Tíminn - 09.07.1974, Qupperneq 5
Þriðjudagur 9. júli 1974
TÍMINN
5
Aðalfundur norrænu bændasamtakanna:
Fjölskyldubúskapurinn
er og verður mikilvægur
— gjöfult ræktunarland skal nytjað til búvöruframleiðslu
A aðalfundi norrænu bænda-
samtakanna NBC, sem haldinn
var á Akureyri 1. og 2. júli var til
umræðu m.a. að aiþjóðasamning-
ar um birgðasöfnun og vöruvið-
skipti séu nauðsynlegir til þess að
treysta verðlagsöryggi og leggja
verður áherzlu á, að þetta gildi
jafnt um búvöru og aðrar tegund-
ir neyzluvöru almennings.
Jafnframt og hafður er hemill á
aukinni framleiðslu matvæla
verður að gera aðrar nauðsynleg-
ar ráðstafanir er miða að þvi að
tryggja þó öryggi um, að þörfum
þjóðanna á þessu sviði sé full-
nægt.
í háþróuðum löndum hvilir
ábyrgð á þjóðunum i þessum efn-
um. Þróunarþjóðirnar þarfnast
aðstoðar, en þó fyrst og fremst til
þess að auka eigin framleiðslu og
með það að markmiði hljóta
Norðurlandaþjóðirnar að veita
aðstoð, þær verða að veita hjálp
til þess að efla landbúnaðinn svo
að framleiðsla þróunarþjóðanna
verði I hlutfalli við neyzluþörf
þeirra.
Þing það i Rómaborg, sem
framundan er og fjalla skal um
matvælaframleiðslu, veitir gott
tækifæri til að ræða þessi mál og
komast að kjarna'þeirra. Skapa
verður öryggi fyrir þvi, að fram-
fylgt verði i verknaði ályktunum
þeim, sem þar verða samþykkt-
ar. 1 þvi sambandi hlýtur aðal-
fundurinn að undirstrika hversu
mikilvægt er, að búvöruframleið-
endur mæti þar sem fulltrúar,
þegar fjalla skal um matvæla-
framleiðslu þjóðanna á alheims-
vettvangi.
Með tilliti til ástands þess, sem
rikir I umheiminum, hlýtur fjöl-
skyldubúskapur norrænna þjóða
að vera og verða þýðingarmikill
og vaxandi i nútið og framtfð.
Vandamálin, sem landbúnaður-
inn á við að etja um öll Norður-
lönd, er i megindráttum með
sömu sérkennum. Það veldur al-
mennum áhyggjum sú augljósa
staöreynd, að gott og gjöfult
ræktunarland er keypt og nytjað
til allt annarra þarfa en til
búvöruframleiðslu, og minnir i
þvi sambandi á, að bóndinn er
framleiðandi búvöru en ekki
braskari.
Nefnd skipuð af NBC hlýtur að
bregöast við rösklega og ræða
málin ásamt skattamálum og
fjármögnunarleiðum. Ennfremur
benti aðalfundurinn á, að fjöl-
skyldubúskapur styður að um-
hverfisvernd. Matvælafram-
leiöslan er nauðsynleg og i ljósi
þessara staðreynda er ástæða til
að undirstrika að fjölskyldu-
búskapur er ófrávikjanleg nauð-
syn I nútima þjóðfélagi.
A aðalfundi NBC mættu að
þessu sinni 122 fulltrúar, þar af
voru 18 íslendingar. Margir
fulltrúanna höfðu með sér gesti,
samtals var hópurinn sem kom
frá hinum Norðurlöndunum 157
manns.
'ferðafólk>
Munið Hótel
ÞÓRISTÚN
Eina gistihúsið á
V SELFOSSI >
Happdrætti
Blindra-
félagsins
Dregið var i Byggingahapp-
drætti Blindrafélagsins þann 5.
júli, og kom vinningur upp á miða
nr. 1922.
Allir miðar seldust og er
það 4. árið i röð sem slikur árang-
ur næst. Blindrafélagið vill af þvi
tilefni þakka landsmönnum öllum
sérstaklega fyrir góðar undir-
tektir og veittan stuðning nú sem
á undanförnum árum.
Vinningurinn er Toyota Mark II
2300 1974 að verðmæti kr.
700.000,00.
Rafsuðu
T Æl/B handhæg
I /Cl\| og ódýr
Þyngd 18 kg
Sjóðavír 2,5 og
3,25 mm
ARMULA 7 - SIMI 84450
Busatis sláttuþyrlan er örugg og einföld f notkun.
Hæöarstilling hnífs frá jörð er nákvæm, og þyrlan fylgir
mishæðum landslags mjög vel.
Góð varahlutaþjónusta.
tvær breiddir Busatis sláttuþyrla, 135 og 165 sm
Tilbúnar til afgreiðslu strax.
A/
32 • REYKJAVÍK -.SiMI 86500 • SlMNEFNI ICETRACTORS
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
VÍFILSSTAÐASPÍTALI
FóSTRA óskast til að annast dag-
heimili fyrirbörn starfsfólks. Upp-
lýsingar veitir forstöðukona, simi
42800.
HJCRKUNARKONUR óskast á
nætur og dagvaktir, til afleysinga
og i fast starf. Vinna hluta úr starfi
kemur til greina.
SJÚKRALIÐAR óskast til starfa á
hinar ýmsu deildir. Vinna hluta úr
starfi kemur til greina. Upplýsing-
ar veitir forstöðukona, simi 42800.
ÞVOTTAHÚS RÍKISSPÍTAL-
ANNA
ÞVOTTAMAÐUR óskast til starfa
sem fyrst. Upplýsingar veitir for-
stöðukona. Simi 81714.
SAUMAKONUR óskast til afleys-
inga og i fast starf. Upplýsingar
veitir yfirsaumakona, simi 81714.
LANDSPÍTALINN
RÖNTGENTÆKJAEFTIRLITS-
MAÐUR óskast til starfa hjá eðlis-
fræði og tæknideild. Starfið er fólg-
ið i eftirliti og viðhaldi röntgen-
tækja utan Reykjavikur. Upplýs-
ingar veitir forstöðumaður deild-
arinnar, simi 24160.
RÖNTGENTÆKNAR Óskast til
starfa við röntgendeild spitalans.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst
n.k. Nánari upplýsingar veitir yfir-
hjúkrunarkona deildarinnar. Simi
19504.
STARFSSTÚLKUR óskast til af-
leysinga i sumar og i fast starf til
ræstinga. Vinna hluta úr fullu
starfi kemur til greina. Upplýsing-
ar veitir ræstingastjóri, simi 24160.
Reykjavik 5. júli, 1974.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SÍM111765
Tímínn er
peningar