Tíminn - 07.09.1974, Blaðsíða 12
12
TÍMINN
Laugardagur 7. september 1974.
r Frank Usher: (*y
A
TÆPU VAÐI
V___________________________________________J
Annar borgaraklæddi lögreglumaðurinn sagði nokkur
orð við ensku flugfreyjuna og fékk henni einhverja
pappira.
Þau voru leidd til sætis lengst f rammi. Annar borgara-
klæddi lögreglumaðurinn tók sér stöðu á gangveginum
og snéri í þau baki, þannig að enginn farþeganna gat
komizt að þeim og aukheldur ekki einu sinni séð þau.
Af Ivélarnar fóru í gang, þau spenntu öryggisbeltin og
óeinkennisklæddu lögregluþjónarnir hurf u aftur i vélina.
Amanda var hljóðlát, starði aðeins tómumaugum útí
loftið.
Óskar laut að henni með aðra hönd hennar í báðum sín-
um.
— Hvernig líður þér?
— Mér er svolítið óglatt.
— Ég skyldi hafa gert hvað sem vera skyldi til þess að
hindra það að þeir gerðu þér þetta, sagði hann. — Þeir
sögðu að ef ég játaði á mig morðið á Nickolai, mundu
þeir hætta við að senda þig til Kaltenburg. Ég varð þess
vegna að játa á mig morðið, þótt það væri ósatt, því allt
vildi ég gera til þess að bjarga þér. En þeir<eituðu að
hlusta á mig.
Hún hristi höfuðið.
Vanguard-flugvélin var nú hætt að titra og sveif nú
mjúkt yfir Munchen. Þau virtu fyrir sér hið mikla
Ijóshaf borgarinnar út um gluggann á meðan flugvélin
hækkaði stöðugt flugið.
Nú kom flugfreyjan til þeirra með ósviknu flug-
f reyjubrosi.
— Hvenær erum við í Kaltenburg? spurði Óskar. —
Hve langur tími er eftir?
Flugfreyjan horfði á þau undrandi.
— Við erum ekki að fara til Kaltenburg, svaraði hún. —
Við erum á leið til Lundúna og verðum þar eftir tvær
klukkustundir.
Þau störðu á hana og trúðu nú ekki lengur sínum eigin
eyrum.
— Ég er með vegagréfin ykkar og alla aðra pappíra
sem með þarf, sagði hún.
— En ég skil ekki.. Óskar stamaði. — Ég hélt.
Nú varð bros hennar persónulegra og hlýrra.
— Ég held að ég skilji hvernig ykkur er innanbrjósts.
Ég er alveg viss um að þið viljið heldur fara til Lundúna.
Andlit Óskars bókstaf lega sprakk í breiðu brosi. Hann
hefði getað hoppað hátt í loft upp.
— Hvað haldið þér? En við höfum enga farseðla, við
vorum alveg óundirbúin.
Flugfreyjan beygði sig og horfði framan í Amöndu. —
Ungfrú Curzon, er allt í lagi með yður.
Amanda hafði falið andlitið í höndum sér, Herðarnar
gengu í bylgjum. Hún gat ekki að því gert. Hugarléttirinn
var svo áhrifamikill.
Óskar tók utan um hana og hún faldi andlitið við öxl
hans.
— Má bjóða ykkur koníak? spurði flugfreyjan.
— Við þökkum f yrir, sagði Óskar. — Og gosdrykk með.
Nú líður henni betur svo ekkert liggur á.
Amanda jafnaði sig furðu fljótt.
— Mér þykir þetta leiðinlegt, Óskar, en ég gat ekki
gert að því. Þetta var eins og að vakna af hræðilegum
draumi. Ég missti alveg máttinn og gráturinn var eina
lausnin.
— Þetta er allt í lagi, sagði hann og þrýsti henni að sér.
Hún settist upp og fór að snyrta sig.
— Ég skil bara ekki hvernig þetta er alltsaman, sagði
hann. Hvers vegna senda þeir okkur til Lundúna í stað
Kaltenburg.
— Það skiptir víst ekki máli, fyrst við erum sloppin úr
mestu vandræðunum.
— Gaman hefði ég að vita hvað þeir vilja okkur í
Lundúnum, sagði hann.
— Þeir hafa ekkert á okkur þar, svo ég fæ ekki skilið
hvað það getur verið.
— Einhver hlýtur að hafa gengið fram fyrir skjöldu
okkar vegna, sagði Óskar. — Samkvæmt því sem Braun
sagði vorum við búin að vera, hvernig svosem málokin
yrðu. Hann taldi okkur ekki eiga nokkra útgönguleið.
— Eitt er þó alveg víst — þeir hafa ekki gert þetta til
þess að fá okkur stjörnuhlutverkin á Palladium.
Þeqar flugfreyjan kom með koníakið var Amanda
alveg búin að ná sér.
— Ég bið flugfreyjuna afsökunar, en ég fékk víst
aðkenningu af taugaáfalli.
— Ekkert að afsaka, ég skil yrður ungf ru Curzon. Get ég
nokkuð fyrir ykkur gert?
— Nei, þökkum. Nú líður okkur vel því við fljúgum í
rétta átt.
— Eitt er enn, sagði flugfreyjan með sinni siðfáguðu
rödd, — ég var beðin að mælast til þess að þið töluðuð
sem minnst við hina farþegana.
— Hvers vegna það? spurði Óskar.
— Því get ég ekki svarað, en mér skildist að þið
munduð skilja ástæðuna sjálf.
— Verið bara rólegar, sagði Amanda. — Ég held að
enginn sé hér um borð sem við höf um sérstaka löngun til
þess að tala við.
Flugfreyjan fór sína leið.
— Hvað er það sem við erum að halda uppá, Óskar?
111
iilll
LAUGARDAGUR
7. september
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Tónleikar: a. Don-kó-
sakkakórinn syngur rúss-
nesk lög. b. Rússnésk bala-
lajkahljómsveit leikur.
14.00 Vikan sem var Páll
Heiðar Jónsson sér um þátt
með ýmsu efni
15.00 Miðdegistónleikar
Útvarpshljómsveitin i
Berlin leikur Introduction
og Allegro eftir Maurice
Ravel, Nikanor Zabaleta
leikur á hörpu, Ferenc Fri-
csay stjórnar. I Musici leika
Oktett i Es-dúr op. 20 eftir
Felix Mendelssohn-Barth-
oldy.
15.45 A ferðinni ökumaður:
Árni Þór Eymundsson.
(16.00 Fréttir. 16.15 Veður-
fregnir).
16.30 Horft um öxl og fram á
við Gisli Helgason fjallar
um útvarpsdagskrá siðustu
viku og hinnar næstu.
17.30 Söngvar I léttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Kólumbiukvöld a. Þórir
Ólafsson hagfræðingur talar
um land og þjóð. b. Flutt
þjóðleg tónlist og lesin smá-
saga.
20.50 Sönglög eftir TURE
Rangström Elisabeth
Söderström, Erik Saeden,
Aase Nordmo Lövberg, Joel
Berglund og Kerstin Meyer
syngja.
21.10 Kirkjugarðsævintýr
smásaga eftir Guy de
Maupassant Aðalgeir
Kristjánsson Islenskaði.
Guðrún Guðlaugsdóttir les.
21.30 Tveir konsertar fyrir
mandólin og strengjahljóð-
færi Alessandro Pitelli og I
Solisti Veneti leika Claudion
Scimone stj. a. Konsert fyr-
ir mandólin og strengjasveit
eftir Domenico Caudiso. b.
Konsert I G-dúr fyrir
mandólin, tvær fiðlur og
kontrabassa eftir Giuseppi
Giuliano.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Danslög
23.55 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
LAUGARDAGUR
7. september,1974
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Duke Ellington. Sjón-
varpsupptaka frá jasstón-
leikum i Bandarikjunum.
Auk Ellingtons kemur fram
á þessum hljómleikum
fjöldi af frægu listafólki, þar
á meðal Sammy Davis.
Þýðandi Jón O. Edwald.
21.35 Borgir. Kanadiskur
fræðslumyndaflokkur um
borgir og borgarlif, byggður
á bókum eftir Lewis Mum-
ford. 6. þáttur. Þýðandi og
þulur Ellert Sigurbjörnsson.
22.00 Rógburður. (The Childr-
en’s Hour). Bandarisk bió-
mynd frá árinu 1961. Leik-
stjóri William Wyler. Aðal-
hlutverk Audrey Hepburn,
Shirley McLaine og James
Garner. Þýðandi Guðrún
Jörundsdóttir. Myndin
greinir frá tveimur ungum
kennslukonum, sem koma á
fót einkaskóla og reka hann
af miklum dugnaði. Þær
njóta i fyrstu mikilla vin-
sælda hjá foreldrum jafnt
sem nemendum, en fyrr en
varir skellur ógæfan yfir.
Ein af námsmeyjunum
breiðir út sögu, þar sem gef-
ið er i skyn, að samband
þeirra kennslukvennanna sé
ekki að öllu leyti heilbrigt.
23.45 Dagskrárlok