Tíminn - 15.03.1974, Page 10

Tíminn - 15.03.1974, Page 10
10 TÍMINN Föstudagur 15. marz 1974. SKATTAFRUMVARPIÐ AF- GREITT TIL EFRI DEILDAR Umræðum og atkvæðagreiðslu um frumvarpið um skattkerfis- breytingu lauk i neðri deild Alþingis klukkan hálf tvö i fyrri nótt, og var frumvarpið afgreitt til efri deildar. Við atkvæðagreiðslu eftir aðra umræðu i gærkvöldi var fyrsti kafli frumvarpsins um sjálfa tekjuskattslækkunina samþykkt- ur, og hlutu einstakar greinar þess kafla frá tuttugu og fjórum til þrjátiu atkvæði. Sjöunda grein frumvarpsins, sem fjallar um fimm stiga sölu- skattshækkun, var hins vegar felld á jöfnum atkvæðum, aö við- höfðu nafnakalli, meö 20 atkvæð- um gegn 20. Gegn þessu ákvæði greiddu atkvæði allir þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna og Bjarni Guðnason, en þingmenn stjórnarflokkanna greiddu allir atkvæði með fimm stiga sölu- skattshækkuninni. nefndar, og tillögur frá Karvel Pálmasyni, Gils Guðmundssyni, og Þórarni Þórarinssyni. Við þriðju umræðu bar fjár- málaráðherra fram breytingatil- lögu til leiðréttingar á sambandi viö fall sjöundu greinar frum- varpsins, þar sem fjallað var um fimm stiga söluskattshækkunina, en f sömu grein voru ákvæðin um gildandi ellefu prósent söluskatt, og höfðu þau einnig fallið út við atkvæðagreiðsluna um greinina, og var þessi leiðrétting samþykkt einróma. önnur umræða um frumvarpið hófst i neöri deild 'kukkan 14 i fyrradag, en atkvæðagreiðslan eftir aðra umræðu hófst upp úr miðnætti og þriðju umræðu var lokið fyrir klukkan hálf tvö i fyrrinótt. Halldór E. Sigurðsson fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpinu um skattkerfis- breytingu i efri deild i gær, en eins og skýrt er frá annars staðar, voru ákvæðin um söluskatts- hækkunina felld niður úr frum- varpinu i neðri deild. Kvaðst Halldór enn treysta þvi, að þetta frumvarp myndi ná fram að ganga, þrátt fyrir það, sem á und- an væri gengið. Beindi hann þvi til deildarinnar aö taka upp að nýju* ákvæðin um hækkun sölu- skattsins, þar sem hún væri alger forsenda þess, að unnt væri að lækka tekjuskatta einstaklinga eins og samkomulagið við verka- lýðshreyfinguna grundvallar á. Einnig þyrfti að setja ákvæðið um 1.5% launaskatt inn að nýju. Næstir töluðu þeir Geir Hallgrimsson og Jón Armann Héðinsson, og benti málflutning- ur þeirra til þess, að afstaða Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu- flokksins til málsins væri óbreytt, þ.e. að þeir stefndu að þvi að fella frumvarpið. Var frumvarpinu siðan visað til 2. umræðu. Kaupstaðarréttindi til handa Seltjarnarnesi samþykkt Frumvarpið um kaup- staðarréttindi til handa Sel: tjarnarneshreppi var til 2. umræðu i neðri deild i gær. Félagsmálanefnd tók til baka tillögur sinar um að réttar- farsmálefni Seltjarnarness skyldu leggjast undir viðkom- andi embætti i Reykjavik, en lagði i þess stað til, að sýslu- maður Kjósarsýslu og bæjar- fógeti Hafnarfjarðar skuli jafnframt verða bæjarfógeti Seltjarnarnesskaupstaðar. Tillögur félagsmálanefndar voru samþykktar samhljóða og frumvarpið afgreitt þannig breytt til 3. umræðu. Formað- ur félagsmálanefndar boðaði, að þau önnur frumvörp, sem fyrir þinginu liggja um kaup- staöarréttindi, myndu einnig fá jákvæða afgreiðslu. íþróttafólk njóti slysatryggi Þá var samþykkt breytingatil- laga frá Sjálfstæðismönnum við ákvæði til bráðabirgða, sem felur i sér að fella niður eitt og hálft prósent launaskatt, sem renni i rikissjóð. Var þessi tillaga sam- þykkt með 21 atkvæði gegn 19. Auk stjórnarandstæðings greiddi Björn Pálsson tillögunni atkvæði. Loks var samþykkt tillaga fyrsta minnihluta fjárhags- og viðskiptanefndar, það er fulltrúa Sjálfstæðisfiokksins, þeirra Matthiasar Á. Mathiesen og Ás- bergs Sigurðssonar, um heimild til allt að 1500 milljón króna niðurskurðar á rikisútgjöldum. Var tillaga þessi samþykkt að viðhöfðu nafnakaUi með 22 atkvæðum gegn 18, en auk stjórnarandstæðinga greiddu til- lögunni atkvæði þeir ólafur Jó- hannesson forsætisráðherra og Björn Pálsson. Forsætisráðherra gerði þá grein fyrir atkvæði sinu, að hann teldi, að i tillögunni fælist slik traustsyfirlýsing á rikis- stjórnina, að hann áliti rétt, að til- lagan kæmi til athugunar i efri deild. Allar aðrar tillögur minni- hluta flokkanna voru felldar á jöfnum atkvæðum, 20gegn 20, þar á meðal tillaga þingmanna Alþýðuflokksins, sem Gylfi Þ. Glslason mælti fyrir i gær, um þrjú og hálft prósent söluskatts- hækkun. Samþykkt breytingatillaga frá sjávarútvegsráðherra um hækk- un á tekjufrádrætti sjómanna frá þvi, sem frumvarpið gerir ráð fyrir, og ennfremur nokkrar breytingatillögur frá Vilhjálmi Hjálmarssyni, formanni meiri- hluta fjárhags- og viðskipta- Þeir Björn Pálsson, Pálmi Jónsson, Pétur Pétursson og Gunnar Gislason hafa lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu þess efn- is, að aftur verði sett f lög, að Skagaströnd verði sérstakt læknishérað. 1 greinargerö með frumvarpinu segja flutningsmenn: Þegar lög um heilbrigðisþjón- ustu voru samþykkt á Alþingi 1973, var læknishérað á Skaga- strönd lagt niður og sameinað Blönduóshéraði. Við fluttum þá breytingartillögu við frumvarpið, en hún var felld meö eins atkvæö- is mun i neðri deild. Búið var að byggja læknisbústað á Skaga- strönd, og ibúar Höfðakauptúns kunna þvi illa að hafa eigi lækni búsettan þar. Vegasamband við Blönduós er sæmilegt, en veður eru hörð norður á Skaganum. Norðaustanhriðar geta geisað dag eftir dag, þannig að illfært sé Sex þingmenn hafa lagt fram á alþingi frumvarp til laga um breytingu á almannatrygginga- lögum þess efnis, að iþróttafólk njóti slysabóta úr almannatrygg- ingakcrfinu. i greinargerð mcð frumvarpinu segja flutnings- mennirnir, sem eru þeir Ellert Schram, Stefán Gunnlaugsson, Jónas Arnason, Karvel Pálma- son, Bjarni Guðnason og Jón Skaftason: I Frumvörp um þetta sama efni hafa oft áður verið flutt á Alþingi, en þrátt fyrir góðar undirtektir þingnefnda og áskoranir iþrótta- samtakanna eigi náð fram að ganga, og hefur þvi barátta fyrir þessum sjálfsögðu réttindum iþróttafólks staðið i marga ár- tugi. I Þau rök, sem mæla með sam- þykkt frumvarpsins, eru þessi: Eins og flestum, er til þekkja, er kunnugt, koma oft fyrir slys við iþróttaæfingar og iþrótta- keppni, án þess að um verði kennt óaðgætni eða slæmum útbúnaði iþróttatækja. Þeir, sem Iþróttir stunda, eru oftast ungt fólk og i flestum tilfellum félitið. ' I Augljóst er, að erfitt er fyrir þetta fólk að mæta skakkaföllum, sem það verður fyrir, þegar þaö verður lengri eð skemmri tima frá verki vegna slysa við iþrótta- iökanir. I Þennan vanda hefur Iþrótta- hreyfingin sjálf reynt að leysa á milli húsa. Fólkið finnur til öryggisleysis að hafa eigi lækni hjá sér i kauptúninu. Atvinnuástand er gott i Höfða- kauptúni og fólkinu fjölgar. Eigi er óliklegt, að eftir nokkur ár verði ibúatalan nær 1.000, þvi að fólkið er bjartsýnt og duglegt. Það á þvi skilið að njóta sæmilegs öryggis I heilbrigðismálum. Viö- urkenna ber, að litið er unniö við að hafa sérstök læknishéruð, ef eigi fást læknar til að starfa i þeim. Nokkur breyting viröist hafa orðið á i þvi efni, þannig að auðveldara virðist að fá lækna til aö starfa I dreifbýlinu en áöur var. Læknum fjölgar ört, og gróska er i atvinnulifi úti á lands- byggöinni. Eigi er þvi óliklegt, að læknir fá- ist til að starfa i Höföakauptúni, og er þvi tæpast rétt að haga lög- gjöf þannig, að það hindri, að ibú- ar Höfðakauptúns og vesturhluta Skagans geti búið við viðunandi öryggi i heilbrigðismálum. með myndun eigin slysatrygg- ingasjóða, sem þvi miður, eftir meira en áratugs starfsemi, hafa eigi getað fullnægt nema hluta af tryggingaþörfinni. Um raunhæfa lausn á þessu máli er þvi ekki að ræða, aðra en þá, að Iþróttaiðkendur njóti ákvæða almannatryggingalag- anna um slysabætur. Um sanngirni sliks máls má leiða fram mörg rök, en hér verð- ur aðeins bent á þýðingu iþrótt- anna fyrir uppeldi og hreysti æsk- unnar og reyndar allra þeirra, eldri sem yngri, er iðka iþróttir, og þvi fráleitt, að iþróttafélag njóti eigi ákvæða almannatrygg- inga um siysabætur við iþrótta- iðkanir. Vilhjálmur Hjálmarsson mælti I sameinuðu þingi fyrir skömmu fyrir tillögu, er hann flytur ásamt þeim Sverri Hermannssyni, Páli Þorsteinssyni og Eysteini Jóns- syni um verklega kennslu i sjó- mennsku og fiskveiðum og um út- gerð skólaskipa. Tillagan er svo- hljóðandi: „Alþingi ályktar að fela rikis- stjórninni að láta undirbúa lög- gjöf um verklega kennslu i sjó- mennsku og fiskveiðum og um rekstur skólaskipa. Skal að þvi stefnt að gera út aö sumarlagi eitt eða fleiri fiskiskip i hverjum landsfjórðungi, þar sem ungu fólki gæfist kostur á að læra al- gengustu handtök við sjómennsku og fiskveiðar. Jafnframt skal stefnt að þvi að gefa ungmennum kost á sams konar þjálfun á al- mennum fiskiskipum, enda komi til samþykki sjávarútvegsráðu- neytisins hverju sinni. Fela skal Fiskifélagi Islands að sjá um framkvæmdir. 1 framsöguræöu sinni sagði Vilhjálmur m.a.: Ég vil láta það koma fram hér, að hvatinn að þessum tillögu- flutningi er austan af fjörðum, frá Seyðisfirði, nánar tiltekið fra Ólafi Ólafssyni útgerðarmanni, sem er mikill áhugamaður um allt sem aö útgerð lýtur. Þessi hugmynd er ekki ný. Mér er t.d. kunnugt um það, að henni var hreyft i bæjarstjórn Seyðis- fjarðar fyrir 10-15 árum. Bæjar- stjórinn i Neskaupstað gerði seinna tilraun til að koma á fót út- gerð skólaskips þaðan. Og á Patreksfirði hefur útgerð skóla skips verið reynd með ágætum árangri. Fyrir henni hefur staðið Jón Magnússon skipstjóri þar. Eins og fyrr segir, hafa Iþrótta- samband Islands og Iþrótta- bandalag Reykjavikur rekið sjálfstæða slysatryggingasjóði, sem þó hafa ekki haft bolmagn til greiðslu fullnægjandi slysa- og kostnaðarbóta og hafa verið fjár- hagslegur baggi fyrir iþrótta- hreyfinguna. Hafa þessir sjóðir þó ekki staðið undir örorku- eða dánarbótum, og verður að telja það mikilvægasta nýmæli frum- varpsins, að gert er ráð fyrir greiðslu slikra bóta vegna slysa iþróttafólks, sem leiða til örorku eða dauða. Það er með öllu ósæmandi, að iþróttafólk á Islandi skuli ekki búa við þær slysatryggingar, sem i lögum um almannatryggingar Ahugi hefur verið mikill, og helztu erfiðleikarnir sagðir i þvi fólgnir að losna við ungu mennina, sem vildu halda áfram á veiðum, eftir að æfingatima þeirra lauk. Þá hefur einnig verið reynt á skipulegan hátt aö senda unga menn til þjálfunar sem aukaskip- verja á varpskipunum. Var það gert i samræmi við ályktun sem Alþingi gerði um það efni á sin- um tíma. Megintilgangurinn með þessum tillöguflutningi er að greiða fyrir þvi, að unnt verði að manna fisk- veiðiflota íslendinga hverju sinni. Það er og skoðun flutningsmanna, að ungt fólk hafi gott eitt af þvi að kynnast þess- um þætti atvinnulifsins, fá beina snertingu við hann á þann hátt, sem verkleg kennsla getur gefið. Slikt myndi glæða skilning unga fólksins á gildi þessa undirstöðu- atvinnuvegar íslendinga og veröa til þess að þroska það á margan hátt. Aður fyrr fengu menn uppeldi sitt i sjóþorpunum i nánum tengslum við smábátaútgerðina. NÚ er þetta viða gerbreytt. Bæirnir hafa stækkað, og um leiö hafa komið til fleiri starfsgrein- ar, sem auðveldara er að komast i tengsli við. Þannig fjarlægist unga fólkið sjávarútveginn i vax- andi mæli, miðað við það, sem áður var. Hér kemur það lika til, að nú er seta á skólabekk orðin miklu lengri og almennari en hún varfyrir nokkrum áratugum. Allt þetta veidur þvi, að þörf fyrir beina og skipulega kynningu á sjómennskunni fer vaxandi. Mér finnst lika vert að benda á, það alveg sérstaklega, að beina verklega kennslu i sjómanns- nga felast. Verður að telja eðlilegt, að sá fjárhagsvandi verði I fyrstu leystur sameiginlega af rikissjóði og iþróttahreyfingunni, en ágreiningur um iðgjaldagreiðslur hefur torveldað framgang þessa réttlætismáls. 1 þvi sambandi er hugsanlegt, að iþróttahreyfingin leggi fram höfuðstóla þeirra slysatrygginga- sjóða, sem hún nú rekur, enda verði þeir skoðaðir sem iðgjalda- greiðslur af hálfu iþrótta- hreyfingarinnar næstu árin. Með þvi ætti að létta á kostnaði rikis- sjóðs vegna þessarar laga- breytingar. Gert er ráð fyrir, að um þessi atriði verði nánar kveðið á i reglugerð. störfum er raunar hvergi að finna i hinu almenna skólakerfi lands- manna. Og hún er einnig mjög takmörkuð i sjálfum Sjomanna- skólanum. — Þess er einnig að gæta, aö sá skóli er aðeins fyrir litinn hluta af sjómannastéttinni, þ.e. fyrir yfirmennina. Þaö er vissulega vandi að undirbúa löggjöf um þetta efni. Þess vegna leggjum við til að skora á rikisstjórnina til að fá til þess færa menn, sem eru i nánum tengslum við sjávarútveginn t.d. frá Fiskifélagi Islands, frá sam- tökum skipstjórnarmanna og öðrum samtökum sjómanna og frá útvegsmönnum. I tillögu þessari felast aðeins þrjár efnislegar ábendingar. Það er bent á útgerð skólaskipa Við hugsum okkur, að skip yrðu tekin á leigu yfir sumartimann. Þau myndu flytja sig á milli ver- stöðva og taka hópa til æfinga á þessum og þessum staðnum. Þetta yrðu eins konar hreyfan- legar æfingabúðir. — 1 annan stað bendum við á þann möguleika, að veita tilsögn og þjálfun á al- mennum fiskiskipum, og þá undir leiðsögn valinna skipstjórnar- manna. Mörg hinna nýju skipa hafa Ibúöir fyrir fleiri en þá, sem venjulega starfa um borð. Þessi tilhögun hefur verið reynd á varöskipunum, eins og ég gat um áðan. Þar er auðvitað ekki um neina æfingu i fiskveiðum að ræða, heldur aðeins i sjó- mennsku en á fiskiskipum kæmi hvort tveggja til. — Þriðja ábendingin, sem kemur fram i þessari tillögu, er varðandi fram- kvæmdina. Við leggjum það til, að Fiskifélaginu sé falið að annast hana. Það hefur þegar Framhald á bls. 19 LÆKNIR KOMI Á SKAGASTRÖND VERKLEG KENNSLA í SJÓ- MENNSKU OG FISKVEIDUM

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.