Tíminn - 20.03.1974, Síða 1
Auglýsingadeild
TIMANS
Aðalstræti 7
____________/
Stúdentar ganga að
kjörborðinu í dag
Gsal-Reykjavik — I dag ganga
stúdentar Háskóla Islands að
kjörborðinu og kjósa um 13 menn,
sem aðalfulltrúa istúdentaráði og
einn sem sæti á bæði i háskóla-
ráði og stúdentaráði.
Að þessu sinni eru viðhafðar
listakosningar og bárust tvö
framboð, annað frá vinstri
mönnum i H.í. og hitt frá Vöku,
félagi lýðræðissinnaðrastúdenta.
Framboðsfrestur rann út 13.
marz og hefur frambjóðendum
verið úthlutað bókstöfum til að-
kenningar listum slnum. Það
kom i hlut Vöku-manna að bera
bókstafinn A, en vinstri menn
hlutu bókstafinnn B.
Kosningarétt hafa allir, sem
skráðir eru til náms i háskólanum
og kosningarnar eru leynilegar og
skriflegar.
A fundi stúdentaráðs 1. marz
s.l. var samþykkt samhljóða að
taka upp listakosningu til ráðsins.
Aður var kosið um frambjóð-
endur i hinum einstöku deildum
og hafði hver deild sinn fulltrúa i
ráðinu.
Ennfremur er að þessu sinni
bæði kosið til stúdentaráðs og til
háskólaráðs, en kosning eins
manns til háskólaráðs átti að fara
fram 10. febrúar s.l., en var þá
frestað og ákveðið að kjósa til
beggja ráðanna samtímis.
Nú er kosið um fulltrúa til
tveggja ára, bæði til stúdentaráðs
og háskólaráðs.
Efstu menn á B-lista framboðs-
lista vinstri manna eru: Sigurður
Tómasson, Islenzkunemi, Arnlin
óladóttir, læknanemi, Jón Sigur-
jónsson, liffræðinemi, Gylfi
Kristinsson, laganemi og Elisa-
bet Berta Bjarnadóttir norsku og
þýzkunemi. Til háskólaráðs:
Erling Ólafsson, Islenzkunemi.
Efstu menn á A-lista, fram-
boðslista Vökumanna eru:
Kjartan Gunnarsson, laganemi,
Bogi Agústsson, sagnfræðinemi,
Einar Brekkan, læknanemi, Arni
Gúnnarsson, viðskiptafræðinemi,
og Einar Stefánsson, læknanemi.
Til háskólaráðs: Markús Möller,
stærðfræðinemi.
Frh. á bls. 15
Kanna sannleiks
Þaðer ekki að þvi að spyrja, islendingar hafa löngum kunnað að meta gott veður, enda hefur það
orðið lengi legið á, að við ættum við mislyndara veðurfar að búa en flestar aðrar þjóðir. En hvort
sem sú trú á við rök að styðjast eða ekki, er hitt vist, islendingar hafa gefið veðrinu meiri gaum
en margir aðrir, enda ekki langt um liðið siðan mikill meirihluti þjóðarinnar vann flest sin verk
utan dyra. Við sjáum hér nemendur Fósturskólans nota góða veðrið, þegar sól skein i heiði og
norðangjólan, sem ofofter fylgifiskur sólskinsins I Reykjavik, lét svo Htið að hafa hægt um sig.
Timamynd Gunnar
I
gíldi Landnámu
— með rannsókn á myndunartíma
stendur i þessum gömlu bókum,
en við Einar ætlum að reyna að
styðja við bakið á Landnámu,
með þvi að komast að þvi hvenær
sandurinn hefur myndazt, sagði
Sigurður Þórarinsson að lokum.
Kolmunninn er gæðafæða
tilraunir Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins hafa gefizt vel
Skógasands
—hs—Reykjavik. Sigurður
Þórarinsson, jarðfræðingur, og
Einar Einarsson bóndi á
Skammadalshóíi, hafa undan-
farin sumur reynt að komast að
þvi, hvort frásagnir i Landnámu,
um að Skógasandur hafi myndazt
eftir landnám, séu réttar.
Sigurður sagði i viðtali, að lik-
lega yrði komizt til botns I þessu
máli i sumar, en ásamt honum og
Einari hafa nokkrir jarð-
fræðingar unnið að þessum rann-
sóknum yfir sumartimann.
Sagði Sigurður, að alltaf væri
verið að gagnrýna þessi fornu rit,
og efast um sannleiksgildi frá-
sagna þeirra, en reynt yrði að
komast að þvi, m.a. með rann-
sóknum á öskulögum úr Kötlu,
hvort rétt sé að sandurinn hafi
myndazt eftir landnám.
— Þaðer kannski allt lygi, sem
hs-Rvik — Ýmsar þjóðir kanna
nú möguleika á þvi að veiða
kolmunna i mjög stórum stíl, og
má þar nefna Norðmenn og
Breta. Ekki er ólíklegt, að Is-
lendingar eigi eftir að stunda
þessar veiðar á komandi árum og
vinna úr kolmunnanum mjöl, en
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
hefur gert tilraunir með
kolmunna til manneldis, og þykir
fiskurinn hin ágætasta fæða.
Timinn snéri sér til dr. Björns
Dagbjartssonar, sem unnið hefur
að þessjúm tilraunum á vegum
Rannsóknastofnunar fisk-
iðnaðarins, og bað hann að segja,
hvernig þær hefðu gengið.
Lítiö geymsluþol óslægöur
— Sumarið 1973 voru gerðar
nokkrar tilraunir með vinnslu
marnings úr slægðum og
hausuðum kolmunna, sagði
Björn, — og var hráefnisins aflað
i leiðangri með rannsóknaskipinu
Arna Friðrikssyni. Fiskurinn var
ýmist hausaður og slógdreginn og
frystur strax eftir veiði, eða
geymdur i is i tvo daga fyrir
aðgerð, eins og verða mundi ef
hann yrði fiuttur til lands af
miðunum.
Kolmunninn virtist geymast
a.m.k. tvo daga óslægður, ef hann
var vel isaður, en ekki mikið
lengur. Vera má að hann geymist
betur á öðrum árstimum, en þetta
var gert i júni.
Marningur
Það var unninn marningur úr
þessum slægða og hausaða
kolmunna i marningsvél hér á
stofnuninni, en slik vél mer fisk-
holdið og skilur frá bein og roð.
Heppilegast virtist að kljúfa fisk-
inn að endilöngu, eða nánast
fletja hann áður en hann var
settur i marningsvélina. Það
mætti hagsa sér, að fiskurinn yrði
slægður með vélum um borð og
jafnvel klofinn, en það þyrfti að
hreinsa hann betur að innan,
heldur en við gerðum, og er
útbúnaður til sliks á sumum
Frh. á bls. 15
A/largir hafa áhuga
á Bernhöftstorfunni
SJ—Reykjavik — Vmsir aðilar
hafa áhuga á að fá inni i húsunum
á Bcrnhoftstorfunni umdeildu.
A.m.k. þrir aðilar hafa komið
þcssari ósk formlega á framfæri
við Guðrúnu Jónsdóttur arkitekt,
formann Torfusamtakanna.
Guðrún mun koma máli þeirra á
framfæri við fjármálaráðherra
og rikisstjórnina, sem enn hefur
enga ákvörðun tekið um framtið
gömlu húsanna i Bernhöfts-
torfunni, hvort þau skuli friðuð
eða ckki, og ef þau fá að standa,
hvaða starfsemi verði þar innan-
dyra. Mörg önnur félög og ein-
staklingar hafa látið i ljósi áhuga
á að fá leigt I Torfunni.
Áðurnefndir þrir aðilar eru
Heimilisiðnaðarfélagið, en á
vegum þess yrði i Bernhöftstorfu
námskeiðahald og e.t.v.
verzlun, veitingamenn, sem vilja
reka þar litla kaffistofu, og fata-
hönnuðir, sem hafa hug á að
koma upp sauma- og teiknistofu
meðsöluaðstöðu. Þessum aðilum
er það öllum sameiginlegt.að
þeir þurfa að fá leigusamning til
langs tima.
Ahugi er á, að Ferðaskrifstofa
rikisins fái húsnæði i Bernhöfts-
torfu t.d. fyrir fyrirlestrahald.
auglýsingateiknarar vilja fá
húsnæði þar og hárskeri einn
hefur hug á að setja þar upp
rakarastofu.
Askipað er i allan norðurhluta
húsasamstæðunnar, ef óskir
þeirra, sem ákveðnastir eru að
vilja fá inni i Bernhöftstorfunni,
verða uppfylltar.
Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur
er alveg eftir að ræða um með
hverjum hætti leigusamningar
gætu orðið — Ég bið eftir að ná
tali af fjármálaráðherra, sagði
hún.
Frumvarpið um skattkerfisbreytingu í neðri deild í dag:
STJÓRNIN BÝÐUR 4% í STAÐ 5%
SÖLUSKATTS TIL SAMKOMULAGS
Enn ekki vitað, hvort stjórnarandstaðan
þiggur tilboð ríkisstjórnarinnar
TK—Reykjavik — Rikisstjórnin
liefur lagt fyrir fulltrúa stjórnar-
andstöðuflokkanna tilboð til sam-
komulags i deilunni um frum-
varpið til skattbreytingar þcss
efnis að lækka söluskattsaukann
úr 5 prósentustigum i 4 prósentu-
stig isöluskatti. Mun rikisstjórnin
flytja þessa breytingatillögu við
frumvarpið i dag, er það kemur
tii neðri deildar að nýju til einnr-
ar umræðu eftir breytingar á
frumvarpinu til upphaflegs forms
i efri deild.
Við þessa einu umræðu i neðri
deild koma aöeins breytingatil-
lögur til atkvæða og siðan frum-
varpið i heild og veröa einstakar
greinar frumvarpsins,eins og þaö
kemur frá efri deild, ekki bornar
upp. Vitað er. að stjórnarand-
staðan vill fá fram fleiri breyt-
ingar á frumvarpinu en lækkun
söluskattsins um eitt prósentu-
stig. Breytingatillögur þær. sem
ágreiningur er um milli stjórnar-
liðs og stjórnarandstöðu, munu
þá falla á jöfnum atkvæðum, ef
fylkingar riðlast ekki. Kemur
siðan frumvarpið til atkvæða i
heild. Reynir þá á, hvort
stjórnarandstaðan metur þetta
sa mkomulagstilboð rikis-
stjórnarinnar um lækkun sölu-
skattsaukans. Reiknað er með, að
umræðan i neðri deild hefjist kl.
14 i dag, en frumvarpið verður að
fara að nýju til efri deildar eftir
afgreiðslu neðri deildar, ef gerðar
verða breytingar á frumvarpinu
þar.