Tíminn - 16.02.1974, Page 16

Tíminn - 16.02.1974, Page 16
 GBÐI fyrirgódan mat ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Þeir hafa alizt upp í alþýöulýðveldinu kinverska. „ÞVÍ SKAL HYLLA SJE TimamyndGE - OG Hægist um á Norðurlandi eftir mikið og hart áhlaup ÖVEÐRID, sem gekk yfir Noröurland, liefur nú lægt, að minnsta kosti I bili, en þó cr enn viða mugga. Mjög viða varð raf- mangslaust og simasambanda- lsut.en nú hcfur viðast verið bætt úr þvi til bráðabirgða, þótt ekki sé það alls staðar. Jón Jónsson, fréttaritari Timans á Skagaströnd, sagði, að þar hefði verið eitt mesta sterk- viðri, er kemur, sérstaklega eina nottina. Fólk, sem var að vinna i frystihúsinu, komst ekki nema skammt frá þvi á bilnum, erátti að flytja það heim. en trukkur frá Hvammstanga, sem staddur var þar út frá, tók að sér heim- flutninginn. Verkstjórinn kaus þó að gista hjá kunningja sinum i grennd við frystihúsið svo að skemmra yrði að fara að morgni. Simasambandslaust varð aldrei, þvi að jarðsimi er frá Blönduósi á Skagaströnd, en loftlinur, raf- magnslinur og simalinur þar ytra urðu fyrir skemmdum. Jóhann Þorvaldsson frétta- ritari Timans á Siglufirði, sagði, að ekki hefðu þar orðið teljandi skemmdir, og nú væru loðnubátar að streyma þangað með afla, einn komin og von á fimm eða sex til viðbótar. A Ólafsfirði var afar mikið brim, sagði Björn Stefánsson, fréttaritari Timans, þar, svo sem marka má af þvi, að sjór gekk viðstöðulaust yfir hafnargarðinn, sem sums staðar er á þriðja metra á hæð, og hreinsaði allt burt úr bili, sem nær lokið var við aðfylla igarðinum, þótt stórbjörg væru þar. Rafmagnslaust var þar um tima, en nú hefur verið bætt úr þvi. Drangur kom til Ólafsfjarðar bæði i fyrradag og gærmorgun. Vegurinn fyrir Ólafsfjarðar- múla hefur ekki verið ruddur vegna snjóflóðahættu, sem þó mun nú liðið hjá, þar sem blotnaði i miðvikudaginn og frysti siðan aftur. Hilmar Danielsson, fréttaritari Timans á Dalvik, kvað menn nú vera að ryðja veginn til Dalvikur. Þar brotnuðu simastaurar og raf- mangsstaurar vegna isingar og á tveim stöðum hafa fallið snjóflóð — annað hjá Melum i Svarfaðar- dal, er tók með sér gamalt fjár- hús, er hætt var að nota, og inni i Skiðadal. Austan megin Eyjafjarðar hefur þo kveðið meira að snjoflóðum, einkanlega i Dals- mynni, og hefur þar verið sam- bandslaust og rafmangslaust. Þormóður Jónsson, fréttaritari Timans á Húsavik, kvað loftlinur hafa slitnað i hluta kaupstaðar- ins, þar sem þær eru enn notaðar. MIKIL SNJÓFLÓÐ SJÖ, SVEINANA FRÁ KÍNA IV SA.sem á erindi um Trésmiðjuna Viði við Laugaveg, kemur að likindum auga á einn eða tvo glaðlega unga pilta, sem eru a 11- frábrugnir islenzkum jafnöldruni þeirra i útliti og klæðaburði. Þetta eru einstaklega kurteisir og viðkunnanlegir piltar og heita Sjö yun gang og Sjc yun liang og'erú frá Peking. Þeir eru báðir hér á vegum kin- verska sendiráðsins og hafa unnið i Viði i þrjár vikur fyrst og fremst til að læra islenzku, en einnig sækja þeir tima i málinu hjá Skúla Magnússyni. Piltarnir komu hingað i marz i fyrra og hafa unnið sitt af hverju fyrir sendiráð þjóðar sinnar hér. En á milli 10 og 20 Kinverjar eru hér á vegum þess. Sjö og Sje segjast hugsanlega munu verða sendiráðsmenn að atvinnu i framtiðinni, en þeir höfðu r.ýlokið gagnfræðaskóla- námi i Kina þegar þeir fóru hing- að. Við rákum augun i blá föt þeirra, svipuð verkamannaföt- um. Þennan klæðnað bera flestir Kinverjar og eru stúlkur i svipuð- um fötum og piltarnir. Þó eru stöku ungar stúlkur og konur i öðrum fötum, sem þeim finnst sennilega fara sér betur. Kin- versk börn eru einnig frábrugðin öðru fólki i þvisa landi i klæða- burði, þau eru i litskrúðugri og margvislegri fatnaði. „Þetta eru mjög þægileg föt”, segir Sjö og er hinn ánægðasti með „þjóðbún- inginn”. „Það er fallegt á tslandi og hér er gott fólk”, segja þeir Sjö og Sje. „Það er lika fallegt i Kina”, segja piltarnir, þótt þeir séu fæddir löngu eftir að keisarans hallir hættu að skina. Þeir fóru til Akureyrar i sumar til að skoða landið, en segjast ekki hafa ferð- azt mikið um Kina. Þeir hafa gaman af iþróttum, einkum þó borðtennis eins og fleiri landar þeirra, en einnig segja þeir knattspyrnu og körfu- bolta njóta vinsælda meöal landa þeirra. Ságt er að Kinverjar hafi mikið dálæti á börnum. Þeir Sje og Sjö virðastsannaþá kenningu. Smári Jónsson heitir snáði, sem er mik- iði Viði.en móðirhans vinnur þar i eldhúsinu. Hann er mikill vinur kinversku piltanna og kennir þeim islenzku. Sömu sögu er að segja um vinnufélaga þeirra Guð- mund Guðna Guðmundsson, sem kennirþeim visur á islenzku, „Sá ég spóa”, „Hani, krummi, hundur, svin” og fleiri. Hann hefur hvað þá annað gert um þá visu, sem er svona: „Ólik málin tala tvö, tungu sina og mina þvi skal hylla Sje og Sjö, sveinana frá Kina.” SJ í ÖNUNDARFIRÐI TF—Flateyri. — Siðan 1. febrúar hefur veriií hérhvöss norðaustan- átt og snjókoina. Aðfaranótt laugardagsins 9. febrúar jókst snjokoma mikið, og kyngdi niöur snjó i þrjá sólarhringa. Aðfaranótt þriðjudagsins 12. febrúar gerði hér aftakaveður af aust-norðaustri með snjókom- unni, og féllu þá snjóflóð um allan öundarfjörð og viða þar sem elztu menn muna ekki til, að snjó- SOLSJENITSYN KOAAINN TIL SVISS — Natalja bíður eftlr tilkynningu NTB—-Zurieh og Moskvu — Alexander Solsjenitsyn var fagn- að með lófataki og húrrahrópum, þegar hann kom með lest til Zurich i Sviss i gær, ásamt sviss- ncska lögfræðingnum sinum. Um tvö hundruð manns biðu á brauðatstöðinni i Zurich, og 20 lögreglumenn ruddu skáldinu braut gegnum þröngina. Solsjen- itsyn brosti og veifaði, en hann var mjög þreytulegur i útliti. Hann fór þegar til ibúðar lögfræð- ings sins, og þaðan reyndi hann áð hringja til konu sinnar i Moskvu. Frú Natalja biður enn eftir opinberri tilkynningu um að hún og börn hennar þrjú geti yfirgefið Sovétrikin. Vinir hennar sögðu i HLE A KOSNINGA- BARÁTTUNNI — vegna verkfallsins NTB—London. Leiðtogi brezku stjórnarandstöðunnar, Harold VVilson stakk upp á þvi i gær, aö gert yrði sólarhrings hlé á konsingabaráttunni i landinu til að gefa ieiðtogum flokkanna tækifæri til að ræða verkfall kola- námamanna við fulltrúa verka- mannanna. Tillaga Wilsons miðar að þvi, að leiðtogar þriggja stærstu flokkanna taki þátt i „toppfundi” með trúnaðarmönnum verkfalls- manna, fulltrúum rikisreknu kolanámanna og framámönnum i iðnaðinum. Formaður frjálslynda flokks- ins, Jeremy Thorpe, hefur þegar sagt, að hann vilji gjarnan taka þátt i slikum fundi, en formaður félags námamanna, Joe Gormley Frh. á bls. 6 gær, aö yiirvold hefðu ekki sagt orð við hana um málið. 1 skeyti frá Tass-fréttastofunni á mið- vikudag sagði, að hún og börnin gætu farið úr landi, þegar þau óskuðu þess. Natalja litur þó ekki á þetta skeyti sem jpinbera til- kynningu frá yfirvöldunum, og i ibúðinni i Gorkij-götu bendir ekk- ert til þess að búferlaflutningar standi fyrir dyrum. Að likindum kemur varla til flutninga fyrr en Solsjenitsyn hefur ákveðið, hvar hann vill setjast að, og hefur látið fjölskylduna vita. flóð hafi komið áður. Tvö snjóflóð féllu ofan að Flateyri, eins og venjulega úr Skollahvilft ofan við eyrina, og dreifðist það um svæð- iðfrá Sólbakka og út að efstu hús- um á Flateyri, og yfir kirkjugarð- inn. Annað snjóflóð kom utan við eyrina og tók raflinustaur og fisk- þurrkunarhjall, ásamt skreiðar- hjöllum, sem stóðu á Eyrarbót, utan vert á Flateyri. Enginn nú- lifandi man eftir, að þarna hafi hlaupið áður. Snjóflóð varð innanvert viö Flateyri á milli Sólbakka og Hvilftar og tók það 4 raflinu- staura og sjónvarpshús áhuga- manna, en i þvi var ein sendistöð i eign Landsimans eða sjónvarps- ins — en flytja átti hana á næst- unni. Snjóflóð varð d milli Veðrarár- bæjanna, og brotnuðu 13 raflinu- staurar á aðallinu og sveitalinu. Simalinan slitnaði á öllu svæðinu og fór allt i sjó fram. Miklar skemmdir uröu á sima innar i firðinum, og tilfinnanlegt tjón varð i Bjarnardal, en þar brotnuðu 20 staruar. Allt rafmagn fór af Flateyrar- hreppi, Mosvallahreppi og Ingjaldssandi i 10 tima á mánu- daginn var. Siminn fór lfka allur úr skorðum, en eitthvað var búið að laga hann i gær. HUNDRAÐ TIL- LÖGUR UM ORÐ Gsal—Reykjavik. — Samband islenzka sveitarfélaga stóö fyrir samkeppni um nýtt orð, sem gæti komið i staðinn fyrir orðin hreppur og kaupstaður. Skilafrcstur rann út urn sið- ustu mánaðamót, og bárust sambandinu tillögur l'rá um eitt hundrað aðilum. Dómnefnd hefur nútillögurn- ar til athugunar, en ekki er tirhasett, hvenær úrslit verða kynnt. 1 dómnefndinni eiga sæti, Patl Lindal borgarlög- maður. dr. Jakob Benedikts- son og Hallgrimur Dalberg ráðuneytisstjóri. Verðlaunin fyrir b'ezta orðið nema 10.000 krónum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.