Tíminn - 07.09.1974, Síða 5

Tíminn - 07.09.1974, Síða 5
Laugardagur 7. september 1974. TÍMINN 5 Geröur Hjörleifsdóttir viö eitt verkanna á sýningunni, Ensk sýning hjá Heimiiisiðnaðarfélagi íslands Hugmyndaauðgi í hannyrðum SJ-Reykjavik.Vefum, saumum, hnýtum, nefnist sýning sem verður opnuð á laugardaginn kl. 3 i húsnæði Heimilisiðnaðarfélags íslands, Hafnarstræti 3. Þetta er ensk sýning, sem er vissulega þess virði að listunnendur og fólk, sem hefur hannyrðir að tóm- stundastarfi, fari að sjá. Á sýningunni er útsaumur úr margvislegustu efnum, og gamalkunnar aðferðir notaðar á nýstárlegan hátt, þar eru enn- fremur hnýtt teppi og vefnaður. Einkenni á sýningarmunum er að höfundar þeirra eru að skapa eitt- hvað sjálfir en fara ekki eftir fyrirmyndum. Embroiderers’ Guild er áhuga- mannafélag um útsaum og skildar handiðagreinar. Félagið hefir aðsetur i London og er félagatalan liðlega 4 þús. Megin markmið félagsins er að leið- beina, kenna og hvetja alla sem áhuga hafa á útsaumi. Félagið gengst einnig fyrir kennslu eða námskeiðum i stórum stil, sýningum, gefur út bækur og timarit, og efnir til samkeppni. Sýning þessi sem Embroiderers’ Guild var svo vinsamlegt að lána Heimilisiðnaðarfélagi Islands er bæöi frá einstökum félögum innan samtakanna og úr einka- safni þess. Sýningin er fyrst og fremst til að kynna hvað er að gerast i nútima útsaumi i Bret- landi svo og ef hún mætti verða einhverjum hvatning eða örvun til að taka sér nál i hönd og rifja upp gömlu útsaumssporin með nýjum og margvislegum garn- tegundum i fjölbreyttari efni en við eigum að venjast. Um 20 manns úr félagi þessu koma til íslands innan fárra daga. Sýning þessi er einn liður i starfi Heimilisiðnaðarfélags íslands, en félagið hefur áður fengið erlendar sýningar til landsins. t húsnæði Heimilisiðnaðar- félags tslands i Hafnarstræti 3, þar sem námskeið félagsins eru haldin, er aðstaða fyrir sýningar, og stefnir félagið að þvi að halda þar smærri sýningar, bæði inn- lendar og erlendar þegar nám- skeiðin eru ekki i gangi Sýningin verður opin i 14 daga eða til 21. september frá kl. 1400- 2200. SNOGH0J Nordisk folkehojskole (v/dengl. Lillebælts- broen) 6 mdrs. kurs fra 1/11 send bud eftir skoleplan DK7000 Fredericia, Danmark tlf.: 05-95 22 19 Athugið breyttan sýningartíma NÝ AAYND Sýningar: Laugardag og sunnudag kl. 6,8 og 10. Barnasýning kl. 4. Mánudag til föstudags kl. 8 og 10. Bragi Ásgeirsson listmálari hefur opnað sýningu á nokkrum nýjustu listaverka sinna I Norræna húsinu. Það hcfur jafnan þótt nokkrum tlð- indum sæta, þegar Bragi sýnir verk sin, en hann er I fremstu röð lista- manna. Á meðfylgjandi mynd sést Bragi ásamt tveimur verkum sln- um. — Timamynd: Róbert. Bjarni Jónsson sýnir í Keflavík BH—Reykjavík — 1 dag, laugar- dag opnar Bjarni Jónsson, list- málari, málverkasýningu i húsa- kynnum Iðnaðarmannafélagsins i Keflavik. Sýningin verður opin kl. 4-10 laugardaginn 7. og á sama tlma sunnudaginn 8. september. Næstu helgi á eftir verður sýning- in aftur opin laugardag og sunnu- dag kl. 4-10, og lýkur henni á sunnudagskvöld. A sýningunni i Keflavik sýnir Bjarni Jónsson um 50 myndir, sem hann hefur gert siðustu þrjú árin. Bjarni er viðkunnur sem listmálari og teiknari, tók fyrst þátt i sýningu aðeins átján ára gamall árið .1952, og hefur sýnt viða siðan, bæði hérlendis og erlendis. Nú sem stendur eru þrjár myndir Bjarna á farand- sýningu i Bandarikjunum. Bjarni er þó ef til vill kunnastur fyrir myndskreytingar sinar og teikningar. Hann hefur mynd- skreytt fjölda námsbóka og kennsluspjöld bækur fjölmargar og um nokkurra ára skeið var hann aöalteiknari Spegilsins, enda gæddur ágætu skopskyni, sem kemur vel fram i myndum hans. Myndirnar, sem sýndar eru i Keflavik á þessari sýningu, hafa sérstaklega verið valdar með það fyrir augum að sýna sem flestar hliðar á list Bjarna Jónssonar. Stúdentadeilan færeyska: Neitað um stúdents- skírteini FÆREYSKU menntaskóla- nemarnir tveir, sem neituðu að tala dönsku á stúdentsprófi i vor, fá ekki stúdentspróf sitt viðurkennt, cnda þótt þýðing hafi verið á segul- bandsupptöku frá prófinu. Þetta hefur fræðslumála- stjórinn danska tilkynnt skólameistara menntaskólans i Heydölum við Þórshöfn. Aftur á móti hefur skólameist- aranum verið heimilað að undirrita skjal, þar sem getið sé einkunna þeirra, er þau Elin Henriksen og Hermann Hermansen fengu. Þessi úrskurður er liklegur til þess að valda nýjum ill- deilum og draga dilk á eftir sér i Færeyjum. Tilboð óskast i nokkrar fólksbifreiðir, Pic Up bifreiðir, vörubifreið og Pic Up bifreið með 4ra hjóla drifi, er verða sýndar að Grensás- vegi 9 þriðjudaginn 10. september kl. 12-3. Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri klukkan 5. Sala Varnarliðseigna. VIUKIVI ÞAÐ ER I S.EM ÚRVALIÐ ER 'ranQ Veljið vegg fóðrið og málning una á SAMA STAÐ [Mai 1 fair L ‘ IKKXI f eggfóður- og málningadeild Ármúla 38 - Reykjavík Simar 8-54-66 & 8-54-71 Op/ð til 10 á föstudagskvöldum og hádegis á laugardögum

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.