Tíminn - 16.02.1974, Qupperneq 13
Laugardagur 16. febrúar 1974.
TÍMINN
13
Verið að hagræða geymi á þilfari, svo að krani gæti lyft honum upp á bryggju. — Ljósmynd: Stefán
Pedersen.
Fyrirferðarmesta stykkið,
sem lyft hefur verið yfir
borðstokk á Króknum
Árekstur á loðnu-
miðunum
—hs—Rvik. Það mun einkum
hafa verið gáleysi, sem olli
árekstri loðnuskipanna Sigfúss
Bergmanns og Baldurs KE .
en þeir rákust saman,
þegar báðir voru að reyna við
sömu torfuna.
Tildrög árekstursins var sá, að
hvorugur skipstjóranna mun hafa
séð skip hins, og báðir verið með
skottið úti, þ.e tilbúnir til að
kasta. Baldur var hálfnaður með
kastið, þegar skipstjóri hans áá
Sigfús Bergmann og kallaði i tal-
stöðina. Sigfús reyndi að forðast
árekstur, en tókst ekki, og gekk
stefni Baldurs talsvert inn i siðu
hans, ofan sjávarmáls. Mun
Sigfús Bergmann talsvert
skemmdur og veiðir liklega ekki
meiri ioðnu á þessari vertið.
RAFLAGNIR samvirki
framleiðsiusamviimufélag RAFVXRKJA framleiðslusam
BARMAHLIÐ 4 sími 15-4-60 BARMAHLlÐ 4 sími 15-4-60
annast ALLAR ra-flagnir OG viðgerðir I r.
ANNAST allar RAfLAgMIR og VIÐGBRÐIR
0. P.IN ÞEKKTUSTU
\ AAERKI
ISVflffVB/c) norðurlanda
B4TTEFBER
TUDOR
7op
RAF-
GEYAAAR
6 og 12 volfa Sönnak og Tudor
Rafgeymar jafnan fyrirliggjandi
ARMULA 7 - SIMI 84450
GÓ—Sauðárkróki. — Fyrir
skömmu kom Helgafell hingað
með stærsta stykki, sem nokkurn
tima hefur verið skipað hér upp.
Voru það mjólkurgeymar handa
mjólkursamlaginu, 10,4 metrar á
hæð og fjórir metrar á breidd, en
Skagfirðingar eru nú mjög að
vélvæða mjólkuriðnaðinn.
Krani var fenginn frá Akranesi
til þess að ná geymunum af
skipsfjöl og koma þeim upp á
bryggjuna, en naumast var, að
hann hefði afl til þess, svo þungir
og fyrirferðarmiklir voru þeir.
Tókst það ekki fyrr en sett hafði
verið undir geymana og þeir
færðir út að borðstokknum.
Geymarnir biða enn á hafnar-
garðinum, en verða seinna færðir
að mjólkursamlaginu, þar sem
þeir verða reistir.
Iceland Review:
1974 verður reynsluór,
veglegt þjóðhótíðarblað
Upplag verður stærra, tölublöð færri en vandaðri
SP-Reykjavík, — útgefendur og
ritstjórar tímaritsins Iceland
Review, þeir Heimir Hannesson
og Haraldur J. Hamar, hafa nú
ákveðið að halda áfram útgáfu
ritsins á þessu ári, þjóðhátiðar-
árinu. Það verður eins konar
reynsluár, hvað áframhaldandi
útgáfu snertir, en vegna erfiðra
aðstæðna höfðu þeir Heimir og
Haraldur vart séð annað ráð en
að hætta útgáfu ritsins siðast liðið
haust, sem um leið var 10.
útgáfuár þess.
Sagði Heimir, er viðhöfðum tal
af honum, i gær, að hins vegar
væri óhjákvæmilegt, að tölublöð
ritsins 1974 yrðu færri en verið
hefur á undanförnum árum (þau
hafa að jafnaði verið fjögur á ári)
Aftur á móti yrði upplag stærra af
hverju tölublaði til þess að gera
útgáfuna hagkvæmari, og yrði
ritið e.t.v. einnig stærra og
vandaðra.
— Burtséð frá öðru, heföi okkur
þótt miður skemmtilegt að þurfa
að hætta útgáfu Iceland Review
einmitt nú á þjóðhátiðarárinu,
sagði Heimir.
Það sem liggur að baki
ákvörðunar okkar, er hinn mikli
skilningur og vinsemd, sem hinir
ýmsu aðilar hafa sýnt útgáfunni
og geysilegur áhugi þeirra á
Bændur
Við seljum dráttar-
vélan búvélar og allar
tegundir vörubila
BÍLASALAN
Bræöraborgarstig 22
Simi 26797.
áframhaldi hennar. Er okkur
þetta mikið fagnaðarefni. Opin-
berir aðilar, t.d. flugfélögin og út-
flutningsaðilar, hafa sýnt þessu
máli mikinn skilning, og höfum
við borið undir þá þær hug-
myndir, sem við höfum um til-
högun ritsinSá þessu reynsluári.
Allmargir aðilar eiga þó enn eftir
að tjá sig endanlega um þær,
sagði Heimir ennfremur.
Fyrsta tölublað Iceland Review
1974, sem koma mun út einhvern
tima á útmánuðum, verður helg-
að þjóðhátiðinni. Sagði Heimir,
að það gæti orðið upp undir 100 lit-
prentaðar siður, auk fréttablaðs,
sem fylgt hefur hverju tölublaði á
undanförnum árum.
Ekkert liggur á þessu stigi fyrir
um framhaldið á útgáfunni að
loknu þessu ári. — Enda þótt allir
aðilar hefðu ekki tjáð sig endan-
leg um þessa ákvörðun okkar,
gátum við hreinlega ekki beðið
lengur með hana, vegna þess
geysilega tima, sem þarf til
undirbúnings hvers tölublaðs.
Hvernig til tekst, verðum við svo
að meta siðar á þessu ári sagði
Heimir. Þá sagði hann, að þeir
hefðu ástæðu til að halda, að opin-
berir aðilar og útflutningsaðilar
myndu auka kaup sin á ritinu.
Iðnnemar vilja aðild
að lánasjóðnum
MANUDAGINN 11. febrúar sl.
hélt Skólafélag Iðnskólans i
Reykjavik félagsfund, þar sem
m.a. var til umræðu barátta iðn-
nema fyrir aðild nemenda i fram-
haldsdeildum skólans að Lána-
sjóði islenzkra námsmanna.
Á fundinn komu fulltrúar Iðn-
nemasambands Islands, og fjöll-
uðu þeir um lánasjóðinn og frum-
varp til laga um námslán og
námsstyrki, sem nú liggur fyrir
Alþingi. Einnig fjölluðu þeir um
þær breytingar, sem nú eiga sér
stað á iðnnámi i þá átt að leggja
niður meistarakerfið, þ.e. nám á
vinnustað, og færa námið inn i
iðnskólana. 1 LOK FUNDARINS
VAR SAMÞYKKT EFTIRFAR-
andi alyktun:
"Félagsfundur i Skólafélagi
Iðnskólans i Reykjavik, haldinn
11. febrúar 1974, krefst þess, að
iðnnemar i verknámsdeildum
I.R. fái nú þegar á yfirstandandi
Alþingi, aðild að Lánasjóði is-
lenzkra námsmanna.
Fundurinn bendir á þær breyting-
ar á iðnnámi, sem nú eiga sér
stað i þá átt að leggja niður
„meistarakerfið” og taka upp
iðnnám i skólum, og telur aðild
áðurnefndra nema að L.t.N. for-
sendu fyrir að sú breyting geti
orðið að veruleika i raun.”
Auglýsið í Tímanum
Auglýsing
um nauðungaruppboð
á minkabúrum i vörzlu Arctic»mink h.f.
Ósi, Skilmannahreppi, Borgarfjarðar-
sýslu.
Samkvæmt heimild i 54. grein laga nr. 59
1969 og eftir kröfu tollstjórans i Reykjavik
verða 104 minkabúr sem eru i vörzlu
Arctic-mink að Cýsi, i Skilmannahreppi,
seld á nauðungaruppboði til lúkningar
kröfum um aðflutningsgjöld tolla og sölu-
skatts auk vaxta og alls kostnaðar.
Uppboðið fer fram að Ósi mánudaginn 25.
febrúar 1974 kl. 15.
Borgarnesi 14. febrúar 1974.
Sýslumaðurinn í Mýra- og Borgarfjarðar-
sýslu
Ásgeir Pétursson.
Auglýsing
eftir
framboðs-
listum
í lögum félagsins er ákveðið, að kjör
stjórnar, trúnaðarmannaráðs og
varamanna skuli fara fram með allsherj-
aratkvæðagreiðslu og viðhöfð listakosn-
ing.
Samkvæmt þvi auglýsist hér með eftir
framboðslistum og skulu þeir hafa borizt
kjörstjórninni i skrifstofu félagsins eigi
siðar en þriðjudaginn 19. þ.m. kl. 17 og er
þá framboðsfrestur útrunninn.
Hverjum framboðslista skulu fylgja
meðmæli minnst 20 fullgildra
félagsmanna.
Kjörstjórnin.