Fréttablaðið - 05.01.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 05.01.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI MIÐVIKUDAGUR SUÐRÆNT OG SEIÐANDI Hispánica, menningarfélag spænskumæl- andi á Íslandi og Listvinafélag Seltjarnar- nesskirkju stendur fyrir gítartónleikum í suð- rænum anda í Seltjarnarneskirkju klukkan átta í kvöld. Arnaldur Arnarson gítarleikari flytur tónlist frá Argentínu og Spáni. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG 5. janúar 2005 – 3. tölublað – 5. árgangur ÁGREININGUR UM NEFND Flokks- foringjar og ráðherrar voru í gær skipaðir í nefnd til að endurskoða stjórnarskrá. For- maður Samfylkingarinnar undrast að ein- ungis eigi að endurskoða hlutverk forseta og Alþingis. Sjá síðu 2 BORGIN SKOÐI KAUPIN Hart var tekist á í borgarstjórn Reykjavíkur um til- lögu sjálfstæðismanna um úttekt á rekstri fjarskiptafyrirtækja Orkuveitunnar. Þess í stað var samþykkt tillaga um að láta gera úttekt á fjárfestingum fyrirtækja í opinberri eigu. Sjá síðu 6 VERKAMENN SNUÐAÐIR Laun er- lendra starfsmanna portúgalskra starfs- mannaleigufyrirtækja við Kárahnjúkavirkjun eru að jafnaði 50 þúsund krónum undir lágmarkskjörum samkvæmt Virkjunarsamn- ingi. Sjá síðu 2 UNGMENNI DREPIN Ellefu ára dreng- ur var meðal látinna ungmenna eftir skotárás Ísraelshers úr skriðdreka í gær. Alls létust sjö Palestínumenn í einni árás og einn í annarri. Ísraelsher segist vera að stemma stigu við eldflaugaárásum. Sjá síðu 6 Kvikmyndir 26 Tónlist 26 Leikhús 26 Myndlist 26 Íþróttir 22 Sjónvarp 28 BJARTVIÐRI AUSTAN TIL annars víða él. Hiti við frostmark í dag en heldur kaldara á morgun. Sjá síðu 4 Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 Morðið á Sri: Þyngstu refs- ingar krafist ÁKÆRÐUR Hákon Eydal sem varð Sri Rahmawati, barnsmóður sinni og fyrrum sambýliskonu, að bana hefur verið ákærður af ríkissaksókn- ara. Í ákæru er krafist þyngstu refsingar sem lög leyfa. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Hákon banaði Sri á heimili sínu sunnudagsmorguninn fjórða júlí. Hann hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan þriðju- daginn sjöunda júlí. Fyrstu þrjár vikurnar þagði Hákon þunnu hljóði í yfirheyrslum hjá lögreglu. Síðan sagði Hákon lög- reglu að hann hefði varpað líki Sri í sjóinn við Presthúsatanga á Kjalarnesi. Rannsókn lögreglu á vettvangi studdi ekki frásögn Hákonar og benti hann lögreglu að lokum á hraunsprungu í Al- menningi sunnan við Hafnar- fjörð þar sem lík Sri fannst. ■ VESTFIRÐIR Um 600 metra breitt snjóflóð féll í gærmorgun í Hnífs- dal. Það hreif með sér gamlan bæ á býlinu Hrauni og eyðilagði, skemmdi að hluta nýlegt hús ábú- andans og braut sér leið inn í sex íbúðir í tveimur fjölbýlishúsum við götuna Árvelli í bænum. Hús- in höfðu verið rýmd. Þrjátíu björgunarsveitarmenn unnu við mokstur snjós út úr hús- unum eftir að snjóflóðaathugun- armaður hafði gengið úr skugga um öryggi svæðisins. Snjóflóðið eyðilagði spennistöð Orkubús Vestfjarða og var rafmagnslaust fram eftir degi á svæðinu. Þrjú hús í Hnífsdal og nítján í Bolungarvík bættust við þau sem höfðu áður verið rýmd. Alls hafa rúmlega 140 manns yfirgefið heimili sitt á svæðinu. Hættuá- standi á Patreksfirði og Tálknar- firði hefur verið aflýst. Halldór Halldórsson, bæjar- stjóri og formaður almannavarna- nefndar, segir húsin staðsett vest- an við aðalbyggð bæjarins, rétt utan svæðis sem talið hafi verið til hættusvæða í kjölfar snjóflóð- anna 1995. Raðhúsin og blokkin sem snjóflóðin hafi lent á séu í eigu Fasteigna Ísafjarðarbæjar ehf. Aðeins hafi átt að búa í þeim út þetta ár. Markús Magnússon íbúi Ár- valla 6 hafði ásamt konu sinni og barni verið tvo sólarhringa að heiman. Hann leit á skemmdirnar í gær. „Íbúðin okkar er ekki verst farin. Snjór kom inn á neðri hæð- ina og hálffyllti hjá okkur stofuna. Lítið annað virðist skemmt hjá okkur en rafmagnstæki og dót eru rennandi blaut og örugglega ónýt.“ Markús segir óljóst hvort þau fái að snúa aftur heim: „Við heyrð- um hjá björgunarsveit og lögreglu að okkur yrði ekki leyft að búa í húsunum.“ Páll Hólm, í stjórnstöð björg- unarsveitarinnar Tindum í Hnífs- dal, segir skemmdir á íbúðunum mismiklar. Gler og svalahurðir hafi látið undan flóðinu: „Við erum þrjátíu að moka út. Svo verður settur krossviður fyrir glugga og hurðir. Við verðum langt fram á nótt að því,“ sagði Páll í gærkvöldi. Almannavarnanefnd varar fólk við ferðum utan snjóflóðagarða á Flateyri. Mikill snjór hafi safnast í Skollahvilft ofan Flateyrar. Sjá einnig á síðu 4 - gag Snjóflóð lenti á húsum í Hnífsdal Snjóflóð féll á býli við Hnífsdal, blokk og raðhús. Húsin höfðu verið rýmd en eignatjón er mikið. Óljóst er hvort áfram verði búið í húsunum. Um 140 manns hafa yfirgefið heimili sitt í Ísafjarðarbæ og Bolungarvík. ● dansk-íslenski þátturinn slær í gegn Þjóðverjar hrifnir af Elvu Ósk Örninn: ▲ SÍÐA 30 ● heilsa Tekur framhaldsskólann á tveimur árum Ragnhildur Sigurbjartsdóttir: ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS 25-50 ára Me›allestur dagblaða Allt landið Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups október '04 71% 46% MorgunblaðiðFréttablaðið Indónesía: Börnin seld JAKARTA, AFP Barnahjálp Samein- uðu þjóðanna sagði í gær mikla hættu á að glæpamenn sem smygla fólki ræni börnum í Aceh, Indónesíu, sem nú eru heimilislaus eða munaðarlaus vegna flóðbylgjunnar. Talsmaður Barnahjálparinnar, John Budd, sagði að þegar væri eitt staðfest dæmi þess að barni hefði verið smyglað af svæðinu í mansal. Jafnframt sagði hann að skrif- stofa þeirra í Malasíu hefði fengið auglýsingu um 300 mun- aðarleysingja frá Aceh, á aldrin- um 3 til 10 ára, sem hægt væri að kaupa. Því hafa stjórnvöld í Indónesíu sett ferðabann á öll börn frá Aceh, sem ferðast án foreldra sinna. ■ SJÁLFBOÐALIÐAR VIÐ HREINSISTÖRF Á SÚMÖTRU Sífellt finnast fleiri lík í Indónesíu, en hér má sjá sjálfboðaliða úr röðum heima- manna í Banda Aceh, færa lík vafið í plast upp á vörubílspall í gær. Í Indónesíu einni var í gær staðfest að 94.000 hefðu látist. Óttast er að sú tala eigi eftir að hækka til muna. HÖRMUNGAR, AP/AFP Flugslys í Indónesíu og rigningar í Sri Lanka hafa hamlað alþjóðlegu hjálpar- starfi á stöðum sem einna verst urðu úti í flóðunum sem fylgdu í kjölfar jarðskjálftans mikla á annan í jólum. Sameinuðu þjóðirnar vara við því að tölur um látna eigi eftir að hækka um tugi þúsunda þegar frek- ari upplýsingar berast frá svæðum sem enn á eftir að kanna betur. Opinberar tölur um fjölda látinna nálgast nú 150 þúsund. Jan Egeland, yfirmaður hjálp- arstarfs á vegum Sameinuðu þjóð- anna í Indónesíu, segir við því að búast að yfir helmingur 50 þúsund íbúa í bænum Meulaboh á Súmötru hafi farist. „Við erum loks fær um að koma umtals- verðri hjálp til Aceh og beinum nú sjónum að vesturströnd Norður- Súmötru,“ sagði Egeland. „Mörg þorpanna á svæðinu eru horfin þannig að ekkert er eftir.“ Í gær stöðvaðist flug um Banda Aceh flugvöllinn í Indónesíu í 15 klukkustundir vegna þess að þar rákust saman Boing 737 flutninga- vél með hjálpargögn og buffaló- naut. Flugvöllurinn er miðstöð hjálparstarfsins í Indónesíu og setti slysið verulegt strik í reikn- inginn í þann mund sem skriður var að komast á hjálparstarfið. Um borð voru læknar og sjálf- boðaliðar auk hjálpargagna. Hjálparstarf stöðvaðist þó ekki alveg á meðan því áfram var hægt að nota þyrlur til að dreifa hjálp- argögnum. Sjá síður 8 og 10 AP M YN D /E U G EN E H O SH IK O Mynd komin á hjálparstarf í Indónesíu: Óttast að tala látinna hækki til muna DAGAR EFTIR AF JANÚARTILBOÐI TOYOTA 27 Avensis Tilboðsverð 2.390.000 kr. FRÁBÆR TILBOÐ! SÉRBLAÐ FYLGIR HÁKON EYDAL

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.