Fréttablaðið - 05.01.2005, Side 4

Fréttablaðið - 05.01.2005, Side 4
4 5. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR Sunnanverðir Vestfirðir: Fáir út fyrir hússins dyr SNJÓFLÓÐAHÆTTA „Það lægði aðeins í gærkvöldi en svo kom aftur smá hvellur í morgun og það er rétt hægt að komast um göturnar, en ekki mikið meira en það,“ segir Guðmundur Ingþór Guðjónsson, lögregluþjónn á Patreksfirði, um veðurfarið. „Við höfum þó ekki þurft að aðstoða fólk við að kom- ast á milli staða, það hefur allt sloppið,“ bætir hann við. Rýma þurfti íbúðarhús á Pat- reksfirði og Tálknafirði og lítil snjóflóð hafa fallið bæði á Pat- reksfirði og Bíldudal. Hættuá- standi var aflýst á Tálknafirði klukkan þrjú í gær og um klukkan hálf sex á Patreksfirði. Viðbúnað- arstig var áfram á svæðinu og fylgst er grannt með snjóalögum. Pósthúsið á Patreksfirði var lokað á mánudag vegna ófærðar en opnað aftur í gær. Þá var mat- vöruverslun bæjarins, Kjöt og Fiskur, lokuð eftir hádegi á mánu- dag en opin í gær. Á norðanverð- um Vestfjörðum hefur borið á vöruskorti en Einar Ásgeir Ás- geirsson, eigandi Kjöts og fisks, segir ekki illa komið fyrir sér. „Ég er í góðum málum og á von á sendingu með flutningabíl í kvöld.“ Hann segir þó að lítið sé að gera á meðan veðrið er svona slæmt og fáir á ferli. - bs Mjólkur- og brauðlaust í Bolungarvík 92 íbúar hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Bolungarvík en alls voru 26 hús rýmd í bænum. Mjólk og brauð kláraðist í verslunum á mánudag. Ófært hefur verið til Bolungarvíkur frá því á sunnudagskvöld. SNJÓFLÓÐAHÆTTA Rýma þurfti nítján hús í Bolungarvík í gær en fyrir var búið að rýma sjö hús í bænum og hafa alls 92 þurft að yfirgefa heimili sitt. Flestir leituðu á náðir vina og ættingja. Gylfi Þór Gíslason, varðstjóri í Bolungarvík, segir að athugað verði í dag hvort fólk fái að fara heim til sín. Eins verður athugað hvort Óshlíðin verði rudd í dag en hún hefur verði lokuð vegna óveð- ursins og snjóflóðahættu. Olgeir Hávarðarson, meðeigandi verslun- ar Bjarna Eiríkssonar, segir bæði mjólk og brauð uppurið í bænum, hann fékk síðast mjólk í verslun- ina á fimmtudaginn fyrir tæpri viku síðan. Fyrst eftir að mjólkin kláraðist á mánudag keypti fólk kaffirjóma, kókómjólk og G-mjólk en í gær kláruðust þær birgðir líka. Olgeir segir lítið eftir nema safa og gos sem ætti þó að duga í nokkra daga. Ari Hólmsteinsson, íbúi við Traðarland 18 í Bolungarvík, þurfti að fara að heiman með fjöl- skyldu sína vegna snjóflóðahættu á sunnudag. „Auðvitað fer maður um leið og það er einhver hætta, það er mín skoðun. Þó veit ég að einhverjir nágranna minna eru ekki sammála,“ segir Ari en hann er svo heppinn að systir hans býr í Bolungarvík. Hún er með aukaher- bergi sem Ari, eiginkona hans og níu ára sonur þeirra hafa til af- nota. Ari hefur ekki komist á vinnustað sinn frá áramótum en hann vinnur hjá Símanum á Ísa- firði. „Ég þarf bara netsamband til að geta unnið og er búinn að koma mér upp vinnuaðstöðu á stofuborð- inu hjá systur minni,“ segir Ari. Þegar hann fór að heiman ásamt fjölskyldu sinni tóku þau með sér svolítið af fötum og annað dót sem þau þurfa til daglegra nota. Hann segir veraldlegu munina ekki skipta máli, þá sé hægt að finna aftur eða bæta. hrs@frettabladid.is Vestfirðir: Mörg hús tóm í nótt RÝMINGAR 138 manns höfðu ekki fengið að fara til síns heima í gær vegna snjóflóðahættu á Vestfjörð- um. 92 á Bolungarvík en þar þurftu þeir fyrstu að yfirgefa heimili sitt á sunnudag. Í umdæmi lögreglunnar á Ísafirði höfðu alls 46 þurft að rýma hús sín, flestir í Hnífsdal eða 35 manns. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar á Ísafirði þótti ekki hægt að treysta veðurspánni fullkomlega og því hafi fólkið ekki fengið að fara til síns heima. Strax nú í morg- unsárið verður athugað hvort óhætt verði að aflétta hættuástandinu. - hrs ■ LÖGREGLUFRÉTTIR Arnar Andrésson bílstjóri: Hálfan sólarhring til Akureyrar ÓFÆRÐ „Þetta var ekkert, ég hef komist upp í það að vera 55 tíma í bílnum á leiðinni norður,“ segir Arnar Andrésson flutningabíl- stjóri, um hrakfarir sínar í óveðrinu í gær. Arnar flytur Fréttablaðið og DV norður í land. Arnar lagði af stað frá Reykjavík norður til Akureyrar þrátt fyrir ófærðina klukkan tvö í fyrrinótt og náði á leiðarenda um hálfum sólarhring seinna. „Þetta gekk bara ljómandi vel. Ég fór náttúrlega hægt yfir og stoppaði dálitla stund á Öxna- dalsheiði. Það voru flutninga- bílar þar þvers og kruss sem voru fastir þar síðan snemma um morguninn.“ Arnar komst loksins á áfangastað klukkan þrjú í gær. ■ KAUP Gengisvísitala krónunnar 113,59 +0,51% Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR SALA GENGI GJALDMIÐLA 04.01.2005 GENGIÐ SNJÓFLÓÐ HAFA FALLIÐ VÍÐA Veðurstofu Íslands hefur borist yfir 40 tilkynningar um snjóflóð síðan á nýársdag, flest hver á Vestfjörðum en líka á Norðurlandi. Vitað er að snjóflóð hafa fallið á Patreksfirði, Bíldudal, Bolungarvík, Súgandafjörð, Skutulsfjörð, Ísafjörð, Hnífsdal. Káradal og í Ólafsfirði. Þar að auki hafa íbúðarhús verið rýmd vegna snjóflóðahættu á Patreksfirði, Tálknafirði, í Dýrafirði og Önundarfirði, Bolungarvík, Hnífsdal og Ísafirði. Súðavík: Matur flutt- ur sjóleiðina ÓVEÐUR Björgunarskipið Gunnar Friðriksson fór í gær með mjólk og brauð sjóleiðina til Súðavíkur. Sex strandaglópar sem höfðu verið þar veðurtepptir frá því á sunnudag fengu far til Ísafjarðar. Pálmi Stefánsson, hjá Lands- björgu, segir þá einnig hafa farið fyrir Símann í átt að Arnarnesi til að sjá hvort hægt væri að koma við- gerðarmönnum að endurvarpa þar. „Það var ekki hægt að komast að landi vegna brims. Viðgerðir verða að bíða betri tíma.“ Hann taldi símasambandslaust við Súðavík og Ísafjarðardjúp og bara langbylgju- sendingar Útvarps á Ísafirði. - hrs M YN D /A R I H Ó LM ST EI N SS O N Vestfirðir: Mokstur víða hafinn ÓFÆRÐ Mokstur hófst í gær á sunnanverðum Vestfjörðum að sögn Hjörleifs Ólafssonar hjá Vegagerðinni. Í gær var um tíma aðeins fært til Ísafjarðar á norðanverð- um Vestfjörðum og var byrjað að moka inn að Hnífsdal. Hjörleifur segir leiðina norð- ur hafa verið ófæra bæði í gær og í fyrradag. Víða var ófært á Norðurlandi í gær og þurfti sumstaðar að bíða fram eftir degi með mokstur vegna veðurs. Flutningabíll frá Flytjanda sat fastur við Gljúfurárgil sunn- an við Blönduós í gærmorgun og myndaðist þar töluverð umferð- arteppa af þeim sökum. - hrs FRÁ PATREKSFIRÐI Flestir halda sig heima fyrir á Patreksfirði enda er fannfergið mikið eins og þessi mynd ber með sér. TÍ Ð IS - P AT R EK SF JO R D U R. IS62,26 62,56 117,96 118,54 83,31 83,77 11,20 11,27 10,11 10,17 9,22 9,27 0,60 0,60 95,60 96,16 ÞRÍR BÍLAR SKEMMDIR Þrír bílar skemmdust en engin slys urðu á fólki í umferðaróhappi á Holta- vörðuheiði um klukkan sjö í gær- kvöldi. Bíl var ekið á annan bíl sem var að draga upp þann þriðja sem hafði hafnað utan vegar á heiðinni. Endaði fyrsti bíllinn einnig á þeim sem verið var að draga. 10. bekkur grunnskóla: Prófum frestað MENNTAMÁL Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að breyta dagsetning- um samræmdra lokaprófa í 10. bekk grunnskóla í vor vegna þeirrar röskunar sem orðið hefur á skólahaldi vegna kennaraverkfalls- ins. Prófgreinar og prófdagar í 10. bekk grunnskóla vorið 2005 verða sem hér segir: Íslenska, mánudagur 9. maí kl. 9.00-12.00. Enska, þriðjudagur 10. maí kl. 9.00-12.00. Stærðfræði, fimmtudagur 12. maí kl. 9.00-12.00. Danska, föstudagur 13. maí kl. 9.00- 12.00. Samfélagsfræði, þriðjudagur 17. maí kl. 9.00-12.00. Náttúrufræði, miðvikudagur 18. maí kl. 9.00-12.00. - ás

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.