Tíminn - 07.02.1974, Síða 7

Tíminn - 07.02.1974, Síða 7
Fimmtudagur 7. febrúar 1974. TÍMINN 7 Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu viö Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Áskriftagjald 360 kr. á mánuði innan lands, i lausasölu 22 kr. eintakið. Blaðaprent h.f. Meðalvegurinn í viðtali, sem sjónvarpið átti við Guttorm Hansen, forseta norska Stórþingsins, lýsti hann m.a. þeirri skoðun sinni, að mikilsvert væri fyrir þjóð að geta haft sem mesta sam- stöðu um utanrikismál sin. Þá ályktun mætti m.a. vel draga af þeim mikla klofningi, sem orðið hefði i Noregi um afstöðuna til Efnahags- bandalags Evrópu. Guttorm Hansen lét einnig i ljós þá skoðun, að erlend herseta hlyti alltaf að vera mjög vandasamt og viðkvæmt mál. Þessi ummæli Guttorms Hansen eru ekki sizt athyglisverð vegna þess, að hann er i hópi þeirra Norðmanna, sem telja eftirlitsstöð hér mikilsverða vegna Norðmanna. Afstaðan til hersetunnar hefur alltaf verið viðkvæmt deilumál hér, og menn hafa skipzt um hana, án tillits til flokka. Eðlilegt er, að þessi deila sé mjög á dagskrá nú, þar sem allir flokkar eru sammála um, að timabært sé orðið að endurskoða varnarsamninginn, en sitt sýn- ist hverjum um tilganginn. Skrif Morgunblaðs- ins benda t.d. til þess, að Sjálfstæðisflokkurinn vilji heldur auka hersetuna en draga úr henni, en skrif Þjóðviljans benda til þess, að Alþýðu- bandalagið vilji ekki veita Atlantshafsbanda- laginu neins konar þjónustu, sem máli skiptir. Þannig er langt milli þeirra sjónarmiða, sem eru yzt til hvorrar handarinnar. Nauðsynleg þjóðarsamstaða fæst aldrei með þvi, að fylgt sé forskrift annars hvors þess aðila, sem yzt stendur til annarrar hliðarinnar. Hér gildir það, eins og i svo mörgum viðkvæm- um stórmálum, að finna verður meðalveg, sem getur fullnægt sjónarmiðum meginþorra al- mennings og tryggir jafnframt hagsmuni landsins. Þetta er tilgangurinn með tillögum utanrikisráðherra. Með þeim er stefnt að þvi, að landinu sé tryggð nægileg vernd, án lang- varandi hersetu. Þetta er tvimælalaust eini vegurinn til að tryggja viðtæka þjóðareiningu um lausn þessa vandasama og viðkvæma máls. Fleiri og fleiri gera sér lika ljóst, að hér verður að fara meðalveginn, eins og gert var á Alþingi árið 1000. Risaveldin 1 sjónvarpsviðtalinu við Guttorm Hansen lýsti hann þeirri skoðun sinni, að bætt sambúð risaveldanna, þ.e. Bandarikjanna og Sovét- rikjanna, væri mikilvægasti atburðurinn i al- þjóðamálum á siðari árum. Þessi bætta sam- búð var áréttuð, sama kvöldið og Guttorm Han- sen lét þessi orð falla, en þá var skýrt frá þvi i Washington, að Nixon forseti myndi fara i heimsókn til Sovétrikjanna siðar á þessu ári. Skýrast kemur þetta þó i ljós i sameiginlegri viðleitni risaveldanna til að leysa deiluna fyrir botni Miðjarðarhafsins. Fyrir Islendinga er sérstök ástæða til að fagna bættri sambúð risaveldanna, þvi að hún dregur úr hættunni á Norður-Atlantshafi. Hún er aukin trygging þess, að hvort þeirra um sig mundi ekki aðhafast neitt það, sem geti talizt ganga á hlut hins. Hún getur orðið upphaf að samkomulagi þeirra um vigbúnaðinn þar. Þ.Þ. • t: ---t ERLENT YFIRLIT Camara faer friðar verðlaun fólksins AAiklar deilur í Noregi um nóbelsverðlaunin Helder Camara NÆSTKOMANDI sunnudag gerist sögulegur atburður i Osló, þegar brasiliska biskupnum, Helder Camara, verða afhent friðarverðlaun fólksins. Undanfarnar vikur hefur farið fram almenn fjár- söfnun til verðlaunanna i Noregi, Finnlandi, Sviþjóð, Danmörku, Vestur-Þýzka- landi, Hollandi, Belgiu og Italiu. 1 Noregi hafa þegar safnazt um hálf milljón norskra króna, og i Vestur- Þýzkalandi 200 þúsund marka. Þótt verðlaunin verði afhent á sunnudaginn, verður söfnun- inni haldið áfram til febrúar- loka. Samkvæmt ósk Helder Camara verður verðlaunun- um skipt i ávisanir, sem hann mun framvisa til ýmissa góðgerðarfélaga og hjálpar- stofnana i Brasiliu. Rikis- stjórn Brasiliu hefur, eftir miklar vangaveltur, veitt Camara leyfi til að fara úr landi, og mun hann koma til Oslóar snemma á sunnudags- morgun. Þaðan heldur hann á mánudaginn til Sviss, þar sem hann mun taka þátt i fræðslu- ráðstefnu, sem verður haldin um málefni þróunarlandanna. Verðlaunin verða afhent, áður en söfnuninni lýkur, af tveimur ástæðum. önnur er sú, að Camara á 65 ára af- mæli i dág, og þötti rétt að verðlaunaafhendingi'n færi fram sen næst afmælisdegin- um. Hin er sú, að afhendingin þykir likleg til að vékja athygli á söfnuninni og ýta undir hana. Eins og kunnugt er, hefur Helder Camara öðlazt frægð fyrir andspyrnu sina gegn einræðisstjórn hersins i Brasiliu og baráttu fyrir bætt- um kjörum og auknum réttindum alþýðu þar. Stjórnarvöldin hafa reynt eftir megni að einangra hann sem mest og ófrægja, en ekki treyst sér til að fangelsa hann vegna stöðu hans innan kirkjunnar og þess álits, sem hann nýtur utan Brasiliu. Afhending verðlaunanna mun fara fram á hinn hátið - legasta hátt. Brynulf Bull, borgarstjóri Oslóar, mun setja athöfnina, en meðal ræðu- manna verður Bergfrid Fjose, sem var kirkju- og mennta- málaráðherra i stjórn Korvalds, og á nú sæti á þingi fyrir Kristilega flokkinn. Þá mun Oslóarbiskupinn Kare Stöylen flytja ávarp. ÞAÐ ER tilefni umræddrar verðlaunaveitingar að nefndinni, sem úthlutar friðarverðlaunum Nóbels, bárust margar áskoranir um að veita Camara friðar- verðlaunin fyrir 1973, en meirihluti nefndarinnar féllst ekki á það heldur skipti þeim á milli helztu sáttamanna i Vietnamdeilunni þ.e. þeirra Kissingers og Le Duc Tho. Kissinger hefur látið sendi- herra Bandarikjanna taka við sinum hluta verðlaunanna og mun láta hann renna til hjálparstarfsemi, en Le Duc Tho segist ætla að draga það að taka á móti sinum hluta, unz friður sé kominn á i Viet- nam. Þessi úthlutun friðar- verðlaunanna vakti meiri deilur i Noregi en dæmi eru um áður. i skoðanakönnun. sem fram fór nokkru eftir út- hlutunina, lýstu aðeins 11% sig fylgjandi henni. Minni- hlutinn i uthlutunarnefndinni þeir Einar Hovdhaugen, sem er stórþingsmaður fyrir Mið- flokkinn, og Helge Rognlien, sem er formaður Vinstri flokksins, sögðu sig báðir úr nefndinni i mótmælaskyni. I framhaldi af þessu kom til sögunnar hugmyndin um friðarverðlaun fólksins, sem Camara hlyti. Hún hlaut strax góðar undirtektir meðal al- mennfngs, og var þvi sett á laggirnar nefnd málsmetandi manna til þess að beita sér fyrir henni. Sérstök áherzla var lögð á það, að hún hefði ekki á sér neinn pólitiskan blæ. Meirihluti nefndarinnar, sem veitti þeim Kissinger og Le Duc Tho verðlaunin, skipuðu Aase Lionæs, sem iengi hefur átt sæti á þingi fyrir Verka- mannaflokkinn, John Sanness, framkvæmdastjóri Norsk Utenrikspolitisk Institut, og Bent Ingvaldsen, fyrrverandi forseti Stórþingsins og einn af leiðtogum norska Ihalds- flokksins. Þessir þremenningar hafa sætt harðri gagnrýni. Þótt út- hlutunarnefndin eigi að starfa leynilega, hefur það eigi að siður kvisazt út, að Hovdhaugen og Rognlien lögðu upphaflega til, að Camara fengi verðlaunin, en Ingvaldsen vildi veita þau Nixon forseta. Sanness bar fram tillöguna um þá Kissinger og Tho. Aase Lionæs féllst á þá tillögu, og kaus Ingvaldsen þá heldur að veita þeim verðlaunin en Camara. SAMKVÆMT reglum um friðarverðlaun Nóbels, kýs norska Stórþingið fimm manna nefnd, sem úthlutar verðlaununum. Úrskurður nefndarinnar er endanlegur. Siðan fyrsta úthlutunin fór fram lúOl.hefur það ekki gerzt fyrr en nú, að nefndin hafi klofnað opinberlega um út- hlutunina. Hins vegar hefur nefndin oft verið ósammála, og niðurstaðan þá orðið sú. að ekki væri um neinn hæfan verðlaunahafa að ræða. Úthlutin hefur þá fallið niður. Þetta hefur gerzt ekki sjaldnar en 18sinnum. Stund- um hafa deilur i nefndinni verið leystar á þann veg, að skipta verðlaununum á milli tveggja manna. Alls hefur verðlaununum verið úthlutað 54 sinnum, og hafa 69 menn hlotið þau. Brottför þeirra Hovdhaugen og Rognlien úr nelndinni getur valdið alvarlegri deilu á Stórþinginu. Sumir vilja láta kjósa að nýju i stað þeirra, en samkvæmt venju eiga vara- menn að taka við, en þeir eru nú Sjur Lindebrække, sem er fyrrverandi stórþingsmaður fyrir Ihaldsflokkinn, og Egil Aarvik. sem er þingmaður fyrir Kristilega flokkinn. Þá vilja enn aðrir, að nefndin verði öll kosin að nýju, en meirihlutinn neitar að segja af sér. Kjörtimabil Sanness og Ingvaldsen rennur út á næsta ári en kjörtimabil Lionæs er til 1977. Þær hugmyndir hafa m.a. komið til sögu, að rangt sé. að allir nefndarmennirnir séu norskir, þótt norska þingið kjósi þá. Það kom m.a. til greina, að neíndin væri skipuð mönnum úr öllum heimshlut- um. T.d. væri aðeins einn nefndarmanna frá Noregi. sem yrði eins konar fulltrúi Vestur-Evrópu og Banda- rikjanna. einn frá Austur- Evrópu. einn frá Afriku. einn frá Asiu og einn frá Suður- Ameriku. Það þvkir ekki lik- legt, að þessi hugmynd fái verulegt fylgi i Stórþinginu. Hins vegar ala menn tais- verðar áhyggjur i brjósti i sambandi við úthlutunina, þvi að haldist áfram verulpgar deilur um hana, getur hún hætt að þjóna tilgangi sinum og fólk hætt yfirleitt að taka hana alvarlega. Það hefur t.d. verið gagnrýnt. að verðlaunin hafi aldrei verið veitt manni frá sósialisku landi. Ef til vill hafa þau Sanness og Lionæs haft þessa gagnryni i huga, þegar þau skiptu verðlaununum á milli þeirra Kissingers og Tho. Enn er ekki ráðið, hvort almennar umræður verða um þessi mál i Sto'rþinginu. en þær gætu orðið mjög heitar. Margir þingmenn vilja þvi komast hjá þeim. Sumir óttast jafnvei. að miklar deilur um þessi efni i Stórþinginu. gætu leitt til þess, að Nóbelsstofn- unin svipti Stórþingið réttin- um til að kjósa úthlutnar- nefndina. Heldur þykir það þó ótrúlegt. Eftir það, sem nú hefur gerzt. verður það áreiðanlega ekki auðvelt verk að úthluta friðarverðlaununum á þessu ári. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.