques de Latour Dejean á fundi með fréttamönnum. Timamynd:
Róbert.
Arni Kristjánsson
Stálu
keðiunum
af bílnum
Klp—Reykjavík. — t fyrri viku
voru tveir menn á leið milli Akur-
eyrar og Húsavikur á bifreiðum
sinum. Þegar komið var i
Fnjóskadal var veðrið það vont,
að ekki var komizt lengra á bilun-
um og skildu mennirnir þá báða
þarna eftir.
Þegar veðrið skánaði fóruþeir
til að ná i þá, en þá höfðu bilarnir
staðið þarna i nokkurn tima.
Þegar að var komið kom i ljós, að
búið var að stela útvarpstæki og
segulbandstæki úr öðrum bilnum,
og af hinum hafði verið skrúfuð af
útvarpsstöngin og keðjunum
stolið undan bilnum.
Fyrirgreiðsla
vegagerðarinnar
við
Sverri Runólfsson
Vegargerðaráform Sverris
Runólfssonar komu til um-
ræðu á Aiþingi sl. þriðjudag,
er Björn Jónsson samgöngu-
ráðherra svaraði fyrirspurn
frá Bjarna Guðnasyni um þau
efni. Taldi Bjarni, að em-
bættisvaldið i kerfinu kæmi i
veg fyrir að Sverrir fengi að
sýna, hvað hann gæti og að
kannað yrði notagildi vega-
gerðaraðferðar Sverris.
Björn Jónsson sagði, að sú
fyrirgreiðsla, sem Sverrir
Runólfssou hefði fengið hjá
Vegagerðinni væri alls ekki
verri en aðrir aðilar hefðu
fengið. Hún væri þvert á móti
mun betri.
Vegagerðin hefur úthlutað
Sverri vagarkafla uppi á
Kjalarnesi, eins og kunnugt
er. Þar má liann reyna aðferð
sina, og mun Vegagerö rikisins
hafa boði/.t til að greiða út-
lagðan kostnaö við verkið, og
ennfremur að lána Sverri þau
tæki, sem stofnunin hefur um-
ráð yfir. Hér er óneitanlega
vel boðið.
Verklýsingu vantar
En þar sem Vegagerðin
ætlar að greiða útlagðan
kostnað við verkið, er ekki
óeðlilegt, að hún óski eftir
kostnaðaráætlun, byggðri á
verklýsingu, svo að unnt sé að
gera scr i hugarlund fyrir-
fram, hve mikiö verkið muni
kosta. Þessa verklýsingu
hefur Sverrir ekki getað látið i
té. Verður að teljast ótrúlegt,
að hann geti ekki fengið ein-
hvern til að rita hana niður
eftir sér, þar sem hann hefur
talað mjög fjálglega um að
hann þekki hvcrt handtak við
slikt verk, og fullyrt um kostn-
að og fl. i þvi sambandi.
Björn Jónsson sagði, að
þrátt fyrir alla fyrirgreiðslu
Vegagerðarinnar víð Sverri
Runólfsson, hefði ekki bólað á
þvi, að hann ætlaði að hefjast
handa. Það eina, sem Sverrir
hefði lagt fram, væri einhvers
konar vegagerðarvél, sem
hann kcypti i Kanada og mun
hafa kostað svipað og gömul
dráttarvél.
Gæti komið
bændum illa
Þjóðviljinn skýrði frá þvi i
fréttum i gær, að þegar farið
sé að bera á afgreiðsludrætti
á vörum frá Bretlandi. Eins og
kunnugt er, rikir nú mjög
alvarlegt ástand i Bretlandi
vegna orkuskorts, og hefur
verið tekin upp 3ja daga
vin nuvika.
Blaðið hafði m.a. samband
við Dráttarvélar hf. Liggja
fyrir hjá félaginu hátt á annað
hundrað pantanir á dráttar-
vélum og er von á tugum
pantana i viðbót fyrir
sumarið. Er fyrirsjáanlegt,
að ekki verður hægt að af-
greiða allar þessar pantarnir
á þeim tima, er ráðgert var,
og ef þetta ófremdarástand i
Bretlandi heldur áfram, gæti
orðið erfiöleikum bundiö að fá
þessar vélar yfirleitt til lands-
ins.
Þá er mikil hætta á, að
erfitt muni reynast að fá vara-
hluti i brezkar dráttarvélar á
þessu ári. Fyrirtækið á að visu
stóran varahlutalager, en
haldist 3ja daga vinnuvika
fram eftir árinu, er hætt við
afgreiöslutregðu frá . verk-
smiðjunum, og mun þá vara-
hlutalager t'ljótt ganga til
þurrðar.
lfins vegar mun ekki enn
Framhald á bls. 23