Tíminn - 15.03.1974, Qupperneq 9
Föstudagur 15. marz 1974.
TÍMINN
9
Alvarlegar horfur í sölu-
málum lagmetisiðnaðarins
—hs—Rvík. t fréttabréfi
Sölustofnunar lagmetis frá 25.
febrúar er grein eftir örn Er-
lendsson, framkvæmdastjóra
S.L., þar sem hann fer nokkrum
orðum um erfiðleika lagmetis-
iðnaðarins, sem einkum stafa af
gifurlegum verðsveiflum, verð-
hækkunum og óhagstæðri gengis-
þróun Fer grein Arnar hér á eft-
ir:
Enda þótt allir timar séu sagðir
vera hinir siðustu og verstu, er
óhætt að fullyrða, að ytri aðstæð-
ur hefðu vart getað verið óhag-
stæðari þvi uppbyggingar- og
markaðsstarfi, sem hafið er hjá
Sölustofnun lagmetis.
Erfiðleikar í alþjóðlegum
viðskiptum
Annars vegar er um að ræða
ytri aðstæður, sem helzt minna á
árin fyrir heimskreppuna miklu,
og lýsa sér i geysilegum sveiflum
i verðlagi, þannig að verðlisti,
sem gefinn er út i dag, er ekki
gildur að mánuði liðnum. Gifur-
legar verðhækkanir á öllum
rekstrarvörum iðnaðarins gera
alla verðútreikninga óvissa og
veikja grundvöll framleiðslunn-
ar. Reynt er að mæta verð-
hækkanaflóði á rekstrarvörum og
hráefni, með þvi að hækka verð
framleiðslunnar. Sú verðhækkun
kemur þó ætið eftir á, og nær ekki
til gamalla og óafgreiddra samn-
inga. Hér stendur hinn smái höll-
um fæti i samkeppninni, enda er
þvi ekki að leyna, að S.L. hefur
orðið að höggva upp fyrir sig i
þeirri baráttu, sem hún háir i
samkeppni á erlendum mörkuð-
um. Vissulega mætti skrifa mikl-
um mun itarlegar um þetta sér-
staka ástand, sem einkennt hefur
árið 1973 og það sem af er árinu
1974, en rétt er að geta þess, að is-
lenzkir framleiðendur eru, hvað
þetta snertir að meira eða minna
leyti á sama báti og keppinautar
þeirra erlendis.
óhagstæð gengisþróun
Annað er ekki siður alvarlegt
fyrir stöðu og þróun lagmetis-
iðnaðarins nú, en það eru gengis-
málin og skráning islenzku krón-
unnar. 1 desember 1972 var gengi
islenzku krónunnar gagnvart
Bandarikjadollar fellt, og varð
staða hennar gagnvart dollar þá
kr. 97.50. Þetta skref var stigið
vegna vaxandi kostnaðar innan-
lands til þess að bæta sam-
keppnisaðstöðu islenzkra út-
flutningsvara á erlendum mörk-
uðum. Eftir þessa breytingu má
segja, að samkeppnisaðstaða lag-
metisiðnaðarins hafi verið viðun-
andi. Á árinu 1973 gripu stjórn-
völd til þess ráðs að hækka gengi
islenzku krónunnar, og nam sú
hækkun, miðað við ársbyrjun
1973, 12-14%. Engar breytingar
höfðu orðið á framleiðslugrund-
velli islenzkra útflutningsvara,
sem réttlættu eða kölluðu á þessa
gengishækkun. Það, sem gerzt
hafði, var að verðlagsþróun var
óvenju hagstæð á mörkuðum
meginútflutningsafurða tslend-
inga, þ.e.a.s. verðhækkanir urðu
á helztu markaðssvæðum vegna
aukinnar eftirspurnar á vörun-
um, en ekki, að þessar verð-
hækkanir væru knúnar fram
vegna almennrar hækkunar
framleiðslukostnaðar, eins og oft-
ast er. Þessi aðgerð — gengis-
hækkun —, sem gripið var til af
hálfu fjármálavaldsins, var ugg-
laust rökrétt og eðlileg, eins og
málum var háttað. Henni var ætl-
að að draga úr óeðlilega miklum
hagnaði viðkomandi útflutnings-
greina og jafnframt að lækka
verðlag á innfluttum vörum, og
draga þar með úr verðbólgunni.
Forsenda gengishækkunar
Forsenda gengishækkunarinn-
ar var eins og áður segir mjög
hagstæð viðskiptakjör, sem
helztu útflutningsgreinar íslend-
inga, þ.e. frystur fiskur, mjöl, lýsi
og saltfiskur nutu. Þessar for-
sendur voru þó ekki fyrir hendi
hjá öllum útflutningsgreinum,
þar á meðal ekki hjá lagmetis-
iðnaðinum. Á alþjóðlegum
mörkuðum hafa engar verð-
hækkanir á lagmeti átt sér stað i
likingu við það, sem hér var skýrt
frá. Einhverjar verðhækkanir
hafa orðið á timabilinu, en þær
hafa einungis verið knúnar fram
vegna almenns aukins
framleiðslukostnaðar, og á það
bæði við um framleiðslu hér á
landi og erlendis. M.a. hækkaði
hráefnisverð vegna gifurlegra
hækkana á frosnum fiski og mjöli,
og hafði það hér mikil áhrif.
Engar breytingar hafa heldur
orðið á rekstrarstöðu iðnaðarins,
sem geri eðlilegt, að framleiðend-
ur i lagmetisiðnaði fái 85 krónur
fyrir seldan dollar i staðinn fyrir
97 krónur. Jafnframt þessari
gengishækkun krónunnar gagn-
vart dollar (12-14%) hafa átt sér
stað lækkanir á gengi allra
mikilvægustu gjaldmiðla, bæði i
helztu markaðslöndum S.L. og i
löndum keppinauta okkar. Frá
þvi i júli 1973 hefur danska krónan
lækkað um u.þ.b. 19%, franski
frankinn u.þ.b. 21%, sterlings-
pundið u.þ.b. 12% og yenið um
12%. Þarna er einnig um óbeina
gengishækkun að ræða, sem er
ekki siður alvarleg, en sú, sem
áður var frá greint. Rétt er að
benda á'i þessu sambandi, að i
Evrópu og Japan eru helztu
markaðir S.L. 1 umræddum lönd-
um er einnig að finna helztu
keppinauta hennar, en
samkeppnisaðstaða þeirra batn-
ar til muna við þessa þróun
gengismála. Sökum þess, hve
tekjur lagmetisiðnaðarins, hafa
skerzt við þessar gengisbreyting-
ar, þurfti söluverð framleiðslunn-
ar að hækka verulega, svo að end-
ar næðu saman hjá framleiðend-
um. Þær hækkanir yrðu langt
fram yfir það, sem markaðurinn
gæti borið, og myndu dæma is-
lenzka lagmetisiðnaðinn úr leik á
öllum þeim mörkuðum, sem
nokkru máli skipta.
Á að fórna lagmetisiðnað-
inum?
Það er bersýnilegt, að þær
forsendur, sem fyrir gengislækk-
uninni lágu, m.a. hjá hraðfrysti-
iðnaðinum og mjölframleiðend-
um, voru ekki fyrir hendi, hvað
lagmetisiðnaðinn snertir. Þá er
spurningin: Á að fórna lagmetis-
iðnaðinum á altari þess
stjórnunartækis, sem gengis-
hækkun er, eða ætla stjórnvöld að
sýna sérstölu lagmetisiðnaðarins
og annarra útflutningsgreina
skilning og gera ráðstafanir sem
nauðsynlegar eru. Eitt er ljóst:
Lagmetisiðnaðurinn þolir ekki þá
skráningu á gengi islenzku krón-
unnar sem gildir nú enda er allt
útlit fyrir, að stóru samningarnir
séu nú komnir i strand vegna
óhagstæðrar gengisskráningar.
Ef ekkert verður að gert, veröur
sá mikli söluárangur, sem náðst
hefur og hið árangursrika
uppbyggingarstarf, sem hófst á
árinu 1973, að engu, og alvarleg
vá og rekstrarstöðvun fyrir dyr-
um hjá lagmetisiðnaðinum i land-
inu.
(Örn Erlendsson, fram-
kvæmdastjóri S.L.).
Eftirsóttasta dróttarvclin
Zetor 4718—47 hö.
.er sú vél sem mest selst. Zetor
4718 er millistærð sem sameinar kosti
minni og stærri véla. Lipur og
aflmikil dráttarvél með fullkomnum
búnaði, s. s. loftþjöppu, vökvahemlum,
lyftudráttarkróki og stillanlegu
loftpúðasæti svo eitthvað sé nefnt.
Kostar með öryggishúsi og miðstöð
um kr. 320 þús.
Zetor 5718—60 hö. og
Zetor 6718—70 hö.
Þær hafa meiri og betri tæknibúnað
en flestar aðrar dráttarvélar, svo sem
vökvastýri, tveggja hraða aflúrtak
(vinnudrif), loftþjöppu og vökvalyftu
dráttarkrók. Rúmgott, upphitað hús
og stillanlegt loftpúðasæti.
5718 kostar um kr. 420 þús.
6718 kostar um kr. 445 þús.
Zetor Crystal 85 hö.
er stærsta, aflmesta og fjölhæfasta
dráttarvélin frá Zetor. Ein tæknilega
fullkomnasta vélin á markaðnum,
með meiri og betri tæknibúnaði en
aðrar dráttarvélar.
Kostar um kr. 680 þús.
í fyrstu keyptu bændur Zetor dráttarvélarnar vegna þess að
þær voru mun ódýrari en sambærilegar vélar. Það eru þær enn.
En nú er fengin reynsla af afköstum þeirra, endingu og
rekstri. Þess vegna eykst eftirspurnin.
I öllum dráttarvélunum er „Zetormatic“, fjölvirkt vökvakerfi,
sem fullnýtir dráttarafl og er stillanlegt á mismunandi starfsrásir.
Biðjið um mynda- og verðlista, með yfirliti um tæknilegan
búnað. Leitið frekari upplýsinga sem fyrst.
ISTEKKf
Lágmúla 5 Sími 84525