Tíminn - 16.02.1974, Síða 7

Tíminn - 16.02.1974, Síða 7
Laugardagur 16. febrúar 1974. TÍMINN 7 tJtgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Ilelgason, Tómas Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Áskriftagjald 360 kr. á mánuði innan lands, i lausasölu 22 kr. eintakið. Blaðaprent h.f. V___________________ J Búnaðarþing Búnaðarþing hóf störf sin að þessu sinni siðastliðinn mánudag. Það mun að vanda ræða ýmis þau mál, sem nú eru efst á baugi hjá bændum, eins og t.d. endurskoðun á lögum um ræktunar- og húsagerðarsamþykktir i sveitum, m.a. með það fyrir augum að styrkja rekstrar- grundvöll ræktunarsambandanna. Fyrir Alþingi liggja nú allmörg mál, sem Búnaðar- þing hefur fjallað um, og bera þau þess glöggan vott, að það er mikilsvert, að sér- fróður aðili hefur athugað þau og endurbætt áður en Alþingi hefur fengið þau til meðferðar. Það léttir verulega störf Alþingis. Þetta er aðeins eitt dæmi um þýðingarmikið hlutverk Búnaðarþings. Fyrir bændastéttina hefur Búnaðarþing þó vafalitið haft mest áhrif á þann hátt, að það hefur haft frumkvæði að fjöl- mörgum nýjungum á ýmsum sviðum land- búnaðarmála. Þvi er óhætt að fullyrða, að það gegnir þýðingarmiklu hlutverki fyrir bænda- stéttina. Meðal þeirra mála, sem Búnaðarþing hefur fjallað um og nú liggja fyrir Alþingi, ber framar öðrum að nefna frumvarp til nýrra jarðalaga.Markmið þess er að koma i veg fyrir brask með jarðir og landeignir utan skipu- lagðra þéttbýlissvæða og tryggja nýtingu þessa lands i samræmi við hagsmuni sveitar- félaga og þeirra manna, sem landbúnað stunda. Þá er stefnt að þvi, að tekið verði rétt- mætt tillit til þeirra, sem æskja útivistar á um- ræddum svæðum. I ræðu þeirri, sem formaður Búnaðarfélags Islands, Ásgeir Bjarnason al- þingismaður flutti, þegar hann setti Búnaðar- þing, vék hann m.a. að þvi, að það hefði lengi verið talið einn helzti styrkur bændastéttarinn- ar i réttindabaráttunni að hafa eignarrétt á landi. Framvinda þessara mála i seinni tið, hafi ekki verið bændastéttinni nógu hagstæð, einkum er varðar hlunnindajarðir. Það er ósk min og von, sagði formaður Búnaðarfélags íslands, að jarðalagafrumvarpið, þegar að lögum verður, bæti aðstöðu bænda og sveitar- félaga i þessum efnum og tryggi þjóðinni hag- kvæma búvöruframleiðslu i framtiðinni. í setningarræðu sinni brá formaður Búnaðarfélags upp skemmtilegum myndum af þvi, sem hægt er að gera i ræktunarmálum. Hann nefndi Gunnarsholt og Hallormsstað. í Gunnarsholti blasir nú búsældin við hvert sem litið er. Ræktun, sauðfé, nautgripir og hross eru þar sem áður voru gróðurlausir sandar. Þá er ekki siður ánægjulegt að sjá hvað Skóg- rækt rikisins hefur áorkað á Hallormsstað. Það er glöggt vitni þess, hvað hægt er að gera þar sem skilyrði eru fyrir hendi. Halldór E. Sigurðsson landbúnaðarráðherra ávarpaði Búnaðarþ. við þingsetninguna. Hann minnti m.a. á, að tekjur bænda hefðu farið verulega batnandi siðustu árin, miðað við aðrar stéttir, og væri nú minna tekjubil milli þeirra og annarra en áður hefði verið. Bændur hafa ótvirætt hagnazt á breyttum og bættum stjórnarháttum i málum þeirra.Þá er þaðekki siður mikilvægt, sem landbúnaðarráðherra gat um i ræðu sinni að minna er nú hnjóðað i land- búnaðinn, þvi að ný viðhorf hafa sýnt gildi hans enn ljósara en áður. Þó mun framtiðin leiða mikilvægi landbúnaðarins enn betur i ljós. Þ Þ. Bruce Russel, The Guardian: Auðkýfingur, sem fer huldu höfði Tekst ákæruvaldinu að klófesta Howard Hughes? ÞEGAR hvað mest leynd hvildi yfir ferli Howards Hughes, skömmu eftir að hon- um var smyglað um miðja nótt úr höfuðstöðvum sinum i Las Vegas, kom fram maður, sem sagðist hafa séð hann ær- ið tröllslegan ásýndum, með hár i mittisstað og átta þuml- unga langar negiur á fingrum og tám. Nokkrir menn hafa séð Hughes siðan og lýsing þeirra bregður upp sennilegri mynd, en ekki eins æsilegri. Lýsing þeirra ber heim við litið breytta mynd af þessum magra og kurteisa auðjöfri, sem hvarf af almannafæri fyrir tveimur áratugum. Meginmunurinn felst i skeggi með van Dyke-sniði, heyrnar- tæki og hærum i tinnusvörtu hárinu. Hið fasta handtak Texasbú- ans er samt við sig. Þeir menn, sem fluttir hafa verið til felustaðar Hughes til þess að ræða við hann, segja hann hafa jafn traust tök og áður á viðskiptaveldi sinu, jafnt spilavitum, flugfélögum, geimiðnfyrirtækjum, námu- greftri sem fasteignaviðskipt- um. EINRÆÐISHÆTTIR Hughes og laumuspil i við- skiptum hefir löngum valdið þvi, að fyrirtæki hans hafa þótt grunsamleg og orðið að sæta lögsóknum. Hann hefir að jafnaði stjórnað fjármála- veldi sinu gegnum sima úr fjarlægð, en sjaldan hefir hann átt jafn greinilega i vök að verjast og nú. Samrikisréttur hefir gefið út skipun um að Hughes mæti fyrir rétti i Las Vegas til þess að svara til saka um samsæri og hlutabréfasvik. Hann gæti átt yfir höfði sér tuttugu ára fangelsisdóm, ef hann reynd- ist sannur að sök. Hughes dvelst greinilega á Bahama- eyjum og embættismenn dómsmálaráðuneytisins viðurkenna, að erfitt muni reynast að fá hann framseld- an. Hughes kann að hafa þarna lagakrók á móti bragði, en ekki hefir ávallt farið vel á með honum og yfirvöldunum á Bahamaeyjum. Hann fór i skyndingu frá eyjunum i febrúar 1972, þar sem fjórum af aðstoðarmönnum hans hafði verið visað úr landi af þvi að þeir höfðu ekki full- nægjandi skilriki sem innflytj- endur. HUGHES hefir ávallt neitað að mæta fyrir rétti, en hefir eigi að siður tekizt að halda fyrirtækjum sinum á réttum kili. Frægasta barátta hans gegn þvi að mæta i réttarsal var háð árið 1969. Fyrirtækið Trans World Airlines, sem hann hafði áður haft á valdi sinu, vann þá gegn honum mál, þar sem það krafðist 145 milljón dollara greiðslu fyrir meint misferli. Hughes neitaði statt og stöð- ugt að mæta fyrir rétti, varði málið, flækti og áfrýjaði unz það kom fyrir hæstarétt, þar sem hann fékk snúið vörn i sókn og sér dæmdar bætur. En i þvi máli, sem nú stendur yfir, er hann i fyrsta sinn sakaður um beinan glæp. Málið snýst um uppkaup flug- félagsins Air West árið 1966, en það var þá á heljarþröm. Hughes er sagður hafa boðið 46 þúsund dollara hlutabréf i fyrirtækinu til sölu á tveimur dögum. Hann og fjórir að- stóðarmenn hans eru ákærðir fyrir að hafa lækkað verð hiutabréfanna af ráðnum hug. HUGHES stafar tvenns konar hætta af kæru þessari. Neiti hann að mæta fyrir rétti er unnt að gefa út úrskurð, sem geri hann sekan mann áður en málið kemur fyrir dóm. Fyrirtæki Hughes, Summa Corporation, neitar að hann sé sekur. ,,Hughes tók aldrei sjálfur neinn þátt i þeim við- skiptum eða samningum, sem ákæran snýst um”, segir i til- kynningu fyrirtækisins. Embættismenn þeir, sem fara með rekstur spilavita i Nevada, hafa látið i veðri vaka, að þeir kunni að neyðast til að taka til endurskoðunar leyfi Hughes til reksturs sjö spilavita, sem hann á i fylk- inu, ef hann verður .dæmdur sekur. Spilaviti þessi spanna nálega einn fimmta slikrar starfsemi i fylkinu. Hughes á fleiri spilaviti, meira land og veitir meiri atvinnu en nokkur annar maður i Nevada. Haft er eftir embættismanni samrikisins, að leyfi Hughes til að reka sjónvarpsstöðina KLAS i Las Vegas kunni að verða endurskoðað eins og rekstrarleyfi spilavitanna. TIMARITIÐ Fortune telur eignir Hughes nema 1200 milljónum dollara. Aörir aðil- ar telja þær rúmlega tvöfalt meiri, eða nema 2500 milljón- um dollara. Eignir Hughes i hlutafélög- um hafa tekið gifurlegum breytingum frá einum tima til annars. Hann hefir ýmist eignast eða losað sig við kvik- myndaver og tröllaukin flug- félög. Hughes hóf viðskiptaferil sinn sem eigandi hins arð- sama fyrirtækis Hughes Tool Company, sem hafði einka- leyfi á oliuborum, en það fyrirtæki hafði hann tekið i arf eftir föður sinn. Þetta fyrir- tæki seldi hann fyrir rúmu ári. Fifldirfska er einn af eigin- leikum Hughes og hann reyndi sjálfur flugvélar, sem hann smiðaði á árunum 1940 til 1950. Hann varð að nauðlenda nýrri flugvél árið 1946 og þá munaði minnstu að hann færist. Nú að undanförnu hefir hann snúið sér að gervihnöttum, námu- greftri á hafsbotni og boðist til að lána Lockheed Corporation 1000 milljónir dollara, en það fyrirtæki er á heljarþröm. Námugröftur á djúpsævi er ævintýralegasta uppátæki Hughes. Skipið Glomar Ex- plorer er senn tilbúið að sigla til hafsvæða við Suður- Ameriku. Það er búið dælum til þess að soga upp sýnishorn af góðmálmum frá hafsbotni. MARGIR af þeim erfiðleik- um, sem Hughes á nú við að striða, eiga rætur að rekja til félagsslita, sem urðu i við- skiptaveldi hans árið 1970. Þá rak hann Robert Maheu, framkvæmdastjóra viðskipta sinna i Nevada. Svo er að sjá sem hann hafi leitað til Bahamaeyja af ótta við afleiðingar þessa tiltækis. Ræmdur rithöfundur, Clif- ford Irving að nafni, notfærði sér hina miklu leynd, sem hvildi yfir ferli Hughes, og setti saman bók, sem átti að vera ævisaga hans. Hughes kom þá fram i svip og hélt blaðamannafund i sima, þar sem hann neitaöi sannleiks- gil^i ævisögunnar, sem Irving hafði sett saman. Þessi afneit- un leiddi til þess, að Irving hlaut fangelsisdóm. Hughes viðhafði á blaðamannafundinum ýmis ummæli um Maheu. Hann brást hinn versti við, kvað ■ummælin ærumeiðandi og krafðist 173 milljón dollara skaðabóta. Hughes svaraði með gagnkæru, þar sem hann sakar Maheu um misferli meðan hann var framkvæmdastjóri viðskipt- anna i Nevada. Hughes sagði einnig á blaðamannafundinum: ,,Er ég þá sæll og ánægður? Nei þvi fer fjarri”. Hann kvað ástæðuna þá, að hann gæti ekki farið frjáls ferða sinna fyrir lögsóknum og bætti við: ,,Ég vil ekki eyða ævinni i réttarsal, þar sem ég verð fyrir áreitni og ofsóknum óánægðs starfsmanns, sem ég hefi rekið”.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.