Tíminn - 09.07.1974, Qupperneq 3
Þriðjudagur 9. júli 1974
TÍMINN
3
jonn cotler, aöstoOarforstjóri Carson’s (til vmstri) og aðstoðarfólk hans á fundi með fréttamönnum i
gærdag. Timamynd: Hóbert.
íslenzka ullin kynnt
í Bandaríkjunum
GB—Reykjavik — Hér á landi
eru nú staddir fimm erlendir full-
trúar á vegum Gtflutningsmið-
stöðvar Iðnaðarins, og islenzkra
útflutningsfyrirtækja i ullariðn-
aði. Þetta fólk er frá Fyrirtækinu
Carson’ s Pirie og Scott, sem
rekur stórverzlun i Chicago og
starfrækir ásamt aðalverzlun-
inni, 23 útibú i helztu borgum
Illinoisfylkis. Hjá Carson er fyrir-
huguð opnun tveggja nýrra úti-
búa á þessu ári og eins útibús á
árinu 1975. Hjá fyrirtækinu starfa
um ellefu þúsund manns.
Carsons ’s, Pirie og Scott, sem
var stofnað árið 1854 af þremur
Skotum, hefur kynnt vörur frá
Norðurlöndum með sölu- og aug-
lýsingaherferðum ár hvert frá
árinu 1960. Arangurinn hefur
verið stóraukin sala á vörum frá
Norðurlöndum og sérstök
Norðurlandadeild hefur verið
opnuð. Auk verzlunarreksturs
rekur fyrirtækið svokallaða póst
verzlun Góður markaður er i
Illionisfylki, þar sem stór hluti
ibúanna er af norrænu bergi
brotinn, en það munu vera um 8-9
milljónir manna, sem búa i fylk-
inu. Aöstoðarforstjóri Carson’ s,
John Cotter, er nú staddur hér
ásamt aðstoðarfólki sinu, til að
ganga frá söluherferð fyrir
islenzkar vörur, bæði i verzlunum
sinum og fyrir póstverzlunina.
Aætlun þessi er þriþætt: Fyrsta
skrefið er að koma upp Islands-
deiidum i allt að sex stærstu
verzlunarhúsum Carson’ s Hug-
myndin, er að þar verði eingóngu
seldar islenzkar vörur, megin-
hlutinn ullarvörur, og ennfremur
gjafavörur og fleira. Ráðgert, er,
að tslandsdeildin verði útbúin og
skreytt, þannig, að hún hafi á sér
islenzkan blæ. 1 öðru lagi verður
gefin út myndskreyttur pöntunar-
listi um islenzkar vörur. Ætlunin
er að hafa listann um 12 siður,
með litmyndum af Islenzkum
vörum og senda hann til fastra
viðskiptavina fyrirtækisins, en
þeir eru um fjögur hundruð
þúsund. Þriðja verkefnið er að
útbúa myndefni fyrir jólapóst-
lista Carson’ s Á siðasta ári var
ein siða i listanum ætluð
Islenzkum ullarvörum og
heppnaðist mjög vel. Nú eru þeim
ætlaðar 2-3 siður i jólalistanum.
Norræn töl-
fræðihandbók
1973
KOMIN er út Norræn tölfræði-
handbók 1973 (Yearbook of Nor-
dic Statistics), sem gefin er út af
Norðurlandaráði og Norrænu töl-
fræðistofnuninni I Kaupmanna-
höfn, er sér um samningu rits
þessa. Er þetta 12. árgangur þess.
Norræna tölfræðistofnunin er á
vegum hagstofa Norðurianða.
Til þessara verkefna á að verja
um þrjátiu þúsund dollurum eða
um það bil þrem milljónum isl.
króna. Má fullyrða, að hér sé
hafin umfangsmesta söluherferð
fyrir islenzkar vörur, sem
eríendir aðilar hafa skipulag í
Bandarikjunum. Aðaláherzlan er
lögð á sölu ullarvara, en Carson’
s hefur selt islenzkar ullarvörur
frá 1970. I vikunni eru svo
væntanlegir ljósmyndarar
hingað til lands, og er ætluninn,
að þeir taki myndir fyrir
pöntunarlistana, og fyrirsætur-
nar verði islenzkar. Loftleiðir hf.
og viðskiptafulltrúi Islands i New
York og ræðismaðurinn i
Chicago, Paul Johnson, hafa veitt
fyrirgreiðslu og aðstoð við undir-
búning kynnisferðar þessarar frá
Carson’ s.
Rit þetta er einkum ætlað til
kynningar Norðurlanda á
alþjóðavettivangi, og er það þvi á
ensku, en með sænskum skýring-
um. Upplýsingasvið ritsins er
mjög vitt. Það er 275 blaðsiður og
I þvl eru 202 töflur, auk linurita og
korta. I hverri töflu eru sambæri-
legar tölur fyrir Norðurlönd um
það efni, sem hún fjallar um, og
að sjálfsögðu eru þar með tölur
fyrrir ísland, sem Hagstofan
hefur látið i té, þó ekki I öllum
töf lum.
Veiði að glæðast
Grimsá
Veiðihornið hringdi i Þórunni
ráðskonu við Grimsá i gær, og
tjáði hún okkur að heldur væri
veiöin að glæðast, en hún
hefurverið fremur dræm. Nú
eru komnir 270 laxar á land,
og er þetta yfirleitt vænn
fiskur, þyngdin þetta um
fimm til tiu pund að meðal-
lagi. Þórunn sagði að það væri
ágætis veiðiveður, sólarlaust
og svolitil rigning. Hún sagði
okkur sögu af heldur
óheppnum veiðimanni. Hann
var að veiða i gærmorgun, og
missti hvorki meira né minna
en þrjá laxa. Og auðvitað
voru þeir allir mjög stórir.
Hann hafði átt við einn laxinn
I um fjörutiu minútur, en
missti hann rétt i þeim svifum
þegar hann ætlaði að landa
honum.
Hitará
Hallbjörn Sigurðsson, bóndi i
Krossholti, sagði að heldur
væri veiðin lakari en siðast-
liðið ár. Það erGrettistak hf. i
Reykjavik, sem hefur ána á
leigu eins og undanfarin ár.
Sjö stengur eru leyfðar i ánni,
en veiðin hófst 12 júni. Ekki
gat Hallbjörn gefið okkur upp
neinar tölur um hve mörgum
löxum hefði verið landað, en
enginn simi er i veiðihúsinu
viö Hitará. Vonandi fáum við
þó fljótlega nánari fréttir sem
við getum sagt frá
Silungsveiði i Huna-
vatni.
Guömundur Jónasson, Asi
Vatnsdal, fræddi Veiðihornið
um að Silungsveiði I Húna-
vatni hefði verið með af-
brigðum góð I vor og sumar.
Eftir 10. júni, er netaveiði
bönnuð i vatninu, en nú er
veitt á átta stangir. Arnaldur
Þór sagði okkur, að algengt
hefði verið áður en laxatiminn
byrjaði, að fjörutiu til fimmtiu
silungar hefðu veiðzt á stöng,
á einum degi.
Vatnsdalsá.
Arnaldur Þór hafði samband
við Veiðihornið I gær, og sagði
hann að 87 laxar væru nú
komnir á larid. Yfirleitt væru
þeir mjög stórir, og að við-
burður væri ef það veiddist
lax undir 10 pundum. Veiðin
hefður verið heldur dræm, en
nóg af laxi virðist samt vera i
ánni, en eins og kunnugt er er
þar aðeins veitt a flugu og eru
fjórar stangir leyfðar. Þetta
er þó nokkuð minni veiði
heldur en á sama tima I fyrra.
Þó veiddust á tveim dögum
nýlega, 31, lax. Arnaldur
sagði okkur frá þvi, að lax
hefði veiðzt um þrjátiu kilo-
metra með ánni, og hefði hann
verið grálúsungur. Með
öðrum orðum, laxinn hefur
farið 30 km i einni striklotu. 1
gær byrjuðu útlendingar veiði
i ánni.
Aðeins tímasóun?
Forseti tslands ákvað að fela Geir Hall-
grimssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins,
könnun á myndun rikisstjórnar. Ekki skal sú
ákvörðun gagnrýnd, en ljóst er þó, að stjórnar-
myndun undir forystu Geirs Hallgrimssonar
verður mjög erfið. Á það ber að llta, að tveir
stærstu stjórnarfiokkarnir héldu algerlega
velli i kosningunum, og annar þeirra bætti við
sig þingsæti. Fylgisaukning Sjálfstæðisfiokks-
ins var þvi ekki á kostnað Framsóknarflokks-
ins eða Alþýðubandalagsins.
Það mun ráðast á næstu dögum eða vikum,
hvort formanni Sjálfstæðisflokksins tekst
stjórnarmyndun, en það er hald margra, að litil von sé um það, aö
Geir Hallgrimssyni takist stjórnarmyndun. Má raunár lesa það út
úr leiðara Mbl. á sunnudaginn. Hitt er ljóst, að stjórnarmyndun má
ekki dragast lengi. Sú rikisstjórn, sem við tckur, þarf að snúa sér
tafarlaust að lausn efnahagsvandans á grundvelli tillagna Ólafs
Jóhannessonar, forsætisráðherra.
„Heimatilbúinn vandi" Mbl.
Þvi var óspart haldið fram I Mbi. fyrir kosningarnar, að vandinn,
sem við er að fást I efnahagsmálum væri heimatilbúinn cg sök rikis-
stjórnarinnar.
Núna, þegar mesti kosningamóðurinn er runninn af Mbl. og rit-
stjórar blaðsins eru að komast aftur i snertingu við jörðina, bregö-
ur svo við, að birtur er kafli úr ræðu Sveins Benediktssonar, for-
manns Félags isl. fiskimjölsframleiðenda, þar sem hann gerir grein
fyrir þeirri miklu verðlækkun, sem átt hefur sér stað á fiskmjöli.
Segir Sveinn, að nú standi sakir þannig, að verðið á fiskmjöli sé fall-
ið um helming og kaupendur virðist hafa dregið sig í hlé i von um
enn frekari lækkun.
Enn fremur segir Sveinn Benediktsson, að
margirverksmiðjueigendur.sem Htið eða ekk-
ert höfðu selt fyrirfrain, hafa talið sig biða svo
mikiö tjón, ef þeir seldu á þvi lækkaða verði,
sem völ var á, aö þeir fengju ekki undir þvi
risið og yrðu þeir að biða átekta og sjá, hvort
ekki rættist úr verðinu. Ennþá væru þvi óseld
um 20 þúsund tonn af loðnumjöli af þeim 67
þúsund tonnum, sem framleidd voru á vertið-
inni.
Það segir sig sjálft, að þegar slikt verðhrun á
sér stað á þessum þýðingarmiklu útflutnings-
afurðum okkar, hefur það gifurleg áhrif á af-
komu þjóðarbúsins. Sem betur fer bendir ýmislegt til þess, að verö-
fall á fiskmjöli sé að stöðvast, þó að enn sé fullsnemmt aö spá
nokkru um framvindu þeirra mála. En þetta færir okkur heim sann-
inn um það, sem raunar var vitað, hversu varnarlausir við íslend-
ingar erum gagnvart markaðssveiflum erlendis. Sá vandi er ekki
heimatilbúinn.
— a.þ.
Tregt hjá Siglu-
fjarðartogurunum
- hs-Rvik. — Afli hefur verið held-
ur tregur hjá hinum tveimur
skuttogurum útgerðarfyrirtækis-
ins Þormóðs ramma h.f. á Siglu-
firði undanfarið, en vonir standa
til að úr fari að rætast.
Stálvik kom fyrir skömmu úr
sinni 3. veiðiferð, eftir að gert var
við vélar skipsins i Noregi, með
130 tonn, og hinn nýi skuttogari
fyrirtækisins, Sigluvik, sem kom
nýr til landsins i april s.l., er
væntanlegur um eða upp úr miðri
viku með talsvert á annað hundr-
að tonn
Sigluvik er smiðaður á Spáni,
einn af 6 togurum sem allir voru
eins, eða um 400 lestir. Togarinn
er nú i sinni fimmtu veiðiferð.
3.395 hrein-
dýr á landinu
— heimilt að veiða 850 dýr
Fyrir skömmu fór fram talning
hreindýra og reyndust þau vera
3.395, þar af 624 kálfar. Hins veg-
ar gera tainingarmennirnir ráð
fyrir, að þrátt fyri góð leitarskil-
yrði megi ætla að dýrin séu allt að
10% fleiri eða rúmlega 3.700.
Talningin fór fram samkvæmt
loftmyndum er teknar voru úr
flugvél og önnuðust þeir Ingvi
Þorsteinsson og Agúst Guð-
mundsson talninguna.
Menntamálaráðuneytið hefur
gefið út reglur um hreindýraveið-
ar á Austurlandi árið 1974 þar
sem heimilað er að veiða allt að
850 hreindýr á timabilinu 1. ág.
til 15. september. Fleiri sveitarfé-
lög fá nú hlutdeild i veiðinni en
áður eða samtals 27, en ekki
nema 17 I fyrra.
Sameiginleg
vatnsveita
S.J.-Vorsabæ. — Föstudaginn 28.
júni s.l. héldu Gaulverjabæjar-
hreppur og Villingaholtshreppur
sameiginlegan fund með hrepps-
búum, þar sem til umræðu var
sameignlegt vatnsveitumál
hreppanna.
Um 70 búendur eru i hreppun-
um báðum. en samkvæmt könn-
.vun sem gerð var fyrir ekki alls
löngu, reyndust vatnsból á 10-20
bæjuvn verulega menguð. Er þvi
ekki vanþörf á þessari vatns-
veitu, sem mjög lauslega áætlað
kostar um 30 milljónir.
Á fundinum urðu nokkrar
umræður, en i lokin var samþykkt
einróma, að fela hreppsnefndum
að sjá um að vatnsveitan verði að
veruleika.