Tíminn - 07.09.1974, Blaðsíða 1
SLONGUR
BARKAR
TENGI
Landvélar hf
íslendingaþættir
fylgja blaðinu
í dag
— þeir eru
16 síður að þessu
sinni
4000
nemendur í
mennta-
skólunum
— sjó bls. 3
•
GESTURINN
I 30 DAGA
VARÐHALD
— óvíst hvað olli
dauða gamla
mannsins
— sjd bls. 3
Viltu
hætta að
reykja?
sjd bls. 6
Alþýðubandalagið
og Samtökin
snúast gegn fyrri
stefnu
— sjd leiðara
d bls. 7
Ástæða til
að athuga gerð
fasteigna-
samninga
— segir Baldur
Möller rdðuneytis-
stjóri — sjd bls. 9
•
MORÐ I
SÚGANDA-
FIRÐI
— í nýrri
íslenzkri kvik-
mynd
sjd bls. 16
iiMl
167. tölublað — Laugardagur 8. september — 58. árgangur.
Dömur!
Nýjung!
DRESSFORM fatnaður loks á
íslandi
iPantið bækling núna
33373
Sjálfvirkur simsvari allan
sólarhringinn.
Póstverzlunin
Heimaval/ Kópavogi.
Finnskur prestur predikar:
Kirkjugest-
ir heyrn-
leysingjar
— fyrsta guðsþjónusta, sem flutt
er ó tóknmóli hérlendis
HJ-Reykjavik. t gærkvöldi kom
hingað til iands finnski presturinn
Eino Savisaari. Það er i sjálfu
sér ekkert tiitökumál, að hingaö
komi prestur eriendis frá, en hitt
er öllu óvenjulegra, að hann mun
flytja hér guðsþjónustu fyrir
heyrnardaufa. Séra Eino er einn
af fimm prestum fyrir heyrnar-
laust fólk I Finnlandi, og fiytur
hann prédikanir sinar á táknmáli,
auk þess sem hann talar á
sænsku. Hann er hér á iandi i boði
Foreldra- og styrktarfélags
heyrnardaufra og mun flytja eina
guðsþjónustu i safnarðarheimili
Grensássóknar næstkomandi
sunnudag ki. 14.00. Auk þess mun
hann flytja erindi á aðalfundi fé-
lagsins, sem hefst kl. 16 i dag,
laugardag i Norræna húsinu.
Timinn kom að máli við Jón Er-
lings Jónsson, formann Foreldra-
og styrkarfélags heyrnardaufra,
til að grennslast fyrir um nánari
tildrög þessa máls og fá vitneskju
um málefni heyrnardaufra hér á
landi nú.
Jón kvað foreldrafélagið hafa
verið stofnað upp úr
rauðu-hundafaraldrinum, sem
hér geisaði árið 1964. Þá fæddust
30 mjög heyrnarskert börn, en á-
lika fjöldi stundaði þá nám i
gamla heyrnleysingjaskólanum I
Stakkholti 3. Var þar með i al-
gjört óefni komið, þvi að gamli
skólinn var þá þegar yfirfullur og
engar horfur á, að mögulegt væri
að taka á móti öllum þeim fjölda,
sem þarna bættist við, en skóla-
skylda heyrnardaufra barna
hefst við fjögurra ára aldur.
Foreldrafélagið var, allt frá
upphafi, mjög virkt I baráttunni
fyrir bættum hag heyrnardaufra.
Oruggt má telja, að það átti mik-
inn þátt i þvi, að nýi skólinn við
öskjuhlið var byggður. Bygging
skólans er að líkindum stærsti
þátturinn i baráttunni fyrir bætt-
um hag, þvi að hann er afar full-
kominn og vel búinn tækjum. Þar
stunda nú nám u.þ.b. 60 nemend-
ur, og geta börn utan af landi búiö
þar i heimavist.
Samstarf með styrktarfélögum
heyrnardaufra á Norðurlöndun-
um hefur verið mjög mikið, en Is-
land hefur ekki tekið raunhæfan
þátt I þvi, fyrr en nú allra siðustu
Frh. á bls. 15
Finnski heyrnleysingjapresturinn Eino Savisaari kennir Sigurbirni
Einarssyni biskupi að segja amen á táknmáli Timamynd: Gunnar.
Slökkvilið og lögregla:
Allsherjarútkall
— af því að næturvörðurinn
í Stjórnarróðinu kveikti sér í vindli
GB —Ailflestar bifreiðir lögreglu
og slökkviliðs þustu um miðbæj
inn i Reykjavikréttcftir miðnætti
DÝRASTI HEST-
UR Á ÍSLANDI
JH—Reykjavik — Þetta er
fjögurra vetra gamall stóð-
hestur, sem ég keypti norður I
Eyjafirði, og fyrir hann borg-
aði ég fjögur hundruð þúsund
krónur út I hönd, og auk þess
lét ég i milligjöf þrjá fola,
fjögurra til fimm vetra
nokkuð tamda. Ég vil ekkert
um það segja, hvort þetta er
dýrasti hestur á iandi hér —
menn geta reiknað hve hátt
þeim sýnist verðið hafa verið I
heild.
Þetta sagði Sigurbjörn
Eiriksson framkvæmdastjóri,
er Tlminn spurði hann hvort
rétt væri, að hann hefði fest
kaup á dýrasta stóðhesti, sem
um gæti á íslandi.
— Hesturinn er frá hjónum i
Ytra-Dalsgerði i Saurbæjar-
hreppi, sagðir Sigurbjörn, enn
fremur, og hún heitir
Jakobína Sigurvinsdóttir,
konan, sem ég keypti hann af,
Hann er frá Ytra-Dalsgerði að
móðurkyni, en þaðan hefur
komið margt góðra hesta.
Faðir þessa hests er Sörli
frá Sauðárkróki, eign Sveins
Guðmundssonar, einhvers
mesta hrossaræktarmanns
landsins. Á sýningu á Vind-
heimamelum i sumar fékk
Sörli önnur verðlaun stóð-
hesta, sem sýndir voru með
afkvæmum, en móðir hans,
Siða, varð þar efst á af-
kvæmasýningu. Ég á dálitið af
stóði, sem ég hef flest austur I
Rangárvallasýslu, og mig
hefur lengi langað til þess að
eignast stóðhest af hrossakyni
Sveins. Nú held, ég, að ég hafi
fengið það bezta, sem völ var
á, og ég vonast til að það gefi
góða raun, að láta þennan
stóðhest blanda blóði við
hryssurnar minar.
I fyrrinótt, með sirenurnar á
fullu. Varð jf þessu heljarmikiil
hávaði, og dreif þegar að fjölda
fólks, sem leið átti um miðbætinn
á þessum tima. Bifreiðirnar
héldu að stjórnarráðshúsinu við
Lækjargötu, og slökkviliðsmenn
með reykgrimur og I fuilum
skrúða hlupu upp að húsinu.
Það kom þó fljótlega i ljós að
enginn eldur var laus i húsinu og
var þvi farið að athuga málið og
talað við næturvörðinn sem hafði
kallað út lögreglu, sem siðan
gerði slökkviliöinu viðvart.
Sagðist honum þannig frá, að
allt i einu um rúmlega tólf-leytið,
hefðu brunabjöllur hússins byrjað
að hringja og gat næturvörðurinn
ekki gert sér grein fyrir hvar
eldur væri i húsinu og hringdi
þegar á lögreglu.
Þegar málið var svo athugað
nánar, kom i ljós, að nætur-
vörðurinn hafði kveikt sér i
vindli, sett hann i öskubakka á
borði sem var rétt við einn af
hinum fullkomnu reykskynjurum
i húsinu, sem þegar setti
brunabjöllur hússins i samband.
Það með öðrum orðum, reykur
frá vindli næturvarðarins, sem
kallaöi allan bifreiðaflotann og
alla slökkviliðsmenn sem á vakt
voru, á vettvang. Einnig var hinn
nýi hjartabill með i förinni.
Reykskynjarar þessir, eru
mjög nákvæmir, og eru þeir t.d. i
öllum sjúkrahúsum og skólum,
ásamt flestum stórum
byggingum i borginni, en þeir eru
margir hverjir tengdir beint til
slökkvistöðvarinnar, þar sem
strax er hægt að sjá þegar eldur
brýzt út.
Það hefur t.d. komið fyrir á
Kleppi, að þegar starfsfólk var að
rista sér brauð, var það nóg til að
setja brunaboðann i samband. 1
Faxaskála, vörugeymslu,
Eimskip, er ekki hægt að láta
ökutæki, sem ganga fyrir bensini
eða disel oliu, aka um skálann,
þvi útblásturinn i ökutækjunum
myndi strax setja reykskynjar-
ana i gang.
Almennur
stjórnmála-
fundur
Framsókn-
arfélaganna
Framsóknar félögin I
Reykjavik haida aimennan
fund að Hótel Sögu n.k. þriðju-
dag. Á fundinum verður rætt
um stjórnarmyndunina og
viðhorfin framundan.
Frummælandi á fundinum
verður ólafur Jóhannesson,
dóms-og kirkjumálaráöherra.
Fundurinn verður haldinn i
súlnasal hótelsins og hefst kl.
8.30 siðdegis.