Tíminn - 16.02.1974, Síða 2
2
TÍMINN
Laugardagur lfi. febrúar 1974.
Laugardagur 16.febrúar 1974
Vatnsberinn (20. jan.—18. febr.)
Ef þú ert í viðskiptalifinu, mun kvöldið fá þér
næg umhugsunarefni, annars eiga Vatnsberarn-
ir yfirleitt að taka til athugunar í dag allar þær
hugmyndir, sem gætu komið að gagni varðandi
stöðu þeirra og velgengni,
Fiskarnir (19. febr.—20. marz.)
Fréttirnar, sem þér berast i dag, eru mikilvæg-
ari en þu gerir þér grein fyrir til að byrja með,
og þú skalt endurskoða afstöðu þina. Þú kynnist
að likindum nyju og skemmtilegu fólki, sem
verður þér til mikillar ánægju.
Hrúturinn (21. marz—19. april)
Þessir dagar hafa veriðafskaplega heppilegir tii
að hefja undirbúning langferðalaga, jafnvei fara
i slik ferðalög, og sért þú ekki þegar búinn að
gera ráðstafanir skaltu nota daginn til þess.
Anægjulegt kvöld.
Nautið (20. april—20. mai)
Það er eins og einhver eða einhverjir, sem búa
fjarri þér, muni minnast þin sérstaklega i dag,
eða hafa ánægjulegt samband við þig, og hvort
sem það er i sambandi við það eða ekki, verður
kvöldið allavega sérlega ánægjuiegt hjá þér.
Tviburarnir (21. maí—20. júní)
Það er afskaplega mikilvægt að huga vandlega
að fjármálunum i dag. Þú skalt ekkert vera
feiminn við að gera þér grein fyrir þvi, að þú
verður að gera átak, og það ekkert litið, ef ekki á
illa að fara og það bráðlega.
Krabbinn (21. júni—22. júli)
Þú ættir ekki að tortryggja einhvern vin þinn eða
kunningja, sem vill þér afskaplega vel. Þú átt i
einhverri smáflækju, sem þú skalt greiða úr og
varast að láta á nokkurn hátt flækja þér inn i
deilumál annarra.
Ljónið (23. júli—23. ágúst)
Láttu ekki stjórnsemina ná yfirhöndirini i dag.
Þú skalt ekki gera neitt það, sem aðrir geta tekið
sem afskiptasemi, það verður bara lagt út á
verri veg. Hitt skaltu gera, að umgangast þina
nánustu meira en þú hefur gert upp á siðkastið.
Jómfrúin (24. ágúst—22. sept.)
Það litur út fyrir, að einhver mál hafi farið
aflaga hjá þér innan fjölskyldunnar upp á
siðkastið, og þetta er mjög heppilegur dagur til
þess að laga þau. Þó er ekki að vita, nema
kvöldið bjóði upp á einhverja erfiðleika.
Vogin (23. sept.—22. okt.)
Þú ættir að treysta vinum þinum og skyldmenn-
um meira en þú hefur gert að undanförnu. Það
er ýmislegt, sem þú getur gert til þess að hafa
þau sambönd i góðu lagi, og þú skalt ekki láta
neitt tækifæri i þá átt ganga þér úr greipum i
dag.
Sporðdrekinn (23. okt.—21. nóv.)
Þú ættir að sýna samstarfsmönnum þinum
meira traust en þú hefur gert að undanförnu, og
þó aðallega tillitssemi. Það bætir ekki aðeins
andrúmsloftið á vinnustaðnum heldur verður
það til að styrkja afstöðu þina til muna.
Bogmaðurinn (22. nóv.—21. des.)
Þetta er afskaplega einkennilegur dagur fyrir
margra hluta sakir. Fyrri hluti hans verður hinn
skemmtilegasti, en svo er rétt eins og þú verðir
fyrir einhverju óhappi, sem klúðrar seinni hluta
dagsins gjörsamlega.
Steingeitin (22. des.—19. jan.)
Þetta er enginn sérstakur dagur, en þó er aldrei
að vita, nema þú getir gert þér hann nokkuð góð-
an, ef þú tekur þig til f andlitinu og hressir upp á
skapið og gamlan kunningsskap. En farðu var-
lega i fjármálunum i dag.
Bókhaldsaðstoð
með tékkafærslum
BÚNAÐARBANKINN
REYKJAVÍK
jffi, H, mL M, ffl!! Im ffl í: Iffi m
Athugasemd við þingræðu
Stefán Jónsson, varaþing-
maður og kennari, flutti smá
kennslustund inn i sali Aiþingis
fimmtudaginn 31. janúar s.l. Brá
hann þar á það ráð, sem oft hefur
dugað kennurum til vinsælda, að
krydda mál sitt sögum. Nú er það
svo, að þjálfaður sögumaður
velur að jafnaði söguefni sitt með
hliðsjón af þroska og smekk
áheyrenda og verður þvi að gera
ráð fyrir að Stefáni hafi þótt sögu-
efnið við hæfi á stað og stundu.
Ekki verður freistað að meta,
hversu Stefáni hafi hér dugað
dómgreindin, en þeir, sem utan
þingdyra standa og hafa heyrt
óminn af máli Stefáns i fjöl-
miðlum, eru furðu lostnir yfir
þeim rógi, sem þingmaðurinn
þótti sæma að bera á stofnun þá,
sem hann starfar fyrir — Lauga-
skóla i S.-Þingeyjarsýslu —nem-
endur skólans og fyrrverandi
starfslið. Má raunar segja, að
ummælin séu sjálfdæmd dauð og
ómerk i eyrum allra þeirra, sem
til þekkja, og áéu höfundi sinum
einum til vansæmdar. Þess vegna
þurfi þar ekki fleiri orð um. En
stundum hafa menn lygina fyrir
sannleika, ef þeir ekki vita betur,
og þvi þykir okkur nauðsyn, að
orðum Stefáns sé mótmælt.
A þessu ári er háif öld liðin,
siðan hafin var bygging Lauga-
skóla. Frá upphafi hefur skólinn
notið starfskrafta margra ágætra
manna, ýmissa þeirra um langt
árabil. Eftir þriggja mánaða bú-
setu i Þingeyjarsýslu og jafn
langan starfstima við Lauga-
skóla, reynir Stefán Jónsson að
ata stofnunina auri með tilefnis-
lausum og tilhæfulausum áburði
á hendur starfsmönnum skólans,
og velur sali Alþingis til iðjunnar.
Með þessum fáu orðum viljum
við sem gamlir nemendur
Héraðsskólans á Laugum, lýsa
megnustu vanþóknun okkar, og
vonandi allra eldri sem yngri
nemenda og starfsfólks skólans, á
þeim ábyrgðarlausu vinnu-
brögðum og þeirri takmarka-
lausu rætni, sem i orðum þing-
mannsins felst.
„Komi þessi skitur aldrei til
landsins framar”, sagði Björn i
Lundi og henti hrossaskitsköggli
i sjóinn, þegar óþarfur héraðsbúi
að hans dómi, lagði frá Akur-
eyrarbryggju. Nú hefur Stefán ýtt
á flot. Kemur hann aftur?
Gamlir Laugameim
Akurevri
Varðberg á Akureyri boðar tii
ALAAENNS
FUNDAR
í Sjólfstæðishúsinu á Akureyri
sunnudaginn 17. febrúar
Fundarefni:
VARNIR
ÍSLANDS OG
VESTRÆN
SAMVINNA
Varðberg
Eftirtaldir menn
flytja óvörp og
erindi og svara
fy rirspu rnum:
Bárður
Halldórsson
menntaskóla
kennari
Bjarni
Einarsson
bæjarstjóri
Björn
Bjarnason
fréttastjóri
Markús Örn
Antonsson
ritstjóri
HUSGAGNAVIKA
1974
i LOK APRÍLMANAÐAR, dag-
ana 18.-28. munu Húsganga-
meistarafclag Reykjavikur og
Meistarafélag húsgagnabólstrara
efna til húsgagnasýningar i
sýningarhöllinni i Laugardal.
Húsgagn-avika er nafnið, sem
sýning þessi hefur hlotið, og
erþetta þriðja sýningin, sem
ofangreind félög gangast fyrir.
Þetta eru þó ekki einu tiðindi,
heldur munu Félag húsgagna- og
innahússarkitekta, Húsgagna-
meistarafélag Reykjavikur og
Meistarafélag húsgagnabólstrara
efna til samkeppni um nýjar hús-
gagnagerðir.
Tilgangurinn með þessari sam-
keppni er að hvetja til nýsköpun-
ar hugmynda að húsgögnum og
styrkja þannig islenzkan hús-
gagnaiðnað til að mæta aukinni
samkeppni, jafnt á heimamark-
aði, sem hugsanlegum út-
flutningsmarkaði.
Áherzla verður lögð á húsgögn
sem henta fjöldaframleiðslu og
eru af háum tæknilegum og
fagurfræðilegum staðli, en um
leið samkeppnishæf hvað verð-
samanburð snertir. Æskilegt er
að tillit sé tekið til pökkunar og
geymslu húsgagnanna.
Þátttaka i samkeppni þessari
er heimil öllum islenzkum rikis-
borgurum og er þannig ekki
bundin við félagsmenn Félags
húsgagna- og innanhússarki-
tekta, Húsgagnameistarafélag
Reykjavikur eða Meistarafélag
húsgagnabólstrara.
Tillögur sem sendar eru sam-
keppninni, verða að veranýjar,
þ.e. þær verða að vera áður
óþekktar og mega ekki hafa verið
birtar, hvorki á íslandi né annars
staðar. Þær verða ennfremur að
vera eign þess, sem þær sendir og
enginn annar má hafa neinn rétt á
þeim. Þátttakendur taka sjálfir
ábyrgð á þvi að þessu sé fram-
fyigt-
Til viðurkenningar verður var-
ið þrjú hundruð þúsund krónum,
og samkeppnisgögn fást afhent á
skrifstofu Landssambands
iðnaðarmanna. Ætlazt er til, að
skilafrestur verði tii 1.-5. april.
.1 S Vú
tvr.-
S
y-x
i. -v
;■ \ •
v
Félagsráðgjafi |j
Fræösluskrifstofa Reykjavikur óskar
eftir aö ráða félagsráðgjafa til starfa i 0
Sálfræðideild skóla. ,yí
Laun samkv. kjarasamningi Reykjavikurborgar. jyj
Starfsreynsla eða sérþjálfun æskileg.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður Sálfræði- hýíi
deildar skóla, simi 21430. .v
Umsóknum sé skilað til Fræðsluskrifstofu Reykjavik- -frj
ur, Tjarnargötu 12 fyrir 20. marz n.k. i>*/
''M'i’ .v*
Þrjátíu til fjörutíu fermetra
ÞURRT
geymslupláss
fyrir gömul blöð óskast til leigu.
Upplýsingar í síma 26-500.
1 14444 2
muíim
25535
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
BORGARTUN